Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991.
Viðskipti_____________________________________________________________________________dv
Pétur Blöndal stærðfræðingur:
Stjórnmálamenn verða að
þora að segja: Því miður
- halli ríkissjóðs bráðasti vandinn í íslensku efnahagslífi
Fyrstu þrír mánuðirnir í ár miðað við sömu mánuði í fyrra. Peningalegur
sparnaður er að minnka. Innlán eru að minnka á sama tíma og útlán eru
að aukast.
Pétur Blöndal, stæröfræðingur og
fráfarandi forstjóri Kaupþings, segir
aö hinn gegndarlausi halli ríkissjóðs,
sem nú hafi leitt af sér stórfelldan
yfirdrátt ríkisins í Seðlabanka, sé sá
vandi sem bráöast sé að leysa í ís-
lensku efnahagslífi. „Stjórnmála-
menn geta ekki skotið sér undan því
lengur að taka á þessu máli. Þetta
er þeirra brýnasta verkefni núna.“
Vextirnir hljóta
að hækka og hækka
„Halli ríkissjóðs kom í veg fyrir
vaxtalækkun á síðasta ári og olli
meira að segja ákveðinni vaxta-
hækkun í árslok. í ljósi þess að
sparnaður einstaklinga er aö dragast
saman, og jafnvel stöðvast, er fjár-
magnsmarkaðurinn núna þaninn til
hins ýtrasta. Þegar ríkissjóður er
rekinn með halla við svona aðstæður
hækka vextimir og hækka. Þetta er
náttúrulega hlutur sem stjórnmála-
menn veröa að taka á.“
Afföll húsbréfa vegna
halla á ríkissjóði
Pétur segir að það sé beint sam-
hengi á milli halla ríkissjóðs og
þeirra affalla sem kaupendur hús-
eigna á húsbréfamarkaðnum verða
nú að greiöa.
„Afíoll húsbréfa hafa verið að auk-
ast að undanfórnu og þau eiga eftir
að aukast enn meira á næstunni
verði ekki gripið í taumana. Þetta
stafar af þeirri miklu lánsíjárþörf
ríkisins, sem er vegna hallareksturs-
ins, og eykur heildareftirspurnina
eftir peningum á fjármagnsmark-
aðnum. Á sama tíma virðist fram-
boöið, peningalegur sparnaður
landsmanna, vera að dragast saman.
Þetta dæmi gengur alls ekki upp.“
Á ríkisheimilinu eyða
menn meira en þeir afla
Pétur segir ennfremur: „Á ríkis-
heimilinu eru menn alltaf að eyða
meira en þeir afla. Hins vegar hafa
einstakhngar tekið vel við sér og
breytt um hugsunarhátt. í stað þess
aö halda uppi mikilli eyðslu með
miklum lánum reyna einstaklingar
nú að draga eftir mætti úr eyðsl-
unni, væntanlega vegna hárra vaxta.
En það virðist sem háir vextir hafi
engin áhrif á herrana sem stjórna
Qármálum ríkisins. Þeir taka ekki
við sér þótt vextir hækki. Auðvitaö
Pétur Blöndal stærófræðingur: „Það
er spurning hvenær stjórnmála-
menn þora að segja við kjósendur:
Því miður, við höfum ekki efni á
þessu. Fyrir þessa hræðslu stjórn-
málamanna eru kaupendur fast-
eigna nú að greiða 17 prósent afföll
af húsbréfum."
eiga stjórnmálamennirnir að taka
minna af lánum og skera heldur nið-
ur eyöslu ríkissjóðs."
Þjóðin spyrji hvort hún
hafi efni á gæluverkefnum
„Það er auðvitað gömul tugga aö
það sé miklu auðveldara að eyða pen-
ingum en hætta að eyða þeim. En
auðvitað verður þjóðin að fara að
taka á þessu máli. Þjóðin verður að
spyrja sig hvort hún hafi efni á þess-
um jarðgöngum fyrir norðan og vest-
an, hvort hún hafi efni á hundraða
milljóna króna halla Síldarverk-
smiðja ríkisins vegna mikilla fjár-
festinga fyrirtækisins á undanförn-
um árum. Og svona mætti áfram
lengi telja.“
Því miður, við höfum
ekki efni á þessu
„Stjórnmálamenn eru gjarnir á að
spreða peningum alveg endalaust og
botnlaust. Það er spurning hvenær
þeir hafa þor til að segja hreinlega
við kjósendur: „Því miöur, þetta er
of dýrt. Við höfum ekki efni á þessu.“
Það er einmitt fyrir þessa hræðslu
stjórnmálamanna sem kaupendur
fasteigna og húsbréfaeigendur eru
núna að greiða. Þeir eru að borga 17
prósent afföll vegna þess að stjóm-
málamenn eru alltaf að spreða pen-
ingum skattgreiðenda umfram það
sem þeir fá í skatta. Stjórnmálamenn
eru alltaf að gefa kjósendum gælu-
verkefni en minnast ekki á að gælu-
verkefnin kosta peninga.
Jarðgöng eru auðvitað sjálfsagður
hlutur í augum þeirra sem búa fyrir
vestan en þegar litið er á kostnað
ganganna, miðað við þann fjölda
heimila sem nýtur þeirra, eru þetta
svo óheyrilegar tölur að það dytti
ekki nokkrum manni í hug að fara
út í svona framkvæmir nema af því
að það eru aðrir sem borga."
Annað ástand en í fyrra
Pétur segir ennfremur að ríkissjóð-
ur hafi ekki getað selt spariskírteini
og ríkisvíxla í byrjun ársins vegna
þess að húsbréfin hafi tekið svo mik-
ið til sín, svo og hafi sparnaður
minnkað. Þess vegna hafi ríkið orðið
að hlaupa í Seðlabankann og prenta
peninga.
„í fyrra jókst sparnaður lands-
manna þannig að þótt ríkið kæmi inn
á markaðinn með stórauknum þunga
höfðu sparifjáreigendur við að spara
á móti kröfum og þörfum ríkisins.
Núna hefur sparnaður minnkað.
Þrátt fyrir það heldur ríkið áfram á
sömu braut. Munurinn er bara sá að
það kemur ekki skuldabréfum sínum
út núna nema láta vexti rjúka upp.
Orð viðskiptaráðherra
um engan bráðan vanda
Pétur segir að á ársfundi Seðla-
bankans hafi viðskiptaráðherra, sem
er yfirmaður bankamála, sagt að
næsta ríkisstjórn stæði ekki frammi
fyrir neinum bráðum vanda.
„í fljótu bragöi gætu margir haldið
að þetta væri rétt hjá honum. Það
er ekkert atvinnuleysi, engin verk-
fóll og fiskiskipaflotinn er í góðum
gangi. Málið er hins vegar að hinn
bráöi vandi ríkisstjórnarinnar er
einmitt hinn gegndarlausi og stöðugi
halli ríkissjóðs. Hann er sérstaklega
bráður vegna þess aö nú hefur sparn-
Austurland:
Góður afli netabáta
á Fáskrúðsf irði
Kvótabátur keyptur
til Fáskrúðsfjarðar
Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfiröi:
Nýlega festi útgerðarfélagið
Akkur kaup á 29 tonna stálskipi,
Sigurbjörgu SU 44, sem gert var
út frá Vestmannaeyjum..Skipið
var smíðað á ísafirði 1979 og fylg-
ir því um 150 tonna þorskígildi
auk 40 tonna af kola. Kaupverð
skipsins er um 43 milljónir króna.
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Afli smábáta, sem veiða í net á
Fáskrúðsfirði, hefur verið ágætur að
undanfórnu eða allt að tveimur tonn-
um eftir nóttina.
Netin leggja trillurnar að mestu
gegn!.þorpinu svo stutt er að fara á
miðin. Það eru tíu trillur sem nú
veiða hér í net. Auk þess eru bátar
á línuveiðum en þá er lagt utan við
landið og því lengra að fara.
FRAMBJOÐENDURIREYKJAVIK
SITJA FYRIR SVÖRUM
virka daga frá kl. 16.30-18.00 að Laugavegi
17, 2. hæð, sími 622908 - 620277
Allir velkomnir
Jói á Litla-Tindi og háseti hans koma
að landi með góðan afla.
DV-mynd Ægir
aður dottið niður af einhverjum
ástæðum. Á þessu verða stjórnmála-
menn að taka.“ -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN ÓVERDTR.
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6 mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar 4,5-5 Lb
VlSITOLUB. REIKN.
6mán. uppsögn 2.5-3,0 Nema ib
15-24mán. 6-6,5 Ib.Sp
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisb. reikningar í SDR7.1 -8 Lb.lb
Gengisb. reikningar í ECU8.1 -9 Lb.lb
ÓBUNDNIRSÉRKJARAR,
Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir
óverðtr. kjör, hreyfðir 10,25-10,5 Nema Ib
BUNDNIR SKIPTIKJARAR.
Vísitölubundin kjör 5,25-5,75 Bb
Óverðtr. kjör 12,25-13 Bb
INNLGJALDEYRISR.
Bandarikjadalir 5,25-6 Ib
Sterlingspund 11,5-12,5 ib
Vestur-þýskmörk 7,75-8 Ib
Danskarkrónur 7,75-8,8 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLÁN ÓVERDTR.
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25-15,75 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) ÚTLAN VERÐTR. 18,75-19 Bb
7,75-8,25 Lb
AFURÐALAN
Isl. krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 10-10,5 Lb
Bandaríkjadalir ö 8,8-9 Sp
Sterlingspund 15,5-15,7 Lb.lb
Vestur-þýsk mörk 10,75-10.9 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. mars 91 15,5
Verðtr. mars 91 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala apríl 3035 stig
Lánskjaravísitala mars 3009 stig
Byggingavisitala apríl 580 stig
Byggingavisitala apríl 181,2 stig
Framfærsluvísitala apríl 151 stig
Húsaleiguvisitala 3% hækkun 1 . april
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,493
Einingabréf 2 2,964
Einingabréf 3 3,603
Skammtímabréf 1,839
Kjarabréf 5,397
Markbréf 2,878
Tekjubréf 2,067
Skyndibréf 1,602
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,636
Sjóðsbréf 2 1,846
Sjóðsbréf 3 1.827
Sjóðsbréf 4 1,583
Sjóðsbréf 5 1,101
Vaxtarbréf 1.8712
Valbréf 1.7415
islandsbréf 1,143
Fjórðungsbréf 1,074
Þingbréf 1,142
Öndvegisbréf 1,130
Sýslubréf 1,153
Reiðubréf 1,119
Heimsbréf 1,053
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40
Eimskip 5,35 5.60
Flugleiðir 2,30 2.39
Hampiöjan 1,80 1,88
Hlutabréfasjóðurinn 1,84 1,93
Eignfél. Iðnadarb. 2,29 2,35
Eignfél. Alþýðub. 1.57 1,64
Skagstrendingur hf. 4,40 4,60
islandsbanki hf. 1,50 1,57
Eignfél. Verslb. 1,73 1.80
Olíufélagió hf. 6,30 6.60
Grandi hf. 2.45 2,55
Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05
Skeljungur hf. 6,40 6.70
ÁrmannSfell hf. 2,35 2,45
Fjárfestingarfélagiö 1,35 1.42
Utgerðarfélag Ak. 3,95 4.10
Olis 2,25 2,35
Hlutabréfasjóður VÍB 0.99 1.04
Almenni hlutabréfasj. 1,05 1,09
Auólindarbréf 0.975 1.026
Íslenski hlutabréfasj. 1,06 1.11
Síldarvinnslan, Neskaup. 2.41 2.52
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn,
ib= íslandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.