Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991.
33
Lífsstm
Tómatar
Verð í krónum
301
Sept.Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mers April
SfA Vínber
Verð í krónum
/ 291
aJ
SeptOkt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Apríl
íslenskir tómatar eru nú að koma í verslanir en verðið á þeim er hærra en á þeim erlendu.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Iitlar sveiflur
á meðalverði
- verölækkun á gúrkum og hvítkáli
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum; Bónusi Kópavogi, Fjarö-
arkaupi Hafnarfirði, Hagkaupi Skeif-
unni, Kjötstöðinni Glæsibæ og
Miklágarði í Mjóddinni.
Bónusbúðirnar selja sitt grænmeti
í stykkjatali en hinar samanburðar-
verslanirnar selja eftir vigt. Til að fá
samanburð þar á milli er grænmeti
í Bónusi vigtað og umreiknað eftir
meðalþyngd yfir í kílóverð.
Átta prósent hækkun varð á meðal-
verði á tómötum frá í síðustu viku
og er það nú 301 króna. Tómatar
voru á lægsta verðinu í Bónusi á 209
krónur en næst kom verðið í Kjöt-
stöðinni 222, Fjarðarkaupi 284, Hag-
kaupi 369 og Miklagarði 423 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði var
102%.
Meðalverð á gúrkum lækkaði um
15% frá síðustu könnun og meðal-
verðið er nú 331 króna. Gúrkur voru
ódýrastar í Bónusi á 190 krónur kíló-
ið. Næstir á eftir í verði voru Kjöt-
stööin 219, Fjarðarkaup og Hagkaup
voru með sama kílóverð 415 og Mikli-
garður 419 krónur. Munur á hæsta
og lægsta verði á gúrkum var 121 %.
Meðalverðið á sveppum er það
sama og í síðustu könnun eða 476
krónur kílóið. Lægsta verðið á svepp-
um var í Kjötstöðinni 280, síðan kom
verðið í Bónusi 441, Miklagarði 545,
Hagkaupi 549 og Fjarðarkaupi 564.
Munur á hæsta og lægsta verði á
sveppum var 101%.
Eilítil hækkun, sem nam tveimur
prósentustigum, varð á meðalverði á
grænum vínberjum milli vikna.
Meðalverðið er nú 291 króna. Græn
vínber voru ódýrust í Bónusi á 176
krónur kílóið. Næst kom verðið í
Fjarðarkaupi 225, Hagkaupi 299,
Kjötstöðinni 376 og Miklagarði 381.
Munur á hæsta og lægsta verði á
grænum vínberjum var 116%.
Meðalverð á papriku hækkaði um
5 af hundraði sé miðað við verðið í
síðustu könnun. Meðalverðið nú er
389 krónur. Lægsta verðið á grænni
papriku var í Kjötstöðinni, 208 krón-
ur kílóið en þar á eftir kom veröið í
Bónusi 210, Fjarðarkaupi 399, Hag-
kaupi 559 og Miklagarði 567 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði var
heilmikill eða 173%.
Sjö prósent hækkun varð á meðal-
verði á kartöflum milli vikna og það
er nú 75 krónur. Kartöflur voru ódýr-
astar í Bónusi en þar var kílóverðið
55 krónur. Kílóverðið var 64 krónur
í Hagkaupi, 75,50 í Fjarðarkaupi og
89 krónur í Miklagarði og Kjötstöð-
inni. Munur á hæsta og lægsta verði
á kartöflum var 62 af hundraði.
Meðalverð á blómkáli er svipað nú
og í síðustu viku. Það er nú 208 krón-
ur sem er hækkun um 2%. Blómkál
var ódýrast í Fjarðarkaupi á 172,
næst kom Miklagarðsverðið 198,
verðið var 225 í Hagkaupi og 237 í
Kjötstöðinni. Blómkál fékkst ekki í
Bónusi. Munur á hæsta og lægsta
verði var 38%.
Tíu prósent lækkun varð á meðal-
verði á hvitkáli frá síðustu könnun.
Hvítkál var á lægsta verðinu í Bón-
usi en þar kostaði kílóið 61 krónu.
Verðið var 68 krónur í Kjötstöðinni,
79 í Fjarðarkaupi og Hagkaupi og 89
í Miklagarði. Munur á hæsta og
lægsta verði á hvítkáli er 46%.
Lítil breyting varð á meðalverði á
gulrótum, þar er nú 153 krónur sem
er hækkun um 2% frá síðustu könn-
un. Gulrætur voru ódýrastar í Bón-
usi á 108, næstódýrastar í Hagkaupi
139, síðan kom Fjarðarkaup 150,
Mikligarður 170 og Kjötstðin 196
krónur. Munur á hæsta og lægsta
verði á gulrótum er 81 af hundraði.
íslenskir tómatar eru nú að koma
í verslanir en þó eru þeir ekki komn-
ir nema í tvær af samanburðarversl-
ununum. Það eru verslanir Fjarðar-
kaups og Hagkaups. Verðið er hærra
en á erlendu tómötunum, kílóverðið
er 599 krónur í Fjarðarkaupi en 629
íHagkaupi. ÍS
Sértilboð og afsláttur:
Nautalifur og
rauðspretta
Miklagarðsverslunin í Mjóddinni
var með sértilboð á sprittkertum, 30
stk, í poka, á 206 krónur, Nopa
þvottaduftspakkar, 3 kg, voru á 298
krónur, Cocoa Puffs morgunkornið í
475 gramma pökkunum kostar 215
og 12 rúllur af salernispappír frá
Miklagarði eru á 209 krónur.
í Kjötstöðinni Glæsibæ var að hefj-
ast nýtt kortatímabil en þar mátti
finna Bleer bleiur, 26 stk., fyrir börn
9-18 kg á 398 krónur, íslenskar eld-
húsrúllur, 2 stk., úr endurunnum
pappír á 98. niðursoðna tómata, 425
g í dós, á 49 krónur og 12 rúllur af
salernispappír frá Arlex á 239 krón-
ur.
Hagkaup í Skeifunni er með sértil-
boð á frystri rauðsprettu á kílóverð-
inu 79 krónur. Ný nautalifur var á
129 krónur kílóið. frystar rækjur frá
Dögun kosta 689 krónur kílóið og
Hob Knobs kex, 250 g, er á 78 krónur
pakkinn.
í Fjarðarkaupi gat að líta pepsí
flöskur, 2 1, á tilboði á 153, Ariel
þvottaefni, 4 kg, á 799 og allar stærð-
ir af Pampers bleium fyrir stelpur
og stráka voru á 1148 krónur pakk-
inn. Einnig voru sleðar af tegundinni
Rotho Snow Star á 1698 króna afslátt-
arverði.
Bónus Kópavogi var með Ariel
Ultra þvottaefni, 2,2 kg, á 749, Pauly
snackmix, 750 g, á 199 krónur, Fanta
gosdrykkurinn vinsæli í 2 1 flöskum
kostaði 99 krónur og E1 Marino kafíi,
'/- kg, er á 184 krónur pakkinn. -ÍS
GURKUR
-15%
I
s
c
■o
0Q
I
419 190
P
PAPRIKA
+5%
I
;o §
S? 0>
I
567 208
SVEPPIR
0%
I
QQ
1
564 280