Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1991, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991.
Aðalfundur
Samtaka gegn astma og ofnæmi verður haldinn í
Múlabæ, Ármúla 34,3. hæð, laugardaginn 13. apríl kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar. - Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórn SAO
Á fundinum verða kynntar Gite Neutral
hreinlætisvörur frá a/s Blumöller í Danmörku.
Predom hjólhýsi og kerrur
Fullbúin hjólhýsi á tjaldvagnaverði.
Sýnum Predom hjólhýsin og kerrurnar laugardaginn 13. apríl
kl. 10.00-16.00. Höfum fengið takmarkað magn af þessum sívin-
sælu hjólhýsum og kerrum sem selst hafa upp á skömmum tíma
undanfarin ár. Komið og kynnið ykkur þær nýjungar sem í
boði eru og tryggið ykkur hús eða kerru í tíma.
Innifalið í verði húsana: Svefnpláss fyrir 2-4, tveggja
hellna gaseldavél, vaskur og vatnskútur m/rafmagnsdælu, inni-
ljós, fataskápur, 1-2 borð, salernisaðstaða, gardínur fyrir öllum
gluggum, tvöfaldar rúður, stórt fortjald, sóllúga, burðarkassi
fyrir gaskút og rafgeymir, sjálfvirkar bremsur, stuðningstjakk-
ar á öllum hornum og mjög öflug grind fyrir íslenskar aðstæður.
Allt þetta á verði frá kr. 370.000. - Hver býður betur?
Vélar&þjónusta Járnhálsi 2 - sími 83266
ÍHAMBORCABAR
DfLgosi og franskar 999-
<00**
Heill
GríUkfúkltngur
allsber AÐEINS S99l
Fiskur
37O:
Bónus borgarinn
Armúla 42
&82990
íþróttir dv
Stórkostlegri baráttu um meistaratitilinn í körfuknatfl
Befra liðið v
íslandsmeis
Njarðvlk íslandsmeistari eftir sigur gegn Keflavík í „Ljó:
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Þetta var stórkostlegur endir á mótinu
og löng bið er nú á enda. Þetta var mjög
erfiður leikur en við erum með betra lið
en Njarðvíkingar. Þá vil ég þakka áhorf-
endum fyrir frábæran stuðning og þeir
eiga sinn þátt í þessum sigri,“ sagðiHreið-
ar Hreiðarssonfyrirliði Njarðvíkinga í
samtali við DV i gærkvöldi eftir að Njarð-
víkingar höfðu tryggt sér íslandsmeistara-
titillinn í körfuknattleik með sigri gegn
Keflvíkingum í hreinum úrslitaleik, 84-75.
Staðan í leikhléi var 41-32, UMFN í vil.
Um 800 áhorfendur sáu leikinn í Njarðvík
og um 500 áhorfendur horfðu á hann á
risaskjá í íþróttahúsinu í Keflavík.
Leikurinn í gærkvöldi var stórkostlegur
endir á hreint frábæru keppnistímabili.
Keflvíkingar skoruðu fjögur fyrstu stig
leiksins en þá fóru Njarðvíkingar í gang
og komust í 9-4 og eftir það komst ÍBK
aldrei yfir. í leikhléi munaði níu stigum.
í síðari hálfleik byrjuðu Njarðvíkingar
vel og voru með leikinn í hendi sér þar til
að fimm mínútur voru eftir en þá höfðu
Keflvíkingar minnkað muninn í 63-57 og
leikuicnn orðinn æsispennandi. Þaö mun-
aði tveimur stigum þegar rúm mínúta var
eftir, 73-71, en Njarövíkingar voru sterk-
ari á lokasprettinum og sigur þeirra var
öruggur í lokin.
• Leikmenn Njarðvíkinga voru óstöðv-
andi í leiknum í gærkvöldi og léku körfu-
knattleik eins og hann gerist bestur á löng-
um köflum. Það er engin tilviljun að
Njarðvíkingar eru íslandsmeistarar. Þeir
eru með besta liðið og verðskulda gullið.
Gunnar Örlygsson var maður leiksins.
Hann kom inn á þegar ísak Tómasson
meiddist í byrjun leiksins og frammistaða
þessa tvítuga pilts var ótrúleg. Annars var
hðsheildin aðal hösins í þessum leik.
. • „Ég var orðinn vel heitur, fékk góð
skot og tók þau. Það er erfitt að leika gegn
ÍBK og þetta gekk upp hjá okkur að þessu
sinni. Þetta er alveg frábært að verða ís-
landsmeistari og ofsalega gaman,“sagði
Gunnar Örlygssonþegar íslandsmeistara-
titillinn var í höfn.
• Kristján Pálsson.bæjarstjóri í Njarð-
vík, var kampakátur eftir leikinn og sagði:
„Þetta var frábær leikur og Njarðvíkingar
eru bestir og betri en Keílvíkingar. Bæði
liðin léku mjög vel og það var virkilega
gaman að fá þennan nágrannaslag i lok-
in.“
• Lið ÍBK hefur leikið betur í úrslita-
keppninni en í gærkvöldi en hafa ber í
huga að erfitt var að eiga við Njarðvikinga
eins og þeir léku í gærkvöldi. Tairone
Thomton var besti maður liðsins í leikn-
• Bræðurnir Gunnar og Teitur Örlygssynir fagna sigrinum gegn ÍBK. Gunn-
ar, til vinstri, skoraði 27 stig í gærkvöldi og Teitur samtals 114 stig fyrir
UMFN í leikjunum gegn ÍBK. DV-mynd GS
• Rondey Robinson með íslandsmeistarabikarinn. DV-mynd GS
• Friðrík Rúnarsson, þjálfari UMFN.
w
„Eg er orðlaus“
- sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari UMFN
Ægir Már Kárasan, DV, Suðumeajum;
„Þetta var stórkostleg tilfmning og ég er alveg orðlaus. Strákamir gerðu það
sem fyrir þá lagt, þeir skutu ef þeir fengu færi og fundu að þeir voru heitir.
Bræðumir Gunnar og Teitur voru hreint frábærir og endirinn á tímabihnu al-
veg ótrúlegur," sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga. Hann hefur náð
frábærum árangri með Njarðvíkurhðiö, er yngsti þjálfarinn í deildinni og hefur
sýnt það og sannað að þar fer efni í gífurlega góöan þjálfara.