Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1991, Side 29
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 1991.
49
Lífsstm
Verðkönnun Verðlagsstofnunar á hársnyrtingu:
Verðhækkanir
umfram yísitölu
Hæsta og lægsta verð auk meðalverðs
Lægsta verð kr. Hæsta verð kr. Meðalv. mars '91 kr. Meðalv. júní '90 kr. Verð- breyting i%
Karlar
Klipping 800 1980 1191 1080 10,3%
Hárþvottur 140 631 287 264 8,7%
Konur
Klipping 800 2760 1257 1121 12,1%
Permanent, stutt hár 2270 4605 3077 2793 10,2%
Hárlagning, stutt hár 800 1640 1118 1025 9,1%
Hárþvottur 150 631 289 262 10,3%
Böm '
Klipping 700 1310 954 871 9,5%
Verðlagsstofnun gerði fyrir
skömmu verðkönnun á tíu þjónustu-
liðum hjá 150 hársnyrtistofum á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar var kannað
verð á klippingu karla, kvenna og
barna, permanenti, hárlagningu og
hárþvotti. Sams konar könnun var
framkvæmd í júní á síðasta ári fyrir
níu mánuðum. Þegar þessar tvær
kannanir eru bornar saman kemur
í ljós að þjónustuliðirnir hækkuðu
að meðaltali um 10,6% á tímabilinu.
Það vekur einnig athygli hversu mik-
ill verðmunur er á milli hársnyrti-
stofa, meira en 100% verðmunur á
Neytendur
dýrustu og ódýrustu stofunum.
í könnuninni var miðað við algeng-
asta verð sem tekið er fyrir þjón-
ustuna á hverri hársnyrtistofu því
verð getur verið mishátt á sömu stöfu
eftir því hve mikil vinna er lögð í
þjónustu við hvern viðskiptavin. í
úrvinnslu á könnuninni var ekki tek-
iö tillit til mismunandi gæða þjón-
ustunnar heldur var eingöngu um
verðsamanburð að ræða. Enda er
það svo hjá flestum að þeir eiga sér
sína uppáhaldshársnyrtistofu.
Af 150 stofum, sem kannaðar voru,
var veröið óbreytt á 6 stofum frá síð-
ustu könnun en hafði hækkað um
1-5% á 23 stofum. Meðaltalshækkun
um 6-10% varð á 38 stofum og hækk-
_un um 11-15% á 33 stofum. Átján
stofur höíðu hækkað sína taxta að
meðaltali um 16-20% en 6 stofur um
meira en 21%. Meðalhækkun var
mjög mismunandi eftir stofum, allt
frá 0-28%.
Hárgreiðslustofan Lilja í Garða-
stræti í Reykjavík var ódýrasta
hársnyrtistofan samkæmt könnun-
inni en þar á eftir komu rakarastofan
Hárflikk á Miklubraut og Hár Fix að
Sléttahrauni í Hafnarfirði. Dýrustu
hársnyrtistofurnar voru Salon VEH
stofurnar að Álfheimum, í Húsi
Verslunarinnar og á Laugavegi.
Munaði þar meira en 100% á verði
og á þeim ódýrustu.
Hér á töflunni til hliðar getur að
líta hæstu og lægstu verð á einstök-
um þjónustuhðum og útreiknaö
meðalverð á stofunum 150. Til við-
miðunar er meðalverðið i síðustu
könnun sem Tramkvæmd var í júní
á síðasta ári og verðbreyting í pró-
sentum. Meðalhækkun þjónustuliða
er allt frá 8,7% á hárþvotti sem virð-
ist hafa hækkað minnst og 12,1% á
klippingu fyrir konur sem er mesta
verðhækkunin.
Á sama tíma og meðaltalshækkun
á þjónustuliðum hársnyrtistofa er
10,6% hefur launavísitala hækkað
um 7,5% en framfærsluvísitalan
hækkað um 3,9%. Því er greinilegt
aö hækkanir á verðlagi stofanna eru
umfram almennar hækkanir.
ÍS
Þjónustuliðir hársnyrtistofa hækkuðu að meðaltali um 10,6% á níu mánaða tímabili sem er nokkuð umfram al-
mennar verðhækkanir á tímabilinu.
Verðkönnun:
Litlar
breyting-
ar á verði
Verðlagsstofnun hefur annast
effirht með verði á aðföngum til
bænda frá gerð kjarasamníng-
anna í febrúar á síðasta ári. Gerð
var verökönnun á 28 sölustöðum
víðs vegar á landinu nu fyrir
skömmu og ef hún er borin sam-
an við sambærilega könnun sem
gerð var fyrir ári koma fram
óverulegar breytingar á flestum
vöruliðum. Meðalverð lækkaði á
tveimur vöruliðum en hækkaði á
einum en að öðru leyti voru
breytingar innan við 1,5%. Hins
vegar kom fram nokkur verð-
munur á einstökum vörutegund-
um.
Af vörum sem teljast til aðfanga
til bænda má nefna fóöur og
byggingarvörur ýmiss konar,
varahlutir í heyvinnuvélar og
vörum til heyvinnslu. Meðalverð
lækkaöi á kúafóðurblöndu um
9,7% að meðaltali og hreinsuðu
fóðurlýsi um 12,7%. Girðingar-
lykkjur hækkuöu hins vegar að
meðaltali um 6,8%.
Breytingar á meðalverði á öðr-
um aðföngum eru vart merkjan-
legar. Verðmunur á einstökum
vöruliðum vari sumum tilfeilum
allmikill. Fimm lítra brúsi af
hreinsuðu fóðurlýsi kostaði frá
535 krónum og upp í 884 krónur.
Það er um 65% verðmunur. Eitt
tonn af fiskimjöh kostaöi frá 33
þúsund og upp í 46 þúsund krón-
ur en það samsvarar 39% verð-
mun. Eítt kíló af girðingarlykkj-
um kostar frá 212-347 krónum.
Það er 64% verömmmr.
í heild má segja að verðhækk-
anir hafi verið óverulegár á þessu
tæpa ári sem Uðið er irá síðustu
kömimi Verðlagsstofnunar á að-
fóngumtilbænda. ÍS
EIGUM TÖLUVERT
ÚRVAL AF BÍLUM Á
CA 200-600 ÞÚS.
Á GÓÐUM KJÖRUM,
JAFNVEL ENGIN
ÚTBORGUN!!!
BILA
HÚSIÐ
B I
SÆVARHÖFÐA 2 674848 í húsi Ingvars Helgasonar
YFIR 100
BÍLAR Á
STAÐNUM
OG 1200
Á SKRÁ!
BMW 520i árg. 1990, ekinn 30 þ. km,
sjálfskiptur, rafmrúður o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 2250 þús.
Toyota Hilux Turbo dísil árg. 1985,
ekinn 82 þ. km, 5 gíra, upphækkað-
ur, splittað framan og aftan o.m.fl.
Ath. skipti á ódýrari. Verð 1480 þús.
MMC Lancer 1500 GLX árg. 1989,
ekinn 26 þ. km, sjálfskiptur, rafm. í
rúðum o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 850 þús.
Cherokee Laredo 4,0L árg. 1988,
ekinn 62 þ. km, sjáifskiptur, spil,
upphækkaður, 33" dekk, bretta-
kantar o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 2150 þús.
Ford Bronco XLT árg. 1987, ekinn
54 þ. km, 5 gira, 32" dekk, króm-
felgur o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 1600 þús. Eigum einnig árg.
’84, ’85, '86 og 1988.
Subaru 1800 Coupé Turbo 4x4 árg.
1988, ekinn aðeins 43 þ. km, sjálf-
skiptur, topplúga, 135 hö, aukadekk
á felgum o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð aðeins 1230 þús.
Nissan Sunny 1600 SLX árg. 1989,
ekinn 29 þ. km, 5 gíra, vökvastýri.
Ath. skipti á ódýrari. Verð 800 þús.
Eigum allar árg. af Sunny!
Subaru Legacy 1800 Sedan 4x4
árg. 1990, ekinn aðeins 8 þ. km,
sjálfskiptur, rafmrúður o.fl. Aðeins
bein sala. Verð 1430 þús. Eigum
einnig station Legacy.
Nissan Patrol Turbo dísil árg. 1989,
ekinn 55 þ. km, 4,2L vél, 5 gíra,
upphækkaður, 33" dekk o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 2450 þús.
Eigum aliar árgerðir af Subaru a
staðnum!
MMC Lancer 1800 GLX ST 4x4 árg.
1988, ekinn 50 þ. km, 5 gíra, topp-
lúga, álfelgur, rafmrúður o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 980 þús. Eig-
árg. 1987.
Volvo 440 GLT árg. 1989, ekinn 29
þ. km, 5 gíra, álfelgur, rafmiúður,
samlæsing o.fi. Ath. skipti á ódýr-
ari. Verð 1100 þús.
Subaru 1800 GL Sedan árg. 1990,
ekinn aðeins 4 þ. km, 5 gira, raf-
mrúður, topplúga, aukadekk o.fl.
Ath. skipti á ódýrari. Verð 950 þús.
Toyota Corolla 1300 DX árg. 1987,
ekinn 62 þ. km, beinskiptur, útvarp
o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 570
þús.
Subaru Justy J10 4x4 árg. 1988,
ekinn 42 þ. km, 5 gíra, útvarp. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 530 þús. Eig-
um einnig Justy J12 árg. 1989.
Audi 100 CD árg. 1987, ekinn 47 þ.
km, sjálfskiptur, rafdr. rúður og
sæti, tölva, álfelgur o.m.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 1480 þús.
Sérlega góð greiðslukjör!