Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1991, Blaðsíða 9
9
FJðSTUDÁGl/R)3; Mkí 1991
Utlönd
Vildi lausnar-
gjald fyrir
systur sína
Tólf ára kínverskur drengur
rændi yngri systur sinni og hót-
aði að myrða hana ef foreldrarnir
borguðu ekki lausnargjald. Hann
vildi fá 100 þúsund yuan fyrir
systur sína en það svarar til 1,6
milijóna íslenskra króna.
Móðir þeirra systkina hóf þegar
samningaviðræður og bauð 70
þúsund yuan fyrir dótturina á sjö
vikna afborgunum. Strákur neit-
aði, sagðist ekki hika við að stytta
systur sinni aldur og móðirin
varð að sætta sig viö upphaflegu
kröfuna.
Þegar kom að því aö greiða var
strákurinn þó handsamaður og
afhentur lögreglunni. Tahö er að
fleiri hafi verið í vitoröi með hon-
um og leitar lögreglan nú þeirra.
Karl Bretaprins
ræðstgegn
einkahifreiðum
Karl Bretaprins er að þvi er virð-
ist svarinn andstæðingur einka-
bíla. Símamynd Reuter
Karl Bretaprins hefur einu
sinni enn vakið furðu landa
sinna, nú með þvi að fara hörðum
orðum um einkabfla. Á ráðstefnu
í Madrid á Spáni f gær sagði hann
að bílarnir væru viðsjárgripir og
afskræmdu margar fagrar borgir.
Benti hann á að oft færi betur á
að fólk ferðaðist á reiðhjólum.
Bretum kemur þó ekki svo mjög
á óvart þótt prinsinn láti áht sitt
á umhverfismáium í Ijósi. Hann
er mikill áhugamaöur um meng-
unarvarnir og heilbrigt iíf. Prins-
inn er reyndar ehuiig vanur að
ráðast gegn ýmsura öðrum löst-
um í fari nútímamanna og fyrir
skömmu sakaði hann landa sína
um að vera að gleyma karhnum
honum Shakespeare.
Bandaríkjamenn
vildukaupa
Grænland
Bandaríkjamenn buðu Dönum
að kaupa Grænland af þeim í lok
síðariheimsstyrjaldarinnar. Fyr-
ir landið átti að greiða hundraö
þúsund dollara í gulh en það
svara til um fimmtíu mihjarða
tslenskra króna á núvirði. Þessar
upplýsingar eru nýkomnar fram
í dagsljósið í skjölum í safni
bandarísku stjórnarinnar í Was-
hiiigton.
í skjölunum kemur fram að
bandarískir embættismenn
töiuðu um að gera Dönum svipað
tilboð og Rússar fengu í Alaska á
sínum tíma. Þessar ráðagerðir
fóru þó út um þúfur því að Danir
neituðu að seija Grænland.
Bandaríkjamenn hættu líka við
þessi áform þegar samningar
náðust um herstöðvar á Græn-
landi og hagsmunir þeirra voru
tryggðir. Nú er verðið að loka
herstöðinni í Syðri-Straumfirði
en þar voru aöalbækistöðvar
Bandaríkjamanna á Græniandi.
Stöðin í Thule verður hins vegar
rekináfram. iteuterog Ritzau
Hörmungamar í Bangladesh melri en nokkum óraði fyrir í fyrstu:
Um 40 þúsund lík
eru þegar fundin
- á annað hundrað þúsund menn fómst og tíu miUjónir em í nauðum
Forsætisráðherra Bangladesh hef-
ur farið fram á alþjóðlega aðstoð við
fólk á hörmungarsvæðunum í
landinu. Talið er að tíu milljónir
manna séu þar í nauðum eftir að
mikill hvirfilbylur gekk yfir landið
fyrr í vikunni.
Því fer fjarri að björgunarmenn
hafi komist til allra staða þar sem
bylurinn gekk yfir. Þeir telja þó að á
'annað hundrað þúsund manns hafi
látið lífið. Þegar hafa nærri fjörutíu
þúsund hk fundist en jafnvel er talið
að aldrei veröi fullvíst hve margir
fórust.
Begum Khaleda Zia forsætisráð-
herra ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi
í gærkveldi og sagði að tjónið nú
væri meira enn nokkru sinni áður
þegar hvirfilbyljir heföu gengið yfir
landið. Tjón af völdum slíkra bylja
er þó árvisst vor og haust í Bangla-
desh og kostar jafnan fjölda fólks líf-
ið.
Þegar veðrið var verst náði vind-
hraðinn um 235 kílómetrum á
klukkustund. i kjölfarið fylgdi flóð-
bylgja sem gekk yfir lægstu svæði
landsins. Mikill fjöldi manna býr á
eyjum í óshólmum stórfljótanna
Ganges og Brahmaputra og þar hefur
manntjón orðið mest. Taiið er að
flóðbylgjan hafi náð sex metra hæð
en landið nær ekki nema rétt upp
fyrir sjávarborðið.
Milljónir manna líða miklar hörmungar í Bangladesh og er óttast að á
annað hundrað þúsund menn hafi farist í miklum hvirfilbyl. Uppskera er
einnig ónýt og búsmali fallinn þannig að horfurnar eru ekki bjartar fyrir
það fólk sem eftir lifir. Símamynd Reuter
Björgunarstörf hafa gengið mjög
erfiðlega. Skip, sem eru í höfnum upp
með fljótunum, komast ekki til ós-
hólmanna vegna þess að árnar eru
stíflaðar. Því er eina ráðið aö flytja
hjálpargögn með þyrlum. Flugfloti
landsmanna varð þó illa úti í veðr-
inu, einnig fórust mörg skip.
Mikill ótti er við að farsóttir breið-
ist út vegna þess að allt vatn er meng-
að og lík manna hggja víða eins og
hráviði. Þá féll mikið af búsmala
manna í óshólmunum. Engin leið er
að urða það allt og eru hræin tekin
að rotna í hitunum.
Á sumum eyjum hafa flestir íbú-
arnir látið lífið. Björgunarmenn hafa
borið þær fréttir að á eyju þar sem
80 þúsund menn bjuggu séu 40 þús-
und látnir. Á öörum eyjum er ástand-
ið svipað. Björgunarmenn segja
hörmungar fólks á þessum stöðum
ólýsanlegar og ekki von um að úr
rætist á næstunni þótt alþjóðleg að-
stoð berist.
Ríki Evrópubandalagsins hafa þeg-
ar heitið verulegri aðstoö. Þar hafa
töluverðir fjármunir verið lagðir til
kaupa á matvælum sem nóg er til af
í bandalagslöndunum. Hjálparstarf
fer þó hægt af stað, enda var í fyrstu
ekki gert ráð fyrir að hörmungarnar
væru svo miklar sem raun ber vitni.
Reuter
Tvítugur maður misþyrmlr ungum drengjum:
Of ungur til að f ara í f angelsi
Tvítugur djöfladýrkandi í borginni
Perth í Ástralíu, Scott Gozenton, var
nýlega dæmdur í þriggja ára skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að -hafa
misþyrmt ungum drengjum kynferð-
islega.
Játning mannsins liggur fyrir þar
sem hann viöurkennir að hafa með-
höndlað unga drengi á ósiðsamlegan
hátt og jafnvel ráðist á þá og viljað
þeim iht. Sumir drengjanna voru
yngri en þrettán ára.
Á meðan á réttarhöldunum- stóð
benti lögfræðingur Scotts á að sjálfur
hefði umbjóðandi hans tilheyrt trú-
arreglu djöfladýrkenda frá fjórtán
ára aldri og að hann hefði fengið fyr-
irskipun um að fiölga nýhðunum í
reglunni.
Lögfræðingurinn greindi einnig frá
því að Scott, fyrrum skátaforingi,
gengi undir nafninu „Dauði“ innan
reglunnar og að hann hefði tekið
þátt í mánaðarlegu kynsvalli með
fullorðnum jafnt sem börnum innan
reglunnar frá unga aldri.
„Hann er ekki í sama flokki og
þeir menn sem eru mörgum árum
eldri en þeir sem þeir áreita,“ sagði
ástralski dómarinn sem kvað upp
úrskurðinn. „Hann er einungis tví-
tugur og því væri það óréttlátt að
afskrifa hann,“ bætti hann viö.
Reuter
Júgóslavía:
Níu lögreglu-
mennmyrtir
í það minnsta niu króatískir
lögreglumenn létu lífið í skot-
bardaga við menn af ættum Serba
í nótt. Atburðir þessir hafa á ný
aukið hættuna á að horgarastríö
brjótist út en lengi hefur verið
róstusarat í ríkinu. Tildrög bar-
dagans eru ekki Ijós en Króatar
segja að Serbamir hafi veitt lög-
reglumönnunum fyrirsát. Serbar
eru minnihlutahópur í Króatíu
ogtefiasigundirokaða. Reuter
■ ■
:::
Hjá okkur fæst gott úrval hvers kyns veiðibúnaðar. Allt frá miklu úrvali
veiðistanga og hjóla í fjölda verðflokka, til fyrirtaks veiðifatnaðar á hagstæðu
verði. Við seljum aðeins viðurkennd merki.
Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 09 - 19, föstudaga til kl. 20 og á
laugardögum og sunnudögum frá kl. 10 til 16.
£?Abu
Garcia
&
* * t
HARDY Scientific Anglers
Barbour
Hafnarstræti 5 • Símar 1 67 60 og 1 48 00