Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1991, Blaðsíða 10
Útlönd
Eftir þvi sem heimildir í Argentínu herma á Maradona að hafa failið fyrir
brögðum lögreglunnar sem kom lögreglukonu í bólið með honum og hélt
uppi njósnum um kappann. Símamynd Reuter
Maradona tekinn
með nakinni
lögreglukonu
Helsta íþróttablað Argentínu telur
sig hafa heimildir fyrir því að knatt-
spyrnukappinn Diego Maradona hafi
verið gómaður á dögunum nakinn
með lögreglukonu sem einnig var án
klæða. Mál þetta hefur vakið að nýju
uppnám í Argentínu en í þessu sama
samkvæmi þykir sannað að kappinn
hafi neytt kókaíns.
Maradona hefur brugðist ókvæða
við þessum fréttum og hótar að
stefna blaðinu fyrir meiðyrði. Lög-
reglan hefur gengið í hð með Mara-
dona í þessu máli og segir að frétt
blaðsins sé röng. Margir efast þó um
að lögreglan hafi hreinan skjöld í
þessu máli, telja að hún vilji vernda
starfsmenn sína gegn hneyksli.
Lögmaður Maradona segir að frétt-
in sé helber uppspuni og spáir því
að blaðið eigi eftir að greiða háar fjár-
hæöir fyrir tiltækið. Blaöið, sem heit-
ir E1 Grafico, seldist upp á skömmum
tíma eftir að þaö kom út.
Þeir hjá E1 Grafico bera heimildar-
menn innan lögreglunnar fyrir sög-
unni. Þar er fullyrt að lögreglukon-
an, sem er ljóshærð og 25 ára, hafi
vingast við Maradona aö boöi yfir-
manna sinna til að njósna um hann.
Starf hennar hafi leitt til þess að
Maradona hefði veriö tekinn við
kókaínneyslu og eigi yfir höfði sér
fangaVÍSt. Reuter
FÖSTUDAGUR 3. MAf 1991.
íhaldsflokkurinn tapar í kosningum í Bretlandi:
Verkamannaflokkurinn
krefst þingkosninga
- úrslitin áfall fyrir John Major forsætisráðherra
Allt útlit er fyrir að breski íhalds-
flokkurinn tapi verulegu fylgi í sveit-
arstjórnarkosningunum sem fram
fóru á fimmtudag.
Þrjátíu milljónir manna eru á kjör-
skrá en ekki var kosið í London og
Wales.
Þegar búið var að telja úr 330 kjör-
dæmum af 369 leit út fyrir að íhalds-
flokkurinn hefði tapað verulegu fylgi
en bæði Verkamannaflokkurinn og
Frjálslyndi flokkurinn unnið veru-
lega á.
„Viö höfum aukið fylgi okkar um
allt land og því ætti John Major að
efna til kosninga nú,“ var krafa Neil
Kinnock, leitoga Verkamannaflokks-
ins.
Það er þó talið ólíklegt að forsætis-
ráðherrann, John Major, boöi til
kosninga í júní þar sem báðir stjórn-
arandstöðuflokkarnir unnu á í þess-
um kosningum.
„Við eigum harða baráttu fyrir
höndum,“ sagði umhverfismálaráð-
herra landsins, Michael Heseltine,
sem flýtti fyrir falli Margrétar Thatc-
her, fyrrum forsætisráðherra, með
því að bjóða sig fram gegn henni í
leiðtogasætið.
íhaldsflokkurinn missti töluvert
fylgi í Suður-Englandi þar sem hann
taldi sig hafa mikil ítök en þar hefur
minnkandi hagvöxtur sagt verulega
til sín undanfarið.
Þetta var fyrsta prófraunin sem
John Major forsætisráðherra hefur
þurft að ganga í gegnum síðan hann
náöi kjöri í nóvember síðastliðnum.
Það veltur á úrslitum þessara kosn-
inga hvort hann efnir til allsheijar-
kosninga í júní og nú spá menn því Allt útlit er fyrir að breski Ihaldsflokkurinn tapi töluverðu fylgi í sveitarstjórn-
að svo verði ekki. Reuter arkosningunum sem fram fóru á fimmtudag. Teikning Lurie
Ákærður fyrir að nota ekki barnastól
Réttarhöld eru hafin í Flórída yfir
manni sem talinn er hafa orðið vald-
ur að dauða þriggja ára dóttur sinnar
með því að láta líðast aö móðir henn-
ar sæti undir henni í framsæti bif-
reiðar. Fólkið lenti í alvarlegu bíl-
slysi og beið dóttirin bana.
Ákæran er byggð á því að það hafi
verið vítavert gáleysi að sitja undir
stúlkunni i framsæti bifreiðarinnar
í stað þess að hafa hana í öruggum
bamastól.
Þetta er í fyrsta sinn sem mál af
þessu tagi er höfðað. Það hefur vakið
reiði í Bnadaríkjunum því flestir
telja að faðirinn, Ramiro de Jesus
Rodriguez, sé saklaus þótt færa megi
rök fyrir því aö dóttirin hafi látist
vegna gáleysis. Það gerir málið enn
harmrænna að í hinni örlagaríku
ferð voru foreldrar stúlkunar að ná
í meöul handa henni veikri.
Litið er á málið sem prófmál og það
er aðeins Rodriquez sem er ákærður
en ekki móðir stúlkunnar. Þau hjón
komu frá Nigaragva fyrir þremur
árum og tala ekki ensku og vita að
því er virðist lítið um hvað málið
snýst. Ákæruvaldið er hins vegar
ekki í vafa um að Rodriquez hafi
gerst sekur um manndráp fyrir gá-
leysi og ætlar að fá hann dæmdan.
Reuter