Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1991, Blaðsíða 6
LAÚGÁRDAGUR 1. JÚNÍ l:ð9Í. 36 Benz 1419 árg. 1977, 37 sæta Bílasalan Skeifan Simi 689555 Til sölu Toyota 4Runner EFI ’86, ekinn 53.000 mílur. Allar uppl. í síma 94-4455 frá kl. 10-18 virka daga, sími 94-3081 á öðrum tímum. GLOBUSBILAR Lágmúla 5, sími 91-681555 Saab 9000i turbo, ek. 53.000, beinsk., 5 g., sóllúga. V. 1.850.000. Volvo 240 GL '85, ek. 80.000, sjálfsk., splittun. V. 790.000. Citroén BX 19 GTi ’90, sjálfsk., sól- lúga, rafdr. rúður, samiæsing o.fl., toppbíll, ek. aðeins 1.850. V. 1.580.000, sem nýr. Saab 90 '87, ek. 60.000, 3ja d. V. 670.000. Escort '84 1600, ek. 100.000. V. 299.000. ALLIR BlLAR YFIRFARNIR OG I 1. FLOKKS ÁSTANDI OPIÐ í DAG KL. 10-14 CITROénQ SAAB Bílar KynnlngaraksturAudi 100-framhald afbls.35 um tilvikum er fólki betur borgið þannig. Þá eru þeir sem í kring eru heldur ekki í voða fyrir rúðum sem skjótást úr eins og byssukúlur og guð má vita hvar þær lenda. Þá er og hugsað fyrir því í innréttingu bílsins að hafa þar engin skörp hom eða brúnir og fóðraða þá kanta sem menn kynnu helst að meiða sig á. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um aksturseiginleika bílsins. Þeir sem þekkja Audi - og þeir eru býsna margir þrátt fyrir allt - vita að þeir eru ákaflega þægilegir bílar og skemmtilegir að aka. Sá sem við vorum með hafði 5 gíra kassa hand- skiptan. Hann var lipur og skiptingin en svona aflmikill fólksbíll á náttúr- lega að vera sjálfskiptur. Sjálfskipt- ingin er til fjögurra gíra, með vali um sparnaðar- eða sportstillingu. Læsivarðar bremsur eru staðalbún- aður sem fyrr segir en þó fær Audi 100 aukaplús fyrir það að hægt er að slá út læsivörninni ef/þegar þær að- stæður eru fyrir hendi að æskilegra er að hafa bremsur með gamla lag- inu. Ágætlega hljóðlátur Það fer prýðilega um alla í káet- unni á Audi 100 - nóg rúm fram í og yfirdrifið aftur í. Sætin eru góð en þó fannst mér vanta mjóbaksstuðn- ing í bílstjórasætinu þegar til lengdar lét. Það er raunar fremur regla en undantekning; ég man í svipinn ekki eftir nema tveimur framleiðendum sem hafa gert framstóla sem henta mínum skrokk hvað þetta snertir. Alls konar aukabúnaður er fáanleg- ur í þessa bíla, þar á meðal stillanleg- ur stuðningur við mjóbak. - Aftur í er góður sófl með ágætri armhvílu í miðju, ef mest tveir eru þar farþeg- ar, og hjá armhvílunni er svokallað- ur skíðapoki ef með þarf. Það væsir ekki um þrjá aftur í, þó sá í miðið hafi þá aðeins tveggja punkta bílbelti. Stjórntæki liggja öll vel við en mig undrar að ekki skuli kominn snerti- rofi til þess að senda vinnukonurnar eina sveiflu. Hann er kannski fáan- legur sem aukabúnaður, ég veit það ekki. Bílaframleiðendur leggja sig nú fram um að gera bíla sína hljóðláta. Audi tekur þátt í þeim leik. Veghljóð er sáralítið í þessum bíl, sömuleiðis hljóð frá vél og drifrás. Enda eru að sögn notuð 23 kíló af hljóðeinangrun- arefni í bílinn. Ég varð dálítið hissa á vindhljóðinu í honum; þó fer það ekki að verða til ama fyrr en við 160 km hraða eða þar um bil. Góður staðalbúnaður - Og nú er Audi sem sagt að koma Hér má sjá greinargott yfirlit um innanmálin í Audi 100. Við þau má bæta þvi að innanbreidd við sæti aftan og framan er 1460 mm, farangursrúm tekur jafngildi 510 lítra að rúmtaki. Ytri mál bílsins eru, lengd-breidd-hæð: 4790-1777-1431 mm. Eigin þyngd er 1310-1400 kg eftir grunngerðum. Úr vissum sjónarhornum er Audi 100 ákaflega fallegur bíll. Frá þessu horni er til að mynda auðvelt að sjá fyrir sér hvernig hann væri sem „coupé“- útfærsla. Skottið er sagt taka 510 lítra, hvernig sem á nú að láta vökva tolla í skotti sem opnast svona! En rúmgott er það, og flugrúmt um farangur þriggja ferðalanga. Þeir hefðu þess vegna mátt vera fimm. af fullum krafti inn á íslandsmarkað aftur. Hann verður fáanlegur með 4 strokka vélinni, tveggja lítra, sem gefur 101 hestafl, 2,3 lítra vél, 5 strokka, sem skilar 133 hö., og V6 2,8 vél sem gefur 174 hö. Verðið verður frá 1,8 milljónum upp í 2,8 milljónir eftir grunngerðum. Þær eru ekkert illa búnar - sú sem við kynntumst í Þýskalandi á dögunum var með eft- irtöldum staðalbúnaði, svo nokkuð sé nefnt: læsivörðum bremsum, afl- stýri, Procon Ten, samlæsingu á hurðum, skotti og bensínloki, rafrúð- um, lituðu gleri og rafstýrðum og rafhituðum útispeglum. Við þetta má svo bæta ýmsu eftir þörfum og óskum: skriðstilli, sóllúgu, vandaðra ökumannssæti o.s.frv. Látum hér staðar numið að sinni að fjalla um Audi 100. Þeir sem vilja kynna sér hann betur geta gert það núna: Hann er til sýnis einmitt núna um helgina hjá Heklu hf. á Laugaveg- inum. Sigurður Hreiðar Hreiðarsson Audi, Pajero, Sigma Þrír glæsivagnar til sýnis Nú um helgina frumkynnir Hekla hf. þrjá nýja glæsivagna í Reykjavík. Þetta eru Mitsubishi Sigma (sjá kynningu í DV-bílum 11. maí), Mitsubishi Pajero (sjá kynningu í DV-bílum 25. maí) og Audi 100 2,8 (sjá DV-bíla í dag). Sigma er japanskur glæsibíll af þeirri sjálfvirknikynslóð sem um þessar mundir er að byrja að láta aö sér kveða. Pajero er framþróun af aldrifsbílnum vinsæla sem þekktur hefur verið hér á landi síðasta ára- tuginn eða svo en Audi 100 heldur nú aftur innreið sína á íslenskan bílamarkað eftir langa og óverð- skuldaða fjarveru. Sýning þessara þriggja bíla í Reykjavík verður aðeins núna um helgina því strax eftir helgi fer Pa- jero-bíllinn í kynnis- og sýningarför um landið með aldrifsfrændum sín- um úr Mitsubishifjölskyldunni og ef til vill fleiri förunautum. S.H.H. Mitsubishi Sigma. Audi 100 2,8.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.