Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1991, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991.
Myndgáta
-*W"
■w
Andlát
Steinunn Guðmundsdóttir frá Skrið-
nesenni, andaðist í sjúkrahúsinu á
Hólmavík miðvikudaginn 19. júní.
Elín Guðrún Rasmussen, fædd Ein-
arsdóttir, frá ísafirði, lést 21. maí á
hjúkrunarheimilinu í Horsens í Dan-
mörku.
Jarðarfarir
Hans E. Þóroddsson, fyrrum starfs-
maður ísafoldarprentsmiðju, og
Morgunblaðsins, lést á Kumbara-
vogsheimilinu 14. júní sl. Útfor hans
hefur fariö fram.
Kristin Finnbogadóttir Boulton frá
Hítardal andaðist í Norwich í Eng-
landi hinn 15. júní. Bálfor hennar fer
fram frá St. Bamabas-kirkju í
Norwich í dag, fostudaginn 21. júní.
Minningarathöfn í Reykjavík og
greftrun í Hítardal verður auglýst
síðar.
Sr. Emil Björnsson, fyrrv. frétta-
stjóri, lést 17. júní. Hann fæddist 21.
september 1915 að Felli í Breiðadal,
sonur hjónanna Guölaugar H. Þor-
grímsdóttur og Áma Bjöms Guð-
mundssonar. Sr. Emil stundaði nám
í viöskiptadeild Háskóla íslands um
tveggja ára skeið en sneri sér að guð-
fræðinámi og varð cand. theol. voriö
1946. Hann hóf störf á fréttastofu
Útvarpsins árið 1944 og starfaði þar
sem fréttamaður og síðar varafrétta-
stjóri allt til þess er hann var ráðinn
dagskrárstjóri frétta- og fræðslu-
deildar Sjónvarpsins 1965. Hann
starfaði sem prestur Óháða safnað-
arins frá árinu 1950 til 1984. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Álfheiöur
Laufey Guðmundsdóttir. Þeim hjón-
um varð fjögurra bama auðið. Útfor
sr. Emils verður gerð frá kirkju
Óháða safnaðarins í dag kl. 13.30.
Fundir
Fundur í félagi fráskilinna
í kvöld, fóstudagskvöld, kl. 20.30 í Risinu,
Hveríisgötu 105. Nýir félagar velkomnir.
Ármannsfell býður eldri
borgurum í ferð
Mánudaginn 10. júni sl. bauð Ármanns-
fell hf. þeim íjölmörgu eldri borgurum
sem keypt hafa íbúðir byggðar af Ár-
mannsfeúi á liðnum árum í kaffisamsæti
og skoðunarferð til Þingvalla. Mjög góð
þátttaka var i ferðinni og mættu hátt á
þriðja hundrað manns í hana. Séra Heim-
ir Steinsson tók á móti hópnum og eftir
Kvennaganga - skokk
Námskeið
Myndlistarnámskeið fyrir
börn
hefst 1. júlí. Innritun dagana 22.-26. júní
í síma 621728 og 22454.
Tapað fundið
Peningar hurfu frá
Ananda Marga
Að kvöldi 17. júní sl. hurfu 20 þúsund
krónur úr sölutjaldi Ananda Marga í
Lækjargötu en félagar voru þar aö selja
ýmislegt til styrktar hjálparstarfi í Rúme-
níu. Ef einhver veit hvar peningarnir eru
niðurkomnir er hann vinsamlegast beð-
inn að hafa samband við Hjálparstofnun
Ananada Marga.
Tilkyriningar
- hlaup 22. júní
Það fór þá sem mig grunaði í
fyrra að þetta yrði árlegur viðburð-
ur! Kvenfólkið ætlar sem sagt af
stað aftur núna 22,júní. Mér finnst
einhvem veginn ennþá eitthvað
skrítið við það að annar helmingur
mannkynsins taki sig til og hreyfi
sig saman á meöan hinn helming-
urinn fær bara að passa synina og
munda myndavélina. En ég verð
þó að viðurkenna að innst inni er
ég fegin þessu tækifæri til að hvetja
fólk á öllum aldri til að gera reglu-
bundna hreyfingu aö lífsvenju.
Með reglubundinni hreyfingu er
hér t.d. átt við gönguferðir, skokk,
sund eða hjólreiðar ca 3svar í viku.
Aukin lífsgæði
Og maður er ekki bara að segja
eitthvað svona af því að það er í
tísku heldur eru sérfræðingar og
leikmenn löngu orðnir sammála
um að með reglubundinni hreyf-
ingu geti menn aukið lífsgæði sín.
Hugtakið lífsgæði hangir reyndar í
okkar máh oft við orðið kapphlaup,
en hér er ég að tala eingöngu um
þau hfsgæði sem snúa að heil-
brigði. Heilbrigði felst nefnilega
ekki einungis í þvi að vera laus við
sjúkdóma heldur einnig í því aö
fólk sé vel á sig komið líkamlega
og andlega. Regluleg líkamsþjálfun
dregur t.d. úr streitu og kvíða og
auðveldar manni þannig aö takast
á við verkefni dagsins og njóta frí-
stunda betur. Flestalhr sækjast eft-
ir einhverju þvílíku vellíðunar-
ástandi og er því í raun mjög heppi-
legt að það skuli vera hægt aö ná
því á svona tiltölulega auðveldan
hátt (og alveg án kapphlaups!).
Einn ágætur maður orðaði þetta
þannig um daginn að þegar hann
tók upp líkamsrækt hafi hann
KjáUaiinn
Svandís Sigurðardóttir
sjúkraþjálfari
því framfarimar koma ekki í ein-
um hvelh, en fyrr eða síðar ná allar
inn í velhðunarhringinn.
Til þess að halda sig að þjálfun
er einna mikilvægast að finna sér
félaga eða hóp af fólki til aö æfa
með, því flestum þykir léttara og
skemmtilegra að hafa félagsskap á
æfingu. Til dæmis er hægt að
mynda göngu- og skokkhópa með
öörum úr nágrenninu. Annars er
líka ágætt að æfa stundum ein síns
liðs, því þá gefst næði til að láta
hugann reika og slaka á.
Beint í æð
Ef þið eruð að spekúlera í hvern-
ig best er að þjálfa sig, hve oft í
viku og hve mikið í einu o.s.frv. þá
er gott ráð að fylgjast með þáttun-
um „Hristu af þér slenið“ eftir sjón-
„Heilbrigði felst nefnilega ekki einung-
is í því að vera laus við sjúkdóma held-
ur einnig í því að fólk sé vel á sig kom-
ið líkamlega og andlega.“
breytt vítahringnum (kyrrsetum,
ofáti og orkuleysi) í vellíðunar-
hring með góðu andlegu og líkam-
legu ásigkomulagi. Hann heldur
því áfram aö æfa th þess að halda
sér í vellíðunarhringnum og vih
ekki skipta.
Núna á laugardaginn 22. júní
gefst konum tækifæri til að ganga,
skokka eða hlaupa saman og von-
andi verður það upphafiö að reglu-
bundinni hreyfingu hjá þeim sem
ekki æfa reglulega nú þegar. Það
krefst þohnmæði að byrja að æfa
„Það krefst þolinmæði að byrja að æfa því framfarirnar koma ekki í
einum hvelli en fyrr eða siöar ná allar inn í vellíðunarhringinn."
varpsfréttir á miðvikudögum. Þar
fær maður upplýsingarnar beint í
æö sitjandi í sófanum. Svo eru líka
alltaf einhverjir fróðleiksmolar
með morgunleikfiminni á rás 1, svo
að eitthvað sé nefnt.
En svo að við höldum okkur við
þessa ahsheijaræfingu núna laug-
ardaginn 22. júní þá er hún jafnt
fyrir yngri sem eldri. Samkvæmt
nýjustu athugunum þurfa börn á
meiri hreyfingu að halda en þau fá
almennt og þaö er í verkahring
okkar hinna fuhorðnu að kenna
þeim fyrr en seinna að njóta þess
að hreyfa sig.
Og svo er það eldra fólkið. Ekki
þarf það síður á hreyfingu að halda
en hinir yngri, enda eru þau mörg
til fyrirmyndar í líkamsræktinni
með eigin gönguhópa og íþróttafé-
lög m.a. Markmiðið er því að fá
a.m.k. þijár kynslóðir kvenna á
sameiginlega æfingu á laugardag-
inn. Eftir á fá allir þátttakendur
verðlaunapening fyrir sigurinn
sem felst í því að vera með. Styttri
vegalengdina (2 km) geta allar
gengið og þær sprækari geta
skokkað eða hlaupið og jafnvel far-
ið lengri vegalengdina (5 km). Það
verður farið af stað kl. 14 í Garðabæ
og um að gera að mæta hvernig
sem viðrar - maður lætur sig veðr-
ið engu skipta í þessu sambandi.
Að lokum má svo minna á
skemmtiskokkið (7 km) í Reykjavík
þann 18. ágúst nk. Með því að halda
áfram að æfa í sumar ættum viö
að geta gengið eða skokkað með þá.
Á þeim tíma verðum við áreiðan-
lega komnar langleiðina inn í vel-
líðunarhringinn.
Svandís Sigurðardóttir
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu, Hverfisgötu 105, í dag,
fóstudag, kl. 13-17, bridge og frjáls spila-
mennska. Laugardagsganga Göngu-
Hrólfa fer frá Risinu kl. 10 á laugardags-
morgun.
skoðunarferðina var fariö að Hótel Val-
höll þar sem boðið var upp á síðdegis-
kaffi. Á undanfómum árum hefur tals-
verður hluti starfsemi Ármannsfells hf.
verið byggingar fyrir eldra fólk, einkum
í samstarfi við Samtök aldraðra. Starfs-
menn Armannsfells hafa á hðnum árum
átt ánægjulegt samstarf við þennan hóp
viðskiptavina sinna.
Hjónaband
Nýlega voru gefm saman í hjónaband af
sr. Ragnari Fjalari Lárussyni brúðhjónin
Þórunn Þorkelsdóttir og Erik Pálsson.
Heimili þeirra er að Hólmgarði 23,
Reykjavík.
Ljósmynd Jóhannes Long
Hjonaband
Nýlega voru gefin saman í hjónaband í
Fella- og Hólakirkju af séra Guðmundi
Karli Amasyni brúöhjónin Guðrún
Heiðarsdóttir og Hafþór Einarsson.
Heimili þeirra er að Spóahólum 10,
Reykjavík.
Ljósmynd Jóhannes Long
©osa
- A, ■- -„EVÞÓft- ■ ■■
Myndgátan hér að ofan
— lýsir kvenkynsorði í fleirtölu.
Lausngátu nr. 57:
Yfirborðs-
kenndur.
RAUTT LJOS
þcfovi
RAUTT L/ÓS/
<IXF
IFEHOAR