Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Blaðsíða 1
Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur við einn sýningargripanna.
DV-mynd JAK
Þjóðminjasafnið:
Stóra-Borg
fomleifarannsókn 1978-1990
A morgun kl. 14 verður sýningin
Stóra-Borg fornleifarannsókn
1978-1990 opnuð í Bogasal Þjóð-
minjasafns íslands. Þar er sögð
saga fornleifarannsókna í Stóru-
Borg undir Eyjaflöllum, Rangár-
vallasýslu og sýndir gripir sem þar
fundust. Við opnunina flytur Þórð-
ur Tómasson, safnvörður í Skóg-
um, erindi.
Árið 1978 var hafist handa við
fomleifauppgröft í Borgarhól í
Stóru-Borg, bæjarhól sem byggða-
leifar höfðu hlaðið upp í aldaraðir,
en hóllinn lá þá undir skemmdum
af ágangi sjávar. í 13 sumur var
grafið þar undir stjóm Mjallar
Snæsdóttur fornleifafræðings og
könnuð ýmis byggðarskeið á staðn-
um. Margt góðra gripa fannst við
uppgröftinn, rúnakefli, trégríma,
innsigh, gríðarstórt steinker og
margt fleira.
Sýningin verður opin fram í nóv-
ember.
Á morgun opnar Alda Ármanna Sveinsdóttir sýningu á vatnslitamyndum
af náttúru íslands I veitingahúsinu Café Mílanó í Faxafeni 11. Myndirn-
ar eru málaðar á liðnu sumri og flest viðfangsefnin eru frá Vestmanna-
eyjum, af Siðunni og Kirkjubæjarklaustri.
Sumartónleikar í
Skálholtskirkju
Fyrstu tónleikar sumarsins á
vegum Sumartónleika í Skálholts-
kirkju verða um helgina. Félagar
úr Musica Antiqua Köln hefja
Sumartónleikana að þessu sinni
með verkum eftir Bach, Biber, Ge-
maniani, Telemann, Graf og Moz-
art.
Að venju veröur boðið upp á
þrenna tónleika, á laugardag kl. 15
og 17 og á sunnudag kl. 15. Athygli
skal vakin á fyrirlestri Jed Wentz
flautuleikara Musica Antiqua Köln
á laugardag kl. 13 í Skálholtsskóla
er hann nefnir „Ástríður sálarinn-
ar“ og fjallar um lífssýn nokkurra
barokktónskálda.
Musica Antiqua Köln er einn
virtasti og eftirsóttasti hópur bar-
okktúlkenda í dag. Félagar úr
Musica Antiqua Köln sem sækja
Sumartónleika í Skálholti um helg-
ina eru Jed Wentz flautuleikari,
Að venju verður boðið upp á þrenna tónleika um helgar.
Manfred Kraemer fiöluleikari, Ballasz Mate sellóleikari og Riko
Laura Johnson lágfiöluleikari, Fukuda semballeikari.
Árbæjarsafn:
Margt til skemmtunar
Heilmikið veröur um að vera á Bemharðsson sagnfræðingur stutt og séra Kristinn Ágúst Friðfinns-
Árbæjarsafni á sunnudag. Jass- erindi á sama stað um jass og aðra son messar kl. 14. Meðal hand-
sveit á vegum Tómasar R. Einars- tónhst á stríðsárunum. verksmanna eru skósmiður og
sonar mun leika við Dihonshús kl. Sem fyrr verða handverksmenn bókbindari og þá má einnig benda
14.30-17 og kl. 15 flytur Eggert Þór að störfum á safninu kl. 13.30-17 á ljósmynda- og fornleifasýningu.
Skósmiður að störfum i Árbæjarsafni.
Gígja Baldursdóttir
sýnir á Torfunni
A morgun mun Gígja Baldurs-
dóttir hengja upp myndir sínar í
veitingahúsinu Torfunni, Amt-
mannsstíg 1.
Gígja er fædd í Reykjavík og
stundaði nám við Myndlistarskóla
Reykjavíkur 1980-81, Oslo Male-
skole 1981—82 og Myndhsta- og
handíðaskóla islands 1982-86. Hún
hélt einkasýningu í Ásmundarsal
1989.
Myndimar á sýningunni eru
málaðar með akrílhtum á pappír
og eru unnar á síðastliðnum tveim-
ur árum.