Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Blaðsíða 8
24 i fQSTUPAGl/R; 1991.
Veðurhorfur næstu daga:
Dapurlegt útlit er
líður á vikuna
Veörið á suðvesturhorni landsins
hefur heldur verið á verri veg á und-
anfórnum dögum. Eftir einmunatið
í júnímánuði þar sem sólskinið
sleikti borgarbúa og nágranna þeirra
hefur rigningin nú látið til sín taka.
Aðrir hlutar landsins hafa þó ekki
þurft að kvarta og víðs vegar hefur
verið sannkallað sólbaðsveður. Á
Kirkjubæjarklaustri t.d. munaði
minnstu að gamalt hitamet yrði sleg-
ið.
Ekki eru þó allir sem bölva rigning-
unni. Bændurnir eru hæstánægðir
með vætuna enda stefndi víða í
ófremdarástand sökum þurrka.
Hvort „góða veðrið“ sé búið getur
enginn nema tíminn leitt í ljós en sé
litið á hitatölur morgundagsins er
athyglisvert að veðrið í Evrópu er
að skána en hvort það er á okkar
kostnað er önnur saga.
Höfuðborgin
Morgundagurinn er bestur í spá
Accu-Weather hvað varðar Reykja-
vík. Þá verður væntanlega létt yfir
og sólin ætti að skína töluvert á
mannskapinn. Hitinn verður mestur
16 gráður en minnstur 8. Sunnudag-
urinn er verri að því leytinu til að
þá verða einhver ský á þvælingi en
hitinn verður svipaður.
Á mánudag verður komið annað
hljóð í strokkinn og þá er vissara að
muna eftir regnhiífinni. Svipað er að
segja um þriðjudaginn, spáð er rign-
ingu og svalt verður í veðri. Á mið-
vikudag verður einfaldlega skýjað og
lítið meira um það að segja.
Hitiþessa daga verður á bilinu 9-13
stig. í töflu hér neðar á síðunni má
sjá að táknin fyrir þessa þrjá síðast-
nefndu daga er alskýjað og súld og
ef einhver var búinn að ráðgera að
grilla úti er honum vinsamlega benti
á að gera það frekar um helgina.
Landsbyggðin
Veðrið norðanlands hefur oft verið
betra það sem af er sumri. Júnímán-
uður var ekkert sérstakur og reynd-
ar myndu sumir hreinlega segja lé-
legur. Ekkert Mallorca-veður er sjá-
anlegt þar í augnablikinu en það er
þó ekki öll nótt úti enn. Líkt og ann-
ars staðar á landinu verður þar
skásta veðrið um helgina. Á laugar-
dag gæti reyndar orðið léttskýjað en
uppskrift sunnudagsins er hálfskýj-
að víðast hvar.
Á Kirkjubæjarklaustri hefur verið
stuttbuxnaveður en ef þessi spá nær
fram að ganga er það úti er líður á
vikuna. Sem sagt engin undantekn-
ing fyrir þá á Suðurlandinu. Sé ein-
blínt á lægstu tölur er Raufarhöfn í
fremstu röð. Á laugardag og mánu-
dag gæti hitinn farið niður í 4 stig
en undir sama hatt falla Akureyri
og Galtarviti á sunnudag. í höfuðstað
Norðurlands gæti hitinn ennfremur
verið við fimm gráða markið þrjá
daga í röð. Þ.e. mánudag til miðviku-
dags.
A landsvísu eru táknin nánast eins
og það er greinilegt að útlitið er dap-
urlegt er líður á vikuna. Helgina er
reyndar ágæt að sjá en hvort það
bætir upp hina dagana er áhtamál. Á
mánudag verður alls staðar alskýjað
og daginn eftir verður það sama upp
á teningnum með töluverðri súld
saman við. Miðvikudagurinn er sá
sami með þremur undantekningum
þó. Á Hjarðarnesi, Akureyri og Egils-
stöðum verður nefniiega hálfskýjað.
-GRS
Raufarhöfn 12°
Galtarvltl
Keflavík 16
Vestmannaeyjar 15°
Laugardagur
íbúar á höfuðborgarsvæðinu
geta gert ráð fyrir björtu veðri
og sólriku um helgina en síð-
an þykknar upp á mánudaginn
og líklega verður einhver væta
fram eftir vikunni.
Bændur geta andað léttar því
að búast má við skúraleiðing-
um meira eða minna um allt
land fram í miðja vikuna þann-
ig að sprettan ætti að taka vel
við sér. Hrelldir ferðamenn af
suðlægari slóðum, sem þjak-
aðir hafa verið af hinni sterku
norrænu sól, geta brugðið sér
til norðausturhornsins og kælt
sig niður því að gert er ráð
fyrir kólnandi veðri þar.
V
9
oo
■R
Veðurhorfur á íslandi næstu 5 daga
sú — súld
s — skúrir
m i — mistur
þo — þoka
þr — þrumuveður
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
MÁNUDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR
MIÐVIKUDAGUR
Veðurhorfur í Reykjavík næstu 5 daga
Sólríkt og milt
veður
hiti mestur +16°
minnstur +8°
Sólskin á köflum
og milt veður
hiti mestur +15°
minnstur +8°
Skýjað að mestu
og skúraleiðingar
hiti mestur +13°
minnstur 9°
Skýjað og gola
með skúrum
hiti mestur +12°
minnstur +9°
Þungbúið veður
en þurrt að mestu
hiti mestur +13°
minnstur +9°
STAÐIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Akureyri 14/6IS 11/4hs 10/5as 11/5as 12/5hs
Egilsstaðir 13/7ls 11/6hs 11/7as 11/7as 13/6hs
Galtarviti 13/6IS 12/4hs 11/6as 11/7as 12/6as
Hjarðarnes 15/7IS 13/7hs 12/7as 12/8sú 13/8hs
Keflavflv. 16/8IS 15/8hs 14/9as 13/8sú 14/8as
Kirkjubkl. 15/7IS 14/6hs 12/7as 12/8sú 13/7as
Raufarhöfn 12/4hs 11/3hs 9/4as 10/5as 11/6as
Reykjavík 16/8IS 15/8hs 13/9as 12/9sú 13/9as
Sauðárkrókur 14/6ls 13/6hs 11/6as 12/7as 12/6as
Vestmannaey. 15/8IS 13/8as 12/9as 12/9sú 13/8as
Skýringar á táknum sk — skýjað
o he — heiöskírt • as — alskýjað
0 Is — léttskýjað s' ri — rigning
0 hs — hálfskýjað ¥ ¥ ¥ sn — snjókoma
Veðurhorfur í útlöndum næstu 5 daga
BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ. BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Algarve 27/18hs 26/18he 26/17he 27/17hs 26/17hs Malaga 33/18he 33/18he 33/18he 32/17he 31/18hs
Amsterdam 24/17as 23/17sú 21/14hs 19/14SÚ 18/13as Mallorca 27/19hs 27/18hs 29/18he 31/19hs 30/20hs
Barcelona 27/17hs 29/17he 29/17he 28/16hs 30/17hs Miami 32/26hs 32/26hs 32/26hs 33/25hs 32/26SÚ
Bergen 26/14he 26/13hs 23/13sú 20/12sú 21/1 Ohs Montreal 24/16sú 27/17hs 27/15sú 25/15as 23/13hs
Berlín 27/17hs 27/17hs 25/15as 24/12hs 24/11þr Moskva 23/13sk 21/13hs 23/13hs 23/20hs 25/18þr
Chicago 31/19hs 32/21 þr 31/19hs 30/20he 29/20þr New York 30/19hs . 31/20hs 33/24þr 29/19hs 30/18hs
Dublin 19/12ri 18/12SÚ 17/12as 16/12SÚ 18/12as Nuuk 9/4sk 10/3as 13/3hs 11/5SÚ 13/7hs
Feneyjar 29/18he 29/18hs 29/17he 30/20hs 29/19hs Orlando 33/23þr 32/24þr 32/24þr 32/23þr 33/22þr
Frankfurt 27/16hs 26/16hs 24/13hs 23/13hs 22/12þr Osló 26/14he 24/14hs 22/13sú 20/12sú 21/11hs
Glasgow 18/12sú 17/11 sú 15/11as 14/11 sú 15/12as París 24/16sk 22/16sú 24/14hs 26/16he 25/15hs
Hamborg 28/16hs 27/16hs 24/14sú 23/14hs 22/12þr Reykjavík 16/8IS 15/8hs 13/9as 12/9sú 13/9as
Helsinki 23/16hs 22/16hs 22/15hs 21/15sú 19/14as Róm 29/16ls 29/17hs 29/17he 28/18he 30/17hs
Kaupmannah. 26/16hs 24/16hs 23/14sú 22/14as 20/13su Stokkhólmur 22/1 Ohs 24/1 Ohs 23/11sú 22/1 Osú 22/9hs
London 22/13sú 20/16sú 19/14as 19/13hs 18/12sú Vín 28/17IS 26/16hs 25/14hs 26/15hs 24/14hs
Los Angeles 29/17hs 27/16hs 26/17hs 25/16hs 26/16hs Winnipeg 23/16þr 19/11 sú 19/11 as 21/12hs 24/14hs
Lúxemborg 23/14sk 21/14sú 19/13hs 20/13hs 21/13hs Þórshöfn 14/8hs 13/8SÚ 13/7su 12/7SÚ 13/7as
Madríd 28/14IS 29/16hs 31/16he 31/17he 30/16hs Þrándheimur 19/12sk 21/12hs 20/13sú 20/11as 21/11hs