Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 4
ísafjörður
Blöndut
Stykklshóli
Borgarnei
Reykjavík
kjubæjarklaustur
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991.
FÖSTUDAGUR 5. JULI 1991.
Tapaðfundið
Hjónaband
Þann 22. júní sl. voru gefin saman í Há-
teigskirkju af sr. Amgrími Jónssyni
brúöhjónin Edda Aradóttir og Kjartan
Baldursson. Heimili þeirra er í Eyja-
bakka 11, Reykjavík.
Köttur í klandri
Gæðablóðiö og lýsiströllið Loki hvarf frá
heimili sínu á Hverfisgötu 106a. Hann er
svartbröndóttur og hvitur með nokkuö
af brúnum hárum í bröndunum, sérstak-
lega á maganum. Ef einhver veit um
hann, þá vinsamlegast hringið í síma
626898.
Læða tapaðist í Kópavogi
Svört læða tapaðist frá Lundarbrekku 10,
Kópavogi, 21. júní sl. Hún er ómerkt og
gegnir nafninu Leidí. Ef einhver hefur
séð hana eða veit hvar hún er niðurkom-
in, þá vinsamlegast hringið í síma 42958.
listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Dúettar eftir Schötz,
Luigi Cherubini
og Mendelssohn
Á þriðjudagstónleikum í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar þann 9. júií nk.
kl. 20.30 munu söngkonurnar Signý
Sæmundsdóttir og Björk Jónsdóttir
ílytja íjölbreytta efnisskrá við undir-
leik David Tutt píanóleikara. Signý
mun syngja Sieben friihe Lieder eftir
Alban Berg og Björk syngur lög eftir
Johannes Brahms og saman flytja
þær dúetta eftir Schötz, Luigi Che-
rubini og Mendelssohn.
Björk hóf söngnám hjá Elísabetu
Erlingsdóttur við Tónlistarskólann í
Kópavogi. Hún stundaði síðan nám
við Tónhstarskólann í Reykjavík og
lauk þaðan tónmenntakennaraprófi
Norræna húsið:
Abstrakt-
verk eftir
Þorvald
Skúlason
í sýningarsal Norræna hússins
stendur yfir sýning á málverkum
eftir Þorvald Skúlason. Hér er um
að ræða abstraktmyndir málaðar
á árunum 1950-1981.
Listaverkin eru öll í eigu Lista-
safns Háskóla íslands og hefur
það góðfúslega lánað þessi verk á
sýninguna. Björn Th. Bjömsson,
listfræðingur og forstöðumaður
Listasafns H.Í., skrifar grein um
Þorvald Skúlason í sýningarskrá
og valdi hann jafnframt myndirn-
ar.
Sýningin er opin daglega frá kl.
13-19 og stendur til 25. ágúst.
1982. Árið 1988 lauk Björk 8. stigs
prófi frá Söngskólanum í Reykjavík
en auk þess hefur hún sótt námskeið
hjá prófessor Orin Braun og hjá
Sussane Eken. Síðastliðið vor tók
Björk meðal annars þátt í flutningi
Kórs Langholtskirkju á Jóhannes-
arpassíunni eftir Bach.
Signý stundaði nám viö Söngskól-
ann í Reykjavík og fór eftir það utan
og lauk einsöngvaraprófi frá Tónlist-
arháskólanum í Vínarborg 1988. Hún
hefur m.a. tekið þátt í óperuflutningi
hérlendis og erlendis og kemur oft
fram á tónleikum. Signý kennir við
Nýja Tónlistarskólann.
David Tutt hefur oft haldið tónleika
á íslandi. Hann stundaði píanónám
í heimalandi sínu, Kanada, en lauk
B.A. prófi frá háskólanum í Indiana.
Kennari hans þar var Gyorgy Sebok.
David hefur unnið til margra verð-
launa og hefur leikið einleik með sin-
fóníuhljómsveitinni í Toronto, Ed-
monton og Calgary og með útvarps-
hljómsveitinni í Búdapest. Árið 1988
hélt hann einleikstónleika í Wigmore
Hall i London og gerði upptökur fyr-
ir BBC. David Tutt starfar í Sviss og
er búsettur þar.
Laura hefur sýnt verk sína víða í Bandaríkjunum.
Hlaóvarpinn:
Laur a Valentino
Laura Valentino opnar málverka-
sýningu undir nafninu „Kyn, vald,
f'egurð" í Hlaðvarpanum, Vesturgötu
3, í kvöld kl. 20.
Laura lauk M.A. námi í listmálun
frá Kaliforníuháskólanum í Berkeley
árið 1980 og hefur sýnt verk sína víða
í Bandaríkjunum. Hún hefur dvahð
á íslandi í þrjú ár og stundar nám í
íslensku við Háskóla íslands.
Galleríið er opið þriðjudaga-fóstu-
daga kl. 12-18, laugardaga 10-14 og
sunnudaga 14-16. Sýningunni lýkur
21. júlí.
ur í lausasölu. Framkvæmdastjóri SAM-
útgáfunnar og meðeigandi Þórarins Jóns
i útgáfunni er Sigurður Fossan Þorleifs-
son.
Happdrætti heyrnarlausra
Dregið var í happdrætti heyrnarlausra
þann 27. júní sl. og eru vinningar eftirfar-
andi: 1. 1920, 2. 19279, 3. 1143, 4. 19279, 3.
1143, 4. 11419, 5. 7385, 6. 17466, 7. 8287, 8.
18882, 9. 2052, 10. 4573, 11. 3131, 12. 16792,
13. 10684, 14. 15089. Vinninga má vitja á
skrifstofu Félags heyrnarlausra, Klapp-
arstíg 28, alla virka daga, simi 91-13560.
'Félagiö þakkar veittan stuðning.
Bók eftir Normu
E. Samúelsdóttur
Út er komin fimmta bók Normu E. Samú-
elsdóttur, skáldsagan Óþol, undirtitill:
„bók fyrir húsmæður sem vilja vera
skáld og þá sem hafa áhuga á svoleiðis
fólki", prentuð hjá Stensli, útgefin af höf-
imdi í 100 eintökum. Sögupersónumar
eru að mestu þær sömu og í fyrri skáld-
sögu Normu, Næstsíðasta degi ársins
(1979) (MM), og lýsir þróun mála þar á
bæ, aðallega lifi Betu sem segir söguna
að mestu. Þetta er þroskasaga og munu
nokkur eintök verða seld hjá Eymunds-
syni og Máli og menningu, auk þess hjá
höfundi (sjá símaskrá). Auk Næstsíðasta
dags ársins og nú Óþols (1991) hefur
Norma sent frá sér þrjár ljóðabækur.
Væntanlegt er á þessu ári eftir sama höf-
und smásögusafnið: Týndur lykill -fund-
inn lykill.
Bandalög 4
Óhætt er að telja Bandalög meðal helstu
sumarboðanna. Nú eru þijú ár síðan
fyrsta safnplatan, sem bar þetta nafn,
kom út. Jafnan eru flytjendur ijóminn
af vinsælustu íslensku listamönnunum
hveiju sinni. Þeir sem eiga lög á plötunni
að þessu sinni eru m.a. Sálin hans Jóns
míns, sem á tvö lög, Todmobile, sem
verða að teljast í hópi frumlegustu laga-
smiða landsins, eiga einnig tvö lög og
Borgarfjörður eystri:
Kjarval í heimahögum
Á Borgarfirði eystra stendur yfir
sýning á verkum Jóhannesar Sveins-
sonar Kjarvals. Sýnd eru 15 olíumál-
verk og 10 teikningar eftir meistar-
ann.
Þetta er fyrsta Kjarvalssýningin
sem Kjarvalsstaðir skipuleggja úti á
landi og því er vel við hæfi að hún
sé á Borgarfirði eystra. Þangað kom
Kjarval á fimmta ári og bjó þar fram
yfir fermingu, auk þess sem hann var
tíður gestur þar og sótti oft myndefni
sitt þangað.
Við val á myndum á þessa sýningu
var haft í huga að reyna að endur-
spegla áhrif æskustöðvanna á list-
málarann, bæði hvað litameðferð og
myndform varðar. í Borgarfirði eru
miklar álfabyggðir og ekki er vafi á
að álfasögur hafa haft mikil áhrif á
Kjarval í æsku og hann því fléttað
þær inn í verk sín þegar hann stóö
einn úti í náttúrunni og málaði.
Sýningin ber yfirskriftina „Kjarval
í heimahögum" en það nafn er m.a.
dregið af einu verki á sýningunni
sem heitir „Heimahagar". Það sýnir,
auk annars, Geitarvíkurljalhð, en
Jóhannes Kjarval átti heima í Geita-
vík meðan hann var á Borgarfirði.
Um helgina verður mikið um að vera í Laxdalshúsi á Akureyri. Á morgun
mun hljómsveitin „Helgi og hljóðfæraleikararnir" halda tónleika i bakgarði
Laxdalshúss og hefjast þeir kl. 17. Á sunnudag kl. 15 verður boðið upp á
þjóðlega skemmtun því þá mun þjóðdansahópur frá Dalvík sýna þjóðdansa.
Norræna húsið:
; Sýningá
igullsmíða-
vinnu
í anddyri Norræna hússins stendur
yfir sýning á guhsmíðavinnu nem-
enda við Lahti Design Institut í Finn-
landi. Hér er um að ræða útskriftar-
verkefni 17 gullsmiða og er einn ís-
lendingur, Sigríður Anna Sigurðar-
dóttir, á meðal þeirra en hún hlaut
hæstu verðlaun fyrir útskriftarverk-
efni sitt.
Á sýningunni eru verk af ýmsu
tagi, skartgripir, tesett, hattar og
hattanælur, beltissylgja, silfurmunir
og gulh sleginn riffill. Sýningunni
lýkur 12. júlí en opið er alla daga frá
kl. 9-19 nema sunnudaga frá kl.
12-19.
I Hafnarborg stendur yfir sýning
ýmissa iistamanna. Sýningin er liður
í Listahátíð Hafnarfjarðar og stendur
til 14. júli.
Rúnar Þór og hljómsveit spila í
Sjallakjallaranum á Akureyri um
helgina, bæði föstudags- og laugar-
dagskvöld. Það er fjölbreytt tónlist
sem þeir félagar spila og allir fá
eitthvað við sitt hæfi. Með Rúnari
Þór spila Jón Ólafsson á bassa og
Jónas Björnsson á trommur.
sunnudaginn 7. júlí. Nánari upplýsingar
í sima 682900 á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins.
Sýningar
Myndlistarsýning um
borð í Akraborginni
Næstu þrjár vikur stendur yfir allsérstæð
myndlistarsýning um borð í Akraborg-
inni. 19 myndlistarmenn sýna þar jafnt
utandyra sem innan, og kennir þar
ýmissa grasa, s.s. málverk, teikningar,
hljóðverk, hreyfiverk, skúlptúrar, khppi-
myndir svo eitthvað sé nefnt. Sýningunni
lýkur 20. júli. Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem markviss sýning er sett upp í ís-
lensku skipi.
Gunnar sýnir í Eden
Gunnar Hjaltason, gullsmiður og hstmál-
ari í Hafnarfirði, sýnir um þessar mund-
ir í Eden, Hveragerði. Á sýningunni eru
54 myndir, pastelmyndir og myndir mál-
aðar á japanskan ríspappír. Sýningunni
lýkur 14. júlí.
Tilkynningar
Fundir
Fundur í Félagi fráskilinna
í Risinu, Hverfisgötu 105, í kvöld kl. 20.30.
Nýir félagar velkomnir.
•II *
Leikhús
Gamanleikhúsið
sýnir söngleikinn Grænjaxla laugardag-
inn 6. júli og sunnudaginn 7. júlí kl. 20.30
í íslensku óperunni. Miðaverð kr. 800
með leikskrá. Miðasalan er opin kl. 15-18
og 15-20.30 sýningardagana. Miðapant-
anasími er 11475.
Bleikt og blátt komið út
Fyrsta tölublað tímaritsins Bleikt & blátt
er komið út eftir að SAM-útgáfan tók við
rekstrinum en SAM gefur sem kynnugt
er út timaritin Hús & híbýh, Samúel og
Vikuna. Annar nýrra eigenda ritstýrir
þessu tölublaði af B&B ásamt öðrum fym
eiganda. Eru það þeir Þórarinn Jón
Magnússon, sem jafnframt stýrir áður-
nefndum tímaritum SAM, og Örn Friðrik
Clausen sem gaf út síðasta tölublað B&B
ásamt Hrafnlúldi Stefánsdóttur. Þess var
gætt að breyta B&B ekki hið minnsta frá
því sem það var, hvorki í úfiiti eða efnis-
tökum. Vandað er mjög til efnisvals og
m.a. notið aðstoðar þriggja íslenskra
lækna í þessu fyrsta tölublaði. Áætla
nýir útgefendur að koma B&B út sex
sinnum á ári. Hefur verð blaðsins verið
lækkað og kostar þaö nú aðeins 389 krón-
Upplyfting og Ríó. Aðrir, sem koma við
sögu, eru EUen Kristjánsdóttir, Manna-
korn, Herramenn, Sú EUen, Loðin rotta,
Karl Örvarsson og GaUleó. Samtals eru
þarna á ferðinni 11 flytjendur, 15 lög sem
gerir plötuna yfir klukkutíma í spilun.
Bandaíög 4 kom út á plötu, kassettu og
geisladiski.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar leggja af stað frá Risinu,
Hverfisgötu 105, á morgun, laugardag,
kl. 10.
Hjónaband
15. júní sl. voru gefin saman í hjónaband
brúðuhjónin Hrefna Björk Petersen og
Bjarni Bjarnason. Athöfnin fór fram í
Fella- og Hólakirkju og var það sr. Hreinn
Hjartarson sem gaf brúðarhjónin saman.
Heimili brúðhjónanna er að Rauðalæk
39, Reykjavík.
Ljósmyndari: ljósmyndarinn Jóhannes
Long.
Hjórtaband
Nýlega voru gefm saman í hjónaband í
Grafarkirkju, Skaftártungu, brúðhjónin
Hrönn Hallgrímsdóttir og Árni Guðjón
Vigfússon. HeimiU þeirra er í Ástúni 10,
Kópavogi.
Ljósmynd: ljósmyndarinn Jóhannes
Long
Messur
Gamla rjómabúið hjá Baiigsstöðum, austanvið Stokkseyri, verður opið al-
menningi til skoðunar á laugardögum og sunnudögum i júlí og ágúst frá
kl. 13-18. 10 manna hópar eða fleiri geta fengið að skoða búið á öðrum
tímum ef haft er samband við gæslumenn með góðum fyrirvara.
Evrópuréttur, ný bók eftir
Stefán M. Stefánsson prófess-
or
Út er komin hjá Iðunni bókin „Evrópu-
réttur - réttarreglur og stofnanir E vrópu-
bandalagsins" eftir Stefán M. Stefánsson
prófessor. Viðfangsefni höfundarins er
Rómarsamningurinn, stofnsamningur
Evrópubandalagsins - sá grundvöUur
sem aUt starf bandalagsins er byggt á.
Bókin lýsir réttarkerfi EB og lagaáhrifum
EB-reglna. Hún lýsir stofnunum EB,
hvernig þar eru teknar ákvarðanir og
efnisreglum sem stofnunum og aðUdar-
ríkjum ber að fylgja. DómstóU EB fær
ítarlega umfjöllun. Ritið er rösklega 400
síðna bók og er ómissandi upþsláttarrit
öUum þeim er áhuga hafa á Evrópu-
bandalaginu og því „evrópska efnahags-
svæði“ sem verið er aö semja um þessa
dagana miUi EB og EFTA-ríkjanna, þ.á
m. íslands. Höfundur leggur mesta
áherslu á atriði sem mikUvægt eru frá
sjónarhóU lögfræðinnar. Stefán M. Stef-
ánsson er prófessir við lagadeUd Háskóla
íslands þar sem helstu kennslugreinar
hans eru Evrópuréttur, félagaréttur og
gjaldþrotaréttur. Hann hefur áður sent
frá sér fjölmörg rit og bækur. Hann situr
í nefnd lagasérfræðinga EFTA-ríkja um
evrópskt efnahagssvæði.
Tombóla
Nýlega héldu þessar tvær stúlkur sem
heita Sigrún Rúnarsdóttir og Ólöf Jóns-
Sumarferð Húnvetninga-
félagsins
verður farm helgina 12.-14. júU um
FljótshUð og FjaUabaksleið syðri. Upplýs-
ingar og miðapantanir í síma 814806.
Gúlliver í Putta-
landi í Gjánni
Hljómsveitin GúlUver í Puttalandi (6
menn) hefur starfsemi sína á íslensku
tórUistarsumri nú um helgina. Hljóm-
sveitin mun leika á Gjánni á Selfossi í
kvöld og annað kvöld. Hljómsyeitina
skipa: HaUdór Hafsteinsson, Þórir Úlfars-
son, Einar Guðmundsson, Rúnar Guö-
jónsson og Rúnar Guðmundsson.
dóttir tombólu tfi styrktar hjálparstarfi
Rauða kross íslands. AUs söfnuðu þær
1.600 krónum.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð-
ur á morgun. Lagt af stað frá Fannborg
4 kl. 10. Nú skarta garðar bæjarins sínu
fegursta með laufguðum tijám og Utfógr-
um blómum. Góð byrjun á góðri helgi er
að koma með í bæjarröltið og byija með
rabbi og molakaffi í Fannborginni upp
úr kl. hálftíu.
Nýr sóknarprestur
Langholtskirkju
Séra Flóki Kristinsson, nýr sóknarprest-
ur Langholtssafnaðar í Reykjavík, verð-
ur settur inn í embætti við guðsþjónustu
kl. 11 sunnudaginn 8. júní. Séra Flóki tók
tíl starfa 1. júU og eru viðtalstímar hans
kl. 16-17 þriðjudaga til föstudaga og síma-
timi þriðjudaga kl. 15-16.
Signý, David og Björk.
Astand
Innan svörtu línanna eai
vegir sem eru lokaðir allri umferð þar til annað Gefið út 4. júlí 1991
verður auglýst Næsta kort verður gefið út 11. júlf
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Þór Hauksson. Organisti Jón
Mýrdal. Sóknaniefnd.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ami
Bergur Sigurbjömsson.
Borgarspítalinn: Sunnudagur: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sigfinnur Þorleifsson.
Breiðholtskirkja: Engin guðsþjónusta
verður í Breiðholtskirkju vegna sumar-
leyfis sóknarprests en vísað er á guðs-
þjónustu í Seljakirkju kl. 20.30.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Sigurður Pálsson messar. Organisti
Kjartan Siguijónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn H. Friðriks-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Kristinn Ágúst Friðfmnsson.
Fella- og Hólakirkja: Sunnudagur:
Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Mánudagur: Fyrirbænir í
kirkjunni kl. 18. Fimmtudagur: Helgi-
stund fyrir aldraða í Gerðubergi kl. 10 í
umsjón Ragnhildar Hjaltadóttur.
Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjónusta
kl. 14.00. Miövikudagur 10. júlí kl. 7.30:
morgunandakt. Orgelleikari Violeta
Smid. Kirkjan er opin í hádeginu virka
daga. Cecil Haraldsson.
Grafarvogsprestakall: Guðsþjónusta kl.
11 í Félagsmiöstöðinni Ejörgyn í Folda-
skóla. Organisti Sigríður Jónsdóttir. Sr.
Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti Ámi
Arinbjamarson.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Ragnar Fjalar Lámsson.
Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum. Fimmtudagur:
Indlandsvinir. Fundur kl. 20.30.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Kvöldbænir og fyrirbænir em
í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Guðmundur GUsson. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi
Skúlason.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Prófastur,
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, setur sr.
Flóka Kristinsson inn í embætti sóknar-
prests. Kór Langholtskirkju syngur. Org-
anisti Þóra V. Guðmundsdóttir. Molasopi
að guðsþjónustu lokinni.
Laugarneskirkja: Laugardagur: Messa
kl. 11. í Hátúni lOb, 9. hæð. Sóknarprest-
ur. Sunnudagur: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Bjami Karlsson. Heitt á könnunni eftir
guðsþjónustuna. Fimmtudagur: Kyrrð-
arstund kl. 12. Orgelleikur, altarisganga,
fyrirbænir.
Neskirkja: Messa kl. 11. Organisti Reyn-
ir Jónasson. Sr. Frank M. Halldórsson.
Miðvikudagur: Bænamessa kl. 18.20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seljarkirkja: Laugardagur: Guðsþjón-
usta í Seljahlíð kl. 11. Sunnudagur:
Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Vilberg Vig-
gósson og Hafsteinn Guðmundsson flytja
tónlist. Organisti Kjartan Siguijónsson.
Molasopi að lokinni guðsþjónustu. Sókn-
arprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Org-
anisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Prestur
sr. Hjalti Guðmundsson. Organisti
Marteinn H. Friðriksson. Bátsferð
úr Sundahöfn kl. 13.30. Dómkirkjan.
Ytri-Njarðvikurkirkja: Messa (altaris-
ganga) kl. 20.30 á sunnudagskvöld. At-
hugið breyttan messutíma. Kór Innri-
Njarðvíkurkirkju syngur. Organisti
Steinar Guðmundsson. Ólafur Oddur
Jónsson.
Þingvallakirkja: Guðsþjónusta á sunnu-
dag kl. 14. Organleikur Einar Sigurðsson.
Sóknarprestur.
Ferðalög
Útivist um helgina
Laugardagur 6. júlí
kl. 08 Bláfell á Kih
Fjórða Ijallgangan í fjallasyrpu Útivistar
1991.
Sunnudag 7. júlí
kl. 09 Heklugangan
Gullfoss - Brúarhlöð - Haukholt.
Gengið verður frá Gullfossi niður með
Hvítá um Brúarhlöð að Haukholti. Þessi
leið er fremur létt ganga.
Kl. 13 Draugahlíðar - Jósefsdalur.
Gengið frá Litlu-Kaffistofunni um
Draugahlíðar og Sauðahnjúkadall og í
Jósefsdal. Til baka um Ólafsskarð.
Ath.: Tjaldsvæðið í Básum.
Vegna mikillar aðsóknar núna um helg-
ina verða alli ætla sér að tjalda í
Básum og á Gc Ji að fá leýfi á skrif-
stofu Útivistar.
Sumarferð Digranessafnaðar
verður að þessu sinni dagsferð í Þórs-
mörk sunnudaginn 7. júlí. Lagt af stað frá
safnaöarheimilinnu, Bjamhólastíg 26, kl.
8.30 árdegis. Helgistund verður í Stórólfs-
hvolskirkju í umsjá Sigurðar Jónssonar.
Sameiginleg kaffidrykkja á Hellu á heim-
leið. Að öðm leyti þurfa menn að hafa
með sér nesti.
Þórsmörk - Húsadalur
Vegna mikillar aösóknar ■ ía,
verða allir sem ætla sér aö ði
Austurleiðar í Húsaúal að a-
stofunni í síma 813717.
Þórsmerkurft.o He
Heimdallur, félag ungr
manna í Reykjavík, et íir •. . órs-
mörk dagana 5.-7. júl rður af
stað frá Valhöll, Háale,. ■ ... 1, í dag,
5. júlí, kl. 18 og komið til baka síðdegis
HVÍTUR STAFUR
er aðal hjálpartæki
blindra og
sjónskertra
í umferðinni
h jP BLINDRAFÉLAGIÐ ||UMFERÐAR