Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Qupperneq 6
22
X' í.r' i ,.é nir /iTUi'raOí
FÖSTUDAGUR 5. JÚLl 1991.
Regnboginn:
Hrói höttur, prins þjófanna
í dag frumsýnir Regnboginn vin-
sælustu kvikmyndina í Bandaríkj-
unum um þessar mundir, Hrói
höttur, prins þjófanna (Robin Ho-
od, Prince of the Thieves) meö Ke-
vin Costner í aðalhlutverki. Þetta
er önnur tveggja kvikmynda um
Hróa sem komið hafa á markaðinn
í sumar og hefur þessi haft vinning-
in hvað vinsældir snertir. Raunar
fór það svo að Hróa hattar myndin,
sem Bíóborgin sýnir, fór aldrei í
kvikmyndahús vestanhafs, heldur
var sýnd sem sjónvarpskvikmynd.
Það verða sjálfsagt margir sem
verða undrandi á söguþræðinum í
Hróa hetti, hann er ekki beint líkur
því sem venja hefur verið hingað
til. Þegar myndin hefst er Hrói
höttur, sem er aöalsmaður, að
koma úr krossferð frá Landinu
helga og með honum er svartur
Mári sem hefur heitið því aö skilja
ekki við hann fyrr en hann hefur
bjargað lífi hans. Morgan Freeman
leikur Márann. Hrói lendir síðan í
kunnuglegum útistöðum við fótget-
ann í Nottingham, sem leikinn er
snilldarlega af Alan Rickman, og
flýr í Skírisskóg þar sem barist er
um völdin meðal útlaganna.
Þeir sem séð hafa þessa nýju út-
gáfu af Hróa hetti segja að hann
líkist fremur Indiana Jones heldur
en gömlu Hróaímyndinni sem Er-
roll Flynn gerði ódauðlega á fjórða
áratugnum.
Það var ekki lagt í þessa Hróa
mynd fyrr en Kevin Costner hafði
játað því að leika í henni, slík
áhætta þótti að gera hana, en þegar
hann hafði samþykkt var ekkert til
sparað. Costner setti þó skilyrði
fyrir þátttöku sinni, að hann fengi
að ráða hver yrði leikstjóri. Valdi
hann vin sinn Kevin Reynolds sem
ekki hafði mikla reynslu af stór-
myndum sem þessum. Allt virðist
þó hafa gengið upp og nú er aðeins
að sjá hvernig landinn tekur nýjum
Hróa hetti.
-HK
Tilburðir Hróa hattar minna oft frekar á Indiana Jones en gömlu Hróaímyndina.
Fjörugir unglingar skemmta sér.
Laugarásbíó:
Táningar
Laugarásbíó hefur hafið sýningar á
léttri gamanmynd, Táningum (Book of
Love). Aðalpersónan er Jack Twiller sem
kvíðir fyrir þeim breytingum sem fylgja
því að foreldrar hans flytjast með hann
og yngri bróður hans, Peanut, í nýtt um-
hverfi. Hann kynnist samt strax bækluð-
um dreng og er honum hjálplegur meðan
hann er að venjast nýja staönum.
Jack kynnist líka fleiri strákum, meðal
annars Floyd, sem móður hans líkar vel
við og telur sannkallað prúðmenni, en
ekki er allt sem sýnist og þegar Jack býð-
ur honum gistingu þegar hann er einn
heima býður Floyd hópi fólks í partí þar
sem djammað er upp um alla veggi.
Það eru ungir og óþekktir leikarar sem
leika aðalhlutverkin í Táningum. Chris
Young, sem leikur Jack Twiller, er aðeins
19 ára gamail og fæddur í Pennsylvaniu.
Hann hefur þó leikið á sviði síöan hann
var sjö ára gamall og hefur alltaf sett stefn-
una á leiklistina. Þeir sem sáu leiknu
þættina um Max Headroom muna kannski
eftir honum en hann lék ungt tölvufrík
sem var í sambandi við Headroom. Þá lék
hann son John Candy í The Great Outdo-
ors.
Leikstjórinn, Robert Shaye, er stofnandi
New Line Cinema sem er eitt af „minni“
kvikmyndafyrirtækjunum í Hollywood
sem hefur gengið vel að undanfómu. Hann
byrjaði með fyrirtækið sem lítiö dreifing-
arfyrirtæki en með skynsamlegu vah á
kvikmyndum hefur hann gert New Line
Cinema að fyrirtæki sem veltir milljörö-
um árlega. Shaye hefur sjálfur ekki mikið
leikstýrt kvikmyndum heldur verið í hlut-
verki framleiðanda og meðal kvikmynda,
sem hann hefur framleitt, má nefna Nig-
htmare on Elm Street myndirnar, The
Hidden, Critters, Hairspray og My Demon
Lover.
-HK
BÍÓBORGIN
Ungi njósnarinn ★★14
Dágóð skemmtxm þar sem gert er
stólpagrín að James Bond og hans
líkum. Efnisleikarar ásamt eldri og
reyndari fara á kostum. Einnig
sýnd í Bíóhöllinni.
-PÁ
Valdatafl ★★★*
Grípandi glæpónasaga með undra-
verðu handriti og persónum. Enn
eitt meistaraverkið frá Cœn-
bræðrum.
-GE
Hrói höttur ★★
Ágætis hasarmynd á léttari nótun-
um. Gerir lítáö úr hetjuímynd Hróa
enda Bergin frekar daufur.
-GE
Eymd ★★★
Vel heppnuö spennumynd eftir
einni af skástu sögum Stephens
King. Kathy Bates sýnir hörkuleik.
Dúndurafþreying.
-PÁ
BÍÓHÖLLIN
Meö lögguna ó hælunum ★★
Góö tónlist og tökur fyrir ofan
meðallag bjarga myndinni fyrir
hom. Efhileg saga rennur út í
sandinn. -PÁ
Útrýmandinn , ★'/>
Næfurþunnur B-myndasöguþráð-
ur meö einfaldri sálarflækju. Ekki
næg spenna til uppfyllingar.
-GE
Sofið hjá óvininum
Einstaklega stílhrein útfærsla á
einfaldri en kröftugri sögu. Júlia
er sæt sem endranær.
-GE
Aleinn heima ★★ '4
Gamanmynd um ráðagóðan strák
sem kann svo sannarlega að taka
á móti innbrotsþjófum. Miög fynd-
in í bestu atriðunum. MacCaulay
Culkin er stjama framtíöarinnar.
-HK
HÁSKÓLABÍÓ
Lömbin þagna
Stórgóð sakamálmynd þar sem fer
saman mikil spenna og góöur leik-
ur. Anthony Hopkins er ógleyman-
legur.
-HK
Hafmeyjarnar ★★
Þrjár spes mæðgur og uppátæki
þeirra á sjöunda áratugnum vekja
oft kátínu. Litla stelpan leikur Cher
og Winonu í kaf.
-GE
Ástargildran ★★
Erótísk eöa ekki erótísk, það er
spumingin. I slöku meöallagi.
-PÁ
Eldfuglar ★
Vængstýfður óður til herþyrlu.
Bara fyrir hörðustu hemaðará-
hugamenn.
-GE
Tveir góðir ★'/;
Því miður stenst myndin engan
vegin samanburð við fyrirrennar-
ann, Chinatown. Góöur leikur
bjargar ruglingslegu handriti.
HK
DanieUe frænka ★★
Sérstæð gamanmynd um fúllynt
gamalmenni. Ágæt skemmtun.
-PÁ
Bittu mig, elskaðu mig ★★★
Afdráttarlaus, meinfyndin kóme-
día. Helst betur á húmornum en
alvörunni á bak við húmorinn.
-GE
LAUGARÁSBÍÓ
Hans hátign ★ 14
John Goodman leikur erfingja
bresku krúnunnar þegar öll kon-
ungsfjölskyldan ferst á einu bretti.
Goodman nær ekki að bera uppi
myndina sem er frekar ófyndin.
-PÁ
Hvíta höUin ★★'/>
Skemmtileg mynd um ást og stétta-
skiptingu. Spader og Sarandon fara
á kostum þótt handritið bregðist í
lokin.
-PÁ
REGNBOGINN
Glæpakonungurinn ★★'/>
Nöturleg mynd af undirheimum
New York. Walken í banastuði.
Ekki fyrir viðkvæma.
-PÁ
Löng og faUeg kvikmynd um nátt-
úruvernd og útrýmingu indíána.
Glæsileg frumraun Kevins Costn-
er.
-PÁ
STJÖRNUBÍÓ
Saga úr stórborg **!4
Steve Martin sýnir sínar bestu
hhðar sem leikari og handritshöf-
undur í skoplegri ádeiiu á þotuliðið
í Los Angeles.
-HK
Avalon ★★*'/!
Skemmtileg ættarsaga og frábær
ádeUa á upplausn stórfjölskyld-
unnar í drauraalandinu.
-GE
Stál í stál ★'/>
Eftir hressilega byrjun siglir í rugl-
inslega atburðarás sem er yfir-
gengilega ósennUeg.
-HK
Cyrano de Bergerac ★★★
Gerard Depardieu er eins og hvirf-
ilbylur í aðalhlutverkinu. Magnað-
ur leikur í glæsilegri stórmynd.
-PÁ
Dansað við úlfa
★★★
The Doors ★★★
OUver Stone er snjall kvikmynda-
gerðarmaður. Honum tekst að gera
sannfærandi mynd um ævi popp-
goðsins Jims Morrison sem brann
út á örfáum árum. Val Kilmer
hjálpar tU með góðum leik.
-HK
Pottormamir ★'/!
Hroðvirknislegt framhald þar sem
söguþráður er nánast enginn og
frumleikinn horfinn. Bömin eru
einu leikararnir sem standa fyrir
sínu.
-HK