Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Blaðsíða 7
LAUGARDAGURfl&HJÚLl 1901.
Fréttir
100 metra langt og fint laxanet lá í Reykjavikurhöfn í gær milli skipanna
Fengs og Bláfells. Lögreglan klifraði niður og náði í netið olöglega.
DV-mynd S
Sakbomingar í Þýsk-íslenska kæra til mannréttindanefndar:
Kæra sakf ellingu sem
ekki var ákært fyrir
- og ágreining um skattamál sem ekki fór fyrir ríkisskattanefnd
Ómar Kristjánsson, forstjóri Þýsk-
íslenska, og Guðmundur Þórðarson,
fyrrverandi fjármálastjóri, hafa
ákveðið að kæra dóm Hæstaréttar til
mannréttindanefndar Evrópu í saka-
máli á hendur þeim og í svokölluðu
lögtaksmáli á hendur fyrirtækinu.
Kæran er í sex liðum.
í refsimálinu var Ómar dæmdur í
12 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuði
óskilorðsbundiö. Hann var einnig
dæmdur til að greiða ríkissjóði 20
milljónir króna í sekt, aðallega fyrir
undandrátt á skatti. Guðmundur var
dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið
fangelsi og til greiðslu einnar millj-
ónar króna í sekt. Fyrirtækið var
dæmt til að greiða 33 milljónir króna
í vangoldin opinber gjöld til ríkis-
sjóðs í lögtaksmálinu.
Mennirnir kæra Hæstarétt fyrir að
sakfella fyrir brot sem ríkissaksókn-
ari ákærði ekki fyrir. Ákært var fyr-
ir undandrátt á skatti fyrir árið 1984
en bæði Sakadómur Reykjavíkur og
Hæstiréttur sakfelldu fyrir skattund-
andrátt fyrir árin 1981,1982 og 1983.
Sakborningarnir telja einnig að eng-
in lögfull sönnun hafi verið færð
fram um skattaundandrátt fyrir síð-
astnefnd 3 ár heldur hafi dómurinn
verið byggður á „útreikningslíkani
sem Sakadómur Reykjavíkur bjó sér
til í stað þess að fram færi opinber
rannsókn á skattskilum þessara
ára“, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu. -
Kærendur telja það einnig brot á
mannréttindasáttmálanum að fyrir-
tækinu hafi verið synjað um að fá
skorið úr um ágreiningsefni í skatta-
málinu fyrir ríkisskattanefnd og að
dómari í fógetarétti Reykjavíkur,
sem úrskurðaöi í lögtaksmáliu, hafi
ekki haft hlutlausa stöðu sem dómari
í því máli.
Auk þessa er það ekki talin réttmæt
opinber rannsókn að Hæstiréttur
felli dóm um sönnunaratriði án
beinnar sönnunarfærslu þannig að
dómstóllinn yfirheyrði sjálfur máls-
aðila og vitni.
Að lokum er kært fyrir aö í Hæsta-
rétti hafi verið dæmt um aðrar kröf-
ur en dæmdar voru í fógetarétti
Reykjavíkur. Fógetaréttur leyfði lög-
tak fyrir viðbótarsköttum fyrir 1984
en Hæstiréttur vegna áranna 1981-
1983 án þess að viðbótarskattur hefði
verið lagður á fyrir þau ár af viðeig-
andi skattaaðilum.
Kæran verður send til mannrétt-
indanefndar Evrópu í Strassborg
sem metur hvort henni verði vísað
til mannréttindadómstólsins.
-ÓTT
DV-mynd Örn
Trillur Fljótamanna við bryggju í Haganesvík.
Slök grásleppuvertíð í Fljótum
Öm Þórarinsson, DV, Fljótum:
Einni lökustu grásleppuvertíð í
Fljótum um árabil lauk fyrir
skömmu. Þrjár trillur frá Haga-
nesvík stunduðu veiðamar að þessu
sinni og höfðu þær milli 80 og 90
tunnur af hrognum upp úr krafsinu.
Vertíðin í ár var slök, byijaði seint
vegna ótíðar og eftir að veðrátta
batnaði var eins • og aldrei kæmi
veruleg ganga af grásleppunni. Þá
var nær engin þorskveiði að þessu
sinni, en undanfarin ár hefur oft ver-
ið ágæt þorskveiði skamman tíma að
vorinu. Síðustu daga hefur verið róið
með handfæri frá Haganesvík en afli
verið lítill.
Áttu erfitt með að nálgast aftur
myndefnið þitt?
Á KODAK EXPRESS stöðunum starfar einungis fagfólk. Framleiðsla
þeirra er undir ströngu og margþættu gæðaeftirliti KODAK umboðsins.
Gerðu kröfur um gæði og settu filmuna í hendurnar á fagfólkinu
hjá KODAK EXPRESS.
FÍLMAN ÞlN ER HERNA
B1NHV£R5STABAR....
BARA FÍNN HANÁ EKKV
RéTTÍ AUCiN/NBUKÍNU
evtthvaö aaerkí-
Leenr a þessarí fílmu?
:> *.
SP
SETTU
FILMUNA ÞÍNA
í HENDURNAR
Á FAGFÓLKI
KODAK EXPRESS FRAMKÖLLUIMARSTAÐIRIMIR:
Hans Petersen hf. Bankastræti
Hans Petersen hf. Glæsibæ
Hans Petersen hf. Austurveri
Hans Petersen hf. Kringlunni
Hans Petersen hf. Laugavegi 178
Hans Petersen hf. Hólagarði
Hans Petersen hf. Lynghálsi 1
Kaupstaður i Mjódd.
LJóshraðl (Hamraborg, Kópavogi
Filmur og Framköllun Strandgötu, Hafnarfirði
Hljómval Keflavík
LJósmyndahúslö Dalshrauni 13, Hafnarfirði
Bókaverslun Andrésar IMfelssonar, Akranesi
Bókaverslun Jónasar Tómassonar, Isafirði
Pedrómyndlr Hafnarstræti og HofsbóL Akureyri
Nýja-Fllmuhúslð Hafnarstræti, Ttkureyri
Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki
Vöruhús KA, Selfossi