Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1991, Page 23
' LÁ Ú G A R Ð A G Ú R T S.' JÖLÍrí9þ 1.
23
Svidsljós
Brúðhjónin Peter og Lisa ásamt foreldrum brúðgumans, Kirk Douglas og
Anne Buydens.
Brúðkaup að hætti Douglas
Það var enginn fátæktarbragur á
brúðkaupi Peters Douglas sem giftist
fyrir skömmu unnustu sinni Lisu
Maríu Schoeder sölustjóra. Brúð-
kaupið fór fram í garðinum hjá for-
eldrum Péturs, nánar tiltekið á sund-
laugarbakkanum. Fjöldi frægra
kvikmyndaleikara mætti og meðal
gestanna mátti einnig sjá fyrrum for-
seta Bandaríkjanna, Ronald Reagan,
og Nancy, konu hans.
Ástæðan fyrir þessu ijölmenni
þeirra frægu er sú að Peter Douglas,
handritshöfundur og kvikmynda-
framleiðandi, er sonur Kirk Douglas,
sem frægur hefur oröið að verðleik-
um fyrir leik í kvikmyndum í ára-
tugi. Synir hans hafa haslað sér völl
innan kvikmyndaiðnaðarins og næg-
ir að minna á Michael Douglas sem
hefur fengið hin eftirsóttu óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í kvikmynd-
um. Meðal hans frægustu kvik-
mynda eru Fatal Attraction, Wall
Street, og Black Rain svo fáar séu
nefndar.
Peter Douglas er þriðji í röðinni af
sonum Kirks Douglas og fyrsta barn
hans af hjónabandi númer tvö.
Fyrsta kona Kirks var leikkonan
Diana Dill en seinni konan og móðir
Peters er belgíska leikkonan Anne
Buydens en hjónaband þeirra Kirks
hefur staðið í 36 ár.
Peter hefur skrifað handrit nokk-
urra kvikmynda en einkum starfað
sem framleiðandi þar á meðal við
eina mynd, Final Countdown, þar
sem faðir hans lék aðalhlutverkið.
í brúðkaupsveislunni gæddu gestir
sér á kavíar og lambasteik en síðar
var stiginn dans fram eftir nóttu eins
og vera ber við slík tækifæri.
Snyrtifræðingar, athugið!
Laus vinnuaðstaða fyrir snyrtifræðing.
Fyrir er á staðnum nuddstofa og sólbaðsstofa.
Erum á góðum stað í Breiðholti.
Þeir snyrtifræðingar, sem áhuga hafa, geri svo vel
að leggja inn nafn og símanúmer á DV, merkt „Nudd
og sól“ fyrir 19. júlí nk.
VIRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaska.ttur af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði er endUrgreiddur:
• Byggjendur ibúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna á
byggingarstað hússins.
•Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna við
viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis
síns.
• Þeir sem framleiða íbúðarhús í verk-
smiðju hér á landi geta fengið endur-
greiddan hluta virðjsaukaskatts af
söluverði húsanna.
Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er
endurgreiddur virðisaukaskattur vegna
tækjavinnu né af efni sem notað ertil
byggingarframkvæmda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
•RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til
sölu eða leigu.
•RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Athygli skal vakin á því að frumrit
sölureiknings skal fylgja umsókn um
endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna
endurbóta og viðhalds. Vegna ný-
byggingar verður umsækjandi að geta
lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölu-
reikninga þar sem skýrt kemur fram
hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstimabil er tveir mánuðir:
janúar og febrúar, mars og apríl, mai og
júní, júlí og ágúst, september og október,
nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Hvenær er
endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma skal endur-
greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
RSK
RIKISSKATTSTJORI
TakmQrkanir á umferb í
Kvosinni vegna gatna-
framkvæmda
Nú standa yfir gatnaframkvæmdir í Vonarstræti, Tempiarasundi
og norburhluta Tjarnargötu, göturnar veröa malbikaöar,
stein-lagöar og settar snjóbræöslulagnir í þær. Jafnframt veröur
noröurbakki Tjarnarinnar endurbyggður. Nauðsynlegt er aö
loka götunum meðan á framkvæmd stendur. Verkiö verður
unniö í áföngum. Eftirfarandi er endurskoðuð áætlun um
verktíma einstakra áfanga.
Verktími:
Vonarstræti austan nr. 10..............30. apríl -15. sept.
Templarasund...........................5. júlí - 15. ágúst.
Vonarstræti frá nr. 8 að Tjarnargötu
og Tjarnargata frá Vonarstræti aö nr. 4..1. júlí -15. sept.
Tjarnargata frá nr. 4 ab Kirkjustræti....1. júní - 6. ágúst.
Tjarnargata frá Vonarstræti aö nr. 20....15. júlí - 20. okt.
Til 15. sept. verður ekki unnt að aka um Vonarstræti frá
Lækjargötu ab Suðurgötu. Þess í stab er ökumönnum bent á
að aka Skólabrú, Pósthússtræti og Kirkjustræti.
Framkvæmdum vib Tjarnargötu milli Vonarstrætis og Kirkju-
strætis verbur hagað þannig, ab abkoma verbur möguleg að
bílastæði Alþingis.
Vib upphaf hvers áfanga verbur auglýst nánarum
lokanir gatna og breytingar á umferð.
Bor
Um
garverkfræðingurinn í Reykjavík
feröardeild