Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 4
Fréttir
Umhverfisráðherra segir að sýni Austurríkismannanna verði skoðuð:
Alvarlegt mál sem gef ur
tilefni til breytinga
- bíður eftir tillögum um úrbætur frá Náttúruverndarráði
„Ef blaðafregnir og lýsingar DV á
framgöngu þessara ferðamanna eru
réttar er þetta alvarlegt mál sem
kann að gefa tilefni til aðgerða. Það
verða gerðar ráðstafanir til að fylgj-
ast með hópnum og skoða hvaða sýni
fólkið hefur tekiö,“ sagði Eiður
Guðnason um mál austurríska hóps-
ins sem tók sýni með slaghömrum
og meitlum í bergi í Hallbjarnar-
staðakambi á Tjörnesi um helgina.
Hópurinn er væntanlegur til Reykja-
víkur í vikunni.
„Það hefur verið beðið um íjárveit-
ingar til að ráða sumarmann til að
fylgjast með þeim stöðum sem út-
lendingar sækja á,“ sagði Eiður. „Hér
er ekki um að ræða vandamál vís-
indamanna sem sækja um leyfi til
vísindaráðs fyrir rannsóknir - þar
er ákveðnum reglum fylgt. Hins veg-
ar er meira vaiidamál með hópa
áhugamanna eins og hér um ræðir.
Meginatriðið er að við þyrftum að
hafa gæslu á ákveðnum ferðamanna-
stöðum. Við hljótum að grípa til til-
tækra ráðstafana og úrræða sam-
kvæmt gildandi reglum þegar spjöll
eru unnin. Ef það er ekki nóg verðum
við að breyta reglunum."
- Hvernig munt þú aðhafast í mál-
inu?
„Máliö er á þessu stigi í höndum
Náttúruverndarráðs og ég bíð eftir
tillögum þess um viðbrögð og breyt-
ingar. Þær hef ég ekki fengið enn en
mér finnst að við eigum að gera ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir að
náttúruspjöll séu unnin."
- Hvernig horfa svona mál við um-
hverflsráðuneytinu og hver eru við-
urlög við þessu?
„Ég hef ekki látið kanna þetta lög-
fræðilega en það verður að sjálfsögðu
gert. Ég fullyrði því ekki á þessu stigi
hvaða viðurlögum er hægt að beita.
Þetta er ráðuneytinu viðkomandi en
ég lít hins vegar svo á að það sé nú
í höndum Náttúruverndarráðs og
Náttúrufræðistofnunar. Mér finnst
þetta alvarlegt mál. “ -ÓTT
HcLGUSTAOANÁMA
Austurríkismennirnir fóru meðal annars í Helgustaðanámu við Reyðarfjörð.
Viljum kanna farangur
Austurríkismannanna
- leiðsögumaöurverðiútilokaður
„Eg hef talað við Svein Jakobs-
son, forstöðumann Náttúrufræði-
stofnunar, um þetta mál. Við höf-
um ákveðið að taka á móti þessu
fólki á hentugum stað og athuga
hvað það er með í fórum sínum.
Einnig verður skrifað til Ferða-
málaráðs og farið fram á að þessi
leiðsögumaður fái ekki leyfi til aö
starfa sem slíkur aftur hér - það
væri æskilegra að koma innlend-
um leíðsögumanni á næsta hóp.
Síðan er þetta miklu stærra mál
að koma skikki á þessi steinamál.
Það vantar til að mynda laga-
ákvæði í þessu sambandi," sagði
Þóroddur F. Þóroddsson, fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndar-
ráðs, vegna austurríska hópsins
sem vítni sáu brjóta stykki úr bergí
í Hallbjamarstaðakambi á Tjörnesi
um helgina.
„Við munum óska eftir, í sam-
ræmi við lög um Náttúrufræöi-
stofliun og söfhun náttúrufræöi-
gripa, aö fulltrúi stofnunarinnar
kanni það sem Austurríkismenn-
irnir hafa verið að safna til aö skera
úr um hvort þeim verður heimilt
að fara með það úr landi,“ sagði
Þóroddur. „Við teljum eðlilegt að
farangur fólksins verði kannaður.
Þaö getur auðvitaö ekki hver sem
er farið um landið og sópað upp.
Ef menn telja sig vera visindamenn
og eru að safna múnum eiga þeir
að vera með rannsóknarleyfi. Þess-
ir menn eru ekki með slíkt leyfi
þótt.sótt hafi verið um það,“ sagöi
Þóroddur. -ÓTT
Talsmaður útlendingaeftirlitsins telur lagabreytingu nauðsynlega:
Utlendingarnir geta
gert grín að okkur
- uni þeir ekki dómsátt geta þeir áfrýjað og farið úr landi
„Aðgerðir okkar í þessu sambandi
byggjast á fyrirmælum frá sérfræð-
ingum sem málið heyrir beint undir,
það er Náttúruverndarráð. Síðan
munum við fara eftir áliti ráðsins í
málinu og aðhöfumst í samræmi við
það eftir fyrirmælum dómsmála-
ráðuneytisins. Það verður fundur
um þetta mál hjá Náttúruverndar-
ráöi í dag og þá reikna ég með að
afstaða verði tekin til aðgerða enda
er hópurinn væntanlegur í vikunni,"
sagði Karl Jóhannsson hjá útlend-
ingaeftirlitinu um Austurríkismenn-
ina.
Aðspurður um viðurlög þegar ljóst
liggur fyrir að ferðamenn hafa unnið
spjöll á náttúrunni sagði Karl:
„Meti Náttúruverndarráð það svo
að náttúrulög hafi verið brotin liggur
málssókn beint við. Útlendingunum
yrði þá boðin dómsátt hjá héraðs-
dómara, það er sekt, og yrðu þeir að
borga hana eða „debonera" fyrir
henni. Síðan eru þeir frjálsir. Hins
vegar erum við búnir að rífast í því
í mörg ár að sætti útlendingur sig
ekki við dómsáttina getur hann
áfrýjað til Hæstaréttar. Þá þarf hann
ekki að „debonera" fé fyrir áfrýjun-
inni og kostnaði við hana sem getur
tekið um eitt ár. Útlendingnum er
þannig frjálst að fara úr landi strax.
Á öðrum Vesturlöndum sleppa út-
lendingar hvergi með svona fyrr en
búið er að fulldæma þá. Útlending-
amir geta því gert grín að okkur.
Þessum lögum þarf að breyta. Við
eigum að geta afgreitt svona mál
strax á svipaðan hátt og landhelgis-
brot sem eru afgreidd um helgar ef
því er að skipta," sagði Karl Jóhanns-
son.
-ÓTT
í dag mælir Dagfari
Er Árni kommi?
Þessa dagana fer fram heiftarleg
ritdeila á síðum Þjóðviljans og
Morgunblaösins um þá stóru og
mikilvægu spurningu hvort Árni
Bergmann, ritstjóri Þjóðviljans, sé
kommi eða ekki kommi. Bjöm
Bjarnason, alþingismaður og fyrr-
um aðstoðarritstjóri Morgunblaðs-
ins, hefur haldið því fram aö Árni
sé kommúnisti og sérstakur mál-
svari Sovétríkjanna á íslandi. Ámi
sjálfur mótmælir þessum fullyrð-
ingum og segist alls ekki vera
kommi og þaðan af síður talsmaður
sovéska kerfisins. Fleiri hafa
blandað sér í þessa deilu og nú síð-
ast skrifar Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, stutta grein í
Morgunblaðið til að taka upp
hanskann fyrir Árna. Að öðru leyti
átti Björn síðasta orðið og bíða
menn nú spenntir eftir því hveiju
Árni svarar Birni.
Dagfari er sammála þeim félög-
um um að fátt er nauðsynlegra en
að þetta mál sé vendilega upplýst.
Það verður að vera á hreinu hvort
Árni Bergmann er kommúnisti eða
ekki. Þaö er ekki hægt að una því
að heiðarlegir menn séu bornir
sökum um að hafa skoðanir sem
þeir kannast ekki við aö þeir hafi,
ellegar þá hinu, sem er öllu verra,
að það komi í ljós að aðrir viti bet-
ur en þeir sjálfir hvaða skoðanir
þeir hafa. Árni Bergmann hefur
sem sagt lent í þeim fúlá pytti að
lenda í ritdeilu við mann sem veit
miklu betur hvaða skoðanir Árni
hefur heldur en Ámi sjálfur hefur
hugmynd um!
Nú má auðvitað halda því fram
að Árni megi vera þakklátur Birni
fyrir að hafa skoðun á því hvaða
skoðanir Árni hefur. Sérstaklega
ef Árni telur sig hafa skipt um
skoðun án þess að hafa gert það.
Hann er raunar lengi búinn að
standa í þeirri trú að hann hafi
ekki verið hallur undir Rússana
eða alveg þangað til Björn upplýsti
að hann væri ennþá hallur undir
Rússana - sem varð til þess að áð-
urnefnd ritdeila hófst.
Ámi Bergmann nefnir það til
sannindamerkis um óvináttu Sov-
étmanna að þeir lögðu niður þann
sið sinn að bjóða honum í sendiráð-
ið við hátíðleg tækifæri og segist
hafa veriö þar á sama báti og Matt-
hías Morgunblaðsritstjóri sem hef-
ur heldur ekki verið boðinn í sendi-
ráöið. Auk þess skrifaði Árni bók
fyrir íjöldamörgum árum, „Mið-
vikudagar í Moskvu", sem var
nokkurs konar uppgjör við komm-
únismann í austri. Kvartar Árni
undan því að Björn taki ekki þessi
sönnunargögn til greina og er bæði
sár og móðgaður yfir því að Björn
sé enn aö gera honum upp skoðan-
ir.
Það er vitaskuld alvarlegur hlut-
ur þegar gamall kommúnisti er
borinn þeim sökum að vera komm-
únisti. Þaö er von að menn fyrtist
við og þá sér í lagi þegar einhveijir
aðrir vilja sýna fram á að maöur
sé kommúnisti löngu eftir að mað-
ur er hættur að vera kommúnisti.
Eöa réttara sagt: heldur að maður
sé hættur að vera kommúnisti. Það
hlýtur að renna kalt vatn á milli
skinns og hörunds á Árna þegar
honum verður ljóst að hann er
annað en hann er eftir að hann
hætti aö vera það sem hann var.
Ef Ámi væri ekki það sem hann
er og er ekki sá sem hann heldur
að hann sé þá situr hann allt í einu
uppi með það að vera það sem hann
er ekki og er enn að veija Rússana
þrátt fyrir að hann standi í þeirri
meiningu að hann sé löngu hættur
að verja þá.
í örvæntingu sinni hefur Árni
Bergmann beðið Ögmund hjá
BSRB um að vitna um að hann
hafi oft komið fram í sjónvarpi án
þess að hafa verið þar sem komm-
únisti. í þessari yfirlýsingu Ög-
mundar er nokkur hugarhægð því
þá veit Árni hvað hann er ekki og
Björn Bjarnason ætti aö vita það
núna að Árni var ekki sá sem Björn
hélt hann væri þegar Ögmundur
bað Árna um að veija þær skoðan-
ir sem hann hefur. Það væri svaka-
leg lífsreynsla fyrir Árna að hafa
bæði skrifað og talað í tjölmiðla í
mörg ár í anda þeirra skoðana sem
hann hefur ekki og uppgötva svo
allt í einu að Bjöm Bjarnason veit
miklu meira um þær skoðanir sem
Ámi hefur heldur en hinar sem
Áani hefur ekki!
Vonandi kemst botn 1 þetta mál
svo Árni viti hvar hann stendur
og Rússamir viti hvar hann stend-
ur svo þeir geti ákveðiö að bjóða
honum aftur í sendiráðið til að geta
hætt aftur að bjóða honum í sendi-
ráðið.
Dagfari