Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991. íþróttir DV 72 ára og setti met Heimsmeistaramót öldunga í frjálsum íþróttum stendur þessa dagana yfir í Turku í Finnlandi. Mótiö hófst 18. júlí og því lýkur 28. júlí. Fram að þessu hafa íslendingar staðið sig með ágætum og korm-f einu sinni á verðlaunapall. Unnur Stefánsdóttir vann bronsverðlaun í 800 metra hlaupi í flokki 40-44 ára. Unnur hljóp á 2:19,38 mínútum en keppendur voru 16 talsins. Sigurborg Ragnarsdóttir hafnaði í fimmta sæti í úrslitum í 100 metra hlaupi á 13,09 sekúndum. Sigurborgu gekk betur í undanrásum þar sem hún setti íslands- met í sínum aldursflokki, 35-39 ára. Jón Magnússon kastaði sleggju 46,08 metra og lenti í áttunda sæti í flokki 55-59 ára. Jóhann Jónsson setti íslands- met í tugþraut, hlaut 4929 stig og lenti í tólfta sæti af tuttugu. Jóhann var elsti keppandinn en hann er 72 ára að aldri. í spjótkastkeppninni var Jóhann í 9. sæti, kastaði 30,28 metra. Keppendur á heimsmeistaramótinu eru 5100 talsins frá 60 löndum og hafa að jafnaði 10 þúsund áhorfendur fylgst með mótinu daglega frá því að það hófst. -JKS Margirfrægir keppendur mæta - á stigamót FRÍ í frjálsum íþróttum Fyrrverandi Evrópumeistari og silfurverðlaunahafi á ólympíuleikunum í Seoul 1988 verður á meöal keppenda á stigamóti FRÍ sem fram fer í Mos- fellsbæ á sunnudaginn kemur. Þetta er kringlukastarinn Romas Ubartas frá Litháen en auk framangreindra sigra hefur hann unnið marga eftirsótta titla. Besti árangur Ubartas á þessu ári er 68,92 metrar en 1989 kastaði hann best 70,06 metra og er hann einn af fáum sem kastað hafa yfir 70 metra múrinn. Auk Ubartas koma hingað til lands þrír aðrir sterkir kringlukastar- ar. Vaclavas Kidikas frá Litháen sem varð í þriðja sæti á Evrópumótinu 1986 en í ár hefur hann kastað 67,40 metra en hann á best 68,44 metra frá árinu 1989. Sven Inge frá Svíþjóð og Claus frá Danmörku koma einnig á mótið. í spjótkastkeppninni koma tveir sterkir kastarar frá Eistlandi. Yevsyukov og Kaleta en þeir hafa báðir náð frábærum árangri á stórmótum. Auk þess- ara keppenda munu sterkustu kastarar íslendinga taka þátt í þessu stiga- móti og stefnir því í spennandi keppni í Mosfellsbæ á sunnudaginn. -JKS íslandsmótið: Ragnar Már vann íslandsmeistaramóti í siglingum á topper- og optimist-bátum lauk um helgina. Veðrið lék við keppendur í sól og vindur var nægur. Sigldar voru sex umferðir og urðu úrslit sem hér segir. Siglingamenn úr siglingafélaginu Ými röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Ragnar Már Steinsen sigraöi, ísleifur Friðriksson varð í öðru sæti og Frið- rik Már Ottesen lenti í þriðja sæti. Á optimist-bátum i drengjailokki sigraöi Guðni Dagur Kristjánsson úr Ými og í stúlknaflokki sigraði Laufey Kristjánsdóttir úr siglingafélaginu Nökkva. -JKS Rosental-mótið haldið í blíðskaparveðri Rosental-kvennagolfmótið hjá Nesklúbbnum fór fram á laugardag- inn var í blíðskaparveðri á Nesinu. í 1. flokki sigraði Hanna Aðalsteins- dóttir, GR, á 80 höggum, önnur varð Lóa Sigurbjörnsdóttir, GK, á 89 og í þriðja sæti hafnaði Anna Jódís Sig- urbergsdóttir, GK, á 89. í 2. flokki sigraði Kristine Eide, NK, á 91 höggi, í öðru sæti varð Kristín Pétursdóttir, GOS, á 96 og þriðja varð Katrín Ge- orgsdóttir, GL, á 96. í 3. flokki sigraði Erla Karlsdóttir, GL, á 98 höggum, í öðru sæti hafnaði Valey Guðmunds- dóttir, GOS, á 102 og þriðja varð Ey- gló Grenz, GOS, á 102. -RR • Bo Johanson lét í gær af störfum sem landsliðsþjálfari Islands eftir gagnkvæmt samkomulag við stjórn KSÍ. Á þessari mynd sést Bo vera að stjórna æfingu í Borgarnesi fyrir landsleikinn gegn Tyrkjum í síðustu viku en þá vann ísland stórsigur, 5-1. Bo mun stjórna liðinu í síðasta sinn gegn Dönum í ágúst. DV-mynd S • Ásgeir Elíasson, hinn nýráðni landsliðsþj fræga á höfði. Vonandi er að hattinum fylgi s landsliðinu en Framliðið hefur ekki tapað í s Ásgeirs. Ásgeirráði landsliðsþjál - Bo Johanson lét af störfum í gær eftir gagnkvæmt samkon • Kristine Eide, sigurvegari i 2. flokki á Rosental-mótinu í golfi. Bo Johanson, landsliðsþjálfari íslands í knattspyrnu, lét af Störfum í gærmorg- un eftir að hafa stjórnað landsliðinu í eitt og hálft ár. Samkomulag náðist milli Johansons og Eggerts Magnússonar, for- manns Knattspyrnusambands íslands, í gærmorgun um að Johanson hætti störf- um og nýr maður yrði ráðinn í staðinn en Svíinn átti um hálft ár eftir af samn- ingi sínum. Knattspymusamband ís- lands ákvað síðan á stjómarfundi í gær- kvöldi að ráða Ásgeir Elíasson, þjálfara Fram, sem landsliðsþjálfara og mun Ásgeir stjórna sínum fyrsta landsleik gegn Spánveijum 25. september nk. Asgeir á sjálfur að baki 32 landsleiki í knattspyrnu en hann hefur þjálfað lið Fram með einstaklega góðum árangri og þrívegis gert liðið að meistumm og þrisvar sinnum að bikarmeisturum. Gagnkvæmt samkomulag um að Bo hætti „Það var gagnkvæmt samkomulag milli okkar Bo að samningurinn yröi ekki framlengdur en hann átti að renna út um áramótin. Okkur fannst báðum eðli- legt að láta nýjan mann taka við sem fyrst og það varð líka að samkomulagi. Eg vil að það komi fram að við vorum mjög ánægðir með störf Bo og það var gott og ánægjulegt aö vinna með honum. Hann kom með margar nýjar og góðar hugmyndir og engin ástæða til annars en að þakka honum vel unnin störf,“ sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ, í spjalh við DV í gærkvöldi. Ásgeir sá sem ákveðið var að leita til „Ásgeir var sá sem við ákváðum að leita til. Ásgeir er mjög fær þjálfari og hefur sýnt sig og sannað. Hann er á besta aldri og það mælir allt með honum í þetta starf. Hann lýsti strax yfir áhuga sínum og var til í þetta enda hlýtur þaö að vera metnaður hvers þjálfara að stjóma landsliði. Hann mun stjórna íslenska landsliðinu í fyrsta sinn gegn Spánverj- um 25. september. Þaö var ákveðið að Bo stjórnaði liðinu í síðasta sinn í vin- áttuleiknum gegn Dönum í ágúst. Við bindum að sjálfsögðu miklar vonir við störf Ásgeirs," sagði Eggert ennfremur. Þetta er spennandi dæmi „Þetta er auðvitað mjög spennandi dæmi. Þetta var búið að koma upp fyrir nokkm og ég átti von á því að verða spurður um þetta einhvern tímann en þó verð ég að segja að ég bjóst ekki við þessu í gærkvöldi," sagði hinn nýráðni landsliðsþjálfari, Ásgeir Elíasson, seint í gærkvöldi. Ég var boðaður á fund í gærkvöldi og þar var ákveðið að ég tæki við landslið- inu. Þetta var auðvitað allt gert í sam- ráði við Fram og ég mun stjóma liðinu það sem eftir er af íslandsmótinu. Það er voða lítið annárs hægt að segja um þetta á þessu stigi og ég hef ekkert verið að hugsa of mikið um þetta enda má ég ekki við því meðan ég er að sinna mínum störfum hjá Fram. Það gefur augaleið aö Spánarleikurinn er á svipuðum tíma og síðari leikur Fram í Evrópukeppninni en þetta ætti nú samt allt að ganga upp. En eins og stendur ætla ég að einbeita mér að Framliðinu og við stefnum auð- vitað alla leið í deildinni,“ sagði Ásgeir ennfremur. Mjög ánægjulegur tími á ísiandi „Ég er alls ekkert óánægður með þessa þróun mála. Það var ákveðið að samn- ingur minn yrði ekki framlengdur og því fannst mér gefa augaleið að nýr maður tæki við sem fyrst. Þetta var gagnkvæmt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.