Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1991, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991. 47 Veiðivon Vamarmálanefnd við veiðar í Norðurá: Veiddu 50 laxa á þremur dögrnn ■ veiðitúrinn kringum tvær milljónir „Þetta er reytingsveiði hérna í Norðurá, það eru komnir á milli 640 og 650 laxar á þessari stundu," sagði Halldór Nikulásson veiðivörður í gærdag á bökkum Norðurár. „Varnarmálanefnd var við veiðar hérna um helgina og hún veiddi 50 laxa sem er allt í lagi miðað við að- stæður. Það mætti vera meira að gerast hérna og áin minnkar á hverj- um degi. Ég man ekki eftir að hafa séð hana svona vatnslitla síðan ég byrjaði sem veiðivörður hérna við Norðurá. Hann er ennþá 15 pund sá stærsti en veiðimenn hafa sett í þá stærri," sagöi Halldór ennfremur. Veiðidagurinn á þessum tíma í Norðurá kostar kringum 50 þúsund með fæði og veitt er á 12 stangir á aðalsvæðinu. Þetta er veiðitúr upp á tvær milljónir í þessa þrjá daga hjá Varnarmálanefndinni. Þessi veiðitúr er árlega á dagskrá. -G.Bender Feiknagóð veiði í Blöndu síðustu daga -besti dagurinn gaf 32 laxa „Blanda er komin með 270 laxa og þeir eru 18 pund þeir stærstu, þrír svoleiðis eru komnir á land,“ sagði Rúnar Óskarsson er við spurðum um Blöndu og Svartá í gærdag en síðustu daga hefur verið mjög góð veiði í Blöndu á Qórar stangir. „Það er töluvert af fiski í ánni og besti dagurinn hefur gefið 32 laxa. Veitt er á fjórar stangir. Áin er orðin lituð aftur enda hefur vatnið aukist mikið í henni síðustu vikurnar." Það er sem sagt gamla Blönduaðferðin ennþá við líði, Rúnar? „Já, eftir að vatnið jókst hefur að- ferðin verið notuð aftur. En meðan áin var næsta tær veiddist eðlilega hellingur af laxi. í Svartá hefur veiðin verið róleg það sem af er veiðitímanum og eru komnir fáir laxar á þurrt. Veiði- menn, sem voru við ána í gærdag, sáu lax kringum 20 pundin en hann vildi ekki taka, sama hvað reynt var,“ sagði Rúnar ennfremur. Meðalfellsvatn hefur gefið12 laxa „Veiðin er þokkaleg í vatninu og eru komnir 12 laxar á land,“ sagði Stein- unn Þorleifsdóttir á Meðalfelli í gær- dag. „Fyrsti lax sumarins, sem veiddist, var fjögur pund. í vor veiddust falleg- ir urriöar og bleikjur í vatninu. Þeir stærstu voru 4 pund. Viö sjáum mik- ið af seiðum í vatninu þessa dagana og boðar það gott fyrir næstu sum- ur,“ sagði Steinunn í lokin. Stóra-Laxá í Hreppum komin i121lax „Laxar eru að koma á land á hveijum degi í Stóru-Laxá í Hreppum en veið- in mætti samt vera meiri þessa dag- ana þar,“ sagði Jón Gunnar, fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í gærdag. „Svæði eitt og tvö hafa gefið 25 laxa, svæði þrjú hefur gefið 26 og svæði fjögur um 70 laxa. Þetta eru 121 lax á land. í Brynjudalsá eru komnir innan við 10 laxar á land og það sama er upp á teningnum í Miðá. í Miðá í Dölum hafa veiðst 200 bleikjur," sagði Jón Gunnar ennfremur. Hnausastrengurinn hefur gef- ið flesta laxa „Það eru komnir 152 laxar og hann er 16 pund sá stærsti," sagði Gylfi Ingason kokkur í veiöihúsinu Flóð- vangi við Vatnsdalsá í gærdag. „Hollið, sem var hjá okkur í eina viku, veiddi 74 laxa og þar af veidd- ust 65 laxar á tvær stangimar. Það var Hnausastrengurinn sem hefur gefið flesta laxana en í honum sást fyrir skömmu nijög vænn lax en hann fékkst ekki til að taka,“ sagði Gylfi. -G.Bender • Þau eru vígaleg við Laxá í Kjós, Rúnar Óskarsson, Guðbjörn Ragnars- son og Stefanía Finnsdóttir, með 10 punda lax á maðkinn. Kvíslarfossinn sést í baksýn. DV-mynd Bessi Fjölmiðlar Hristu af þér slenið Innlend dagskrárgerð í sjónvarpi er ekki burðug á þessum árstíma sem varla er von. Þó eru á dagskrá sjónvarps nokkrir innlendir þættir, einn þeirra er þáttur Sigrúnar Stef- ánsdóttur, Hristu afþér slenið. Þættimir, sem ætlaðir era til að vekja meðaljóninn, eða sófadýrin, til vitundar um ágæti hreyfingar- innar, eru mjög vel geröir ogná markmiðum sínum fullkomlega. Það þarfjámtaugar til að horfa á heilan þátt og fá ekki samviskubit yfir því að hreyfa sig ekki nóg. Þættirnir eru skemmtilega fjöl- breyttir og líflegir. Það hefur veriö tæpt á ótal íþróttagreinum, rætt við fólk sem hreyfir sig reglulega, lækna, næringarfræðinga, íþrótta- kennara og svo framvegis og enda- laust er hamraö á því að það sé aldr- ei of seint að hrista af sér slenið. Hristu af þér slenið er á dagskr á tvisvar í viku, það er hver þáttur er framsýndur á miðvikudagskvöldi og endursýndur á þríðjudagskvöldi með skjátextum fyrir heymarlausa. Þessi ráðstöfun er óskiljanleg, það er af hverju þættirnir á miövikudög- um era ekki sýndir með skjátexla til þess að heyrnarlausir geti notið þeirra á miövikudögum rétt eins og þeir sem heym hafa. Það getur varla traflað þá meira sem fulla heyrn hafa að horfa á skjátextann en þá sem heyrnarlausir eru að heyra ekki neitt Með þessu móti er eins og verið sé að gera þennan minni- hlutalióp að annars flokks twrngur- um. Hristu af þér slenið er raunar eini íslenski þátturinn sem sýndur er með skjátextum en með tilliti til heymarlausra ættu allir þættir að vera með skjátextum og vonandi verður svo í framtíðinni. Þetta er kannski fyrsta skrefið í þá átt. Jóhanna Margrét Einarsdóttir Veður Austan- og noróaustangola eða kaldi. Skýjað um allt land og víða dálítil rigning eða súld. Hiti á bilinu 8 til 15 stig. Veðurhorfur á hálendinu: Fremur hæg, breytileg átt. Skýjað og víða rigning eða súld, hiti 8 til 15 stig. I Reykjavík: Hæg, breytileg átt og norð- austangola, rigning eða súld, hiti 11 til 15 stig. Akureyri rigning 10 Egilsstaðir skýjað 10 Keflavíkurflug völlur rigning 11 Kirkjubæjarklaustur rigning 11 Raufarhöfn rigning 10 Reykjavík rigning 11 Vestmannaeyjar súld 10 Helsinki léttskýjað 16 Kaupmannahöfn léttskýjað 16 Úsló skýjað 16 Stokkhólmur léttskýjað 17 Amsterdam skúr 17 Berlín skýjað 17 Feneyjar þokumóða 22 Frankfurt skýjað 20 Glasgow skýjaö 11 Hamborg skýjað 15 London rigning 14 Lúxemborg skýjað 18 Madrid heiðskírt 18 Nuuk léttskýjað 11 Paris rigning 15 Róm þoka 23 Valencia mistur 22 Vin léttskýjað 18 Gengið Gengisskráning nr. 138. - 24. júlí 1991 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 61,260 61,420 63,050 Pund 103,333 103,603 102,516 Kan. dollar 53,050 53,189 55,198 Dönsk kr. 9,0756 9,0993 9,0265 Norsk kr. 8,9923 9,0158 8,9388 Sænsk kr. 9,6869 9,7122 9,6517 Fi. mark 14,5684 1^,6064 14,7158 Fra. franki 1C 3236 10,3505 10,2914 Belg. franki 1,7034 1,7079 1,6936 Sviss. franki 40,3917 40,4971 40,4750 Holl. gyllini 31,1194 31,2006 30,9562 Þýskt mark 35,0759 35,1675 34,8680 It. líra 0,04711 0,04723 0,04685 Aust. sch. 4,9823 4,9953 4,9558 Port. escudo 0,4085 0,4095 0,3998 Spá. peseti 0,5619 0,5634 0,5562 Jap. yen 0,44724 0,44840 0,45654 írskt pund 93,768 94,013 93,330 SDR 81,8023 82,0160 82,9353 ECU 72,0816 72,2698 71,6563 Fiskmarkaðimir Faxamarkaður Þann 23. júlí seldust alls 85.681 tonn. Magn í Verð í krónum tonnum Meóal Lægsta Hæsta Blandað 0,214 27,61 10,00 37,00 Grálúða 0,083 55,00 55,00 55,00 Karfi 23,860 35,85 32,00 44,00 Keila 0,008 11,00 11,00 11,00 Langa 0,098 104,39 25,00 55,00 Lúða 0,177 316,78 290,00 355,00 Rauðmagi 0,057 23,33 10,00 29,00 Skata 0,004 20,00 20,00 20,00 Skarkoli 4.103 55,69 50,00 64,00 Skötuselur 0,156 195,00 195,00 195,00 Steinbítur 4,685 57,11 55,00 63,00 Þorskur 26,213 86,74 50,00 97,00 Ufsi 8,336 49,67 39,00 61,00 Undirmálsfiskur 1,520 56,36 10,00 65,00 Ýsa, sl. 16,362 101,11 70,00 116,00 Fiskmarkaðurinn Hafnarfirði 23. júlí seldust alls 21,070 tonn Gellur 0,081 183,33 180,00 190,00 Þorskur 0,096 98,00 98,00 98,00 Smáþorskur 0,056 61,00 61,00 61,00 Smáufsi 0,346 55,00 55,00 55,00 Ýsa 3,552 103,00 90,00 107,00 Þorskur 6,671 91,72 90,00 92,00 Skata 0,008 5,00 5,00 5,00 Lúða 0,095 325,00 150,00 415,00 Karfi 10,116 38,48 38,00 39.00 Blandað 0,050 41,00 41,00 41,00 Fiskmarkaður Suðurnesja 23. júlí selust alls 132,728 tonn Humar 0,017 1.110,00 999,00 1.110,00 Undirmálsf. 3,166 70,00 70,00 70,00 Skata 0,540 90,00 90,00 90,00 Lúða 0,323 373,81 360,00 390,00 Langa 1,040 52,00 52,00 52,00 Langlúra 0,143 40,00 40,00 40,00 Öfugkjafta 0,154 34,00 34,00 34,00 Steinbítur 2,628 58,07 50,00 65,00 Skarkoli 5,510 73,00 73,00 73,00 Ufsi 21,387 60,96 41,00 65,00 Ýsa 8,979 101,44 50,00 118,00 Þorskur 66,805 91,55 80,00 96,00 Hlýri/steinb. 0,196 50,71 31,00 54,00 Skötuselur 0,051 263,53 160,00 400,00 Keila 7,262 38,63 31,00 39,00 Karfi 14,127 38,27 30,00 40,00 Blálanga 0,345 53,84 48,00 60,00 Blandað 0,055 20,00 20,00 20,00 Fiskmarkaðurinn í Þorlákshöfn 23. júli seldust alls 31,605 tonn Karfi 18,172 40,00 34,00 43,00 Keila 0,997 34,00 34,00 34,00 Langa 3,573 61,00 46,00 63,00 Lúða 0,585 289,33 260,00 305,00 Öfugkjafta 0,511 30,00 30,00 30,00 Skata 0,063 78,00 78,00 78,00 Skarkoli 1,079 73,00 73,00 73,00 Skötuselur 0,178 258,43 160,00 400,00 Sólkoli 0,069 67,00 57,00 57,00 Steinbltur 0,915 52,00 52,00 52,00 Þorskur, sl. 3,730 96,70 90,00 101,00 Ufsi 1,149 57,65 52,00 61,00 Ýsa, sl 0,584 90,00 67,00 114,00 Treemmz MARGFELDÍ 145 PÖNTUNARSÍMI* 653900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.