Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1991, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1991, Síða 4
26 Bflar LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1991. 672277 NÝJA BÍLAHÖLLIN FUNAHÖFÐA 1-112- Rvík.- FAX 673983 GMC Jimmy 6,2 dísil turbo, árg. '88, svart- ur, sjálfsk., 44" dekk, einn með öllu. V. 3.950 þ. Skipti. Dodge Ramcharger 318, árg. ’85, ný 33" dekk, álfelgur, Rancho-fjaðrir og demparar, toppeintak. V. 1.490 þ. Skípti. BMW 325i M/model, árg. ’88, grár, toppl., álfelgur, ABS, vökvastýri, sportstólar, litað gler, sportfjöðrun. V. 2.100 þ. Skipti. Toyota Celica Supra 3,0i, turbo, intercooler, árg. '88, 50.000 km, svartur, beinsk., T- toppur, leður, álfe. V. 2.900 þ. Skipti. Volvo 740 GL, árg. ’88, 19.000 km, Ijósblár, sjálfsk. V. 1.490 þ. Skipti. Suzuki Swift GL, árg. ’86-’88, 3 d. og 5 d., frá 41.000 km. V. frá 380 þ. Skipti. M-Benz 200, árg. '88, 32.000 km, Ijósblár, toppl., 4 hausp., litað gler, ABS, sjálfsk. V. 2.500 þ. Skipti ath. Ford Econoline ’88-'91. Toyota LandCruiser, langur, dísil, árg. '86, 125.000 km, brúnn. V. 1.850 þ. Skipti. Daihatsu Charade, árg. '88, 3 d. og 5 d., frá 36.000 km. V. frá 530 þ. Skipti. Toyota Corolla, árg. '87, 3 d., 38.000 km. V. 570 þ. Skipti. V. 760 þ. Skipti. Subaru Justy J-10, árg. '87, 89.000 km, rauð- ur. V. 540 þ. Skipti. Mazda 323 GLX sedan, árg. '87, 56.000 km, sjálfsk. V. 620 þ. Lancia Y-10, árg. '88, 24.000 km, rauöur. V. 390 þ. Skipti. BMW 323, 4 d., árg. '85, 81.000 km, toppl. V. 1.050 þ. Skipti. Claus Krems, sölustjóri VW í Evrópu: Hlutdeildin markaðnum skiptir öllu máli - vonast eftir að ná sölunni aftur í milljón bíla á næsta ári „Sú söluaukning, sem viö höfum séð undanfarið, gerir það að verkum að ég sé fram á það að ná sölunni í Evrópu aftur upp í milljón bíla á næsta ári og þá er Þýskaland sjálft undanskilið." Það var Claus Krems, forstjóri sölusviðs Volkswagen og Audi í Evr- ópu, sem lét þessi orð falla í viðtali við DV-bíla í síðustu viku þegar hann gaf sér tíma frá sumarleyfisferð um Island til að ræða lítillega við okkur. Hann var þá nýkominn ofan af Kjal- vegi með Sverri Sigfússyni, fram- kvæmdastjóra bíladeildar Heklu, og var á leiðinni aftur út í þetta fallega sumarveður. Söluaukningin, sem hann minntist á, kom einmitt fram í DV-bílum um síðustu helgi en þar mátti sjá að VW hafði aukið hlut sinn úr 15,1% upp í 16,7% á fyrstu fimm mánuðum þessa árs en á sama tíma hafði Fiat, sem leitt hefur söluna í Evrópu í fjölda ára, orðið að horfa upp á samdrátt frá 15,0 niður í 13,3%. Stór hluti þessarar aukningar, eða um tveir þriðju, er tilkominn vegna sameiningar þýsku ríkjanna, að sögn Krems. Bæði varð aukning á bílasölu í fyrrum austurhluta landsins og eins hafa selst mun fleiri nýir bílar í „gamla“ landinu vegna þess hve ný- legu, notuðu bílarnir hafa flætt yfir til gamla austurhlutans. Hafa ekki undan að framleiða „í dag er staðan sú að við höfum ekki undan að framleiða. Núna er til dæmis fimm til sex mánaða bið eftir Passat og viö höfum heldur ekki und- an að framleiða Golfinn. Þetta er ekki það sem við viljum. Vissulega er gott að selja vel en ég hef þá kenn- ingu að það eigi að vera um 5% þörf á markaðnum á hverjum tíma,“ segir Krems. Krems sagði VW halda sínum hlut vel á hinum Norðurlöndunum þrátt fyrir mikla sókn Japana inn á mark- aðinn. Þótt við hér uppi á íslandi horfðum upp á mjög háa markaðs- hlutdeild japönsku framleiðend- anna, eða þijá af hveijum fiórum nýjum bílum, þá væri þetta ekki staðreyndin í Evrópu. Þar væri markaðshlutdeild allra japönsku framleiðendanna á bilinu 10 til 12 af hundraði samtals, mismunandi eftir löndum að sjálfsögðu. Ein milljón á næsta ári Claus Krems er búinn að vera for- stjóri sölusviðs VW í Evrópu í hálft þriðja ár en hann hefur alls starfað hjá VW-samsteypunni í 25 ár. Á þeim tíma hefur hann meðal annars verið sölustjóri fyrir Norðurlönd og seinna BeNeLux-löndin. Hann stýrir sölu á Volkswagen og Audi í öllum löndum Evrópu, fyrir utan Þýskaland, og segir það vera markmið sitt að ná sölunni upp í milljón bíla á næsta ári á þessu svæði. Ítalía er mikilvægasta markaðs- landið en þar selur VW um 230-250 þúsund bíla á ári. Frakkland er einn- ig mjög stór markaður, eða í kringum 200 þúsund bílar á ári. Opel helsti keppinauturinn Nú þegar Opel sendir frá sér Astra, nýjan arftaka Kadett, í haust og þeir sjálfir nýjan Golf III á sama tíma þá spurði ég -Krems hvernig framtíðin liti út: „Það er vissulega erfitt að skipta út bíl sem er í jafngóðri sölu og Golf- inn er í dag en við verðum að horfa fram á veginn og gæta þess að staðna ekki. Ég lít á Opel sem skæðasta keppinautinn og því verðum við aö athuga okkar gang vel. Opel fær tveggja mánaða forskot með Astra því þótt báðir bílarnir verði frum- sýndir í Frankfurt í september þá kemur Astra á markað í kjölfar frumsýningarinnar en Golf ekki fyrr en í nóvember. Claus Krems með þeim Ingimundi Sigfússyni, fússyni, framkvæmdastjóra bíladeildar. Þeir fó ur ætti að taka af sér slifsið vegna þess hve þá sagði Krems „að það yrði að lita út eins Ingimund. Við þurfum líka að líta í önnur horn því nú kemur nýr Audi 80 á markað í október og Transporterinn nýi gengur vel á öllum mörkuðum þannig að það verður margt til þess að gera hlut okkar betri.“ Bjartsýnn með gang mála hérlendis „Ef við skoðum markaðinn hér á íslandi þá horfi ég aldrei á stærð markaðarins sem slíkan í neinu landi heldur miklu frekar á markaðshlut- deildina. Vissulega hefur okkur ekki gengið eins vel og skyldi hérna á síð- ustu árum en þar spilar óhagstæð staða gengis þýska marksins gagn- vart krónunni ykkar inn í. Að mínu mati á markaðshlutdeild okkar að vera lágmark 5% á mark- aðnum og allt sem fer þar fram yfir er gott. Við gerðum sérstakar ráð- stafanir gagnvart sölunni hér í sum- arbyrjun, buðum upp á mjög sam- keppnisfært verð, og það virðist ætla að skila sér. Audi 100 virðist ætla að ná fótfestu á markaðnum. Þeir hér hjá Heklu eru búnir að selja um 20 bíla á tveim- ur mánuðum og framhaldið lofar góðu. Sama er með nýja Transporter- inn frá VW, hann hefur náð hylli kaupenda hér sem annars staðar." Breytingar á markaðnum Það kom greinilega í ljós í spjallinu viö Krems að hann sér fram á breyt- ingar á bílamarkaðnum. Bílamir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.