Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Blaðsíða 4
P1MMTupA(,!,UR.29, ÁGfl^T'.WU,f 4 ö Fréttir Kaupmáttur launa hef ur aukist um 1-2 prósent Grafið sýnir breytingarnar á kaupmætti greidds tímakaups verkafólks sam- kvæmt niðurstöðum Kjararannsóknanefndar. „Niðurstöður Kjararannsókna- nefndar um aukningu kaupmáttar gefa ef til vill heldur ýkta mynd,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins, í viðtali við DV í gær. Kjararannsóknanefnd fékk út, að kaupmáttur launa launþega hefði aukizt um nærri fjögur prósent á tólf mánaða tímabili fram til fyrsta ársíjórðungs í ár. Slík aukning kaup- máttar á tímabili þjóöarsáttar virtist meiri en menn höfðu ætlað. en Þór- arinn bendir á, að myndin sé ýkt. „Það er eðli svona kannana eins og könnunar Kjararannsóknanefndar, að breyting mælist meiri en eðlilegt væri. þegar stöðugleiki færist yflr. Þegar hins vegar er þensla, eru mik- il mannaskipti, og margt fólk verður á byrjunarlaunum," sagði Þórarinn. Því mælist breytingin nú á tímum stöðugleika óeðlilega mikil. Þórarinn telur sennilegt. að kaupmáttur laun- þega hafi í reynd vaxið um 1-2 pró- sent síðan fyrir 12 mánuðum. Menn áttu von á nokkrum bata, þegar þjóðarsáttin var gerð, og að það yrði nokkur kaupmáttaraukn- ing. En nú væri kyrrstaðan að nýju að sigla á okkur. Væntanlegur sam- dráttur afla hefur þegar leitt til meiri varfærni. Þórarinn sagði, að nú væri sama og ekkert að gerast í atvinnulíf- inu. Fjárfesting væri á frostmarki. Vextir væru háir. Svigrúmið til kjarabóta réðist alfarið af þróun þjóðartekna. Ef menn settu sér það markmið að halda þolanlegu at- vinnustigi, væri ekki um að tala, að þaö verði nein aukning kaupmáttar. Menn ættu þess í stað að ræða, hvernig hægt væri að ýta undir hag- vöxt. Þórarinn sagði, að vaxtastigið Sjónarhom Haukur Helgason yrði aö fara niður, til þess að menn færu að tjárfesta. Hinu opinbera væri mest um að kenna, hversu hátt vaxtastigið væri. Það orsakaöist af miklum umsvifum hins opinbera og húsbréfakerfinu. Sjálfsafgreiðsluhópar Ógmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sagði í viðtali við DV í gær, að kaupmáttur taxta stæði nú svipað og var í upphafi samningstímaps. Laun- þegar hefðu óttast kjararýrnun á þessu tímabili, en tekizt hefði með launahækkun vegna batnandi við- skiptakjara að rétta kaupmáttinn af. Nú skipti mestu að hækka kaup- taxta. Aukning kaupmáttar sam- kvæmt mælingu Kjararannsókna- nefndar stafaði mest af breytingum á bónuskerfi og starfsaldurshækk- unum. Ef til vill kæmi launaskriö', kauphækkun umfram samnings- kaup, einnig til. Þessar hækkanir sýndu hins vegar, að enn meiri ástæða væri en áður til að hækka hið samningsbundna kaup. Sjálfsaf- greiðsluhóparnir verði nú að sitja eftir, en hækka þyrfti taxta þess fólks, sem til dæmis fengi 50-60 þús- und krónur á mánuöi. Ögmundur kvaðst viðurkenna, að ekki væri nú grundvöllur til að hækka neyzlustig hjá öllum, en neyzlustigið þyrfti að lækka hjá sumum og hækka hjá öðr- um, sem sé breyta tekjuskiptingunni. -HH Sumarbúðirnar í Ölveri: Metaðsókn í sumar D Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Metaðsókn var að sumarbúðum KFUM og K í Ölveri í sumar. Að sögn Axels Gústafssonar hjá KFUM sóttu 260 börn námskeiðin í júní og júlí, fleiri en nokkru sinni. Þrátt fyrir hina miklu aðsókn sagði Axel aðstandendur sumarbúöanna hafa veitt því athygli að verulegur samdráttur hefði orðið í aðsókn að búðunum frá Akranesi. Ekki hefðu nema 20 börn þaðan sótt búðirnar í sumar. Axel sagði þetta hafa í senn vakið undrun og vonbrigði. Búöirnar hefðu á sínum tíma verið settar á laggirnar af Akurnesingi, Krist- rúnu Ólafsdóttur, og lengstum hefðu börn frá Akranesi og ná- grenni verið í meirihluta á nám- skeiðum. Nú kæmi stærstur hlut- inn frá höfuðborgarsvæðinu. „Kannski höfum við ekki verið nógu dugleg við að auglýsa sumar- búðirnar á Akranesi og í Borgar- nesi. Önnur skýring kann líka áð vera sú að börnin eigi völ á fjöl- breytilegri afþreyingu á sumrin en verið hefur. Kannski vita margir ekki hvers konar starf fer þarna fram,“ sagði Axel. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Ölveri á undanförnum árum og skálinn m.a. verið stækkaður verulega. Axel sagði vonir bundnar við að hitaveita yrði lögð að skálan- um áður en langt um liði. Bændur víða á Snæfellsnesi lentu í vandræðum vegna heyfoks á dögunum þegar mikið hvassviðri gerði. Þessi mynd var tekin í Eyrarsveit hjá Grundar- firði en þar var ástandið hvað verst. DV-mynd S Stoðnámskeið í íslensku Islendingar eiga sér háskóla og eru stoltir af. Háskóli íslands er must- eri æðri menningar enda efla vís- indin alla dáð. Þangað hafa safnast mestu gáfumenn þjóðarinnar og gera enn. Læknar, lögfræðingar og prestar hafa útskrifast þaðan með láði og allir hafa gert garðinn fræg- an með einu eða öðru móti. Þetta er þjóðfélagshópurinn sem hefur hreppt bestu embættin, hæstu launin og mestu virðinguna í þjóð- félaginu eins og vera ber. Háskóla- nemendur læra lagaklækina, læknisráðin og burðargetuna, tala útlenskar tungur reiprennandi, kafa ofan í dýpstu rök heimspek- innar og kryfja þyngdarlögmál og önnur lögmál til mergjar af gaum- gæfni þeirrar akademisku ná- kvæmni sem háskólamenntað fólk tileinkar sér. Það vantar sem sagt ekkert upp á metnað Háskóla íslands og kunn- áttu stúdenta og háskólanema, enda færir Háskólinn sífellt út kvíarnar, bætir við sig nemendum og bætir við sig kennurum og húsa- kosti og happdrættið hefur ekki undan. Nú er jafnvel farið að tala um skólagjöld til að námsfólkið greiði fyrir þau forréttindi að fá að stunda nám í þessari æðstu menntastofnun Islendinga. Það er aðeins einn vandi sem blasir við. Sá hængur er nefnilega á því fólki, sem sækir skólann, að það kann ekki íslensku. Prófessor- ar hafa rætt þetta vandamál í nokkru laumi undanfarin ár, enda ekki gott að viðurkenna opinber- lega að nemendurnir séu hvorki læsir né skrifandi á sitt eigið móð- urmál. Nú er hins vegar svo komið að ekki verður lengur þagað og stafar það aðallega af því að nem- endur skilja ekki lengur skrifaðar útskýringar kennara né heldur skilja kennarar þær úrlausnir sem berast frá nemendum. Kennarar geta til dæmis ekki dæmt og gefiö einkunnir fyrir þær ritgerðir eða verkefni sem nemendur skila frá sér, vegna þess að þær eru skrifað- ar á annarlega tungu. Málfræði, stafsetning, setningaskipan og ann- að það sem gerir íslensku að ís- lensku er ekki að finna í úrlausn- um nemenda við Háskóla íslands. Það eru auðvitað góð ráð dýr. Samkvæmt fræðslulögum ber grúnnskólum að kenna undir- stöðuatriði í íslensku og þegar ungt fólk gengur í gegnum framhald- skóla og býr sig undir stúdentspróf er sömuleiðis gert ráð fyrir móður- málskennslu. Eitthvað hefur þetta nám farið úrskeiðis, því þegar þess-' ir sömu nemendur hafa innritast í Háskóla íslands til að nema hin æðri fræði í akademisku umhverfi kemur í ljós að þeir kunna ekki að tjá sig á skrifuðu íslensku tungu- máli. Einhverjum hefur sjálfsagt dottið í hug að einfaldast væri að leggja íslenskuna niður í Háskólanum og taka upp kennslu á ensku eða öðr- um þeim tungumálum sem há- skólanemar kunna, en af einhverri íhaldssemi og misskilinni ættjarða- rást hefur enn veriö haldið í þá fordild að kenna á íslensku. Er þetta enn eitt dæmið um tregðu íslenskra skólayfirvalda til að til- einka sér aðlögun og módernisma í kennslumálum, enda verður ekki séö að það sé til neins að viðhalda íslensku þegar fólk kann ekki leng- ur að tala íslensku. Auk þess sem þaö tefur fyrir fólki í náminu að bisa við að læra fagið á tungumáli sem það hefur alls ekkert vald á. í staðinn fyrir að horfast í augu við þessa staðreynd, ætlar háskól- aráð að taka upp stoðnámskeið i íslensku fyrir þá sem innritast í Háskólann. Það verður sem sagt byrjað á því að kenna háskólaborg- urum móðurmálið upp á nýtt, svo þeir geti gert sig skiijanlega þegar þeir taka sjálft háskólaprófið. Sennilega verður byrjað á stafróf- inu, farið í ypsílon-regluna og farið yfir helstu grundvallarreglur um stóran staf og lítinn. Best væri að fá erlenda sendikennara til að kenna íslenskuna, því þeir tala bjagað eins og ungdómurinn og hafa takmarkaðan' orðaforða, sem einfaldar kennsluna. Aðalatriðið er auðvitað að háskólaborgarar geti skrifað ritgerðir sínar með þeim hætti að prófessorarnir þurfi ekki orðabækur til að fletta upp í til að skilja textann. Ef þetta gengur ekki kemur líka hitt til greina að hafa stoðnámskeið fyrir prófessorana svo þeir skilji nútíma íslensku nemendanna. Það yrði einfaldari og ódýrari lausn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.