Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1991, Side 25
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1991.
33
ov Afmæli
Sigríður Svanhildur Sörensen
Sigriður Svanhildur Sörensen,
Boðaslóð 4, Vestmannaeyjum, er
fertugídag.
Starfsferill
Svanhildur er fædd á ísafirði og
ólst þar upp. Hún gekk í Barna- og
Gagnfræðaskólann á ísafirði og
lauk gagnfræðaprófi 1968 og var við
nám í Kvennaskólanum á Blönduósi
1969-70.
Svanhildur var starfsmaður Pósts
og sima á ísafirði 1978-88 en síðast-
talda árið flutti hún til Vestmanna-
eyja. Þar hefur hún starfað hjá
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja og
Pósti og síma síðan í ársbyrjun 1989.
Fjölskylda
Svanhildur giftist 25.11.1970 Ósk-
ari Geir Péturssyni, stýrimanni á
Isafirði. Þau skildu 1981. Foreldrar
hans eru Pétur Geir Helgason og
Ósk Norðfjörð Óskarsdóttir.
Börn Svanhildur og Óskars: Erl-
ing Gunnar, f. 11.9.1970, kvæntur
Lucindu Svövu Friðbjörnsdóttur,
þau eiga 1 son, Friðbjörn Óskar;
PéturGeir.f. 1.1.1972.
Systkini Svanhildar: Sveinn Her-
mann, starfsmaður ísafjarðarkaup-
staðar, kvæntur Guðbjörgu Jóns-
dóttur, þau eiga 3 börn; Árni, sím-
smiður í Reykjavík, kvæntur
Guðnýju Snorradóttur söngkonu,
þau eiga 3 börn; Hrafnhildur, tækni-
teiknari á ísafirði, gift Gesti ívari
Elíassyni kjötiðnaðarmanni, þau
eiga2dætur.
Foreldrar Svanhildar eru Erling
Sörensen, f. 24.9.1929, umdæmis-
stjóri Pósts og síma á Vestfjörðum,
Sigriður Svanhildur Sörensen.
og Amfríður Hermannsdóttir, f. 3.3.
1930, en þau eru búsett á ísafirði.
Sturtuhengi- og klefar fyrir sumarbú-
staði, verð kr. 8.500 og kr. 49.500.
A&B, Skeifunni 11, s. 91-681570.
Vandlátir velja KR-sumarhús. Eigum ti!
afhendingar nú þegar fullbúið sumar-
hús, 42,2 m-. Húsið er til sýnis við
verslun Byko, Skemmuvegi, mánu-
daga föstudaga kl. 17-18 og laugar-
daga frá kl. 11 14. Nánari uppl. á
skrifstofu okkar að Kársnesbraut 110,
sími 642155 eða 41077.
■ Bátar
Þessi bátur er til sölu, 4,5 tonna, veiði-
leyfi, 474 kíló í kvóta, ný Perkins 46
ha. vél, vel búinn tækjum. Tilboð ósk-
ast. Upplýsingar í síma 97-21349 eftir
kl. 17.
Smáauglýsingar
Til sölu Nissan Patrol turbo disil, árg.
1986, 9 manna, háþekja, krómfelgur,
33" dekk, spil o.fl. Upplýsingar í síma
91-624945 eftir kl. 16.
Gæsaveiðibillinn, Land-Rover 72, til
sölu, verð 150 þúsund. Bíll í ágætu
standi (góð vél, góð grind). Til sýnis
á Bílasölu Matthíasar, s. 24540, eða
upplýsingar í s. 10772.
Pontiac Grand Prix '80 til sölu, T-topp-
ur, sportfelgur, rafmagn í rúðum og
hurðum, góð greiðslukjör. Uppl. í síma
91-76324.
Tilboð-útsala. Daihatsu Charade ’88
til sölu á aðeins 320 þúsund stað-
greitt. Uppl. í síma 92-68466 eftir kl. 18.
Andlát
Valur Rafn Úlfarsson, Asparvík,
Álftanesi, lést af slysforum þriðju-
daginn 27. ágúst á gjörgæsludeild
Borgarspítalans.
Ágústa Jónsdóttir, áður til heimilis
á Hagamel 19, lést á Hrafnistu, Hafn-
arfirði, 27. ágúst sl.
Jarðarfarir
Ólafur Magnússon bóndi, Sveins-
stöðum, Austúr-Húnavatnssýslu,
verður jarðsunginn frá Þingeyra-
kirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 14.
Útför Hilmars Árnasonar frá Auð-
brekku, dvalarheimilinu Skjaldar-
vík, fer fram frá Möðruvöllum í
Hörgárdal fóstudaginn 30. ágúst kl.
14.
Ríkharður Jóhannes Jónsson andað-
ist 8. ágúst í Landakoti. Útfórin hefur
farið fram í kyrrþey.
Ingólfur Jónsson lést 19. ágúst. Hann
fæddist í Ásmúla, Ásahreppi, 18. júlí
1916. Hann var sonur hjónanna Jóns
Jónssonar og konu hans, Ólafar Guð-
mundsdóttur. Mestan hluta starfs-
ævi sinnar .vann Ingólfur við bóka-
sölu, síðast á Laugavegi 100, en hann
lét af störfum árið 1988. Eftirlifandi
eiginkona hans er María Guðbjarts-
dóttir. Þau hjónin eignuðust tvö
börn. Fyrir hjónaband hafði Ingólfur
eignast son. Utfór Ingólfs verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Tónleikar
Silfurtónar í 20 ár
í Duus-húsi
Silfurtónar í 20 ár (1971 1991) er yfir-
skrift tónleika sem haldnir verða í Duus-
. húsi í kvöld, 29. ágúst. Þar verður ferill
Silfurtóna rakinn og þeir flytja lög af
hljómplötum sínum ásamt nýju og óút-
gefnu efni. Unglingahljómsveitin Risa-
eðlan hitar upp fyrir tónleikana en Risa-
eðluna skipa Þórarinn Kristjánsson,
trommur, ívar Ragnarsson, bassi^Margr-
ét Kristín Blöndal, söngur og víola, Sig-
urður Guðmundsson, gítar, og Hreinn
sem spilar á harmóníku og fleira. Tón-
leikarnir hefiast um kl. 22.30.
Síðan skein sól á
Tveimur vinum
í kvöld, 29. ágúst, heldur Síðan skein sól
tónleika á Tveimur vinum. Síðast komust
færri að en vildu og gefst núna tækifæri
að sjá þá og heyra.
■ BQar til sölu
Ford Econoline 350, árg. ’88, langur,
15 manna, 7,3 dísil, með háum toppi
o.fl. Til sýnis og sölu hjá Bílasölu
Matthíasar við Miklatorg, símar
91-24540 og 91-19079 (þar sem viðskipt-
in gerast).
Fiat Duna 4DR, verð kr. 410.000, góður
staðgreiðsluafsláttur eða skipti á
ódýrari. Uppl. í síma 91-657275.
Gröfuþjónusta
Leigjum út traktorsgröfur 4x4 með
opnanlegri framskóflu, skotbómu og
göfflum.
Sigurverk s/f, sími 39364 og 985-32849.
Rúnar Kristjánss. s. 78309, 985-27061.
Loftfélag íslands
á Púisinum
Loftfélag íslands heldur tónleika á Púls-
inum í kvöld, 29. ágúst. Með félaginu
kemur fram í fyrsta sinn á íslandi banda-
ríska blökkusöngkonan Gvendolyn
Sampé. Loftfélag Islands skipa: Birgir
Baldursson trommuleikari, Daníel Þor-
steinsson píanóleikari, Sigurður Bjöms-
son gitarleikari og Sigurður Halldórsson
bassaleikari. Aðgangseyrir á tónleikana
er kr. 1000 og hefjast þeir kl. 22. Fjöl-
breytt efnisskrá er í boði, m.a. djass, blús
og gospel-tónlist.
Óperu og Ijóðatónleikar
í Hafnarborg
Nemendur prófessors Svanhvítar Egils-
dóttur halda óperu- og ljóðatónleika í
Hafnarborg, Hafnarfirði, fóstudaginn 30.
ágúst kl. 20.30. Tónleikamir verða haldn-
ir að loknu söngnámskeiði sem staðið
hefur yfir sl. tvær vikur.
Myndgáta
Lausn gátu nr. 114:
Skotgrafir
Fundir
Sumarfundur
Kiwanisklúbbanna
Sameiginlegur sumarfundur Kiwanis-
klúbbanna Kötlu og Torshavn verður
haldinn i Kiwanishúsinu, Brautarholti
26, í kvöld kl. 20. Gestir fundarins verða
Perez-kvartett sem mun leiða fundargesti
í allan sannleikann um djass og sveiflu.
Allir kiwanisfélagar, íslenskir sem er-
lendir, eru velkomnir.
Samtök um andstöðu vegna
EES-samninganna
verða formlega stofnuö í dag, 29. ágúst.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Borg
og hefst kl. 20.30.
Tapað fundið -
Kápa-Púlsinn
Laugardagskvöldið fyrir hvítasunnu
milli kl. 22.00 og 22.30 hvarf kápa úr fata-
hengi Púlsins á Vitastíg. Kápan er gul-
brún ullarkápa, framleidd í París undir
merkinu Electra, stutt, útvíð, með
sjalkraga og óhneppt. Eigandinn, sem var
að ljúka námi erlendis, er nú kominn
heim aftur og saknar vetrarkápu sinnar.
Hægt er að skila kápunni í Púlsinn þar
sem hennar verður vitjað.
Lyklar fundust við
Hampiðjuna
4 lyklar á kippu, 2 bíllyklar og 2 húslykl-
ar, fundust fyrir utan Hampiðjuna. Lykl-
arnir eru hjá skiptiboröi DV í Þverholti.
Varðar frétt í DV laugardag- *
inn 24. ágúst um byggingar-
framkvæmdir á Djúpavogi
í DV síðastliðinn laugardag er
haft eftir Dagbjarti Harðarsyni, vara-
manni í byggingarnefnd, að bygging-
arfulltrúi, Tumi Hafþór Helgason,
framkvæmdastjóri Trésmiðju
Djúpavogs, hafi misnotað vald sjtt í
þágu síns fyrirtækis. Núverandi
byggingarfulltrúi tók við starfi bygg-
ingarfulltrúa um mánaðamótin febr-
úar-mars. Þá hafði ekki verið starf-
andi byggingarfulltrúi frá því í nóv-
ember. Byggingarleyfi fyrir um-
rædda lóð við Borgarland 32 var gef-
ið út fyrir nokkrum árum til bygg-
ingar á einbýlishúsi. Síðastliðið ár
hefur verið tilfmnanlegur skortur á
húsnæði á Djúpavogi. Mikil upp-
bygging hefur átt sér stað á undan-
fórnum árum. Fólki hefur fjölgað og
atvinnuástand er gott. í framhaldi
af því kom framkvæmdastjóri Tré-
smiðju Djúpavogs með þá hugmynd
að byggja parhús á umræddri lóð.
Munnlegt samþykki fékkst hjá bygg-
ingarnefndarmönnum fyrir þeirri
teikningu sem hann hafði látið
teikna. Þar sem formaður byggingar-
nefndar var staddur erlendis og eng-
inn byggingarfulltrúi var starfandi á
þessum tíma gaf ég leyfi fyrir því að
framkvæmdir hæfust. Það er því al-
rangt hjá Dagbjarti Harðarsyni að
Tumi H. Helgason hafi gefið út leyf-
ið, enda, eins og fram hefur komið,
var hann ekki byggingarfulltrúi á
þeim tíma. Slíkt fyrirkomulag hefur
verið við lýöi, þrátt fyrir að endan-
legar teikningar liggi ekki fyrir, enda
gengið út frá því að þær berist bygg-
ingarnefnd sem fyrst. Það kom mér
nokkuð á óvart að Dagbjartur skyldi
sjá sig knúinn til þess að fara með
þetta sérstaka mál í blöð. Um það bil
mánuði eftir afgreiðslu mína á teikn-
ingum Trésmiðjunnar hófst hann
handa við að byggja parhús fyrir fyr- »
irtæki sem hann starfar hjá, Malland
h/f, hér á Djúpavogi. Malland hafði
fengið samþykkta arkitektateikning-
ar af parhúsunum. Þar sem burðar-
þolsteikningar lágu ekki fyrir þegar
heíja átti framkvæmdir kom Dag-
bjartur til mín og fékk sams konar
leyfi og Trésmiðja Djúpavogs hafði
fengið. Enda tjáði hann mér að um-
ræddar teikningar kæmu í næstu
viku. Nú þann 25. ágúst hafa þær
ekki borist mér í hendur, þrátt fyrir
að búið sé að byggja íbúðirnar og
selja þær. Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að hæfileg samkeppni væri
til góðs. En þeir sem í henni standa
geta ekki og eiga ekki að fá að kom-
ast upp með það aö bera samkeppnis-
aðila sína röngum sökum. Með það
í huga sendi ég þessa yfirlýsingu frá
mér.
Djúpavogi, 25.8. 1991
Ólafur Ragnarsson
sveitarstjóri ^