Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Blaðsíða 1
Listhúsið:
Án sýnilegs titils
Án sýnilegs titils heitir sýning
sem verður opnuð í Listhúsinu,
Vesturgötu 17, sunnudaginn 15.
september klukkan 16.00.
Sýningin er haldin í boði Jacque-
line og Jack Mer, sendiherra
Frakklands á íslandi.
Þátttakendur í sýningunni hafa
allir búið í Frakklandi, stundað þar
nám eða búa þar enn. Sýnendur
eru fimm og fást við ólík listform:
Erla Magnúsdóttir sýnir grímur,
Odd Stefán Þórisson ljósmyndir,
Ragnheiður Ágústsdóttir leirlist,
Yann Hervé sýnir myndverk og
Þórdís Ágústsdóttir ljósmyndir.
Sýningin, sem er opin frá klukk-
an 12-18, stendur til 22. september.
Samsýning fimm ólikra listamanna verður opnuð i Listhusinu, Vestur-
götu 17, á sunnudaginn. Á myndina vantar Yann Hervé. DV-mynd GVA
Fjalladrottningin (Guðrún Stephensen) leggur þraut fyrir Helgu (Sigrúnu Waage). Hjá þeim stendur Búkolla.
Þjóðleikhúsið:
Búkolla
Á verkefnaskrá Þjóðleikhússins í
fyrra var barnaleikritið Búkolla eftir
Svein Einarsson en vegna þrengsla í
húsinu var ákveðið að 'fresta því til
haustsins. Ekkert er til fyrirstöðu að
sýna leikritið nú og er Búkolla fyrsta
frumsýning í Þjóðleikhúsinu á þessu
ári. Leikritið byggir Sveinn á hinni
þekktu sögu Búkollu sem fjallar um
karl og kerlingu í koti sínu sem eiga
þrjár dætur, Ásu Signýju og Helgu
og eina kú, Búkollu. Þegar Búkolla
hverfur senda þau dætur sínar
hverja á fætur annarri til að leita
hennar, en henni hefur verið hnupl-
að af Fjalladrottningunni sem er
skessa hin versta.
Auk Qölskyldunnar í kotinu og Bú-
kollu koma fyrir nokkrar aörar per-
sónur, má þar fyrst telja sögumann
sem fylgir áhorfendum í gegnum
söguþráðinn en verður alltaf að passa
sig á að verða ekki þátttakandi. Auk
þess að hafa samband við persónum-
ar í leikritinu þá hefur sögumaður
þó nokkurt samband við áhorfendur.
Þá kemur einnig til sögunnar Dala-
drottningin sem er jafnvel illvigari en
Fjalladrottningin og Dordingull sem
reynist yngstu systurinni betri en
enginn þegar kemur aö því að hún
þarf að leysa erfiðar þrautir.
Leikstjóri Búkollu er Þórunn Sig-
urðardóttir en leikmynd og búninga
gerði Una Collins. Jón Ásgeirsson
hefur frumsamið tónlist sem flutt er
í leikritinu. Tvö aðalhlutverk eru í
Búkollu. Sögumanninn leikur Sig-
urður Sigurjónsson og Helgu, yngstu
systurina, leikur Sigrún Waage. Aðr-
ir leikarar eru Lilja Guörún Þor-
valdsdóttir og Tinna Gunnlaugsdótt-
ir sem leika Ásu og Signýju. Herdís
Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfmns-
son leika foreldra stúlknanna og
skessurnar tvær eru leiknar af Guð-
rúnu Stephensen og Þóru Friöriks-
dóttur. -HK
Nýlistasafnið:
Farandsýning
Fons Brassers
Sýning á verkum hollenska lista-
mannsins Fons Brasser verður
opnuð i Nýlistasafninu, Vatnsstíg
3B, á morgun, laugardaginn 14.
september, klukkan 15.
Fons Brasser fæddist árið 1944
og er sjálfmenntaöur listamaður.
Hann hefur haldið 14 sérsýningar
víða um Evrópu og tekið þátt í rúm-
lega 40 samsýningum vestan hafs
og austan.
Verk Fons Brasser eru oftar en
ekki afleiddar hugmyndir, það er
að segja, þau eru grundvölluð á
almennum reglum, því sem er aug-
ljóst og þarfnast ekki sérstakrar
skoðunar. Verkin vísa mjög til
mælinga og magns, eru skilgreind
og skipað í ákveðin hlutfoll, og eru
ætíð byggð á tölvísi og/eða flatar-
málsfræði.
Þegar sýningu Fons Brasser lýk-
ur þann 29. september verða verkin
send til Noregs og sýnd þar ásamt
verkum eftir landa hans, Jan
Schoonhoven, í Museet for
samtidskunst. Þaðan fer sýningin
til Herning í Danmörku og veröur
sett upp í Herning kunstmuseum
en endar síðan í De Beyerd lista-
safninu í Breda í Hollandi.
Þessi farandsýning er skipulögð
af Nýlistasafninu undir stjórn Kees
Vissers, varaformanns safnsins.
Kostnaðurinn skiptist á milli lista-
safnanna fjögurra.
Hollenski listamaðurinn Fons Brasser, til hægri, ásamt Kees Vissers,
varaformanni Nýlistasafnsins, við uppsetningu sýningar þess fyrrnefnda.
Alþýðuleikhúsið frumsýnir á morgun leikritið Undirleikur við morð eftir David Pownell. Á myndinni eru Bryndis
Petra Bragadóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Viðar Eggertsson, Jórunn Sigurðardóttir og Þorsteinn Bachmann í hlut-
verkum sinum.
Alþýðuleikhúsið frumsýnir:
Undirleikur við morð
Alþýðuleikhúsið frumsýnir á
morgun, laugardaginn 14. septemb-
er, klukkan 20.30 leikritið Undirleik-
ur við morð eftir breska leikritahöf-
undinn David Pownall. Þetta er gam-
anleikrit með dramatiskum undir-
tón, þar sem segir frá ítalska tón-
skáldinu Carlo Gesualdo (1564-1612)
og breska tónskáldinu Peter Warlock
(1894-1939), lífi þeirra hvors um sig
og tengslum innbyrðis, bæði í þess-
um heimi og öðrum. Höfundur veltir
fyrir sér eilífðarspurningum á borð
við hvar uppsprettu sköpunarkrafts-
ins sé að finna, hverju listamaðurinn
eigi að fórna á altari listarinnar og
hvort fórnirnar séu á endanum fyrir-
hafnarinnar virði. Þá er hlutverki
þeirra sem hafa lifibrauð sitt af um-
fjöllun um listimar gerð gráglettin
skil í verkinu.
David Pownall stofnaði, ásamt öðr-
um, leikhópinn Paines Plough upp
úr 1970 og skrifaði fyrstu leikrit sín
fyrir þann hóp. Undirleikur við morð
(Music to Murder) var skrifað árið
1975 fyrir leikhópinn og vakti mikla
athygli og vann til fyrstu verðlauna
sem besta nýja leikritið á Edinborg-
arhátíðinni sama ár. Af öðrum leik-
ritum hans má nefna Beef og Master
Class sem hafa verið tekin til sýninga
af leikhúsum í Englandi og víðar.
Leikendur í Undirleik við morð eru
Brýndís Petra Bragadóttir, Hjálmar
Hjálmarsson, Jómnn Sigurðardóttir,
Viðar Eggertsson og Þorsteinn Bach-
mann.
Umsjón með tónlist hefur Árni
Harðarson, leikmynd gerir Elín Edda
Árnadóttir, búninga hannar Alda
Sigurðardóttir, lýsingu stjórnar
Björn Bergsteinn Guömundsson og
leikstjóri er Hávar Sigurjónsson.