Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1991, Síða 5
'20 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991. FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991. 21 Messur n Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta sunnudag kl. 11 árdegis. Ingibjörg Marteinsdóttir syngur einsöng. Miðvikudagur: Fyrirbæ- naguðsþjónusta kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtskirkja: Guösþjónusta kl. 11. Organisti Þorvaldur Bjömsson. Bæna- guðsþjónusta þriðjudag kl. 10.30. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Guösþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. Dómkirkjan: Prestsvígsla kl. 10.30. Vígð til prests verða Magnús Erlingsson cand. theol., sem yígist til ísafjaröarprestakalls, og Sigrún Óskarsdóttir cand. theol. sem vígist til aðstoðarprests í Laugarnes- prestakalli. Sr. Bernharður Guðmunds- son lýsir vígslu. Vígsluvottar eru sr.-Jón Dalbú Hróbjartsson, sr. Jakob Á. Hjálm- arsson og sr. Jón Ragnarsson. Auk þessa annast þeir altarisþjónustuna. Dómkór- inn syngur. Organisti Marteinn H. Frið- riksson. EUiheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Kristinn Hóseasson. Kristín Sigtryggsdóttir syngur einsöng, organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjuklukkur teknar í notkun. Org- anisti Guðný M. Magnúsdóttir. Jón Sig- urðsson leikur á trompet. Prestar sr. Hreinn Hjartarson og sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Ragnhildur Hjaltadóttir les ritningarlestur. Veitingar eftir guðs- þjónustu. Fríkirkjan í Reykjavik: Guðsþjónusta kl. 14.00. Miðvikudaginn 18. september kl. 7.30 morgunandakt. Orgelleikari Vio- leta Smid. Kirkjan er opin í hádeginu virka daga. Cecil Haraldsson. Grafarvogssókn: Guðsþjónusta í Félags- miðstöðinni Fjörgyn kl. 11. Organisti Sig- ríður Jónsdóttir. Séra Vigfús Þór Árna- son. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Altaris- ganga. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Ámi Arinbjarnarson. Fyrir- bænir eftir messu. Grindavíkurkirkja: Messa kl. 14. Organ- isti Siguróli Geirsson. Kór kirkjunnar syngur. Vígslubiskupinn i Skálholti, sr. Jónas Gíslason, prédikar. Messukafii í safnaðarheimilinu í boði sóknarnefndar. Sóknarprestur. Hafnaríjarðarkirkja: Guðsþjónusta kl. -014. Vænst er þátttöku fermingarbarna og fjölskyldna |>eirra. Þórhildur Ólafs. llallgrimskirkja: MeSSa kl. 11. AltarÍS- ganga. Sr. Karl Sigurbjömsson. Þriðju- dagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöldbænir og fyrirbænir em í kirkjunni á miðvi!;udögum kl. 18. Hjallasókn: Guðsþjónusta kl. 11 í Kópa- vogskirkju. Altarisganga. Fermdir verða: Rúnar Snær Þórðarson, Hlíðarhjalla 63, Kópavogi, og Kristján Lárusson, Hraun- tungu 79, Kópavogi. Allir velkomnir. Kristján Einar Þorvarðarson. Kópavogskirkja: Fermingarmessa sunnudag kl. 11 á vegum Hjallapresta- kalls. Prestur sr. Kristján Einar Þorvarð- arson. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl Sig- urbjömsson. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Hátíðarmessa kl. 14 í tilefni af 7 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Sungin verður Missa de Angelis/Messa engl- anna. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson prédikar. Kór Langholtskirkju syngur. Örganisti Jón Stefánsson. Fjáröflunarkafii kvenfé- lagsins í safnaðarheimilinu að lokinni messu. Laugarneskirkja: Laugardagur: Guðs- þjónusta kl. 11 í Hátúni lOb. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Surmudagur: Messa í Laugameskirkju fellur niður vegna prestsvigslu í Dómkirkjunni. Sigrún Ósk- arsdóttir cand. theol. verður vígð til að- stoðarprests í Laugamesprestakalli. Safnaðarfólk er hvatt til að fjölmenna. Fimmtudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Org- elleikur, altarisganga, fyrirbænir. Fimmtudagur: Opið hús fyrir aldraða. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Miðvikudagur: Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Njarövíkurprestakall: Sameiginleg guðsþjónusta sóknanna í Innri-Njarðvík- urkirkju kl. 20.30. Prestur sr. Jóna Krist- In Þorvaldsdóttir. Sóknamefndin. Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14. Aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjón- ustuna. Safnaðarprestur. Kristín Guðrún Gunnlaugsdóttir sýnir i Nýhöfn. Hjólreiðakeppni JC Hafnarfjarðar Nýhöfn: Kristín Guðrún sýnir Hjólreiðakeppni JC Hafnarfjarðar og veitingastaðarins Bleika pardus- ins fei fram á götum Hafnarfjarðar sunnudaginn 15. september, í sam- vinnu við Hjólareiðafélag Reykjavík- ur. Skráning hefst klukkan 10 við Bleika Pardusinn, Hjallahrauni 13. Keppni hefst síðan klukkan 11. Keppt verður í þremur ílokkum: 1. Keppn- isflokki (þátttökugjald 300 krónur), 2. Unglingaflokki 11-15 ára, 3. Barna- flokki 6-10 ára. Hjólreiðamenn í keppnisflokki munu keppa um Iðn- aðarbankaskjöldinn en sá skjöldur er farandgripur. Einnig mun sigur- vegarinn í keppnisflokknum fá eign- arbikar og þrír efstu í hverjum flokki fá verðlaunapeninga. JC Hafnaríjörður fer þess á leit við ökumenn að þeir sýni keppendum fyllstu tillitssemi. Þá er skorað á alla áhugamenn um hjólreiðar að koma og fylgjast með keppninni og hvetja keppendur til dáða. Kristín Guðrún Gunnlaugsdóttir opnar málverkasýningu i Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugardaginn 14. september klukkan 14.00. Kristín er fædd á Akureyri 1963. Hún tók þátt í námskeiðum á vegum Myndlistarskólans á Akureyri frá 12 ára aldri og hóf þar hefðbundið myndlistarnám veturinn 1983-84 og Leikfélag Akureyrar: Opið hús í tilefni af 50 ára afmæli F élags ís- lenskra leikara nú í september munu leikarar, sem eru starfandi á Akur- eyri, í samvinnu við Leikfélag Akur- eyrar, standa fyrir „opnu húsi" í Samkomuhúsinu á Akureyri á morg- un frá klukkan 13-17. Áhorfendur munu eiga kost á að fylgjast með æfingu á leikritinu Stál- blóm sem frumsýnt verður 4. október og kynningu Valgeirs Skagfjörð og leikaranna á sönglögum úr söng- leiknum Tjútt og trega sem frum- sýndur verður um jólin. Ennfremur veröa öll skúmaskot leikhússins skoðuð í fylgd leikara LA og fólk getur kynnt sér þá vinnuþætti sem liggja að baki leiksýningum. Þá verða kafíiveitingar á Borgarasal hússins. Kolaportið opið á sunnudögum Kolaportið verður nú líka opið á sunnudögum og verður þetta fyrsta helgin. Þetta er gert til að mæta auk- inni aðsókn, bæði gesta og seljenda. Alls komast þá um 250 seljendur fyr- ir í Kolaportinu um hverja helgi og reiknað er með um 20.000 gestum að meðaltali. Sunnudagar verða íjölskyldudagar í Kolaportinu og þennan fyrsta sunnudag, 15. september, verður þar margt til skemmtunar. Simpson íjöl- skyldan verður á staðnum klukkan 11-13 og heilsar upp á gesti, fjöldi fyrirtækja verður með sérstakar kynningar og Kolaportsálfarnir gefa börnum lukkupoka. Á sunnudögum verður opið frá klukkan 11-17 en á laugardögum frá klukkan 10-16 sem er óbreyttur tími. að því loknu var hún við nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1984-87. Kristín hafði vetursetu í Róm 1987-88 og nam helgimyndamálun (íkonagerð) og hefur hún stundað hana samhliða málverkinu síðan. Árið 1988 innritaðist Kristín í Rík- isakademíuna í Flórens og leggur þar Nú stendur yfir í Gallerí Borg sýn- ing Sigrúnar Sverrisdóttur. Sigrún er fædd í Reykjavík 1949 og stundaði nám í Myndlista- og handíðaskól- anum 1969-73, þar af tvö ár í textíl. Sigrún flutti til Stokkhólms 1977 og hefur verið búsett þar síðan og hefur þar vinnustofu. Hún hefur aðallega unnið við myndvefnað en síðustu fjögur árin hefur hún einnig málað með akrýl á handgerðan pappír og Nú stendur yfir í Eden í Hvera- gerði fyrsta einkasýning Einars Þórs Einarssonar, eöa Einars Þ. eins og hann hefur löngum verið kallaður. Einar Þ. fæddist 1925 í Bandaríkj- unum en fluttist á unga aldri til ís- lands og ólst upp hjá ömmu sinni í austurbænum í Reykjavík. Einar stundaöi nám við Mennta- skólann á Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi, auk þess sem hann stundaði nám við Loftskeytaskóla íslands. Meðfram því að snudda dá- lítiö í Háskóla íslands næstu árin lauk hann þriggja ára námi við Leik- hstarskóla Lárusar Pálssonar og hallaði sér að Þalíu um nokkurt skeiö, mest hjá Leikfélagi Reykjavík- ur. Það var ekki fyrr en á miðjum aldri stund á freskumálun. A sumrin dvel- ur Kristín í heimabæ sínum, Akur- eyri, og málar. Á sýningunni í Nýhöfn verða tólf olíumálverk, máluð á árunum 1988-91. Sýningin er opin virka daga frá klukkan 10-18, um helgar 14-18 en lokað er á mánudögum. Sýning- unni lýkur 2. október. fengist við einþrykk. Sigrún fékk listamannalaun sænska ríkisins 1989. Hún hefur haldið tvær einkasýningar í Stokk- hólmi og tekið þátt í nokkrum sam- sýningum. Þetta er fyrsta sýning Sigrúnar hér á landi og sýnir hún nú myndvefnað og einþrykk. Sýningin er opin aila daga vikunn- ar frá klukkan 14-18 og stendur hún til 24. september. sem tóm gafst til að huga að málverk- inu þótt það heföi löngum verið ofar- lega í huga Einars. Sýningar og söfn voru tiðum sótt, innanlands sem ut- an. Listasaga var lesin, fyrirlestrar sóttir en um eiginlegt myndlist- arnám var ekki að ræða, í mesta lagi teikninámskeið. En Einar stundaði hins vegar sjálfsnám með kennslu- bókum og -böndum. í upphafi málaöi hann eftir myndum annarra en síðan byrjaði hann að skissa og mála úti í náttúrunni. Smátt og smátt þróaðist þetta gegnum Kjarval og Ásgrím, Vincent og Gauguin og alla hina snillinga 19. og 20. aldanna, jafnt hlutlæga sem óhlutlæga, í það sem þessi fyrsta sýning ber með sér. Sýning Einars stendur til 24. sept- ember. Steindórsplanið: Mexíkönsk dansspor kennd Unnur Guðjónsdóttir ballett- meistari ætlar að kenna þeim sem leið eiga um Steindórsplanið i mið- bænum, ungum sem öldnum, mex- íkönsk dansspor á morgun, laugar- daginn 14. september. Dansinn, sem um er að ræða, er mjög auð- lærður og nefnist La Raspa. Kynn- ingin og kennslan hefst klukkan 14.00 og ekkert þátttökugjald er. Þetta minnir á aö á fyrri tíð tóku land í Grófmni íslenskir og erlend- ir menn sem fluttu með sér og kynntu siði annarra þjóða. Gallerí Borg: Myndvefnaður og einþrykk Fyrsta einkasýning Einars Þ í Árbænum verður sýning á gömlum mataráhöldum. r Árbæjarsafn: Islensk matarmenning Þar sem sláturtíðin er fram undan verður dagskrá Árbæjarsafns sunnudaginn 15. september tengd matargerð fyrri tíma. Hallgerður Gísladóttir, þjóðháttafræðingur á Þjóðminjasafninu, segir frá geymslu og matreiðslu á kjöti og innmat í eldri tíð. Spjall hennar hefst klukkan 15.00 í Dillonshúsi. I Arbænum verður sýning á gömlum mataráhöldum og algengur matur frá síðustu öld verð- ur á borðum. Bakaðar verða lumm- ur, búin til kæfa og í Hábæ vérður kafíl brennt og malað. Krambúðin og Dillonshús veröa opin sem endra- nær og eru ailir velkomnir. Gunnarssalur á Arnarnesi: Haustsýning í Gunnarssal, litlum sýningarsal að Þernunesi 4 á Arnarnesi, opnar Torfi Jónsson sýningu á morgun, laugardaginn 14. september. Gunn- arssalur er tileinkaður minningu Gunnars Sigurðssonar í Geysi sem rak Listvinasalinn forðum daga við Freyjugötu þar sem nú er Ásmund- arsalur. Torfi Jónsson er myndlistarmaður, kennari og hönnuöur, fyrrverandi skólastjóri Myndlista- og handíða- skóla íslands. Torfi sýnir 24 vatns- litamyndir, meðal annars gerðar á Ítalíu og á Vestfjörðum. Torfi hefur sýnt myndir sínar innanlands og ut- an, síðast i Gallerí Borg 1989. Nú prýða myndir Torfa annan sýningar- sal en sá er í útibúi SPRON að Álfa- bakka í Mjódd. Sýningin stendur til 22. september en er einungis opin um belgar. Á föstudögum frá klukkan 17-22 en laugardaga og sunnudaga frá klukk- an 14-18. Pétur Halldórsson í Gallerí Koti Pétur Halldórsson, sem lands- kunnur er fyrir teikningar sínar, opnar á morgun, laugardaginn 14. september, sýningu í Gallerí Koti í Borgarkringlunni. Á sýningunni verða teikningar, unnar með bland- aðri tækni. Gallerí Kot fagnar því að geta boðið upp á sýningu þessa sem mun standa til 5. október. Sýningin er opin á al- mennum verslunartíma Borgar- kringlunnar. Soffía Þorkelsdóttir sýnir: Olía og vatnslitir Soífla Þorkelsdóttir opnar sýningu á myndum, unnum í olíu og vatnslit, á morgun, laugardaginn 14. septemb- er að Tjarnargötu 12 í Keflavík, 3. hæð. Soffía hefur málað í yfir tuttugu og fimm ár og er þetta önnur einka- sýning hennar. Sýningartími verður frá klukkan 17-20 á virkum dögum en klukkan 14-20 um helgar. Sýning- unni lýkur 22. september. Soffía Þorkelsdóttir opnar sýningu á morgun, laugardaginn 14. septemb- er. Alda Ármanna í Hafnarborg Alda Ármanna Sveinsdóttir opnar á morgun, laugardaginn 14. septemb- er, sýningu á málverkum og vatns- litamyndum í kafflstofu Hafnarborg- ar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Alda Ármanna sækir efniviö sinn beint í manneskjuna sjálfa á mynd- unum á sýningunni. Flestar mynd- anna eru af konum þó að karlar komi einnig við sögu. Myndirnar eru mál- aðar á síðustu tólf mánuðum. Alda Ármanna fæddist á Norðfirði 1936. Hún stundaði nám viö Mynd- listaskólann í Reykjavík 1954 og var virkur þátttakandi í Myndlistafélagi Neskaupstaöar á árunum 1965-1972. Árið 1984 lauk Alda Ármanna stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og lokaprófi úr kennara- deild Myndlista- og handíðaskóla ís- lands 1987. Síðastliðinn vetur lagði hún svo stund á nám í lokaáfanga í olíumálun í Myndlistaskóla Reykja- víkur. Sýningin í Hafnarborg er 8. einka-/ sýning Öldu Ármönnu. Auk þess hefur hún tekið þátt í nokkrum sam- sýningum og unnið mikið að sýning- um og kynningum á list fatlaðra, meðal annars setti hún upp sýning- una Úr hugarheimi, í Listasafni ASÍ 1990. Sýningin stendur til 29. september. Seljakirkja: Sunnudagur: Kvöldguðs- þjónusta kl. 20.30. Orgánisti Kjartan Sig- urjónsson. Mclakaffi eftir guðsþjón- ustuna. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Kynningarguðs- þjónusta fyrir væntanleg fermingarbörn kl. 11. Organisti Þóra Guðmundsdóttir. r Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdótt- ir. Miðvikudagur: Samkoma kl. 20.30. Sönghópurinn Án skilyrða undir stjórn Þorvalds Halldórssonar. Prédikun, fyrir- bænir. Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14.00. Sóknarprestur. Stóra-Núpskirkja: Guðsþjónusta kl. 21. > Sóknarprestur. Hjónaband Þann 10. ágúst voru gefm saman í hjóna- band í Bústaðakirkju af séra Pálma Matthfassyni brúðhjónin Ragnheiður Eyjólfsdóttir og Björn Árnason. Heimili þeirra er að Rjúpufelli 22, Reykjavík. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. Þann 17. ágúst voru gefin saman í hjóna- band í Selfosskirkju af séra Sigurði Sig- urðarsyni brúðhjónin Þórlaug Bjarna- dóttir og Karl Þórir Jónasson. Heimili þeirra er að Laugamesvegi 77. Ljósmyndarinn Jóhannes Long. Tilkyimingar Húnvetningafélagið Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir. Flóamarkaóur FEF Félag einstæðra foreldra heldur flóa- markað í SkeljaheUi, Skeljanesi 6, laugar- daginn 14. september. Mikiö af góðum bamafatnaði, barnavagn, barnastólar, burðarrúm, leikgrind, bækur og tímarit, myndir og húsgögn, m.a. sófasett. Opið kl. 14-17. Leið 5 að húsinu. Taflfélag Kópavogs Haustmót TK hefst sunnudaginn 15. sept- ember kl. 14. Teflt verður þrisvar í viku, á sunnudögum kl. 14 og þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20. Umhugsunartími verður tvær klukkustundir fyrir fyrstu 40 leikina og síðan bið. Biðskákir verða ákveðnar síðar. - Prestsvígsla í Dómkirkjunni Sunnudaginn 15. september mun biskup íslands, herra ólafur Skúlason, vígja tvo guðfræðikandidata til prestsþjónustu. Magnús Erlingsson, sem starfað hefur sem fræðslufulltrúi á Biskupsstofu, verð- ur vígður til þjónustu í ísafjarðarpresta- kalli í Vestfjarðaprófastsdæmi. Sigrún Óskarsdóttir guðfræðingur verður vígð til að þjóna sem aðstoðarprestur í Laug- arnesprestakalli í Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra. Vígsluvottar verða séra Bemharður Guömundsson fræðslustjóri, sem lýsa mun vígslu, séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur, sem annast mun altarisþjónustu, séra Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Laugamesprestakalli og prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, og séra Jón Ragnarsson, deildarstjóri í fræðslu- deild kirkjunnar. Við athöfnina syngur Dómkórinn undir stjóm Marteins Hun- ger Friðrikssonar organista. Prestsvígsl- an hefst í Dómkirkjunni kl. 10.30. Fimir fætur Dansæfmg verður í Templarahöllinni við Eiríksgötu sunnudaginn 15. september kl. 21. Allir velkomnir. Upplýsingar í síma 54366. Dagskrá Taflfélags Kópavogs Dagskrá T.K. fram til áramóta verður sem hér segir: Hraðskákmót verða á mið- vikudögum kl. 20. Sú breyting hefur ver- ið gerð að verðlaunapeningar eru í boði fyrir 3 efstu sætin og mótsgjald er kr. 300 fyrir eldri og 150 fyrir yngri. Haustmót T.K. hefst sunnud. 15. sept. kl. 14. Teflt verður þrisvar í viku, sunnud. kl. 14 og þriðjud. ogfimmtud. kl. 20. Umhugsunar- tími verður 2 klst. fyrir fyrstu 40 leikina og síðan biö. Biðskákir verða ákveðnar síðar. Bama- og unglingaæfingar hefjast laugardaginn 14. sept. kl. 14. Þær verða tvisvar í viku, á laugardögum kl. 14 og þriðjudögum kl. n.30. Aðalfundur T.K. verðurmiðvikudaginn2. okt. kl. 19. Hrað- Nýr tónlistarskóli í Kópavogi 1 haust tekur til starfa nýr tónlistarskóli, Litli-tónlistarskólinn í Furugrund 40, Kópavogi. í skólanum verður kennt á hljómborðshljóðfæri, s.s. píanó, hljóð- gervla, orgel og skemmtara, einnig gitar og bassa. Tölva og möguleikar hennar í hvers konar tónlistarflutningi með að- skákmót T.K. verður sunnud. 6. okt. kl. 14. Októberhraðskákmót verður sunnud. 27. okt. kl. 14. Nóvemberhraðskákmót verður sunnud. 10. okt. kl. 14. Desember- hraðskákmót verður sunnud. 8. des. kf 14. Jólahraðskákifiót T.K. verður sunnud. 29. des. kl/14. T.K. á 25 ára af- mæli í nóvember. Fyrirhugað er aö minn- ast þess með veglegu afmælismóti í nóv- ember og verður það auglýst síðar. Öll starfsemi T.K. fer fram f húsnæði þess að Hamraborg 5, þriðju hæð. Húnvetningafélagið Félagsvist nk. laugardag, 14. september, kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir vel- komnir. stoð MIDI tækninnar er meðal þess sem boðið verður upp á. í skólanum er góð aðstaða, m.a. hefur hann yfir að ráða litlu hljóðupptökuveri og aðstöðu til tölvu- vinnslu á tónUst. Eigandi skólans og stjómandi er Hilmar Sverrisson tónlist- armaður og veitir hann allar upplýsingar um skólann í síma 91-43611. Flóamarkaður F.E.F. Félag einstæðra foreldra heldur flóa- markaö f Skeljahelli, Skeljanesi 6, laugar- daginn 14. september. Mikiö af góðum barnafatnaði, barnavagn, barnastólar, burðarúm, leikgrind, bækur og tímarit, myndir og húsgögn, m.a. sófasett. Opið kl. 14-17. Leið 5 að húsinu. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú verð- ur á morgun. Lagt af stað frá Fannborg 4 kl. 10. Nú hallar sumri og hauststemn- ingin breytir náttúrunni og veðrið getur tekið allar stefnur. Ekkert er betra í slík- um þáttaskUum í náttúrunni en að koma upp úr hálftiu að Fannborg 4 og drekka molakaffi og skiptast á almæltum tíðind- um og rölta síðan saman í klukkutíma. Fundir JC Kópavogur boðar til fyrsta félagsfundar starfsársins 1991-1992 í kvöld, 13. september, kl. 20.30 í Framsóknarsalnum, Hamraborg, Kópa- vogi. Ath.: Breytturfundarstaður. Venju- leg fundardagskrá en að henni lokinni er opið hús. Mætið og takið með ykkur gesti. Fyrirlestrar Háskólafyrirlestur Dr. Berys Gaut, kennari í heimspeki við St. Andrews háskóla í Skotlandi, flytur opinberan fyrirlestur í boöi heimspeki- deUdar Háskóla íslands og Félags áhuga- manna um heimspeki sunnudaginn 15. september kl. 14.30 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn nefnist „Art and Ethics" og verður fluttur á ensku. Berys Gaut lauk doktorsprófi frá Princeton háskóla á þessu ári. Hann hóf kennslu við St. Andrews háskóla á síðasta ári og er sér- fræðingur i siðfræði og fagurfræði. Fyrirlestur um kímni Laugardaginn 14. september kl. 16 heldur Jens Hovgaard, lektor við Árósaháskól- ann, fyrirlestur í Norræna húsinu og ætlar að tala um kómík og húmor. Hann leitar fanga hjá danska rithöfundinum Ludvig Holberg og tekur fyrir hið spaugi- lega í leikritmn hans og veltir vöngum yfir hvort skopið breytist frá einum tíma til annars eftir tíðarandanum. Á húmor- inn sögu aö baki sér og hvernig er kímni Holbergs metin nú á tímum? Höfum við sama skopskyn og fólk á 18. öld. Námskeið Námskeið um kvíða {lok september hefjast í Reykjavík nám- skeiö um stjórnun kvíða. Á námskeiðun- um er tekist á við helstu þætti sem or- saka og viðhalda kvíða í samskiptum manna. Kenndar eru og æfðar sálfræði- legar aðferðir til að fyrirbyggja og yfir- stíga einkenni kvíða, spennu og streitu. Kvíðaviðbrögð koma ekki einungis fram í líkamlegri vanlíðan (höfuðverk, vöðva- bólgum, svita- og skjálftaköstum) heldur einnig í líki undirgefni, vanmetakenndar, félagslegrar einangrunar og þunglyndis. Stjómandi námskeiðanna, Oddi Erlings- son sálfræðingur, hefur um árabil leitt slík námskeið og fengist við meðferð þessara vandamála. Nánari upplýsingar eru veittar um helgar og öll kvöld í síma 39109. Ferðalög Útivist um helgina Helgarferðir 13.-15. sept. Hallgrímsvarða - Laugafell. Hugað að Hallgrímsvörðu sem stendur skammt frá Fjórðungsölduvatni á Sprengisandi en Fjórðungsalda hefur verið talin mið- Tombóla Nýlega héldu þessir strákar á Seltjamar- og ívar tombólu til styrktar Hjálparstofn- nesi sem heita Ágúst, Þórir, Daði, Davið un kirkjunnar. Alls söfnuðu þeir kr. 459. punktur íslands og var vörðunni því val- inn þessi staður. Varðan var reist til heið- urs Hallgrimi Jónassyni, yfirkennara í Kennaraskólanum, sem var mikill ferða- maður og vinsæll fararstjóri. Farið í Laugina við Laugafell. Gist í Nýjadal. Allir þeir sem viðstaddir voru vígslu vörðunnar 1982 era hvattir til að koma með. Fararstjóri: Lovísa Christiansen. Hjólreiðaferð Höfð veröur bækistöð í Landmannalaug- um og hjólað þaðan í Eldgjá og Hrafn- tinnusker. Skilyrði að vera á sæmilegum fjallahjólum. Viögerðarmaður verður með i fór. Lagt af stað frá G.Á. Péturs- syni, Faxafeni 14, á fostudagskvöld kl. 20. Fararstjóri: Jón Gunnar Hilmarsson. Básar á Goðalandi Nú eru haustlitimir að koma fram í Mörkinni. Á laugardag og fyrripart sunnudags verða skipulagðar gönguferð- ir út frá Básum fyrir þátttakendur. Far- arstjóri: Anna Soffia Oskarsdóttir. Fimmvörðuháls Gist í nýbyggðum skála Útivistar á Fimmvörðuhálsi sem er allur hinn vand- aöasti. Lagt af stað á laugardagsmorgun og gengið í rólegheitum upp á háisinn. Á sunnudag verður ferðinni haldið áfram og gengiö niður í Bása. Tilvalin ferð fyrir þá sem vilja hafa gott tóm til þess að skoða náttúm og landslag á þessari vin- sælu gönguleið. Dagsferðir sunnudaginn 14. september Kl. 10.30: Reykjavíkurgangan, 9. áfangi. Gjár og hrauntraðir Nú verður aftur tekið til við Reykjavíkur- gönguna en það er laustengd. raðganga úr Básum til Reykjavíkur í framhaldi af Þórsmerkurgöngunni í raðgöngu Útivist- ar 1991. Á sunnudaginn verður gengið um og skoðaðar gjár, hrauntraðir og eld- stöðvar sem fáir hafa séð. Frá Hrútagjá verður gengið um Mávahlíðar að Lamba- fellsgjá og hópurinn síðan selfluttur að Grindavíkurgjá. Gangan veröur um 12 km. Kl. 13: Rólegheitarölt um Höskuldar- velli Síðdegisgangan verður fyrir þá sem em að byrja í gönguferðum og fólk með börn. Gengið verður um Höskuldarvelli og ná- grenni. Ferðafélag íslands Helgarferðir 13. 15. sept. 1. Landmannalaugar Hrafntinnusker Krakatindsleið - Álftavatn. Spennandi ferð um þekktar og lítt þekkt- ar slóðir. M.a. verða íshellarnir viö Hrafntinnusker skoðaðir og fleiri for- vitnilegir staðir. Ekið verður frá Reykjadölum vestan Laufafells til Álfa- vatns. Gist í sæluhúsum F.í. i Laugum og við Álftavatn. Fararstjóri: Leifur Þor- steinsson. 2. Landmannalaugar Hrafntinnusker. Gist báöar nætur í Laugum. Ekið frá Dómadal hjá Sátubarni um Pokahrygg að Hrafntinnuskeri. Möguleiki á að ganga til baka frá Hrafntinnuskeri til Landmannalauga (einn áfangi í „lauga- vegsgöngu"), eða fara með rútunni. 3. Þórsmörk - Langidalur í september er það kyrrðin og fegurðin sem mætir ferðamanninum í Þórsmörk. Komið með og njótið helgarinnar með Ferðafélaginu. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. Gönguferðir með farar- stjóra um Mörkina. Upplýsingar og far- miöasala á skrifstofunni, Öldugötu 3. Sýningar Art-Hún Stangarhyl 7 Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, grafik og myndir, unnar i kol, pastel og olíu, í sýningarsal sínum aö Stangarhyl 7. Opið virka daga kl. 12-18. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Árbæjarsafn Opiö kl. 10-18 um helgar. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms Jónssonar em nú sýnd 26 verk. Mörg verkanna, sem bæði em unrún í olíu og með vatnslitum, em frá ámnum 1905-1930 og em þau einkum frá Suðurlandi. Safnið er opið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16.00. Ásmundarsafn Sigtúni Þar stendur yfir sýning sem ber yfir- skriftina Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin í notkun ný viðbygging við Ásmundar- safn. Safnið er opið frá kl. 10-16 alla daga. Ásmundarsalur Freyjugötu 41 Margrét Jónsdóttir leirlistarkona sýnir verk sín. Sýningin er opin alla daga kl. 14-18 til sunnudagsins 15. september. FÍM-salucinn v/Garðastræti Myriam Bat Yosef, María Jósefsdóttir, sýnir verk sín í FÍM-salnum. Listform Myriam er fjölbreytilegt. Hún málar á pappír, silki, striga og á fólk fyrir gjörn- inga. Tvær video-filmur með gjörningum Myriam verða sýndar á meðan sýning- unni stendur. Sýningin, sem er sölusýn- ing, er opín alla daga kl. 14-18. Henni lýkur 23. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.