Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1991, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991.
Utlönd
Carl Bildt, formaður Hófsama sameiningarflokksins:
Þungavigtarmaðurinn
í sænskum stjórnmálum
Carl Bildt, formaður Hófsama sam-
einingarflokksins, gengur á fund for-
seta sænska þingsins í dag. Þar mun
hann gera grein fyrir stjórnarmynd-
unartilraunum sínum undanfarna
viku, áöur en hann heldur áfram að
ræða málefnasamning stjórnar borg-
araflokkanna við formenn Mið-
flokksins, Þjóðarflokksins og Kristi-
legra demókrata.
Þótt Bildt sé yngstur allra flokks-
leiðtoga í Svíþjóð, hann er ekki nema
42 ára, hefur hann getið sér orð sem
þungavigtarmaðurinn í sænskum
stjórnmálum. Hann þykir maður
duglegur og vel að sér, ekki síst þeg-
ar utanríkismál eru annars vegar,
og hann er einnig ákaflega mælskur.
í þeim efnum og öðrum hefur honum
verið líkt við Olof Palme, fyrrum for-
sætisráðherra.
Á ferð og flugi
Þeir áttu það sameiginlegt að hafa
veriö leiðtogar í stúdentapólitíkinni
og sem slíkir voru þeir á ferð og flugi
um Evrópu þar sem þeir sáu atburð-
ina gerast með eigin augum. Carl
Bildt var í Prag 1968 og í Portúgal
1974 þegar hermenn voru með nellik-
ur í byssuhlaupunum eftir bylting-
una gegn einræðisstjórninni. Og eins
og Palme talar Bildt mörg erlend
tungumál.
„Ræturnar áhuga míns á málefn-
um Evrópu má ekki síður rekja til
þess að ég upplifði frelsisbaráttu í
Suður- og Austur-Evrópu en til
reynslu minnar af daglegum störfum
í Vestur-Evrópu," skrifaði Bildt í bók
sem hann gaf út fyrr á árinu.
Skammaður af Janajev
Á sínum yngri árum tók Bildt þátt
í hverri ungmenna- eða stúdentaráð-
stefnunni á fætur annarri. Hann hitti
fiölda stjórnmálamanna frá Austur-
Evrópu, m.a. Gennadíj Janajev sem
í síðasta mánuði tók þátt í valdarán-
inu misheppnaða í Moskvu. Þeir hitt-
ust á ráðstefnu í Helsinki 1972. í bók
sinni segir Bildt frá því að hann hafi
haldið því fram á ráðstefnunni að
frelsi allra Evrópuþjóða væri skil-
yrði fyrir friði í álfunni. í ræðu sinni
minnti Bildt á það sem hafði gerst
fjórum árum áður í Prag. Janajev
brást ókvæða við og hundskammaði
Bildt, sagði ræðu hans ögrun við ráð-
stefnuna.
Óþægur Ijár í þúfu
En Bildt fór ekki bara fyrir brjóstið
á Janajev því leiðtogum sænskra
jafnaðarmanna hefur reynst erfitt að
vera honum sammála. Hann hefur
alltaf veriö þeim óþægur ljár í þúfu
og flokkur hans hefur alltaf verið
helsti andstæðingur jafnaðarmanna.
Carl Bildt var kjörinn á þing 1979
og til tals kom að gera hann að for-
manni Hófsama sameiningarflokks-
ins sem reyndar er íhaldsflokkur
þegar tengdafaðir hans, Gösta Bo-
hman, dróg sig í hlé 1981. Ekki varð
þó af því stöðuhækkuninni fyrr en
1986.
Bildt leiddi flokkinn í kosningum í
fyrsta sinn 1988 en fylgi hans varð
ekki jafnmikið og þegar tengdapabbi
var flokksleiðtogi. I kosningunum
fyrr í mánuðinum gekk honum hins
vegar öllu betur og var Bildt helsti
sigurvegari þeirra.
Bildt er kvæntur Miu Bohman og
þau eiga von á öðru barni sínu um
þessar mundir. tt
Carl Bildt, leiðtoga sænskra íhalds-
manna og væntanlega næsta for-
sætisráðherra Svíþjóðar, hefur ver-
ið likt við Olof heitinn Palme vegna
mælsku sinnar og þátttöku í stúd-
entapolitik. - Símamynd Reuter