Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1991, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMpp 1991.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91)27022 - FAX: (91 >27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr.
Verð i lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr.
Sæmd er gróði
Þjóöum líður betur, ef þær halda reisn sinni. Þær eru
sáttari við sjálfar sig en ella, ef þær haga sér þannig út
á við, að til sóma er. Skiptir þá litlu, hvort fjárhags- eða
efnahagstjón verður af sæmdinni eða ekki. Sumar þjóð-
ir sæta hörmungum og jafnvel blóðbaði fyrir sóma sinn.
Er íslendingar urðu fyrstir til að viðurkenna Eystra-
saltsríkin án orðhengilsháttar, var almannarómur fyrir,
að rétt hafi verið staðið að undirbúningi og niðurstöðu
málsins. Menn létu sér lynda, að sovézki sendiherrann
færi heim og að saltsíldaráhætta væri tekin.
Danir fylgdu fast á eftir og höfðu einnig sóma af sinni
afstöðu. Svíar guldu hins vegar þáverandi ríkisstjórnar,
þar sem fremstur fór forsætisráðherra, sem sagði sjón-
armið íslendinga óskiljanleg, og næstur utanríkisráð-
herra, sem fór hrakyrðum um frelsisbaráttu Litháa.
Viðskiptaáhætta íslendinga bliknar svo vitanlega í
samanburði við sómann, sem Eystrasaltsþjóðirnar hafa
sjálfar af sinni sjálfstæðisbaráttu. Skiptir þá litlu, þótt
miklar íjárhags- og efnahagsþrengingar hljótist að sinni
af skilnaðinum við miðstýrt yfirríkið í austri.
Höfundur þessa leiðara var í síðustu viku í Eist-
landi, þar sem sovézkir landamæraverðir stimpluðu
végabréfsáritun frá sendiráði eistneska lýðveldisins í
Helsinki. Þessi stimplun var ljóst dæmi um, að yfirríkið
hefur í raun viðurkennt núverandi fullveldi Eistiands.
Virka fólkið í Eistlandi er unga fólkið, sem hratt oki
Ráðstjórnarríkjanna af baki sér. Hinum nýju íjölmiðlum
er til dæmis stjórnað af ungu fólki, sem hafði hugrekki
til að brjóta upplýsingum og skoðunum leið framhjá
ritskoðurum og leynilögreglu og flokkskerfi.
í krafti hugrekkis síns hefur unga fólkið tekið völdin
í löndum Eystrasalts. Það gerir sér grein fyrir, að fá-
tækt mun lengi enn verða almenn, en það hefur strax
öðlazt þá reisn, sem skiptir öllu máli, þegar spurt er um,
hvort þjóðir geti staðið undir sjálfstæði og fullveldi.
Ungur maður, fæddur í Englandi af eistneskri móð-
ur, fór úr góðu markaðsstarfi í London til að taka þátt
í ævintýri Eystrasaltslanda, þótt hann vissi, að þar þarf
skömmtunarseðla fyrir flestum nauðsynjum og að mán-
aðarlaun hans mundu nema 1200 íslenzkum krónum.
Þessi maður bar höfuðið hátt eins og margt annað
ungt fólk í Eystrasaltslöndunum um þessar mundir. Það
hefur ekkert handa milli, en á framtíðina fyrir sér,
óflekkað af aðild að Flokknum illa, sem lá eins og mara
forneskjunnar yfir allri Austur-Evrópu til skamms tíma.
Þótt margir stjórnmálamenn Eistlands hafi sýnt mik-
ið hugrekki, fer ekki milli mála, að enginn raunsæis-
maður kemst með tærnar þar sem hugsjónamaðurinn
Landsbergis í Litháen hefur hælana. Eistlendingar vita,
að hann var sá, sem aldrei vék einn millímetra af leið.
Þjóðir Eystrasaltsríkja munu komast langt á kraftin-
um, sem fylgir reisn og stolti. Vegartálmar úr granít-
björgum við þinghúsið í Tallinn verða um langan aldur
veglegri minnisvarðar en höggmyndir hins félagslega
raunsæis, sem Eistar munu fljótlega færa á brott.
Gaman er að komast að raun um, að unga fólkið, sem
er að taka völdin í Eistlandi, gerir sér ljósa grein fyrir
frumkvæði íslands í máh þeirra. Það veit, að ísland
braut ísinn, þegar önnur Norðurlönd tvístigu undir
sænskri forustu og umheimurinn tilbað Gorbatsjov.
Ekki er að efa, að við erum enn sáttari við okkur en
áður að undirritaðri viðurkenningu á fullveldi Eystra-
saltsþjóða. Gróði verður ekki alltaf mældur 1 fé.
Jónas Kristjánsson
O'
I"
10,0 9,0 _ r- Ávt ixtunarkrafa
^-Æskilegir nafr ívextir Jf /
8,0
7,0 _ ^ y
a n ^^-Núverandi nafn jextir
1990 ---------------------------------------- 1991
Vextir á húsbréfum og ávöxtunarkrafa.
Hagsmunir húsnæðiskaupenda:
Hækkið strax naf n-
vexti á húsbréfum
Húsbréf seliast meö miklum af-
follum. Kaupendur þeirra fá 9,0%
vexti þó nafnvextir bréfanna séu
einungis 6,0%. Þessi munur er of
mikiil. Best er að húsbréfm beri
markaðsvexti. Með því að reikna
affóll er vaxtagreiðslum breytt í
afborganir og opinber aðstoð viö
húsnæðiskaupendur minnkar því
að vaxtabætur þeirra lækka.
Greiðslubyrði dæmigerðrar fjöl-
skyldu, sem er að kaupa í fyrsta
sinn, léttist um 12,8% ef húsbréfin
bera markaðsvexti. Þaö jafngildir
3,8% launahækkun.
Húsbréfalán bera 9,0% vexti
en ekki 6,0%
Eftir að húsbréfín komu til sög-
unnar taka fasteignakaupendur
lán til húsnæðiskaupa á verðbréfa-
markaði. Lánakjörin ákvarðast af
vöxtum sem kaupendur húsbréfa
krefjast. Þegar þetta er ritað eru
það 9,0% auk verðtryggingar. Mik-
ilvægt er aö húsnæðiskaupendur
geri sér ljóst að lán þeirra bera
vexti markaðarins en ekki nafn-
vexti húsbréfanna. Fyrir fjár-
magnsmarkaðinn er það einungis
tæknilegt atriði að umreikna hús-
bréf með 6,0% vöxtum yfir í jafn-
gilt lán með 9,0% vöxtum.
Til þess að skýra þetta má taka
lítið dæmi af fjölskyldu sem þarf á
2,0 milljóna króna láni að halda
vegna húsbyggingar. Til að aíla
lánsins gefur hún út skuldabréf og
skiptir á þeim og húsbréfum. Gengi
húsbréfanna á markaöi er 77,7%.
Til að fá 2,0 milljónir fyrir bréfin
þarf nafnverð þeirra að vera 2.575
þúsund krónur. Það er jafngilt 2.000
þúsund króna láni með 9,0% vexti.
(Þá hefur ekki verið reiknað með
þóknun verðbréfasalans.)
Jafngild lán?
Lánin, sem áður voru nefnd, eru
að því leyti jafngild að greiðslu-
byröi beggja er sú sama. Affóllin,
sem eru reiknuð af húsbréfaláninu,
jafna muninn. Af báðum lánunum
þarf að greiða 197,0 þúsund krónur
á ári. Öll 25 ára jafngreiðslulán með
9,0% ávöxtunarkröfu, sem gefa 2,0
milljónir eftir að afföll hafa verið
dregin frá, hafa þessa greiöslu-
byrði. Nafnverð skuldabréfanna er
hins vegar misjafnlega hátt allt eft-
ir þvi hvaða nafnvexti þau bera.
Ef nafnvextir húsbréfa hækkuðu
til dæmis upp í 7,0% mundu afföllin
lækka niður í 15%. Til að fá 2.000
þúsund í lán þyrftí þá að útbúa hús-
bréf að fjárhæö 2.356 þúsund. Með
8,0% nafnvöxtum lækkuðu afföllin
niður í 8% og fjölskyldan kæmist af
með 2.174 þúsund krónur í húsbréf-
um. Greiðslubyrði af öllum þessum
lánum er hins vegar sú sama.
Afföll breyta vöxtum
í afborganir
Greiðslur af lánum samanstanda
KjaUaiiim
Stefán Ingólfsson
verkfræðingur
af vöxtum, verðbótum og afborgun-
um. Húsbréf eru svonefnd jafn-
greiðslulán. Af þeim er í hvert sinn
greidd sama fjárhæð að raunvirði.
Fyrstu árin eru greiðslurnar aðal-
lega vextír. Þegar líður á lánstím-
ann minnka vaxtagreiðslumar eft-
ir því sem lánið greiðist upp en af-
borganir hækka að sama skapi.
Hlutfallið á milh vaxtagreiðslna og
afborgana fer eftír vöxtunum.
Því hefur áður verið lýst að
greiðslubyrði af láni að fjárhæð
2.000 þúsund krónur með 9,0%
vöxtum og 2.575 þúsund króna hús-
bréfaláni með 6,0% vöxtum sé hin
sama ef lánstími er 25 ár. Hlutfallið
á milli vaxtagreiðslna og afborgana
er hins vegar óhkt. Á verðbréfa-
markaði reiknast 22,3% affoll, 575
þúsund, af húsbréfaláninu.
Með því að reikna affoll hefur
vaxtagreiðslum í raun verið breytt
í afborganir. Vaxtagreiðslur af
2.000 þúsund króna láninu með
9,0% vextí eru samtals 575 þúsund
krónum hærri á lánstímanum. Það
er nákvæmlega sama fjárhæð og
reiknast sem afföU af hinu láninu.
Það er ekki tilviljun. Af báðum lán-
unum er árlega greidd sama fjár-
hæð. Afborganir af hærra láninu
eru hærri. Vextírnir af hinu eru
þess vegna hærri sem því nemur.
Vaxtabætur
Vaxtabætur eru aðstoð ríkis-
valdsins við húsnæöiskaupendur.
Þær reiknast þannig að frá vöxtum,
sem húsnæðiskaupendur greiða,
eru dregin 6% af launum þeirra.
Vaxtabæturnar verða þó ekki
hærri en ákveðin fjárhæð. Það
skiptír húsnæðiskaupendur miklu
hvort greiöslur af lánum eru af-
borganir eða vextír. Þegar affoll
eru reiknuð breytast vaxtagreiðsl-
ur í afborganir. Um leið lækka
vaxtabætumar.
Til þess að skýra þetta má taka
dæmi af fjölskyldu með 150 þúsund
í mánaðarlaun sem kaupir íbúð
fyrir 6,5 mihjón krónur. 4.225 þús-
und eru greidd í húsbréfum með
6,0% vöxtum. Fjölskyldan getur
vænst þess að fá samtals tæplega
1.500 þúsund krónur í vaxtabætur
á næstu 18 árum. Ef henni stæði
tíl boða aö greiða með húsfcréfum
sem bæru 9,0% vexti fengi hún
mun hærri vaxtabætur. Verð íbúð-
arinnar og húsbréfin myndu lækka
um 940 þúsund þvi húsbréfin tækju
engin afföll.
Við þessa breytingu mundu
vaxtabætur fjölskyldunnar þó
hækka um 825 þúsund eða 55%.
Greiðslubyrði hennar að teknu-til-
hti tíl vaxtabótanna léttist við það
um 12,8%. Vaxtahækkun húsbréfa
jafngildir 3,8% launahækkun fyrir
fjölskylduna.
Hækka þarf nafnvexti
á húsbréfum
Af meðfylgjandi mynd má lesa
hvernig ávöxtunarkrafa húsbréfa
hefur hækkað viðstöðulítið frá því
húsbréfakerfið var opnað. Undan-
farið hálft annað ár hefur hún
hækkað um 2,5% eða 0,14% á mán-
uði og lítil von er til þess aö þeir
lækki í bráðina. Líklegra er að þeir
hækki enn á síðustu mánuðum árs-
ins og fyrsta ársfjórðungi 1992.
Vextirnir eru orðnir miklu hærri
en svartsýnustu spár gerðu ráð fyr-
ir. Húsbréfin bera hins vegar ekki
nema 6,0% nafnvexti. Þessi munur
er fjölskyldum, sem kaupa notaðar
íbúðir, mjög óhagstæður og fer
versnandi. Vextir á húsbréfum eiga
að vera sem næst markaðsvöxtum.
Á meðan nafnvextir húsbréfa eru
6,0% bera húsnæðiskaupendur
vaxtahækkanirnar óbættar. Af
þeim sökum er tímabært að hækka
þá strax upp í 8,25%.
Stefán Ingólfsson
„Á meðan nafnvextir húsbréfa eru
6,0% bera húsnæðiskaupendur vaxta-
hækkanirnar óbættar. Af þeim sökum
er tímabært að hækka þá strax upp 1
8,25%.“