Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1991, Qupperneq 26
26
f ’
.jeei ftaaúimae .t-s HUOAauiaia<í
■ÞRJÐJUBAGUR 24. SEPTEMBER 19&1«..
Fólk í fréttum__________
Ömólfur Ámason
Qrnólfur Árnason rithöfundur
hefur verið í fréttum DV vegna bók-
ar sem hann vinnur nú að en hún
fjallar um samþjöppun valds í ís-
lensku viðskiptalífi, eða um „Kol-
krabbann" svonefnda.
Starfsferill
Ömólfur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR1960, stundaði nám í
lögfræði við HÍ í tvö ár, án þess að
ljúka prófl, var síðar við nám við
HÍ í ensku og enskum bókmenntum
og stundaði nám í spænskum bók-
menntum við háskólann í Barce-
lona og nám við leiklistarháskólann
íBarcelona.
Örnólfur var blaðamaður viö
Morgunblaðið 1963-66, leikhstar-
gagnrýnandi þar 1966-69, gagn-
fræðaskólakennari 1966-70, farar-
stjóri og síðast aðalfararstjóri Út-
sýnar á Spáni 1968-78, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndafélagsins
Óðins hf. 1980-87 og framleiöandi
kvikmyndanna Punktur, punktur,
komma strik og Atómstöðin.
Örnólfur var formaður Leik-
skáldafélags íslands 1975-86, for-
maður Leikskáldafélags Norður-
landa 1980-82, varaformaður Fasta-
nefndar leikskálda (PPC) við Al-
þjóöaleikhússtofnunina hjá
UNESCO1981-85, ritari Leikhstar-
ráðs íslands 1978-85, framkvæmda-
stjóri Listahátíðar í Reykjavík
1979-83.
Frumsamin verk Örnólfs eru
Svartfugl, leikrit eftir skáldsögu
Gunnars Gunnarssonar, sýnt í Þjóð-
leikhúsinu 1971; Samson, leikrit,
sýnt í íslenska og norska sjónvarp-
inu 1971; Viðtal, leikrit flutt í Ríkis-
útvarpinu 1975 og einnig útvarpað í
Noregi, Finnlandi, Hollandi, Þýska-
landi og Portúgal; Að selja sóhna,
handrit að heimildarkvikmynd um
Andalúsíu, sjónvarpað 1976; Costa
del Sol - Andalúsía, ferðahandbók
1977; Costa Brava - Mallorca -
Costa-Blanca, ferðahandbók 1978;
Upp úr efstu skúffu (Blessuð minn-
ing), leikrit í Ríkisútvarpinu 1977,
einnig útvarpað í Noregi, Belgíu og
á írlandi, flutt á sviði í London og á
Edinborgarhátíðinni sama ár; Silki-
tromman, óperulíbrettó, sýnt í Þjóð-
leikhúsinu 1982 og í þjóðleikhúsi
Venesúelá 1983; Atómstöðin (ásamt
öðrum), kvikmyndahandrit 1983;
The Secret of the Icecave (ásamt
öörum), kvikmyndahandrit fyrir
CannonFilml989.
Þá hefur Örnólfur þýtt fjölda leik-
rita eftir ýmsa þekkta höfunda.
Fjölskylda
Kona Órnólfs er Helga E. Jóns-
dóttir, f. 28.12.1945, leikari við Þjóð-
leikhúsið.
Börn Örnólfs og Helgu eru Mar-
grét Örnólfsdóttir, f. 21.11.1967,
hljómlistarmaður; Jón Ragnar, f.
22.9.1970, tónhstamemi; Álfrún
Helga, f. 23.3.1981, og Ámi Egill, f.
24.7.1983,
Systur Örnólfs eru Margrét Árna-
dóttir, f. 11.6.1951, leikari, og Olga
Guðrún Árnadóttir, f. 31.8.1953, rit-
höfundur.
Foreldrar Örnólfs eru Árni Þor-
steinn Egilsson, f. 22.3.1918, loft-
skeytamaður og fyrrv. fulltrúi hjá
Pósti og síma, og Finnborg Örnólfs-
dóttir, f. 22.11.1918, fyrrv. útvarps-
þulurogleikkona.
Ætt og frændgarður
Árni er sonur Egils, veitinga-
manns i Tiarnar-Café, Benedikts-
sonar. Móðir Árna var Margrét
Árnadóttir, prests á Kálfatjöm,
bróður Steinunnar Guðrúnar, móð-
ur Þorsteins Jónssonar (Þóris
Bergssonar) og Magnúsar Jónsson-
ar, prófessors'og ráðherra. Ami var
einnig bróðir Þorsteins, langafa
Karítasar, móður Jóhönnu Sigurð-
ardóttur ráðherra. Árni var sonur
Þorsteins, b. í Úthlíð, Þorsteinsson-
ar, b. á Hvoli í Mýrdal, hálfbróður
Bjarna Thorsteinssonar amtmanns,
föður Steingríms skálds. Þorsteinn
var sonur Þorsteins, b. í Kerhnga-
dal, Steingrímssonar, bróður Jóns
eldprests.
Finnborg er hálfsystir Valdimars
Örnólfur Árnason.
íþróttakennara en hún er dóttir
Örnólfs, kaupmanns og útgerðar-
manns á Suðureyri við Súganda-
fjörð, Valdimarssonar. Móðir Valdi-
mars var Margrét Jónsdóttir, Sum-
arliöasonar og Þorbjargar Þorvarð-
ardóttur, b. í Eyrardal við Álfta-
fjörð, Sigurðssonar, b. í Eyrardal og
ættfoður Eyrardalsættarinnar, Þor-
varðarsonar. Móðir Örnólfs var
Guörún Sigfúsdóttir, trésmiðs á
ísafirði, Pálssonar í Þórunnarseli,
Þórarinssonar á Víkingavatni.
Móðir Finnborgar var Finnborg
Kristjánsdóttir, útvegsb. á Suður-
eyri, Albertssonar, b. á Gilsbrekku,
Jónssonar.
Afmæli
Inga Jóna Þórðardóttir
Inga Jóna Þórðardóttir viðskipta-
fræðingur, Granaskjóli 20, Reykja-
vík, er fertug í dag.
Starfsferill
Inga Jóna fæddist á Akranesi og
ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá M A1971 og viðskiptafræði-
prófifráHÍ 1977.
Inga Jóna var innkaupastjóri hjá
Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi
1976-78 og kennari við Fjölbrauta-
skólann á Akranesi 1978-81. Hún
var framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins 1981-84, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra 1984-85, að-
stoðarmaður hehbrigðisráðherra
1985-87.
Inga Jóna hefur setið í fjölda
nefnda fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Hún hefur setið í Útvarpsráði frá
1983 og hefur verið formaður þess
frá ársbyrjun 1985 þar til nú fyrir
skömmu.
Fjölskylda
Maður Ingu Jónu er Geir H.
Haarde, f. 8.4.1951, alþingismaður
og formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins. Foreldrar hans eru Tom-
as Haarde símafræðingur og kona
hans, Anna Steindórsdóttir.
Dætur Ingu Jónu og Geirs eru
Helga Lára, f. 27.1.1984, og Hildur
María, f. 15.11.1989. Sonur Ingu
Jónu er Borgar Þór Einarsson, f.
4.5.1975.
Stjúpdætur Ingu Jónu eru Ilia
Anna, f. 28.7.1977, og Sylvia, f. 9.6.
1981.
Systkini Ingu Jónu eru Herdís
Hólmfríður, f. 31.1.1953, sjúkraliði á
Akranesi, gift Jóhannesi Ólafssyni
sjómanni og eiga þau fjögur börn
og Guðjón, f. 14. september 1955,
knattspyrnuþjálfari og fram-
kvæmdastjóri ÍA, búsettur á Akra-
nesi, giftur Hrönn Jónsdóttur og
eiga þau sex börn. Foreldrar Ingu
Jónu eru Þóröur Guðjónsson, f.
10.10.1923, útgerðarmaður á Akra-
nesi, og kona hans, Marselía Sigur-
borgGuðjónsdóttir, f. 1.2.1924, hús-
móðir.
Ætt
Faðir Þórðar er Guðjón, útvegs-
bóndi á Ökrum á Akranesi, bróðir
Ragnheiðar, móður knattspyrnu-
mannanna Ríkharðs og Þórðar
Jónssona. Guðjón var sonur Þórðar,
sjómanns á Vegamótum á Akranesi,
Þórðarsonar. Móðir Þórðar var
Ingiríður, systir Árna, fiskimats-
manns á Akranesi, föður Ingvars
og Guðjóns, bifreiðastjóra á Akra-
nesi. Ingiríður var dóttir Bergþórs,
formanns og vefara á Bergþórshvoli
á Akranesi, Árnasonar, b. í Stóra-
Lambhaga, Bergþórssonar. Móðir
Ingiríðar var Ingiríður, systir
Bjarna, útvegsbónda á Neðsta-
Sýruparti, föður Ástvalds, skip-
stjóra á Akranesi. Ingiríður var
dóttir Jóhannesar, b. á Staðarhöfða
á Akranesi, Bjarnasonar, b. í Háu-
hjálegu, Sigurðssonar. Móðir Jó-
hannesar var Amdís Árnadóttur,
systir Kristínar, langömmu Sigríð-
ar, móður Gunnars Finnbogasonar
skólastjóra og ömmu Bolla Héðins-
sonar hagfræðings.
Marselía er dóttir Guöjóns, b. á
Hreppsendaá í Ólafsfirði, Jónsson-
ar, útvegsb. á Ytri-Gunnólfsá í Ól-
afsfirði, Þorsteinssonar, skyldur
Hákarla-Jörundi. Móðir Marselíu
Inga Jóna Þórðardóttir.
var Herdís, systir Ástu, móður Reg-
ínu, konu Eggerts Gíslasonar skip-
stjóra. Herdís var dóttir Sigurjóns,
b. á Hamri í Stíflu í Skagafirði, Ól-
afssonar, b. á Deplum í Stiflu, Guð-
mundssonar. Móðir Herdísar var
Sofíia Reginbaldsdóttir, b. í Nef-
staðakoti í Stíflu, Jónssonar. Móðir
Soffíu var Sigríður Þorkelsdóttir, b.
á Húnstöðum, Hinrikssonar, b. á
Auðnum í Ólafsflrði, Gíslasonar.
Jóhannes Borgarsson
Jóhannes Borgarsson verkstjóri,
Ólafsvegi 13, Ólafsfirði, erfimmtug-
urídag.
Starfsferill
Jóhannes fæddist á Hesteyri í
Norður-ísafjarðarsýslu og ólst þar
upp til fimm ára aldurs en flutti þá
með foreldrum sínum suður í Hafn-
ir í Gullbringusýslu.
Hann lauk skyldunámi og stund-
aði síðan almenn störf th sjós og
lands en 1971 lauk hann námi sem
fiskmatsmaður og hefur stundað
verkstjórn við fiskvinnslu síðan eða
í tuttugu ár. Jóhannes starfar nú
hjá fiskverkun Sigvalda Þorleifs-
sonaráólafsfirði.
Fjölskylda
Jóhannes er tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Ásta Sigurðardóttir,
ættuð frá Ólafsfirði, og eignuðust
þau fimm böm. Böm Jóhannesar
og Ástu: Þóranna, f. 20.7.1963, gift
Elís Þórólfssyni sjómanni en þau
eru búsett í Grundarfirði og eiga
þrjá syni; María, f. 31.5.1965, gift
Degi O: Guðmundssyni sjómanni en
þau búa á Ólafsfirði og eiga tvö böm;
Elín, f. 26.1.1969, í sambúð með
Guðvarði Jónssyni sjómanni, búsett
á Ólafsfirði og eiga þau tvo syni;
Borgar Gunnar, f. 26.3.1974, d. 25.4.
1975; Borgar Gunnar, f. 12.9.1975.
Seinni kona Jóhannesar er Rósa-
munda Þórðardóttir, ættuð úr Am-
arfirði.
Jóhannes og Rósamunda eiga einn
son: Sigurð Júlíus, f. 1.7.1980.
Stjúpböm Jóhannesar era Þórður
Guðni Pálsson, f. 2.3.1965, flugum-
ferðarstjóri í Reykjavík, kvæntur
Rögnu Ragnarsdóttur frá Akureyri;
Herdís Pála Pálsdóttir, f. 21.9.1971,
nemiviðKHÍ.
Jóhannes er yngstur flögurra
bræðra en bræður hans era Jón
Halldór, f. 9.7.1933, búsettur í Höfn-
um, kvæntur Guðlaugu Magnús-
dóttur; Jósef, f. 14.9.1934, búsettur
í Njarðvík, kvæntur Lúhu Kristínu
Nikulásdóttur; Svavar, f. 29.9.1940,
búsettur í Njarðvík, kvæntur Þór-
eyju Ragnarsdóttur.
Foreldrar Jóhannesar: Borgar
Gunnar Guðmundsson, f. 2.9.1911,
b. á Hesteyri 1933-47 og síðan að
Kotvogi í Höfnum, og kona hans,
Jensey Magðalena Kjartansdóttir,
f. 22.8.1907, húsfreyja.
Ætt
Borgar er sonur Guðmundar, b. í
Rekavík bak Látur og vitavarðar í
Straumnesvita, Pálmasonar, b. í
Rekavík, bróður Kristjáns, afa
Valdimars Kristjáns Jónssonar,
prófessors í vélaverkfræði. Foreldr-
ar Pálma voru Jón, b. í Rekavík,
Bjömsson og Silfá Jónsdóttir. Móðir
Guðmundar var Guðríður Sigurðar-
dóttir, vinnumanns á Stað í Aðalvík,
Sigurðssonar.
Móðir Borgars var Ketilríður Þor-
kelsdóttir, b. í Neðri-Miðvík, ísleifs-
sonar, b. á Langavelh á Hesteyri,
ísleifssonar. Móðir Þorkels var Guð-
Jóhannes Borgarsson.
rún Jónsdóttir. Móðir Ketilríðar var
María Gísladóttir, b. í Þverdal, Hah-
dórssonar.
Jensey Magðalena var dóttir
Kjartans, b. í Efri-Miðvík, Finnboga-
sonar, b. í Efri-Miðvík, Árnasonar,
b. í Neðri-Miðvík, Jónssonar. Móðir
Kjartans var Herborg Kjartansdótt-
ir. Móðir Jenseyjar Magðalenu var
Magðalena Sólveig Brynjólfsdóttir,
b. á Látrum og síðar á Sléttu, Þor-
steinssonar.
Til hamingju
með afmælið
24. september
85 ára
Ðaníel Danielsson,
Dvalarheimillnu Höföa, Akranesi.
75 ára
Valdemar Gíslason,
Norðurgötu 21, Sandgerði.
Helga Valdimarsdóttir,
Sólheimum 25, Reykjavik.
Kristján Pálsson,
Hrannargötu 8, ísafirði.
70 ára
Steinunn Hermannsdóttir,
Hrafnistu við Klepjisveg, Reykjavík.
60 ára
Stella Kristín Eymundsdóttir,
Álfaskeiði 92, Hafnarfirði.
Sigurgrímur Guðmundsson,
Vallarflöt 4, Stykkishólmí.
Níels Sigurjónsson,
Skóiavegi 78, Fáskrúðsfirði.
Jón Ólafsson,
Lágengi 12, Selfossi.
Rikharður Jóhannesson,
Fjarðarvegi 33, Þórshöfn.
Guðrún Rósa Ragnarsdóttir,
Engihjalla 17, Kópavogi.
50 ára
Erla Gerður Pálsdóttir,
Hliðarvegi 24, ísafirði.
Jón Halldórsson,
Ðrafnarbraut 8, Daivik.
Hildur Marinósdóttir,
Ægisgötu 13, Árskógshr.
Ingibjörg Högnadóttir,
Jórunnarstöðuxn, Eyjaijarðarsýslu.
Sigurður Þórðarson,
Glaðheimmn 18, Reykjavík.
Kristján Óskarsson,
Fjarðarseli 16, Reykjavík.
Þórólfur Már Þórólfsson,
Heiðarhrauní 50, Grindavík.
Þóroddur Ingi Guðmúndsson,
Sílakvisl 27, Reykjavík.
Hermundur Jóhannesson,
Hvannavöllum 4, Akureyri.
Nanna Guðrún Zoe...ga,
Faxatúni 7, Garöabæ.
Kolbrún O. Óskarsdóttir,
Engimýri 15, Garöabæ.
Sigrún Svava Aradóttir,
Akurgerði 7f, Akureyri.
Vifidís Hansen,
Bröttugötu 31, Vestmannaeyjum.