Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1991, Blaðsíða 3
FÖSTUDÁGUR 27. SÉPÝeÍvIBER 1991.
19
Dansstaðir
Artún
Vagnhöfða 11, sími 685090
Hljómsveit Jóns Sigurössonar
ásamt Hjördísi Geirsdóttur söng-
konu leikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Blúsbarinn
Laugavegi 73
Lifandi tónlist öll kvöld nema
mánudags- og þriðjudagskvöld.
Casablanca
Diskótek fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Dans-barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Hljómsveitin Mannakorn leikur
föstudags og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Fimman,
Hafnarstræti,
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu, Hafnarfirði
Hljómsveitin Gildran skemmtir í
kvöld en Ingimar Eydal skemmtir
gestum laugardagskvöld.
Fógetinn
Sönghópurinn Snæfríöur og
stubbarnir skemmtir gestum
Fógetans föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Furstinn
Skipholti 37, sími 39570
Lifandi tónlist föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Hljómsveitin Red House leikur fostu-
dags- og laugardagskvöld. Draft
happy hour kl. 18-21 alla daga.
L.A. Café
Laugavegi 45, s. 626120
Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hátt aldurstakmark.
Klúbburinn
Borgartúni 32, s. 624588 og 624533.
Fjólublái fílbnn í kjallara er öröu-
vísi krá með bíói þar sem sýndar
eru gamlar kvikmyndir. Lifandi
tónlist um helgar.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Á laugardagskvöld verður
skemmtunin „Love me tender", í
hjartastað. Þetta er í síðasta sinn
sem gefst kostur á að sjá þessa
sýningu.
Hótel Saga
Hljómsveitin Smellir og Ragnar
Bjarnason skemmta laugardags-
kvöld.
Moulin Rouge
Diskótek á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Naustkráin
Vesturgötu 6-8
Opið um helgina.
Nillabar
Strandgötu, Hafnarfirði
Klang og kompaní skemmta
fóstudags- og laugardagskvöld.
Tveir vinir og annar í fríi
Laugavegi 45
Á föstudags- og sunnudagskvöld
skemmtir írska þjóðlagahljóm-
sveitin Diarmuid O’Leary & The
Bards.
Ölkjallarinn
Pósthússtræti 17
BB bandið leikur föstudags- laugar-
dags- og laugardagskvöld og verður
Anna Vilhjálms í fararbroddi.
Trúbadorinn Hilmar Sverris leikur
á mánudagskvöld.
Ölver í Glæsibæ
Karaoke-kráin opin öll kvöld og
alla daga í hádeginu.
Ráin
Keflavík
Guömundur Haukur og Feögabandiö
leika fyrir dansi fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Akureyri:
Stórtónleikar í
íþróttahöllinni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það verður blásið til mikillar
„poppveislu" í íþróttahöllinni á
Akureyri í kvöld, en þá verða
haldnir þar tvennir tónleikar með
fíórum hljómsveitum og þar af eru
tvær sem eru í fremstu röð hér á
landi, a.m.k. hvað vinsældir varö-
ar.
Þetta eru hljómsveitirnar Stjórn-
in og GCD en auk þeirra koma fram
Akureyrarsveitirnar Svörtu kagg-
arnir og Helgi og hljóðfæraleikar-
amir.
Fyrri tónleikarnir hefíast kl. 18 í
dag og standa í þrjár klukkustund-
ir og á þá er ekkert aldurstakmark.
Þar leika Stjórnin og GCD en þegar
síðari tónleikarnir hefíast kl. 22
GCD spila í iþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.
bætast heimahljómsveitirnar við
og standa þeir tónleikar til kl. þrjú
í nótt. Aldurstakmark á þá tónleika
verður 16 ár.
Dúettinn Tveir skemmtir á Ránni um helgina ásamt Pöpunum.
Ráin í Keflavík:
Vestmannaeyjagleði
Það verður mikið um að vera á
Ránni í Keflavík um hélgina. í
kvöld, föstudagskvöld, leika Pap-
arnir úr Eyjum á neðri hæðinni en
dúettinn Tveir á efri hæðinni. Ann-
að kvöld, laugardagskvöld, verður
síðan sérstök Vestmannaeyjagleði
á Ránni og verða Paparnir náttúr-
lega í aðalhlutverki. Paparnir hafa
sérhæft sig í írskri þjóðlagatónlist
og þjóðalagarokki en þeir leika líka
venjulegt rokk. Það er svo aldrei
að vita nema þeir taki nokkra
þekkta slagara úr Eyjum.
Sexmenn á Öndinni
Hljómsveitin Sexmenn er að
byrja að spila aftur eftir tveggja
mánaða hlé og hefur fengið nýja
og ferska hljómsveitarmeðlimi - og
þá ekki af lakara taginu. Sexmenn
leika á sunnudagskvöld í Staðið á
öndinni. Sveitina, sem leikur létta
rokktónlist, skipa þeir Halldór Haf-
steinsson söngvari, Birgir Braga-
son bassaleikari, Sigurður Reynis-
son trommari og Einar Guðmunds-
son gitarleikari.
Hljómsveitin Sexmenn mun
framvegis kallast Sexmenn og
Gúlliver í Putalandi.
Gildran leikur í Firðinum í kvöld, föstudag.
Gildran í Firðinum
Hljómsveitin Gildran frá Mos-
fellsbæ kemur fram á ný eftir
nokkurt hlé og ætlar að troða upp
í veitingahúsinú Firðinum, Strand-
götu 30, í kvöld, föstudaginn 27.
september. Hljómsveitin hefur ver-
ið í hvíld undanfarið en kemur nú
fersk til leiks með mikið af nýju
efni. Sömu hljómlistarmenn skipa
hljómsveitina nú og áöur og má því
búast við góðri dagskrá.
Gítarleikur
á Hominu
Erik Júlíus Mogensen spilar á
gítar fyrir matargesti Hornsins á
sunnudagskvöld, 29. september, og
næstu sunnudagskvöld eitthvað
fram í desember.
Á dagskrá verða hefðbundin verk
meistara gítarsins frá Spáni, Mið-
og Suður-Ameríku og frá tímum
endurreisnar og klassíkur.
Erik nam gítarleik á íslandi og
Spáni og sem stendur stundar hann
nám við tónfræðadeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík.
Erik Júlíus Mogensen leikur á gítar
fyrir matargesti Hornsins næstu
sunnudagskvöld.
Loðin rotta í Eyjum
Hljómsveitin Loðin rotta leikur í
Vestmannaeyjum um helgina. í
kvöld, föstudagskvöld, spilar
hljómsveitin á unglingadansleik í
samkomuhúsinu en á laugardags-
kvöld hjá „Þeim félögunum".
Hljómsveitina skipa þeir Jóhannes
Eiðsson söngvari, Jóhann Ás-
mundsson bassaleikari, Sigurður
Gröndal gítarleikari, Halldór
Hauksson trommari og Ingólfur
Guðjónsson hljómborðsleikari.
Hljóðmaður er hinn frægi GEF
HOUSTON en hann er bróðir hinn-
ar þokkafullu Witney Houston.
Garöakráin:
Olga Dís og Kletta-
þorpströllin
Kántrísöngkonan Olga Dís hefur
nú sett saman hljómsveitina The
Rockville Trolls sem er íslensk að
öðru. leyti en því aö í henni er
bandarískur stálgítarleikari, Pat
Tennis að nafni, og einn af bestu
hljóðfæraleikurum á sínu sviði
vestanhafs. Stálgítar líkist svolítið
langspili og víbrafón í útliti og hef-
ur mjög sérkennilegan hljóm sem
tengist kántri-tónlist mjög enda
hefur Pat Tennis haft nóg að gera
í hljóðverum síðan hann kom hing-
að til lands.
Nokkur bandarísk pör, sem kalla
sig „Nothing but Country" sýna svo
kántrídansa sem eru bæði fíöl-
breyttir, fíörugir og skemmtilegir.
Olga Dís, hljómsveit hennar og
dansarar verða í Garðakránni frá
klukkan 22 til 3 á föstudags- og
laugardagskvöld. Kynnir dansatr-
iða verður Þorsteinn Eggertsson.
Púlsinn:
Fjölmiðlablús
Það verður biúsað að venju á
Púlsinum um helgina. Föstudags-
og laugardagskvöld sér blúsdrottn-
ing íslands, Andrea Gylfadóttir, og
Blúsmenn hennar um helgar-
skammtinn af blús.
Óvenju gestkvæmt verður hjá
Blúsmönnum Andreu þessa helgi
en á sviðið koma ýmsir góðir gestir
og má í því sambandi geta leyni-
gests sem er löngu landsfræg per-
sóna en þetta verður í fyrsta skipti
sem hann kemur fram með Blús-
mönnum Andreu. í kjölfar hins
mikla blúsáhuga í Reykjavík hafa
forsvarsmönnum Púlsins borist
fregnir af mörgum liðtækum blús-
urum í hinum ýmsu starfsstéttum.
Kastljósinu bst fyrst beint að fíölm-
iðlum og fyrsti fulltrúi fíölmiðla-
stéttarinnar, Kolbrún Ingibergs-
dóttir, ritari fréttastjóra á Morgun-
blaðinu, kemur fram bæði kvöldin
með Blúsmönnum Andreu. Hún
segist vita til þess að góður fulltrúi
fíölmiðlablúsara leynist á DV og
Kolbrún Ingibergsdóttir, ritari
fréttastjóra Morgunblaösins, verð-
ur fyrsti fjölmiðlablúsarinn sem
syngur á Púlsinum.
skorar á DV að senda fulltrúa sinn
á næsta blúskvöld. Allar nánari
upplýsingar um blúsara á öðrum
fíölmiðlum, er treysta sér til að
taka áskorun, eru vel þegnar hjá
forsvarsmönnum Púlsins.
„Happy draft hour“ verður bæði
kvöldin milh klukkan 22 og 23.
Sálin í 1929
Þótt sumarið sé dáið og drunginn
breiði sig brátt yfir þegna þessa
lands hefur hljómsveitin Sálin
hans Jóns míns síður en svo lagst
í dvala. Um helgina heldur hún til
Akureyrar og leikur við hvern sinn
fingur í hinu glæsilega skemmti-
húsi, 1929.
Sálverjar hafa undanfarnar vik-
ur unnið ötullega aö þriðju breið-
skífu sinni sem út kemur áður en
langt um líður. Gera má fastlega
ráð fyrir því 'að nokkur af þessum
nýju lögum hljómi þar nyrðra um
helgina.
Þess ber að geta að áður hafði
verið auglýst að Sálin léki í 1929
helgina 4. og 5. október. - Af því
verður auðskiljanlega ekki.
Sólin í K-17 og Aratungu
Sóhn á Suðurlandi í síðasta sinn
fyrir frí. Féð kemur af fíalli, fólk
flykkist í skóla, hljómsveitir í frí,
laufin falla. Klikkað líf. En Sóhn
hellir geislum sínum ennþá yfir
okkur og skín í K-17 Keflavík í
kvöld, föstudagskvöld, og Arat-
ungu annað kvöld. Og biddu fyrir
þér, það verður allt vitlaust um
helgina. Venlig hhsen, Sólarmenn.