Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1991, Blaðsíða 7
23 FÖSTUDAGUR 27, SEPTEMBER 1991. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari og leikmaður Víkinga, byrjar keppnistimabilið á erfiðum Evrópuleik gegn Stavanger á sunnudagskvöldið. íþróttir helgarinnar: Evrópuslag- ur Víkinga í Höllinni Handboltavertíðin hefst fyrir al- vöru á sunnudagskvöldið þegar Víkingar mæta Stavanger frá Nor- egi í 1. umferð IHF-Evrópukeppn- innar. Leikurinn fer fram í Laugar- dalshöllinni og hefst klukkan 20.30. Víkingar urðu Reykjavíkur- meistarar í vikunni og mæta því vel undirbúnir til leiks. En þaö er ljóst aö þeir eiga við mjög erfiðan andstæðing að etja - lið Stavanger er geysilega sterkt um þessar mundir og hefur eílst með kaupun- um á sænska landsliðsmanninum Magnusi Andersson frá Drott. Þetta er fyrri leikur liðanna en sá síöari fer fram í Stavanger um næstu helgi. Víkingar þurfa á góð- um stuðningi að halda á sunnu- dagskvöldið því þeim veitir ekki af því að fara rrieð nokkurra marka forskot til Noregs, til þess að eiga möguleika á því að komast í 2. umferö. Eyjamenn verða líka á ferðinni um helgina því þeir leika á sunnu- dag fyrri leik sinn gegn Runar frá Noregi í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa og fer hann fram í Nor- egi. Haustmótunum lýkur í körfuboltanum Haustmótunum í körfubolta sem staðið hafa yfir að undaníörnu lýk- ur um helgina. Valur og KR mæt- ast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts- ins í Hagaskóla á sunnudagskvöld- ið klukkan 21.30 og sama kvöld fara fram lokaleikirnir í Reykjanesmót- inu. Þar leika Grindavák og Breiða- blik i Grindavík og Njarðvík mætir Haukum í Njarðvík, og heíjast báð- irleikirnirklukkan20. -VS Sýningar Gallerí Sigurþórs Víðimel 61 er opiö alla daga frá kl. 13-18. Myndverk eftir Sigurþór Jakobsson til sýnis og sölu. Hafnarborg Strandgötu 34 Á morgun kl. 14 opnar Pétur Friðrik sýn- ingu í Hafnarborg. Á sýningunni veröa olíumálverk, akrýl- og vatnslitamyndir, flest ný en einnig eldri myndir, alit frá árinu 1951. Sýningin verður opin daglega kl. 14-19, nema þriðjudaga, fram til 6. október. Hlaðvarpinn Vesturgötu 3 Valdimar Bjamfreðsson sýnir 35 myndir, unnar í olíu- og akrýl. J. Hinriksson Maritime Museum Súðarvogi 4 Sjóminja- og vélsmiöjumunasafniö er opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miöviku- daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar- daga. Keramikhúsið, gallerí v/Faxafen Sýning á leikaramyndum eftir Halldór Pétursson. Opið alla daga kl. 13-18 nema laugardaga M. 13-17. Listasafn Einars Jónssonar Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-17. Listinn, gallerí - innrömmun Síðumúla 32 Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál- ara: olla, vatnslitir, pastel oggrafík. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Mokkakaffi v/Skólavörðustíg Þessa dagana heldur Þór Stiefel sýningu á vatnslitamyndum. Sýningin er öll unn- in á þessu ári og stendur yfir í þijár vikur. Katel Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, grafik og leir- munir. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Á morgun verður opnuð í austursal Kjarvalsstaða sýning á verkum eftir Guð- jón Ketilsson og Grétar Reynisson. í vest- ursal Kjarvalsstaða stendur yfir sýningin „Annars vegar - Hins vegar“, verk eftir franska listamanninn Philippe Cazal. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá kl. 10-18 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Listasafn Háskóla íslands i Odda Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Um þessar mundir er í safninu sýning á verkum eftir Guðmund Thorsteinsson, Mugg. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 12-18 og er aögangur ókeypis. Veitingastofa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 í safninu er yfirlitssýning á andlitsmynd- um eftir listamanninn frá árunum 1927 til 1980. Opið er um helgar kl. 14-17. Listhúsið Vesturgötu 17 Án sýnilegs titils nefnist sýning sem stendur yfir í Listhúsinu. Sýningin er haldin í boði Jacquehne og Jack Mer, sendiherra Frakklands á íslandi. Þátttak- endur hafa allir búið í Frakklandi, stund- að þar nám eða búa þar enn. Þau eru: Erla Magnúsdóttir, Oddur Stefán Þóris- son, Ragnheiður Ágústsdóttir, Yann Hervé og Þórdís Ágústsdóttir. Sýningin verður opin til 22. september kl. 12-18. Mílanó, Faxafeni 11, Steinþór Marinó Gunnarsson opnar sýn- ingu í kaffihúsinu Mílanó á morgun kl. 14. Hann sýnir þar olíumálverk, pastel- myndir og myndir unnar með blandaöri tækni. Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-19, laugardaga kl. 9-18 og sunnudaga kl. 13-18. Norræna húsið v/Hringbraut Á morgun kl. 16.30 veröur opnuð sýning á vatnslitamyndum og olíumálverkum eftir Borghild Bredeli í anddyri hússins. Sýningin stendur til 3. október. Þá stend- ur einnig yfir sýning sem ber yfirskrift- ina Norrænt grafikþríár. Er þetta öðru sinni sem Norræna húsið og félagið ís- lensk grafik hafa samvinnu um sýningu á grafíkverkum eftir fimm af helstu samt- íðarlistamönnum Norðurlanda. Auk þess er einum listamanni utan Norðurlanda boðið að sýna verk sín og er það að þessu sinni Helen Frankenthaler frá Banda- ríkjunum. Norrænu listamennirnir fimm eru: Per Kirkeby frá Danmörku, Jukka Mákelá frá Finnlandi, Olav Christopher Jensen frá Noregi, Max Book frá Svíþjóð og fulltrúi íslands er Sigurður Guð- mundsson. Sýningin stendur til 22. sept- ember og er opin daglega kl. 14-19. Nýhöfn Hafnarstræti 18 Kristín Guðrún Gunnlaugsdóttir sýnir tólf oliumálverk, máluð á árunum 1988-91. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18, um helgar kl. 14-18, lokað á mánu- dögum. Sýningunni lýkur 2. október. Nýlistasafnið Þar stendur yfir sýning á verkum eftir hollenska myndlistarmanninn Fons Brasser. Sýningin stendur til 29. sept- ember. Sjóminjasafn Islands Vesturgötu 8 Hafnarfirði, sími 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Stofnun Árna Magnússonar Árnagarði, Suðurgötu Handritasýning í Stofnun Árna Magnús- sonar er opin í Árnagarði alla daga í sum- ar fram til 1. september kl. 14-16. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aögangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu Þar eru til sýnis og sölu postulínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriöjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýningin „Stóra-Borg - fornleifarann- sókn 1978-1990“. Þar er sögð saga forn- leifarannsókna á Stóru-Borg undir Eyja- fjöllum, Rangárvallasýslu, og sýndir gripir sem þar fundust. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-16. Haustsýning í Gunnarssal Þernunesi 4, Arnarnesi, Torfl Jónsson, myndlistarmaöur, kenn- ari og hönnuður, sýnir 24 vatnslitamynd- ir, m.a. myndir gerðar á Ítalíu og Vest- Qörðum. Myndir Torfa prýða einnig veggi í útibúi SPRON, Álfabakka í Mjódd. Sýningin veröur opin á fóstud. kl. 17-21, laugardag og sunnudag kl. 14-18. Menningarstofnun Bandarikjanna Laugavegi 26, Björn Þórðarson sýnir málverk í sýning- arsal Menningarstofnunnar Bandaríkj- anna. Björn er sjálfmenntaður að mestu en hefur notið tiisagnar hjá Einari G. Baldvinssyni listmálara sl. 10 ár. Sýning- in stendur til 4. október og er hún opin um helgina kl. 14-17 og alla virka daga kl. 11.30-17.45. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir sýning á mannamyndum Hallgríms Ein- arssonar ljósmyndara. Möppur með ljós- myndum liggja frammi og einnig eru til sýnis munir og áhöld af ljósmyndastofu Hallgríms. Myndlistarsýning á Hótel Selfossi Lu Hong, kínverskur landslagsmálari, er með myndlistarsýningu á Hótel Selfossi dagana 6.-29. september. Þetta er önnur einkasýning kínverska landslagsmálar- ans Lu Hong á íslandi. Á sýningunni gefur aö líta ýmsar perlur íslenskrar náttúru, túlkaöar með aðferðum hefð- bundinnar kínverskar landslagsmálun- ar. Myndirnar eru málaðar með kín- versku bleki og vatnslitum á þurinan bambuspappír. Slunkaríki, ísafirði Guðmundur Thoroddsen myndlistar- maður sýnir í Slunkaríki. Á sýningunni eru lágmyndir, unnar í tré og ýmis önnur efni. Efniviður og innihald myndanna tengist sjónum á einn eða annan hátt. Slunkarikí er opið fimmtudaga til sunnu- daga kl. 16-18 og sýning Guðmundar stendur til sunnudagsins 29. september. AUGLYSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1980-2.fl. 1981 -2.fl. 1982-2.fl. 1987-2.fl.D4 ár 25.10.91- 25.10.92 15.10.91- 15.10.92 01.10.91-01.10.92 10.10.91 kr. 241.121.92 kr. 147.927,50 kr. 103.147,32 kr. 25.223,99 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, september 1991. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.