Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1991, Page 7
23
FÖSTUDAGUR 27, SEPTEMBER 1991.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari og leikmaður Víkinga, byrjar keppnistimabilið á erfiðum Evrópuleik gegn
Stavanger á sunnudagskvöldið.
íþróttir helgarinnar:
Evrópuslag-
ur Víkinga í
Höllinni
Handboltavertíðin hefst fyrir al-
vöru á sunnudagskvöldið þegar
Víkingar mæta Stavanger frá Nor-
egi í 1. umferð IHF-Evrópukeppn-
innar. Leikurinn fer fram í Laugar-
dalshöllinni og hefst klukkan 20.30.
Víkingar urðu Reykjavíkur-
meistarar í vikunni og mæta því
vel undirbúnir til leiks. En þaö er
ljóst aö þeir eiga við mjög erfiðan
andstæðing að etja - lið Stavanger
er geysilega sterkt um þessar
mundir og hefur eílst með kaupun-
um á sænska landsliðsmanninum
Magnusi Andersson frá Drott.
Þetta er fyrri leikur liðanna en
sá síöari fer fram í Stavanger um
næstu helgi. Víkingar þurfa á góð-
um stuðningi að halda á sunnu-
dagskvöldið því þeim veitir ekki af
því að fara rrieð nokkurra marka
forskot til Noregs, til þess að eiga
möguleika á því að komast í 2.
umferö.
Eyjamenn verða líka á ferðinni
um helgina því þeir leika á sunnu-
dag fyrri leik sinn gegn Runar frá
Noregi í 1. umferð Evrópukeppni
bikarhafa og fer hann fram í Nor-
egi.
Haustmótunum lýkur
í körfuboltanum
Haustmótunum í körfubolta sem
staðið hafa yfir að undaníörnu lýk-
ur um helgina. Valur og KR mæt-
ast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts-
ins í Hagaskóla á sunnudagskvöld-
ið klukkan 21.30 og sama kvöld fara
fram lokaleikirnir í Reykjanesmót-
inu. Þar leika Grindavák og Breiða-
blik i Grindavík og Njarðvík mætir
Haukum í Njarðvík, og heíjast báð-
irleikirnirklukkan20. -VS
Sýningar
Gallerí Sigurþórs
Víðimel 61
er opiö alla daga frá kl. 13-18. Myndverk
eftir Sigurþór Jakobsson til sýnis og sölu.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Á morgun kl. 14 opnar Pétur Friðrik sýn-
ingu í Hafnarborg. Á sýningunni veröa
olíumálverk, akrýl- og vatnslitamyndir,
flest ný en einnig eldri myndir, alit frá
árinu 1951. Sýningin verður opin daglega
kl. 14-19, nema þriðjudaga, fram til 6.
október.
Hlaðvarpinn
Vesturgötu 3
Valdimar Bjamfreðsson sýnir 35 myndir,
unnar í olíu- og akrýl.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiöjumunasafniö er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miöviku-
daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Keramikhúsið, gallerí
v/Faxafen
Sýning á leikaramyndum eftir Halldór
Pétursson. Opið alla daga kl. 13-18 nema
laugardaga M. 13-17.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listinn, gallerí - innrömmun
Síðumúla 32
Uppsetningar eftir þekkta íslenska mál-
ara: olla, vatnslitir, pastel oggrafík. Opið
virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18
og sunnudaga kl. 14-18.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Þessa dagana heldur Þór Stiefel sýningu
á vatnslitamyndum. Sýningin er öll unn-
in á þessu ári og stendur yfir í þijár vikur.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafik og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Á morgun verður opnuð í austursal
Kjarvalsstaða sýning á verkum eftir Guð-
jón Ketilsson og Grétar Reynisson. í vest-
ursal Kjarvalsstaða stendur yfir sýningin
„Annars vegar - Hins vegar“, verk eftir
franska listamanninn Philippe Cazal.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá kl.
10-18 og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
Listasafn Háskóla íslands
i Odda
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Um þessar mundir er í safninu sýning á
verkum eftir Guðmund Thorsteinsson,
Mugg. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-18 og er aögangur
ókeypis. Veitingastofa safnsins er opin á
sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í safninu er yfirlitssýning á andlitsmynd-
um eftir listamanninn frá árunum 1927
til 1980. Opið er um helgar kl. 14-17.
Listhúsið
Vesturgötu 17
Án sýnilegs titils nefnist sýning sem
stendur yfir í Listhúsinu. Sýningin er
haldin í boði Jacquehne og Jack Mer,
sendiherra Frakklands á íslandi. Þátttak-
endur hafa allir búið í Frakklandi, stund-
að þar nám eða búa þar enn. Þau eru:
Erla Magnúsdóttir, Oddur Stefán Þóris-
son, Ragnheiður Ágústsdóttir, Yann
Hervé og Þórdís Ágústsdóttir. Sýningin
verður opin til 22. september kl. 12-18.
Mílanó,
Faxafeni 11,
Steinþór Marinó Gunnarsson opnar sýn-
ingu í kaffihúsinu Mílanó á morgun kl.
14. Hann sýnir þar olíumálverk, pastel-
myndir og myndir unnar með blandaöri
tækni. Sýningin er opin alla virka daga
kl. 9-19, laugardaga kl. 9-18 og sunnudaga
kl. 13-18.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Á morgun kl. 16.30 veröur opnuð sýning
á vatnslitamyndum og olíumálverkum
eftir Borghild Bredeli í anddyri hússins.
Sýningin stendur til 3. október. Þá stend-
ur einnig yfir sýning sem ber yfirskrift-
ina Norrænt grafikþríár. Er þetta öðru
sinni sem Norræna húsið og félagið ís-
lensk grafik hafa samvinnu um sýningu
á grafíkverkum eftir fimm af helstu samt-
íðarlistamönnum Norðurlanda. Auk þess
er einum listamanni utan Norðurlanda
boðið að sýna verk sín og er það að þessu
sinni Helen Frankenthaler frá Banda-
ríkjunum. Norrænu listamennirnir fimm
eru: Per Kirkeby frá Danmörku, Jukka
Mákelá frá Finnlandi, Olav Christopher
Jensen frá Noregi, Max Book frá Svíþjóð
og fulltrúi íslands er Sigurður Guð-
mundsson. Sýningin stendur til 22. sept-
ember og er opin daglega kl. 14-19.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Kristín Guðrún Gunnlaugsdóttir sýnir
tólf oliumálverk, máluð á árunum
1988-91. Sýningin er opin virka daga kl.
10-18, um helgar kl. 14-18, lokað á mánu-
dögum. Sýningunni lýkur 2. október.
Nýlistasafnið
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir
hollenska myndlistarmanninn Fons
Brasser. Sýningin stendur til 29. sept-
ember.
Sjóminjasafn Islands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði, Suðurgötu
Handritasýning í Stofnun Árna Magnús-
sonar er opin í Árnagarði alla daga í sum-
ar fram til 1. september kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aögangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriöjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
í Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir
sýningin „Stóra-Borg - fornleifarann-
sókn 1978-1990“. Þar er sögð saga forn-
leifarannsókna á Stóru-Borg undir Eyja-
fjöllum, Rangárvallasýslu, og sýndir
gripir sem þar fundust. Safnið er opið
alla daga nema mánudaga kl. 11-16.
Haustsýning í Gunnarssal
Þernunesi 4, Arnarnesi,
Torfl Jónsson, myndlistarmaöur, kenn-
ari og hönnuður, sýnir 24 vatnslitamynd-
ir, m.a. myndir gerðar á Ítalíu og Vest-
Qörðum. Myndir Torfa prýða einnig
veggi í útibúi SPRON, Álfabakka í Mjódd.
Sýningin veröur opin á fóstud. kl. 17-21,
laugardag og sunnudag kl. 14-18.
Menningarstofnun
Bandarikjanna
Laugavegi 26,
Björn Þórðarson sýnir málverk í sýning-
arsal Menningarstofnunnar Bandaríkj-
anna. Björn er sjálfmenntaður að mestu
en hefur notið tiisagnar hjá Einari G.
Baldvinssyni listmálara sl. 10 ár. Sýning-
in stendur til 4. október og er hún opin
um helgina kl. 14-17 og alla virka daga
kl. 11.30-17.45.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum Hallgríms Ein-
arssonar ljósmyndara. Möppur með ljós-
myndum liggja frammi og einnig eru til
sýnis munir og áhöld af ljósmyndastofu
Hallgríms.
Myndlistarsýning á Hótel
Selfossi
Lu Hong, kínverskur landslagsmálari, er
með myndlistarsýningu á Hótel Selfossi
dagana 6.-29. september. Þetta er önnur
einkasýning kínverska landslagsmálar-
ans Lu Hong á íslandi. Á sýningunni
gefur aö líta ýmsar perlur íslenskrar
náttúru, túlkaöar með aðferðum hefð-
bundinnar kínverskar landslagsmálun-
ar. Myndirnar eru málaðar með kín-
versku bleki og vatnslitum á þurinan
bambuspappír.
Slunkaríki, ísafirði
Guðmundur Thoroddsen myndlistar-
maður sýnir í Slunkaríki. Á sýningunni
eru lágmyndir, unnar í tré og ýmis önnur
efni. Efniviður og innihald myndanna
tengist sjónum á einn eða annan hátt.
Slunkarikí er opið fimmtudaga til sunnu-
daga kl. 16-18 og sýning Guðmundar
stendur til sunnudagsins 29. september.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1980-2.fl. 1981 -2.fl. 1982-2.fl. 1987-2.fl.D4 ár 25.10.91- 25.10.92 15.10.91- 15.10.92 01.10.91-01.10.92 10.10.91 kr. 241.121.92 kr. 147.927,50 kr. 103.147,32 kr. 25.223,99
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, september 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS