Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. Fréttir_____________________________________________________________________________pv Stjóm Byggðastofhunar: Laxeldið styrkt enn frekar með vitund forsætisráðherra Stjórn Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum í gær að veita styrki til tveggja laxeldisfyrirtækja þrátt fyrir að ríkisstjómin hafi fyrr í sumar lýst því yfir að um frekari styrkveitingar yrði ekki að ræða. Annars vegar var samþykkt að veita Miklalaxi 113,2 milljóna króna styrk og hins vegar Silfurstjörninni 25 milljónir. Saman- lagt skulda þessar fiskeldisstöðvar Byggðastofnun hátt í einn milljarð. Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar, segir stofnunina ekki hafa átt annars úrkosti en að styrkja Miklalax því ella heföi fisk- eldisstöðin orðið gjaldþrota. Því varð að gera úrslitatilraun til aö bjarga stöðinni og þar með lánum stofnun- Erna Fríða Berg, formaður Kvenfélagasambands Hafnarfjarðar, afhenti Sighvati Björgvinssyni heilbrigðisráð- herra undirskriftalista 10.370 íbúa Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Bessastaðahrepps. Á milli þeirra stendur Salóme Þorkelsdóttir, forseti Alþingis. DV-mynd GVA St. Jósefsspítali: Beðið eftir sparnaðar tillögum stjórnenda í gær fóru fram utandagskrár- umræður á Alþingi um þá hug- mynd heilbrigðisráðherra að breyta St. Jósefsspítala í Hafnar- firði í legudeild fyrir aldraða. Það var Guðmundur Árni Stef- ánsson, sem nú situr á þingi fyrir Jón Sigurðsson, sem óskaöi eftir umræðunni. Þá hafði Ema Fríða Berg, formaður Kvenfélagasam- bands Hafnarfjarðar, afhenti Sig- hvati Björgvinssyni heilbrigðisráö- herra undirskriftalista 10.370 íbúa Hafnaríjaröar, Garðabæjar og Bessastaðahrepps þar sem breyt- ingum á St. Jósefsspítala er mót- mælt. Nær öll félagasamtök á þessu svæði stóöu aó undirskriftasöfnun- inni. í ræöu sinni sagðist Guömundur Árni treysta því að sjúkrahúsinu verði ekki breytt og það rekið áfram eins og verið hefur. Sighvatur Björgvinsson vildi ekki svara þessu. Hann sagðist nýverið hafa átt fund með stjórn- endum St. Jósefsspítala. Þar sagð- ist hann hafa óskað eftir því að stjórnendurnir kæmu sjálfir með tillögur að breytingum á rekstri sjúkrahússins sem miðuðu að þeim sparnaði sem að er stefnt. Fyrr en þær lægju fyrir sagðist hann ekki tjá sig frekar um málið. Fjölmargir þingmenn tóku til máls og notuðu alla veikleika þing- skapalaganna til að komast í ræðu- stól eftir að forseti þingsins haföi lokað mælendaskrá. Umræðurnar máttu aðeins standa í 30 mínútur. Þær stóðu hins vegar í röska klukkustund. -S.dór Leifsstöð: Hjóiin undan Æglr Már Kárason, DV, Suðumesjum: Honum bregður áreiðanlega mjög, eigenda þessarar bifreiðar, þegar hann kemur heim frá útlöndum. Bíll- inn stendur við Flugstöð Leifs Eiríks- sonar á Keflavíkurflugvelli, þar sem farþegar eru að koma úr flugi, og bíður eigenda síns. Þaö er búið að stela báðum framfelgunum. Bíleigendur mega vara sig á því að skilja bíla sína eftir þama þegar skyggja fer og nokkuð hefur borið á því að stolið sé úr bílum. DV-mynd Ægir Már Bíllinn fer ekki langt svona. arinnar með þessari styrkveitingu. Hvað varðar Silfurstjömuna segir hann gjaldþrot fjarlægt en engu að síður hafi stofnunin viljað styrkja fyrirtækið enda væri það einn burða- rásinn í atvinnulífi í Öxarfirði. Aðspurður hvort þessi ákvörðun gengi ekki í berhögg við fyrri yfirlýs- ingar ríkisstjómarinnar sagði Guö- mundur að Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra hefði verið kunnugt um þessa fyrirætlun stjórnarinnar. -kaa Freyja á Suðureyri seld Norðurtanganum og Frosta: Byggðastofnun sel- ur 97 milljóna króna hlut á 12 milljónir - líklegt að togarinn Elín Þorbjamardóttir verði seldur A fundi stjórnar Byggðastofnunar í gær var ákveðið að taka tilboði frá Norðurtanganum á ísafirði og Frosta í Súðavík í hlut Byggðasjóðs í Fisk- iðjunni Freyju á Suðureyri. Alls á Byggðasjóður 54,2 prósenta hlut í Freyju og er hann metinn á 97 millj- ónir. Kauptilboð Norðutrangans og Frosta hljóðaði upp á tæpar 12,5 milljónir. Þá skuldbinda fyrirtækin sig til að auka hlutaféð í Freyju um 50 milljónir ogað umfangfiskvinnslu þar verði svipað og verið hefur, sem samsvarar um 2.500 tonnum af hrá- efni. Miklir fjárhagsörðugleikar hafa hrjáð fiskiðjuna Freyju á undanfórn- um árum þrátt fyrir margvíslegar stuðningsaðgerðir af hálfu hins opin- bera. Undanfarnar vikur hefur vinnsla legið niðri og búið var að segja upp öllu starfsfólki, alls um 100 manns. Að sögn Guðmundar Malmquist, framkvæmdastjóra Byggðastofnun- ar, var fyrirséð að ekki yrði hægt að reka Fiskiðjuna Freyju með sama hætti og verið hefur. Ástæðu þessa mætti meðal annars rekja til kvóta- skerðingarinnar. Hann segir líklegt aö togarinn Elín Þorbjarnardóttir verði seldur á næstunni kvótalaus en takist það ekki verði honum lagt. -kaa Hraðfrystihús Stokkseyrar og Glettingur: Stef nt að samein- ingufráogmeð næstu áramótum Stjórn Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum í gær að stefna að sam- einingu á Hraðfrystihúsi Stokkseyr- ar og Glettingi í Þorlákshöfn. Hug- myndin mun vera að ljúka samein- ingunni þegar um næstu áramót. Hlutafjárdeild stofnunarinnar á um 77 prósent af hlutafé í Hraðfrystihúsi Stokkseyrar. Er hlutaféð metið á rúmlega 131 milljón. Að undanfömu hefur Byggðastofn- un og fleiri aðilar unnið að samein- ingu sjávarútvegsfyrirtækja á Ár- borgarsvæðinu. Nú er hins vegar ljóst að meirihlutaeigendur Meitils- ins í Þorlákshöfn hafa ákveðið að auka hlutafjáreign sína í fyrirtækinu um 150 milljónir og reka það áfram í Þorlákshöfn. Því verður ekki af sölu fyrirtækisins til KEA á Akureyri né mun það að svo komnu máli samein- ast öðrum fyrirtækjum á svæðinu. -kaa Rjúpnaveiðitmiinn byrjaði i gær: Fékk 6 rjúpur á tveim- ur tímum í Bláfjöllum „Ég er búinn að labba sér um Blá- fjallasvæðið og náði í sex ijúpur, sá átta,“ sagði Kristján Sigurðsson er við hittum hann á Bláfjallasvæðinu í gærdag, nokkrum klukkutímum eftir að ijúpnatíminn hófst. En hundruð skotveiðimanna héldu til ijúpna fyrsta daginn. „Fyrst í morgun löbhuðum við fé- lagamir á Mosfellsheiðina og þar var lítið af fugli. En hérna hefur þetta verið betra,“ sagði Kristján og hélt áfram að leita rjúpna. Nokkru ofar á Bláíjallasvæðinu vom þeir Jón Pétur Zimsen, Óli Bjöm Zimsen og Þórarimi Krist- mundsson. Þeir sögðust hafa gengið í tvo tíma en ekki séð fiigL Ekki höfðu þeir heldur heyrt skothvell. Einhveijir tugir af skotveiðimönn- um fóm héma í kringum hæinn, mest í Bláfjölhn og Mosfellsheiðina. Þegar við vomm á staðnum vom innan viö tíu að leita að fugh. Skotveiðimenn fjölmenntu til veiða víða á landinu í gær. Hvort það var vestur á fiörðum, landsliðið í kring- um Hrútafiörðinn, Blönduósveiði- menn eða bara Akureyringar í Öxnadalnum. Hvað skotveiðimenn hafa haft fyrsta daginn er erfitt að segja, lík- lega á milli tvö og þijú hundmð ijúp- ur. Kannski ekki svo slæmt því fugla- fræðingar spá ekki góðri vertíð þetta árið. -G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.