Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR '16. OKTÓBER 1991:
Fréttir
Deilur kanínubænda um Fínull hf.:
Þessi uppá-
koma spillir fyr-
ir fyrirtækinu
- segir Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri
Þensluhalli ríkisins
er 16 milljarðar nettó
Þensluhalli ríkisins
— í milljörðum króna —
34,4
3,6
Frumvarp '91 Áætlun '91
□ Ríkisfyrirtæki
E3 Stofnanir
■ Ríkissjóður
■ Innl. afborganir
21,0
6,6
1,4
13,0
Frumvarp '92
Grafið sýnir þensluhallann brúttó. Hann er samkvæmt frumvarpi Frið-
riks svipaður og var við framlagningu fjárlagafrumvarps Ólafs Ragnars.
Grafið er mikið einfaldað. Sjá nánari skýringar i greininni.
„Þarna er fyrst og fremst um að
ræða innbyrðis deilur í Landssam-
bandi kanínubænda. En þessi uppá-
koma spillir fyrir fyrirtækinu, að
minnsta kosti tímabundið,“sagði Óli
Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Borg-
amesi, vegna þeirra hörðu deilna
sem nú eru uppi í Landssambandi
kanínubænda í sambandi við yfir-
töku Borgarnesbæjar á Fínull hf.
„Þessar ráðstafanir voru sam-
þykktar með meirihluta þeirra sem
aðalfundinn sátu þannig að það er
útilokað að einn geti dregið sig út úr
og sagst ekki vilja taka þátt í þessu.“
Óli Jón sagði að þessar deilur yllu
meiri erfiðleikum í rekstri fyrirtæk-
isins en ella hefðu orðið. „Ég held
að það hefði verið farsælla fyrir kan-
ínubændur að standa að því með
okkur að reyna að koma fyrirtækinu
á góðan rekstrargrundvöll, í stað
þess að naga það niður. Hitt er svo
annað mál að þarna er um fámennan
hóp manna að ræða.
Það þykir ekki ástæða til þess að
Borgamesbær dragi sig út úr þessu
samstarfi. Okkur þykir auðvitað
mjög miður að þessi úlfúð skyldi
hafa komið upp i röðum kanínu-
bænda. En við lítum þannig á að
þetta sé ágreiningur sem ekki komi
okkur beint við.“
Óli Jón sagði að stefnt væri að því
að flytja meginhluta fyrirtækisins í
Borgarnes um áramót. Nú væri unn-
ið að því að styrkja markaðssam-
bönd. Áætlanir væru á þann veg að
takast ætti að koma fyrirtækinu á
réttan kjöl. „En ef mikill bægsla-
gangur verður í kringum þetta þá
spillir hann auðvitað fyrir. Það er
það eina sem leiðir af þessum látum."
-JSS
Þensíuhalli ríkisins á næsta ári
verður 16 milljarðar króna nettó
samkvæmt fjárlagafrumvarpi
Friðriks Sophussonar. Þetta er í
raun svipuð upphæð og fyrirrenn-
ari hans, Ólafur Ragnar Grímsson,
lagði upp með, þegar hann lagði
fram fjárlagafrumvarp fyrir yfir-
standandi ár. Þessar tölur hækk-
uðu síðan mikið, bæði í meðforum
þingsins, og einkum þegar upp var
staðið og raunveruleikinn tók við.
Fjárlagafrumvarp Friðriks er því
hvergi nærri eins hátt að þessu
leyti og tölur, sem sýna, hvernig
nú er áætlað, að þensluhallinn
véröi í ár. En spurning er, hvemig
reynslan verður nú. Þetta sést með-
al annars á meðfylgjandi grafi, sem
sýnir þensluhallann brúttó sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu, áætl-
un fyrir yfirstandandi ár og frum-
varpinu fyrir einu ári. Nettóhallinn
kemur út, þegar tölurnar fyrir neð-
an strikið, innlendar afborganir
ríkisins, eru dregnar frá.
Brúttó-þensluhallinn var því um
21 milljarður króna samkvæmt
frumvarpi Ólafs Ragnars og 34,4
milljarðar samkvæmt síðustu
áætlun. Þensluhallinn brúttó er að
sama skapi 21 milljarður sam-
kvæmt frumvarpi Friðriks.
Þegar litið er á, hvað þessar tölur
þýða um þensluhallann nettó, kem-
ur út, að hann er 16 milljarðar sam-
kvæmt frumvarpi Friðriks, var 13,8
milljarðar samkvæmt frumvarpi
Ólafs Ragnars og stefnir í að verða
28,4 milljarðar f ár, þegar öll kurl
eru komin til grafar.
Frumvarp Ólafs Ragnars var því
þetta lángt frá því að standast.
Stenzt frumvarp Friðriks betur?
Ýmsir fræðingar álíta, að ekki
muni skakka jafnmiklu á niður-
stöðum frmvarpsins við framlagn-
ingu og því, sem raunverulega ger-
ist. Frumvarp Friðriks muni stand-
ast betur en frumvarp fyrirrennara
hans.
En þessar upplýsingar um hrein-
an þensluhalla segja þá sögu, sem
greindustu hagfræðingar taka und-
ir, að mjög skorti aðhaldssemi í
frumvarp núverandi stjómar. Þar
er ríkishyggjan grasserandi eins og
veriðhefur.
Sjónarhom
Helgason
Hvað er þensluhalli?
ÞensluhaUi er aðferð til að meta
þensluáhrif ríkis, ríkisfyrirtækja
og sjóða. Hann segir okkur meira
en sú tala, sem venjulega er nefnd
um halla ríkisins, til dæmis um
fjórir milljarðar samkvæmt síöasta
fjárlagafrumvarpi. Þensluhalhnn
er fundinn með því að mæla það
fé, sem rfkið dælir út í efnahagslíf-
ið umfram skatta og afborganir af
veittum lánum. Þannig fást þenslu-
áhrifin. Hér er að miklu stuðzt við
umfjöllun tímaritsins Vísbending-
ar, en meðfylgjandi graf er mikið
einfaldað.
Málið er þannig vaxið, að heildar-
þörf ríkisins fyrir lánsfé á komandi
ári er áætluð 44 milljarðar. Þegar
frá því eru taldar afborganir og
vaxtagreiðslur til útlanda og
greiðslur til Seðlabankans, sem
ekki valda þenslu hér á landi, kem-
ur úr þensluhallinn brúttó, sem sé
21 milljarður.
Innlendar afborganir ríkisins,
sem ekki er talið að valdi þenslu,
eru síðan dregnar frá, og út kemur
hreinn þensluhalli eða nettó-
þensluhallinn.
Hann á heiminn og götuna, þessi ungi ökumaður. Það er þó betra að horfa
vel i kringum sig því þessi glæsivagn á ekki heima meðal þeirra stóru.
DV-mynd GVA
í dag mælir Dagfari
Víkingasveit forstjóranna
Því hefur verið haldiö fram að það
stefndi í harðnandi átök á vinnu-
markaði. Ögmundur í BSRB og
Ásmundur í ASÍ hafa lýst því yfir
að vinnuveitendur komist ekki hjá
því að bæta kjörin. Á sama tíma
fullyrðir Einar Oddur að launþegar
megi þakka fyrir ef kjör þeirra
skerðist ekki nema um nokkur pró-
sent enda hafi beir og raunar þjóð-
in öll eytt og sóað langt umfram
efni á liðnum árum. Því sé komið
að skuldadögunum.
Dagfari stóð í þeirri trú að þetta
væri svona venjulegt orðaskak við
upphaf kjarasammnga en er nú
orðinn á báðum áttum. Þær fréttir
hafa borist að vinnuveitendur
hyggist nú sýna forkólfum verka-
lýðsins í tvo heimana og að í þetta
sinn verði ekkert gefið eftir. Þeir
hafa fengið Stjórnunarfélagið til að
efna til námskeiðs fyrir hérlenda
forstjóra þar sem lögð verður
áhersla á að forstjórarnir tileinki
sér vinnubrögð víkinga til forna.
Til að færa baráttuaðferðir víking-
anna í nútímahorf hefur verið
horfiö að því ráði að fá víkinga-
sveit lögreglunnar til að taka for-
stjórana í læri. Fyrst verður lik-
amsþrek forstjóranna eflt í líkams-
ræktarstöð sem er aö hluta í eigu
verkalýðsfélaga. Að því loknu tek-
ur víkingasveit lögreglunnar við
og skipuleggur verkefni fyrir utan
borgina sem miðar að þyí að efla
þolgæði og þrautseigju stjóranna.
Þegar víkingasveitinni var komið
á fót á sínum tíma var íslenskur
liðsforingi úr norska hernum feng-
inn til að þjálfa liðið. Þóttu aðferðir
hans nokkuð harkalegar enda fór
svo að flytja þurfti nokkra liðs-
menn sveitarinnar á sjúkrahús að
loknum æfingum þar sem þeir voru
látnir stökkva úr margra metra
hæð niður á frosna jörð. Þá þótti
ýmsum nokkuð langt gengið er þaö
spuröist að hður í þjálfun sveitar-
innar væri að láta menn skríða á
maganum gegnum haug úr innyfl-
um sláturdýra austur á Selfossi.
En þeir hörðustu lifðu þetta allt
saman af og síðan hefur víkinga-
sveitin verið helsti ógnvaldur bijál-
aðra byssumanna hvar sem er á
landinu.
Það má búast við að tvær grímur
renni á Ása og Ögmund þegar
Hörður í Eimskip, Sigurður á Flug-
leiðum, Þórarinn í VSÍ, Brynjólfur
í Granda og aðrir stórforstjórar
klæðast grímubúningi víkinga-
sveitarinnar og æfa vopnaburð á
afviknum stööum utan borgar-
markanna. Forstjóri Stjómunarfé-
lagsins sagði í útvarpsviðtali að
þess yrði gætt að ofbjóða ekki þreki
forstjóranna og læknir og hjúkrun-
arhð yrði til staðar svo að fyhsta
öryggis yrði gætt. Það er vel því
ekki væri það gott til afspurnar ef
forstj óragengið brákaðist í víkinga-
þjálfuninni. Til foma vom víkingar
meðal annars þekktir fyrir að
slátra óvinum sínum af mikihi
grimmd, brenna hús þeirra og
nauðga konum. Við skulum vona
að á þessu námskeiði verði ekki
lögð áhersla á kennslu í shkum
athöfnum en þaö er auðvitað engu
að treysta þegar farið er á stað á
annað borð með víkingapró-
grammið. Nú verður því ekki trúað
að forstjórar verkalýðsfélaganna
sitji auðum höndum meöan koheg-
ar þeirra úr atvinnurekstrinum
vígbúast með þessum hætti. Hins
vegar er það borin von að þeir geti
leitað th víkingasveitar lögregl-
unnar um þjálfun þar sem hún
hefur gengið í lið með forstjórun-
um. En það má benda á að nú er
mikið atvinnuleysi meðal fyrrum
starfsmanna austur-þýsku leyni-
þjónustunnar, STASI, og það sama
ku vera upp á tengingnum hjá
KGB. Er ekki að efa að menn úr
þessum samtökum væru reiðubún-
ir th starfa hjá íslenskum verka-
lýðsforingjum og að veita þeim
þjálfun í baráttunni við víkinga-
sveit forstjóranna. Þar fyrir utan
eru ahtaf í gangi námskeiö í ýmiss
konar bardagatækni svo sem júdói
og karate og kunnátta í þeim grein-
um gæti komið sér vel fyrir verka-
lýðsstjórana áður en átökin hefjast.
Allt bendir th að framkvæmd
•kjarasamnínga á næstunni verði
með öðrum hætti en hingað th. í
stað þess aö sitja sólarhringum
saman við samningaborð munu
aðilar vinnumarkaðarins beita hk-
amskröftum og aðferðum víking-
anna til að knýja fram niðurstöðu
sér í hag. Engu skal spáð hvernig
þeim átökum muni lykta en eflaust
verða menn ákaflega móðir ef ekki
sárir þegar upp verður staðið. Ekki
er ljóst hvaða hlutverk sáttasemj-
ara er ætlað í komandi bardögum
en ef hann á að hafa einhver áhrif
verður ríkisstjórnin að senda hann
í einhvers konar herþjálfun eða
skipa aðmírálinn á Vehinum í hans
stað.
Dagfari