Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. 5 Fréttir Sigurþór Þorgilsson, framkvæmdastjóri Atlantslax: Meirihluti laxanna getur orðið ágætis markaðsvara - segirNorðmennviljainnífyrirtækið „Ég vil taka þaö skýrt fram að lax- inn í kerunum okkar er óflokkaður. Því synda kynþroska smáfiskar ofar- lega í kerunum og ber meira á þeim en hinum. Mikið af laxinum er kyn- þroska fiskur sem á eftir að ná sér á strik. Meirihluti laxanna ér í það góðu ástandi að ekki þarf nema um þrjár vikur í góðri fóðrun til að þeir verða ágætis markaðsvara," sagði Sigurþór Þorgilsson, framkvæmda- stjóri Atlantslax, í samtali viö DV í gærmorgun. DV sagði í gær frá heimsókn hér- aðsdýralæknis og lögreglu í fiskeldis- stöð Atlantslax úti á Reykjanesi í fyrradag. Dýralæknirinn var lítt hrifinn af ástandi laxins í kerunum en þar bar mikið á horuðum fiski. Sagði hann ástandið reglulega lélegt, fiskinn illa fóðraðan og bætti við að hann hefði aldrei komið að svona löguðu áður. Þá sagði hann mögulegt að kýlapest hefði stungið sér niður í kerunum. Sigurþór sagði af og frá að laxinn væri sýktur. Sagði hann ennfremur að fyrir heimsókn lögreglu og dýra- læknis í eldisstöðina hefðu einhverj- ir farið þar um, tekið 250 kíló af fóðri og dreift því um alla stöð. „Fóðurpokarnir voru skornir í Dýralæknir og lögregla skoða fiskinn úr kerum Atlantslax. DV-mynd Brynjar Gauti sundur og fóðrinu hafði veriö dreift ég hef kært til lögreglu," sagði Sigur- um alla stöð. Þarna var greinilega þór. um skemmdarstarfsemi að ræða sem Að sögn lögreglu var tilkynnt um Ásmundur Stefánsson, forseti ASI: Húsbréf in sprengdu upp vextina - sammála breytingum ráðherraá-húsbréfakerfmu „Þær viðvaranir, sem ég hafði uppi þegar húsbréfakerfið var tekið upp, hafa allar komið fram. En það er fyrst núna sem félagsmálaráðherra virðist taka mið af ábendingum mín- um. Það er enginn vafi á því að hús- bréfakerfið, ásamt halla ríkissjóðs, er meginorsökin fyrir þeim gífurlega háu vöxtum sem við höfum búið við á þessu ári,“ segir Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ. Ásmundur segir að á árinu 1986 hafi menn staðiö frammi fyrir þeim vanda í húsnæðislánakerfinu að lítið hafi verið af áhvílandi lánum á eldra húsnæði en mikil eftirspurn eftir húsnæði. Því hafi lánsfjárþörfm ver- ið gífurleg. „Til að skammta knappt fé voru bara tvær leiðir færar. Onnur var að beita beinni skömmtun eins og í kerfinu frá 1986 sem þýddi biðraðir en lága vexti. Hinn kosturinn var húsbréfakerfið sem þýddi aukna eft- irspurn eftir lánsfé og þar með hærri vexti. Húsbréfakerfið var tekið upp og í kjölfarið var opnað á milli hús- næðislánamarkaðarins og almenna lánamarkaðarins. Þar með sprengdi húsnæðislánakerfið upp vextina og húsnæðisvandinn varð að almenn- um efnahagsvanda. í dag er það hins vegar tvímælalaust mikilvægasta hagstjórnarverkefnið að ná niður raunvöxtunum. Breyting félags- málaráðherra á húsbréfakerfinu miðar að því.“ -kaa skemmdir einu sinni í sumar og svo aftur í fyrradag þegar stöðin var heimsótt. Sigurþór kvað rekstur Atlantslax á ipjög viökvæmu stigi. Verið væri að semja við lánardrottna sem sumir ætluðu inn í fyrirtækiö með fjár- magn. Þá sagðist hann hafa staðfest- ingu frá norskum aðilum um að þeir ætluðu inn í fyrirtækið með fjár- magn. „Norðmennirnir munu tryggja uppbyggingu stöðvarinnar til fulls. í framtíðinni ætlum við að rækta sjaldgæfa fisktegund, sea bream. Það tekur hins vegar um þrjú ár að koma þeirri ræktun í gang og þangað til ætlum við að rækta lax og bleikju." -hlh KVÚLDSTUND MEÐ MEGASI 0G MANNAKORNUM Á DANSBARNUM FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: TÓNLEiKAR + BALL KR. 1.500, BALL KR. 1.000. DANSBARINN ékMongolian barbecue Hrífandi skemmtun og Ijúffengur kvöldverð- ur, kr. 1.480. ATH. NU ER OPIÐ LIKA I HÁDEGINU. Borðapantanir og miðasala í símum 688311 -33311. Z' • í . Dodge Ramcharger, árg. ’85, ekinn 77 þúsund km. Verð 1.280 þus. Peugeot 205 GR, árg. ’87, ek- inn 65 þús. km. Verð 480 þús. Góður Skoda 120L ’88, ekinn 17 þús km. Verð 180 þús. Toyota Gorolla XL, árg. ’89, ekinn 36 þús. km. Verð 780 þús. þ ) JÖFURHF BÍLVIL HF Skeljabrekku 4 - símar 642610 og 42600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.