Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. Útlönd Thomas valinn hæstaréttardómari í Bandaríkj unum: Áhorfendur hafa misstbesta sjónvarpsefnið - „Guð átti síðasta orðið,a sagði móðir domarans „Þaö er styrkur fyrir hæstarétt og þjóöina alla aö hafa slíkan mann sem Clarence Thomas í embætti," sagði George Bush Bandaríkjaforseti þeg- ar niðurstaöa lá fyrir í kjöri öldunga- deildarþingmanna til staðfestingar á tilnefningu Thomas í embætti hæsta- réttardómara. Thomas hafði sigur í kosningunni en aðeins munaði íjórum atkvæðum. Thomas fékk atkvæði 52 þingmanna en 48 voru á móti. Þetta er minnsti munur sem nokkru sinni hefur orðið þegar öldungadeildin hefur staðfest ákvarðanir forseta um veitingu emb- ætta. Aldrei hefur verið svo hart deilt í öldungadeildinni um nokkra tilnefn- ingu. Beinar útsendingar frá yfir- heyrslum þingnefndar yfir Thomas hafa síöustu viku verið helsta skemmtiefni bandarísku þjóðarinn- ar. Nú þykjast menn sjá fyrir leiðin- lega dagskrá í sjónvarpinu á næst- unni. Fylgismenn Thomas fógnuðu nið- urstöðunni þótt vitað sé að hann eigi mjög erfitt með að taka sæti í hæsta- rétti eftir allt sem á undan er gengið. Leola Williams, móðir hans, sagði þegar atkvæði höfðu verið talin: „Guð átti síðasta orðið." Enn hefur ekki fengist úr því skor- ið hvort Thomas áreitti konur kyn- ferðislega þegar hann var í embætti hjá kennslumálaráðuneytinu í Was- hington. Lagaprófessorinn Anita Hill sver og sárt við leggur að hún hafl orðiö fyrir ásókn af hálfu hans og á endanum orðið að flýja úr starfl. Stuðningsmenn Thomas viöur- kenna að þótt þeir hafl unnið góðan sigur í atkvæðagreiðslunni í gær þá sé sá sigur beiskju blandinn því Thomas hefur beðið alvarlegan per- sónulegan hnekki með öllu umtalin- um sem hlotist hefur af tilnefningu hans í embætti. Niðurstaðan í gær er ánægjuleg fyrir Bush forseta því hann er í minnihluta í öldungadeildinni. Demókratar hafa þar 57 sæti en margir þeirra veðjuðu samt á kandí- dat forsetans. Þá ákváðu tveir af þingmönnum republikana að snúast gegn Thomas. Einn þeirra sem greiddi atkvæði gegn Thomas var Edward Kennedy. Hann lét þó lítið fyrir sér fara í um- ræðum um málið, enda sjálfur oft legið undir ámæli fyrir slakt siö- ferði. Þá er enn ólokið málaferlum gegn frænda hans fyrir meinta nauðgun. Reuter Anita Hill, lagaprófessor við Oklahomaháskóla, kemur til vinnu sinnar. Hún hefur valdið einu mesta uppnámi í sögu Bandaríkjanna og getur enn stað- ið við orð sin. Naumur meirihluti öldungadeildarþingmanna trúði henni ekki. Simamynd Reuter Fjöldi bílasala, bíla- umboða og einstakllnga auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og í öllum verðflokkum með góðum árangri í DV-BÍLAR á laugardögum. Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR þurfa aö berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum. Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla daga frá kl. 09.00til 22.00 nema laugardaga frá kl. 09.00 til 14.00 og sunnudaga frá kl. 18.00til 22.00. Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verðuraó berast fyrir kl. 17.00 á föstudögum. Auglýsmgadeild Friðarráðstefna um Mið-Austurlönd í lok október: Beðið eftir svari Palest- ínumanna James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heldur til Jerúsal- em í dag þar sem hann mun ræða við fulltrúa Palestínumanna á her- teknu svæðunum og reyna að fá þá til að koma á friðarráðstefnu landanna fyrir botni Miðjarðar- hafs. Þrálátur orðrómur er á kreiki um að ráðstefnan verði haldin í Lausanne í Sviss dagana 29. og 30. október næstkomandi þó svo að stjórnvöld í Washington hafi enn ekki staðfest það. Búist er við að boðið verði á ráðstefnuna um helg- ina. Baker ræddi við Assád Sýrlands- forseta í Damaskus í níu klukku- stundir í gær og var viðræðunum haldið áfram í morgun. Á fundun- um í gær tókst þeim ekki að leysa öll ágreiningsmál sín. Embættismenn sögðu fyrir fund- ina í gær að Baker væri enn að semja um orðalag bréfs frá Banda- ríkjastjórn til Sýrlendinga þar sem gerð verður grein fyrir afstöðu Bandaríkjanna til lykilatriða frið- arráðstefnunnar. Baker ætlaði einnig að reyna að sannfæra Assad um að sækja fundi ríkja svæðisins, ísraels og arabaríkja, þar sem m.a. á að ræða takmörkun vígbúnaðar, skiptingu vatnsforða milli land- anna og umhverflsmál. Stjórn Sýrlands skýrði þeirri bandarísku frá því í síöasta mánuði að hún vildi ekki taka þátt í þessum viðræðum sem eiga að fara fram samhliða friðarráðstefnunni. James Baker, utanríkisráóherra Bandaríkjanna, gerir nú allt hvað hann getur til að fá deiluaðila fyrir botni Miðjarðarhafs að sækja frið- arráðstefnu í lok mánaðarins. Teikning Lurie ísraelsmenn telja slíkar viðræður mikil vægar þar sem í þeim felist viðurkenning ísraels sem fullgilds ríkis í þessum heimshluta. Þrátt fyrir erfiðleikana með Sýr- land beinast sjónir manna þó aðal- lega að Palestínumönnum sem ætla að ákveða það á næstu dögum hvort þeir sæki friðarráðstefnuna. Ef þeir fallast á að koma verða þeir hluti sameiginlegrar sendinefndar Palestínumanna og Jórdaníu. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.