Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. A ferð um landið! RENAULT Nevada 4x4 Renault Nevada er framdrifinn með mögulegri tengingu á afturdrifi, sem búið er 100%læsingu. Renault Nevada er með glæsilegri innréttingu, 120 hestafla vél með beinni innspýtingu, rafdrifnum rúðum, lituðu gleri, fimm gíra gírkassa, vökvastýri, fjarstýrðri samlæsingu, krómaðri toppgrind og mörgu fleiru. Verð frá kr. 1,589,000.- RENAULT Clio Renault Clio hefur sópað að sér viðurkenningum frá því hann var fyrst kynntur. Hann var kosinn bíll ársins í Evrópu 1991, fékk Gullna stýrið og Auto Trophy verðlaunin í Þýskalandi. Renault Clio er mjög rúmgóður, hljóðlátur og með frábæra aksturs- eiginleika. Hann er búinn fallegri innréttingu, kraftmikilli og sparneytinni vél, rafdrifnum rúðum, fjarstýrðum samlæsingum og er á frábæru verði. Verð frá kr. 719,000,- RENAULT 19 GTS Renault 19 GTS ereinn af þeim bílum sem heilla strax viðfyrstusýn. Hanner vandaður og glæsilegur fjölskyldubíll, með miklum aukabúnaði og er á einstaklega hagstæðu verði. Renault 19 GTS er búinn fallegri innréttingu, kraftmikilli vél, rafdrifnum rúðum að framan, lituðu gleri, fimm gíra gírkassa, vökvastýri, fjarstýrðri samlæsingu og fleiru. Verð frá kr. 869,000,- / SÝNINGARSTAÐIR Fimmtudagur 17. október Föstudagur 18. október Laugardagur 19. október Sunnudagur 20. október HÖFN HORNAFIRÐI Við Sindrabæ kl.15.00 - 18.00 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR Við Hótelið kl. 10.00-11.00 REYÐARFJÖRÐUR Bíleykl. 13.00-15.00 EGILSSTAÐIR Essðskálinn kl. 16.30-18.00 AKUREYRI Bííaval, Strandgötu kl. 10.00 - 18.00 SIGLUFJÖRÐUR Bensinstöð Olís kl. 11.00 -13.00 SAUÐÁRKRÓKUR Bílav.st. ÁKA kl. 15.00 -18.00 Úflönd Danadrottning á slóðum risaeðla Danmörk: Mannleg mistök kost- uðu þrjá milljarða Gizur Helgason, DV, Kaupmaimahö&i: Engar opinberar yflrlýsingar hafa verið gefnar út um ástæður óhapps- ins við göng þau sem verið er að gera undir Stórabeltið en eins og sagt var frá í gær fóru göngin aö leka og fyllt- ust þau af vatni. Var mesta mildi að ekki hlaust manntjón af. Aftur á móti er tjón af völdum vatnsins metið á um þrjá milljarða íslenskra króna og þykir líklegt áð framkvæmdir muni tefjast um allt að eitt ár vegna óhappsins sem talið er eitt hið mesta í sögu danskra bygg- ingaframkvæmda. Enn er ekki byrjað að tæma göngin og ólíklegt að það verði gert næstu daga því menn óttast að lekinn taki sig upp á ný þegar vatnsborðið lækk- ar. Þær raddir verða nú æ háværari sem segja að slysið hafi orðið vegna þess að öryggisreglum hafl ekki verið framfylgt og að komast hefði 'mátt hjá þessu ógnartjóni ef reglum hefði verið fylgt. Prestur tekinn með þrjú kfló af kókaíni Lögreglan í Kolombíu handtók í gær ítalskan prest með þrjú kíló af kókaíni í fórum sínum rétt í þann mund sem hann ætlaði að stíga upp í flugvél á leið til Parísar. Presturinn er sextugur og heitir Franco Mondellini. Hann hefur átt í útistöðum við kaþólsku kirkjuna frá árinu 1988. Hann var með kókaínið í skjalatösku þegar lögreglan fann það við fíkniefnaleit á flugvellinum í Bogota, höfuðborg Kolombíu. Mondellini segist saklaus af áburði um tilraun til að smygla eiturlyfjum úr landi. Vinur hans hafl beðið hann að hafa hald á töskunni fyrir sig og að hann hafi ekkert vitað um hvaö var í henni. Yfirvöld í Kolombíu leggja mikla áherslu á að koma í veg fyrir smygl á eiturlyíjum úr landinu. Þó kemur þaðan megnið af þvi kókaíni sem er' á heimsmarkaðnum, bæði vestan- hafs og austan. Reuter Margrét Danadrottning hefur verið á ferð um Kanada síðustu daga í op- inberri heimsókn ásamt Hinriki manni sínum. Kanadamenn hafa tekið henni með kostum og kynjum enda fátítt að drottningar heimsæki land þeirra. Meðal þess sem Margrét skoðaði var náttúrugripasafnið í Alberta, einu af vesturfylkjum landins. Þar getur m.a. að Uta feiknastóra haus- húpu af fornaldardýri sem á fræði- máli kallast Montanoceratops. Þetta er ein best varðveitta beina- grind af risaeðlu sem til er og vekur jafnan athygh gesta sem koma í safn- ið. Beinin fundust í Alberta. Margrét drottning lauk ferð sinni um Kanada með því að koma í lítinn bær á hinum víðáttumiklu sléttum landins. Staðurinn þykir dæmigerð- ur fyrir þær aðstæður sem innflytj- endur bjuggu við á síðustu öld. Þar á meðal voru fjölmargir Danir sem freistuðu gæfunnar í Vesturheimi. Drottningin vildi kynnast af eigin raun hvernig landar hennar bjuggu eftir að þeir komu vestur og hófu að yrkja jörðina í nýrri heimsálfu. Fjöl- margir Danir búa í Kanada og fógn- uöu þeir drottningu sinni þótt þeir séu í raun réttri þegnar Elísabetar Englandsdrottningar. Reuter Margrét Danadrottning ferðaðist vitt og breitt um Kanada og fékk m.a. að sjá á náttúrugripasafni í Alberta eina stærstu hauskúpu af risaeðlu sem til er. Símamynd Reuter HAUSTSÝNING Bílaumboðið hf Krókhálsi 1, 110 Reykjavík, sími 91-686633 RENAULT FER A K0STUM 3 ára ábyrgö 8 ára ryðvarnarábyrgð DV Búseturöskun vegnaeldfjalls Svo kann að fara að flytja þurfi rúmlega hálft þriðja hundrað þúsund íbúa í nágrennl Pinatubo- eldflalls á Filippseyjum á brott frá heimilum sínum vegna mik- illa aurskriðna af völdum rign- inga að undanfórnu. „Þetta er versta áfall sem dunið hefur yfir Filippsevjar/ sagði Mita Pardo de Tavera, félags- málaráðherra landsíns, við fréttamenn í gær. Aurskriðurnar hafa verið svo miklar að sumir bæir og þorp eru hulin tveggja metra þykku lagi af gosefnum og leðju. í flóttamannabúðum eru nú tæplega eitt hundrað þúsund manns og á hverjum degi látast fimm börn vegna þess að hrein- lætismál eru í ólestri. Golfvöllur íSahara Stjómvöld í Marokkó eru að húa til golfvöll úti i Saharaeyði- mörkinni fyrir starfsmenn Sam- einuðu þjóðanna sem eiga að hafa eftirlit með vopnahléinu í Vest- ur-Sahara. Það var innanríkisráðherra landsins sem jafnframt er forseti konunglega golfklúbbsins í Ma- rokkó sem skýröi frá þessu í gær. í sveit SÞ era 2800 manns, bæði hermenn og óbreyttir borgarar. Þeir eiga að fylgjast með vopna- hléinu sem var 6. september síð- asthöinn i fimmtán ára skærum marokkóskra hermanna og skæruliða Polisario-hreyflngar- innar. Borgaryfirvöld í Laayoun hafa þegar hafist handa við gerð golf- vallarins. Gekk nakinn fyrirdömarann Dómari í Suður-Alríku var ekki lengi að láta ryðja dómsalinn sinn í gær þegar maður nokkur, sem hafði verið ákærður fyrir að hafa marfiúana undir höndum, birtist kviknakinn í salnum. Maðurinn, sem gengur undir nafninu doktor september, fækk- aði fötum þegar hann hafði verið færður úr fangageymslum lög- reglunnar í Höfðaborg. Hann skýrði H.L. Muller dómara svo frá að hann tryði ekki á klæða- burð. MuIIer dómari skipaði svo fyrir að maðurinn skyldi sæta geð- rannsókn. Nóbelinní hagfræði Nóbelsverðlaunin i hagfræði voru í gær veitt Ronald Coase, prófessor við Chicagoháskóla. Verðlaunin fær Coase fyrir rann- sóknir sínar sem hafa valdið timamótum í skilningi manna á viðskiptakostnaði og eignarrétti í starfsemi efnahagslifsins. Coase fæddist í Middlesex á Englandi árið 1910 og er nú heið- ursprófessor við lagadeild Chicagoháskóla þar sem hann stundar enn rannsóknir. Sænska vísindaakademian sagði í umsögn sinni að Coase hefði sýnt fram á að hefðbundnar hagfræðikenningar væru ekki fullnægjandi þar sem þær tækju ekki kostnað við viðskipti og stjórmin fyrirtækja með í reikn- inginn. Samstarfsmenn Coases lýstu honum í gær sem þrjóskum snill- ingi og sögðu að þessi heiður hefði átt að falla honum í skaut fyrir löngu. En á þessum merkis- degi fannst verðlaunahafinn hvergi þar sem hann var á ferða- lagi um Suður-Frakkland. Ekki var ljóst hvort hann vissi af verð- laununum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.