Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991.
11
Sviðsljós
Guölaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari er hér niðursokkinn i samræður við Siv Friðleifsdóttur, formann Sam-
bands ungra framsóknarmanna (t.v.), og Önnu Einarsdóttur hjá Máii og menningu. Þess má geta að Guðlaugur
varð 67 ára eftir miðnætti á laugardagskvöldið og var skálað fyrir honum af þvi tilefni.
Norræna félagið:
Gylfi hætti sem formaður
Á þingi Norræna félagsins, sem
haldið var á Holiday Inn um síðustu
helgi, urðu formannaskipti í félag-
inu.
Gylfi Þ. Gíslason, fyrrum mennta-
málaráðherra, lét af formennsku en
við tók Haraldur Ólafsson.
Fjöldi manns var þarna saman-
kominn og á laugardagskvöldið var
slegið upp dansleik og mökum boðið
með.
Góð stemning ríkti alla helgina og
á laugardagskvöldið ríkti norrænn
andi því að mikiö var sungið og trall-
að. Fráfarandi formaður ávarpaði
gestina svo og Sighvatur Björgvins-
son, fyrrum framkvæmdastjóri
Norræna félagsins, og Eiður Guðna-
son sem þarna var í hlutverki sam-
starfsráðherra Norðurlanda.
Fráfarandi og núverandi formaður félagsins, þeir Gylfi
Þ. Gíslason, sem lætur af formennsku eftir sex ár, og
Haraldur Ólafsson sem tók við.
Ráðherrarnir Sighvatur Björgvinsson (t.v.) og Eiður
Guðnason höfðu margt að ræða við þetta tækifæri.
DV-mynd BG
Páll Eiríksson yfirlögregluþjónn hættir eftir 48 ára starf:
Tekinn 1942 á ljóslausu reiðhjóli
„Já, ég var að láta af störfum eftir
48 ára starf sem lögregluþjónn og var
reyndar yfirlögregluþjónn undir það
síðasta," sagði Páll Eiríksson en
hann lét af störfum nýlega.
„Ég sótti um lögreglustarfið árið
1942 og svona til gamans gaf Böðvar
Bragason lögreglustjóri mér um-
sóknina þegar ég hætti.
Þegar sakaskrá mín er skoðuö á
umsókninni kemur fram að árið 1942
hafi ég verið tekinn á ljóslausu reið-
hjóli og hlotið 5 króna sekt fvrir,‘v-
sagði Páll og hló.
Áðspurður hvað nú tæki við sagð-
ist Páll ætla að hafa það gott en ef
ég vissi um eitthvert draumastarf þá
mætti ég láta hann vita.
Páll Eiríksson tekur hér við 48 ára gamalli umsókn sinni um starf lögreglumanns úr hendi Böðvars Bragasonar
lögreglustjóra. DV-mynd S
Sigurður Hróarsson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, er hér á tali við
tvær leikkonurnar, þær Soffíu Jakobsdóttur, sem leikur móðurina, og
Sigrúnu Eddu Björnsdóttur sem leikur Mariu.
Á frumsýn-
ingu Þéttingar
Nýtt leikrit eftir Sveinbjörn I. að móöirin er dauðvona.
Baldvinsson, Þétting, var frumsýnt Fjöldi manns var á frumsýning-
í Borgarleikhúsinu fyrir nokkru. unni og var leikritinu mjög vel tek-
Það fjallar í stórum dráttum um ið.
fjölskylduuppgjör eftir að ljóst er
Málin rædd eftir frumsýninguna. F.v. Stefán S. Stefánsson, Anna Ólafs-
dóttir, Randa Spinak, rithöfundur frá Bandaríkjunum, Sveinbjörn I. Bald-
vinsson leikritahöfundur og Jóna Finnsdóttir. DV-myndir GVA
HERRAKVOLD
F Á K S
veröur haldið laugardaginn 19. október 1991 kl. 19:00
i Félagsheimili Fáks í Víöidal.
Þangað koma allir strákar sem vilja...
• smakka krásirnar á villibráðarhlaðborðinu
• hlusta á óbeislaðan ræðumann kvöldsins
• freista gæfunnar í happdrættinu
• syngja, tralla, og skemmta sér með öllum
hinum strákunum.
Við verðum þar... en þú?
Forsala aðgöngumiða verður á
SKRIFSTOFU FÁKS
ÁSTUND
HESTAMANNINUM
Nefndin