Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991.
Lesendur________________
Sundþjálfarar
metnaðarlausir?
- svarviðgreinumSteveCruyer
Spumingin
Finnst þér að iandsliðið
í bridge eigi að fá laun
eins og skákmenn?
Helga Guðjónsdóttir: Finnst það vel
athugandi að þeir fái laun.
Jóhannes H. Guðjónsson: Auðvitað
eiga þeir að fá laun eins og skák-
mennirnir.
Viíhjálmur Árnason: Nei, þeir eiga
ekki að fá laun. Það á að taka launin
af skákmönnum. Þeir eiga ekkert aö
fá laun frekar en afreksmenn í íþrótt-
um.
Rafael Vias Martinus: Já, mér finnst
að þeir eigi að fá laun.
Vilhjálmur Hauksson: Þeir eiga að
sjálfsögöu að njóta sömu réttinda og
skákmenn.
Rafn Guðmundsson: Já, þeir eiga að
fá laun.
Ólafur Þór Gunnlaugsson sundþjálf-
ari skrifar:
Mánudaginn 7. október sl. birtist á
síðum DV alveg hreint makalaus
grein þar sem sagöi frá því að for-
maður íslenska þjálfarasambandsins
í sundi, Steve Cruyer, hefði sagt af
sér embætti og væri hættur. Ástæða
þessarar afsagnar mannsins ku vera
að íslenskir sundþjálfarar eru gjör-
samlega vilja- og metnaðarlausir og
ekki annað að skilja en að þeir séu
upp til hópa óhæfrr í starfi.
Þetta eru alvarlegar áskakanir sem
þarna eru bornar fram og ef sannar
væru væri illt í efni í islensku sund-
lífi. Sem betur fer fyrir íslensku
sundíþróttina þá er þetta rakalaus
þvættingur og ég get staðhæft það
að íslenskir sundþjálfarar hafa lyft
grettistaki í starfi sínu við skilyrði
sem hvergi annars staðar þættu bjóð-
andi íþróttafólki. Því er boðið upp á
það að æfa um leið og almenningur
Kristín Jónsdóttir skrifar:
Lengi ætlar að bætast við afreka-
skrá ráðherra Borgaraflokksins.
Telja sumir að þar séu enn ekki öll
kurl komin til grafar. Málverkaka-
upin á Selfossi vitna um nýjustu af-
rekin. Vekur það enn furðu og undr-
un hverjum skolaó getur í ráðherra-
stóla og kalla menn þó ekki allt
ömmu sína í þeim efnum. Riija má
upp, í þessu sambandi, að þegar
stjórn Steingríms Hermannssonar
var komin að fótum fram (Stefán
Pétur Sigurðsson skrifar:
Ég vil endilega koma á framfæri
þökkum til Flugleiða fyrir að taka
af snerpu á því þegar SÁS og norska
skipafélagið fóru að eigna sér Leif
okkar Eiríksson. Ég sá að Flugleiðir
höfðu birt stóra auglýsingu í New
York Times til að svara ósvífnum
fullyrðingum Norðmannanna. Þetta
er annað og meira en stjórnvöld sáu
ástæðu til að gera.
Hringið í síma
27022
milli kl. 14 og 16
eða skrifið
ATH.: Nafh og sími
verður að fylgja
bréfum.
er í laugunum og fær úthlutaö einni,
kannski tveimur brautum undir æf-
ingar sínar, þar sem það verður að
hrúgast saman í allt of litlu plássi.
Allflestir íslenskuþjálfaranna hafa
tekið Grunnstig ÍSÍ og í framhaldi
af því A stig SSI og margir hafa hætt
við sig námskeiðum bæði hér heima
og erlendis. Steve Cruyer er enginn
maður til að standa undir þeim gífur-
yrðum sem hann lætur hafa eftir sér
á íþróttasíðu DV og ætti í raun að
skammast sín fyrir þau. Hann er
byrjandi í sundþjálfun með litla sem
enga faglega reynslu samkvæmt orð-
um 6 breskra landsliðsþjálfara sem
ég hafði samband við á heimsbikar-
keppninni í Róm 1990 og hafa þeir
boðist til aö staðfesta það ef nauðsyn
þykir. Enda hefur árangur hans í
starfi ekki beinlínis verið til þess að
hrópa húrra yfir þau ár sem hann
hefur verið hér á landi.
Árangur íslensks sundfólks hefur
Valgeirson orðinn tregur í taumi)
komu atkvæði Borgaraflokksins til
hjálpar - þvert gegn stefnu og afstööu
stofnanda flokksins til þáverandi
ríkisstjórnar. Töldu margir að þarna
hefðu hinir alkunnu tvímenningar
selt sálu síná fyrir baunadisk. En
þessi kúvending þeirra framlengdi líf
stjórnarinnar. Það má því segja að
tvímenningarnir hafl gegnt þarna
svipuðu hlutverki og graðhvannar-
njólinn sem forðum bjargaði Þorgeiri
Hávarssyni úr bjarginu sem lesa má
íslenska ríkið hefur sett 20 til 25
milljónir í að sigla með norskum vík-
ingaskipum til Ameríku undir því
yfirskini að þjóðirnar séu að sýna
það saman hvaðan Leifur Eiríksson
hafi komið. En svo þegar á reynir
sýna frændur okkur sitt rétta andlit.
Maður hefði búist við aö stjórnvöld
svörðu þessu af krafti en svo reynd-
ist ekki. Það var ekki sagt múkk.
Hins vegar voru það Flugleiðir sem
tóku upp hanskann fyrir okkur og
sýndu þar og sönnuðu að það eru
og verið þannig að ég get nú ekki séð
að Steve Cruyer hafi efni á því að
vera með skítkast á það og nægir þar
að benda á glæsilegan árangur þess
á Evrópumeistarmótinu sem fram
fór í Aþenu í ágúst sl. En þar setti
sundfólkið 11 íslandsmet og komst 6
sinnum í A og B úrslit sem er ekki
lakari árangur en t.d. Bretar náðu á
sama móti. Allt það sundfólk sem þar
synti var þjálfað af íslenskum þjálf-
urum.
Hér á landi eru nú starfandi fjórir
erlendir sundþjálfarar sem hafa
staðið sig mjög vel þó of snemmt sé
að dæma verk þeirra ennþá og væri
ánægjulegt ef meira heyrðist frá
þeim af uppbyggilegri gagnrýni en
hingað til. Hrokaraus af því tagi sem
Steve Cruyer lætur frá sér fara á síð-
um DV er eingöngu honum sjálfum
og heimalandi hans til háborinnar
skammar.
um í Gerplu Halldórs Laxness og
fornum sögum.
En svo að vikið sé að alvarlegri
þætti málsins þá virðist mér brýn
nauðsyn að 'nú verði hugað að því
hvort eigi sé unnt að torvelda smá-
flokkum að koma mönnum á þing,
e.t.v. vanhæfum Uðléttingum sem
síðan fengju aðstöðu til þess að
þvinga sig í ráðherrastóla með at-
kvæöum sínum. Vítin eru til að var-
ast þau.
íslendingar einir og íslensk fyrirtæki
sem geta gætt hagsmuna okkar í
svona málum.
Athyglisvert er að þetta mál kemur
upp um leið og SAS er að undirbjóða
flugferðir hingað til lands án þess að
bjóða annað en mjög takmarkaða
þjónustu hingað. Ef Halldór Blöndal
samgönguráðherra stæði ekki af
hörku á móti svona vitleysu mundu
Flugleiðir enda sem deild innan SAS
og þá spyr ég: Hver ætlar að gæta
hagsmuna okkar?
„Allt það sundfólk sem þar synti var þjálfað af íslenskum þjálfurum.“
Víti til að varast
Flugleiðir og Leiff ur Eiríksson
„Ég sá að Flugleiðir höfðu birt stóra auglýsingu í New York Times til að
svara ósvífnum fullyrðingum Norðmannanna."
Góðþjónusta
Ingibjörg skrifar:
Eg fór ásamt manni mínum í
verslunarleiðangur nú fyrir
stuttu en við hugðumst kaupa
okkur þurrkara. Við fórum í
margar verslanir, skoðuðum
þurrkara og gengum út með fang-
ið fullt af bæklingum. í verslun-
inni Heimasmiöjunni í Kringl-
unni báðum viö um bæklinga fyr-
ir eina tegund af þurrkara sem
okkur leist mjög vel á. Af-
greiðslumaðurinn tjáði okkur að
því miður væri hann búinn með
alla bæklingana en hann sagðist
bara lána okkur þurrkárann
heim i eina viku til reynslu án
nokkurra skuldbindinga. Að viku
. lokinni mundi hann sækja þurrk-
arann okkur að kostnaðarlausu
ef við vildum skila honum áftur.
Ég man ekki eftir því að hafa
fengið svo góða þjónustu nokkurs
staðar áður og vil ég þakka þess-
um starfsmanni fyrir frábæra
þjónustu.
Dauðadómur
T.H. skrifar:
Það er mikið rætt og ritað um
þessa stráka sem rændu ávísana-
hefti og stungu af til Tælands.
Flestir vilja að þeir séu bara sett-
ir í fangelsi í Tælandi. En gerir
fólk sér grein fyrir hvað það er
að vera í fangelsi í Tælandi. Eftir
því sem ég hef lesið i lesenda-
bréfi í DV þá er fimmti hver Tæ-
lendingur, sem lendir í bilslysi,
með eyöni. Hvernig haldið þið þá
að ástandið sé í fangelsunum þar?
Það er næsta víst að ef þessir
menn verða settir í fangelsi í
Tælandi þá smitast þeir af eyöni.
Ég er sammála því að þessir
menn hafa drýgt ljótan glæp sem
á að hegna þeim fyrir. En fmnst
íslendingum rétt að þeir hljóti
dauöadóm, því að í raun er eyðni-
smitun ekkert nema dauðadóm-
ur.
Tveir þessara manna eiga eng-
an að sem getur hjálpað þeim að
komast heim. Mér fmnst því rétt
að hið opinbera hlaupi undir
bagga og aðstoði við að koma
þeim heim. Þeir verði síðan látnir
afplána dóm í fangelsi hér á landi
en ekki í Bangkok.
Sjónvarpsþulir
og Chaplin
Hildur Pálsdóttir hringdi:
Mig langar að kvarta undan þyí
að búið er að ráða nýja þuli í sjón-
varpið en að mínu mati stóðu
þeir þulir sem fyrir voru sig mjög
vel. Mér fmnst þessir nýju þulir
ekki hafa nærri eins góða íram-
komu og hinir sem eru hættir.
Nýju þulirnir eru allt of stífir og
brosa næstum aldrei. Einnig
finnst mér þeir ekki alltaf tala
rétt mál, beygingarendingar eru
oft rangar hiá þeim.
Mig langar líka aö gera athuga-
semd við sýningu á Chaplin-
myndum. Flestir hafa sér þessar
gömlu myndir og því væri skyn-
samlegra að sýna þær á einhverj-
um öðrum tímum en á laugar-
dagskvöldum. Ég legg til að þær
verði sýndar síðdegis á sunnu-
dögum.
Verndun barna
Elsa Kristjánsdóttir hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
þakklæti til allra Selfyssinga. En
þannig er aö ég starfa mikið með
og hef mikinn áhuga á félagsskap
sem heitir Verndun bama (Chil-
dren's Care Int) en þetta eru al-
þjóðleg samtök. Ég fór til Selfoss
24. september sl, til að heimsækja
skyldfólk mitt. Ég ræddi þá við
marga Selfyssinga og tóku þeir
máli mínu og samtakanna svo vel
aö mig langar að senda þeim
kærar kveðjur og þakklæti fyrir
mjög góðar móttökur. Guð blessi
ykkur öll.