Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RViK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Fimm ára frelsi Fimm ár eru liðin síðan Stöð tvö var hleypt af stokk- unum. Jafnframt eru fimm ár liðin síðan einkaréttur ríkisins var afnuminn á hljóðvarps- og sjónvarps- rekstri. Fimm ár eru ekki langur tími en á tímum örra breytinga og þróunar á öllum sviðum þjóðmála hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því ríkiseinokuninni var aflétt. Það er til marks um áhrifin af frjálsræðinu að sá maður mundi ekki talinn með öllum mjalla, sem vildi hverfa aftur til fyrra ástands. Það segir sína sögu miðað við þá hörðu andstöðu og varnaðarorð semjafn- vel mætustu menn höfðu uppi þegar útvarpsfrelsið var á dagskrá. Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í nútímaþjóð- félagi. Sífellt verður erfiðara að fylgjast með stjórnar- fari og stjórnarháttum. Valdakerfið er flóknara en áð- ur, embættin íjarlægari öllum almenningi, stjórnsýslan umfangsmeiri og torskildari. í þessu andrúmslofti eru íjölmiðlar ómetanlegir og lífsnauðsynlegir tengiliðir. Almenningur á í rauninni enga aðra vörn en hlutlausa og óháða fjölmiðla, sem bera þeim fréttirnar, veita valda- mönnum aðhald og eru vettvangur skoðanaskipta. Fjölmiðlar hafa og menningarlegu hlutverki að gegna. Ekki síst til varðveislu tungunnar og það segir sína sögu að fullyrt er að lélegt málfar hjá þulum og útvarps- mönnum hinna nýju stöðva eigi sinn þátt í enskuslettum og ambögum hvers konar í töluðu máli. Næsta skrefið er að herða mjög allar kröfur um menntun og hæfni þeirra sem tala til þjóðarinnar á öldum ljósvakans og er það tvímælalaust neikvæðasta hlið útvarpsfrelsisins hversu kærulausir eigendur þessara stöðva eru gagn- vart réttu máli og málfari þeirra sem þar ráðast til starfa. Stöð tvö hefur sannað tilveru sína. Sjónvarpið er sterkasti miðillinn og í ljósi þeirra miklu áhrifa hefur Stöð tvö spjarað sig vel, einkum er varðar fréttir og fréttatengda þætti. Áhrif Stöðvar tvö eru þó ekki síðri á Ríkissjónvarpið sem hefur á þessum hðnu fimm árum brugðist við samkeppninni með þeim hætti að áhorfend- ur geta fLest kvöld valið milh tveggja frambærilegra sjónvarpsrása. Af eðlhegum ástæðum hefur Ríkissjón- varpið nokkra yfirburði í gerð innlendra þátta sem staf- ar af fjárhagsaðstæðum Stöðvar tvö, meðan stöðin er að jafna sig á því kappi í upphafi, sem nærri því færði hana í kaf. Um tíma leit raunar út fyrir að skuldastaða Stöðvar tvö væri nýjum eigendum ofviða, en nú er fuh- yrt að fjárhagsstaðan styrkist dag frá degi og er það vel. Við þurfum á tveim sjónvarpstöðvum að halda og engin ástæða til að vænta annars en að markaðurinn leyfi það. Sumir hafa áhyggjur af dagblaðaútgáfunni enda beij- ast nú þrjú dagblöð í bökkum. Það er hins vegar víðs fjarri að erfiðleikar þessara blaða stafi af auknu frelsi í fjölmiðlamálum. Sökina bera þau að mestu sjálf með því að fylgjast ekki nægjanlega vel með þróuninni í átt th aukins frelsis. Þeir sem svipta ekki flokkafjötrum af íjölmiðlum sínum eru auðvitað ekki í stakk búnir th að taka þátt í fjölbreyttri samkeppni, sem felur það meðal annars í sér að fjarstýring ríkis jafnt sem stjórn- málaflokka er tímaskekkja. Þegar frelsið er annars vegar er óhjákvæmhegt að þeir hfi sem spjara sig. Það á við um aha fjölmiðla og reynsla af fimm ára frjálsræði hér á landi sannar þá kenningu. Ehert B. Schram Ih,• iwuLt'tunHion • *i SoiUlll '■JHVllit'fV Þar ku hafa komið fram íslenskt og norskt tónlistarfólk og hópar sýnt þjóðdansa. Forn norskur hoppdans Þá eru norsku „víkingaskipin" loks komin til hafriar í Washington. Mikið skelfing var ég feginn. Þá er loks von til þess að fréttum fari að linna hér heima af þessari grát- broslegu siglingu. Veislugengið kringum' siglinguna hefur fengið sitt og náði lokatakmarkinu með þvi að fá að hitta Bush forseta og fleiri fyrirmenn þar vestra. Það hefur verið góð uppbót á þau von- brigði sem urðu á sumum við- komustöðum skipanna þar sem enginn heimamaður hafði hug- mynd um þennan stórmerka at- burð mannkynssögunnar. Nú eða þá að enginn vildi leggja það á sig að mæta til móttöku nema skemmtikraftar sem voru þar upp á kaup. Hérlendis virðast menn standa í þeirri trú að þessi sighng hafi vak- ið alheimsathygli og vart sé um annað talað í Bandaríkjunum um þessar mundir. Sem betur fer er þessu ekki þannig varið. Við höfum engan sóma að því að vera í ein- hverju samkrulli viö Norðmenn um Leif Eiríksson sem kemur þannig út að ókunnugir halda að við séum nokkurs konar nýlenda Noregs. . Kjallarinn Sæmundur Guðvinsson blaðamaður ur. Hins vegar fái íslendingar að fljóta með þar sem Leifur hafi haft viðkomu hérlendis á leiðinni vest- ur auk þess sem við borgum tugi milljóna króna fyrir að fá að vera með í þessari leikferð. Týndist í hafi Með því að gerast taglhnýtingar Norðmanna í þessum „víkingaleið- angri“ erum viö að glutra niður þeirri viðleitni sem höfð hefur ver- iö uppi í þá veru að sannfæra um- heiminn um aö Leifur Eiríksson hafi verið maður íslenskur. Og ofan á allt saman er þessu eina skipi af þremur sem siglir undir islenskum fána að hálfu gefið grískt heiti. Kannski það verði næst upp á ten- ingum að við séum komnir af Grikkjum? „Þátttaka íslendinga í siglingu „vík- ingaskipanna“ er lúmsk brella Norö- manna sem hafa notað hvert tækifæri af þessu tilefni til að minna á að Leifur hafi verið norskur.“ „Múgur og margmenni“ í frásögn fréttamanns Ríkisút- varpsins af komu skipanna til Washington sagði að „múgur og márgmenni" hefði verið við höfn- ina i Washington þegar skipin lögð- ust að. Fáfróðir Frónbúar gleyptu við þessu og héldu að vinnuveit- endur hefðu gefið starfsfólki frí af þessu tilefni og þetta þætti álíka viðburður og þegar „víkingaskip- iö“ undir gríska heitinu „Gaia“ kom til Reykjavíkur í sumar. En þegar leið á fréttina kom fram að múgurinn og margmennið saman- stóð einkum af skólabörnum auk hins hefðbundna veislugengis heimamanna og frá Noregi og ís- landi. Þetta minnir á hinn íslenska sið að fá að láni böm úr leikskólum til að veifa fánum að erlendum þjóðhöfðingjum sem sækja okkur heim. í frétt í Morgunblaðinu kom fram að tekist helði að 'fá Walter F. Mondale, fyrrum forsetaframbjóð- anda, til að stjóma hátíðahöldum á bryggjunni. Ennfremur virðist sem konur af íslenskum uppruna hafi verið teknar á leigu og þær dubbað- ar upp í íslenska þjóðbúninginn. Auk þess sem „norskar konur og karlar munu skrýðast þjóðlegum fatnaði af þessu tilefni" eins og seg- ir orðrétt í frétt blaðsins. Hins veg- ar mátti sjá í fréttum sjónvarps að norski skipakóngurinn, sem stend- ur á bak við siglinguna, var ekki í „þjóðlegum" fatnaði og því síður Sonja drottning og Vigdís forseti. Þvert á móti voru aðalleikaramir í alþjóðlegum fótum. Forn norskur hoppdans? Ekki veit ég hvort einhverjir karlar hafa verið látnir ráfa þama um í vaðmálsfotum og á skinnskóm en það væri svo sem eftir öðru. Eöa hvað er átt við þegar talað er um „þjóðlegan fatnað"? En ekki þótti nóg að gert með þessari uppákomu á bryggjunni. Haldin var samkoma í Smithson-safninu þar sem Vigdís forseti og Sonja drottning voru heiðursgestir. Þar ku hafa komið fram íslenskt og norskt tónlistarfólk og hópar sýnt þjóðdansa. Þegar þetta er skrifað hefur okkur verið hlíft við sjónvarpsmyndum frá þeirri sam- komu. Ef að líkum lætur hefur þama verið framinn einhvers kon- ar forn norskur hoppdans með til- heyrandi hvíi og spaiigóli svona til að leggja áherslu á norræna menn- ingararfleið. En Ameríkumenn eru vanir ýmsum skringilegum uppá- komum og hafa eflaust tekið þessu með jafnaðargeði. Þátttaka íslendinga í siglingu „víkingaskipanna" er lúmsk brella Norðmanna sem hafa notað hvert tækifæri af þessu tilefni til að minna á að Leifúr hafi verið norsk- Þegar íslenskir ráðamenn voru tældir til þátttöku í þessum norska leiðangri var fullyrt að auk þess að minnast landafundar Leifs væri ferðin farin til að vekja athygli á umhverfisvemd. Þessi tilgangur hefur greinilega týnst í hafi á langri leiö því ekki minnist nokkur mað- ur á umhverfisvemd í tengslum við sighnguna. Bandaríkjamenn láta sér í léttu rúmi liggja hvort Leifur hafi verið íslenskur eða norskur. Þeir eiga sinn Leifsdag á dagatalinu og þar er líka Kólumbusardagur. Spán- veijar láta sig engu skipta sighngu vélknúinna „víkingaskipa" til Washington. Þeir sendu bara kóng sinn og drottningu til að vera við- stödd opnunar sýningar í Þjóðhsta- safninu í Washington í tilefni þess að brátt eru fimm hundruö ár frá því Kolumbus fann Ameríku. Svo mun það komið-á daginn að Kín- verjar telja sig hafa fundið Amer- íku fyrstir manna. Þá verður senni- lega bætt Ho Ku Fung degi í amer- íska dagatalið svo ekki verði gert upp á milli þeirra sem fyrstir fundu Vínland. Fréttir hafa borist um að ekki eigi að láta staöar numið í Wash- ington heldur sigla víðar. Vonandi sjá ráðamenn okkar að sér og hætta þátttöku í þessum norska skrípa- leik. Sæmundur Guðvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.