Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. 15 ísland framtíðarinnar hvemig verður það? ... gekk meö ör í hnakkanum vegna þess að hann átti ekki fyrir að- I Kastljósi sjónvarpsins fóstu- dagskvöldið 4. okt. mættu báðir fjármálaráðherrarnir, það er að segja núverandi og fyrrverandi. Þeir byrjuðu báðir sýnilega með þann ásetning að láta ekki egna sig til illinda hvað sem á gengi og tókst vel í byrjun að vera kurteisir og rólegir, en er líða tók á þáttinn fór svo sem oft vill fara að þeir enduðu í sandkassanum með sömu gömlu þrætunum um hveijum þetta væri nú allt saman að kenna. Skilja ekki stjórnmálamenn okk- ar enn þann dag í dag að þjóðinni er alveg sama hverjum er um að kenna. Það að þeir læri af mistök- unum og geri þau ekki aftur er allt og sumt sem við förum fram á. Það sem mér fannst einkennilegt við orð fjármálaráðherra var er hann setti upp dæmið með strætó, sem sé að ef gjaldið hækkaði í 100 kr. þá væri okkur það í sjálfsvald sett hvort við vildum nota áfram þessa þjónustu eða ekki. Hann sagði einnig að fólkið ætti að fá að greiða fyrir þjónustu almennt og sjá að hún fengist ekki frítt - og aftur kom það að við gætum þá hafnað ef við ekki kærðum okkur um hana. Það sem hann skilur sem þjónustu er þá strætó, heilsugæsla, skólar og ýmislegt fleira sem hér skal ekki rakið. Strætisvagnarnir Ef ég byrja á strætó þá veit hátt- virtur fjármálaráöherra ef til vill ekki að hér í borg er fjöldinn allur af fólki sem verður að nota strætó til þess að komast á milli, t.d. í vinnu, þar sem það á ekki bíl og hefur ekki bílstjóra til að aka sér um, ja - nema þennan sem ekur strætó, og hvaða völ á þetta fólk? Ef fargjaldið hækkar í strætó en launamaðurinn fær enga hækkun KjaUarinn Margrét Sigríður Sölvadóttir rithöfundur sinna launa er ekki víst að hann komi oftar í strætó, en það verður ekki vegna þess að hann valdi að fara ekki í strætó heldur vegna þess að hann átti ekki fyrir farinu. Þjóðin öll veit að háttvirtur ráð- herrann á völ á ráðherrabíl eða strætó, svo ef til vill er hans skiln- ingur á málinu séður frá hans bæj- ardyrum en ekki frá veröld þeirra sem þessari þjónustu eru háðir. Heilsugæsiur Næst eru það heilsugæslustöðv- arnar. Eg veit ekki betur en að það sé skylda foreldra að koma með lít- il börn sín í heilsufarsskoðun og bólusetningu, ef ekki komin frá heilbrigðisyfirvöldum þá siðferði- leg skylda foreldra. Hvert er þá val foreldra um þessa þjónustu? Er þessi þjónusta ekki sú sem ekkert val er um og ætli hún sé ekki stærsti hður þessara stofnana. Eða er þetta ekki meðal þeirrar þjón- ustu sem greiða á fyrir? Skólarnir Þá eru það skólarnir - hver hefur val um það í dag að senda bam sitt ekki í skóla? Hvaða framtíð bíður þeirra sem ekki fá neitt lært? Eða er ekki skólaskylda lengur í þessu landi? Ég man þá tíð er ég var að koma mínum dreng í gegnum stúd- entinn, á einum launum í leiguhús- næði með þrjá munna að fæða, ég hefði aldrei getað það ef við hefðu bæst skólagjöld ofan á þann kostn- að sem fylgir því að kaupa bækur og annað á framhaldsskólastigi. Mér er líka spurn, hvað ætlar ríkis- stjórnin aö gera við öll þau ung- menni sem ekki geta haldið áfram i skóla vegna skólagjalda - þegar þau koma út á vinnumarkaðinn? Ég veit ekki til þess að næg atvinna bjóðist í dag, hvað þá er fleiri koma á vinnumarkaðinn. Verður ódýr- ara að hafa þetta fólk á atvinnu- gerðinni til að fjarlægja hana.“ leysisbótum en í skóla? Verður ís- land í framtíðinni ef til vill þannig að þeir sem ekki geta greitt fyrir þjónustu fá hana ekki, eins og drengurinn sem myndin birtist af í DV um daginn og gekk með ör í hnakkanum vegna þess að hann átti ekki fyrir aðgerðinni til að fjar- lægja hana? En hvernig er þetta nú annars, ef við nú förum að greiöa fyrir alla þjónustu beint út í hönd, fyrir hvað erum við þá að greiða skatta? Eða - er það kannski til að halda uppi ríkisbákninu? Margrét Sigríður Sölvadóttir „Mér er líka spurn, hvaö ætlar ríkis- stjórnin að gera við öll þau ungmenni sem ekki geta haldið áfram í skóla vegna skólagjalda - þegar þau koma út á vinnumarkaðinn? ‘ ‘ Fyrsta skref ið í átt til umferðaröryggis - fyrir gangandi vegfarendur og spamaðar fyrir eldri borgara Lesendur DV munu líklega hafa tekið eftir því að ég hef skrifað oft- ar en einu sinni um hættur í um- ferðinni fyrir gangandi vegfarend- ur. Gangandi vegfarendur eru oft- ast börn, skólanemendur í fram- haldsskólum og eldri borgarar. Fyrir þessa hópa var hætta mjög mikil 1989/91 við Skeiðarvog milli Langholtsvegar og Gnoðarvogs. Milh Langholtsvegar og Gnoðar- vogs eru tveir skólar: Vogaskóh, nú með 261 nemanda á grunnskóla- stigi,. 6-15 ára, og MenntaskóUnn við Sund, með 854 nemendur nú, samtals 1.115 nemendur. Auk þeirra þurfa fullorðnir að komast yfir gatnamótin við Skeiðarvog/ Gnoðarvog, á að giska 1.300 manns á degi hverjum í báðar áttir, þ.e.a.s. 2.600 skipti. Þess vegna var það mjög gott að við Skeiðarvog/Gnoð- arvog voru til 1989 sebrabraut- ir/gangbrautir. Hringtorg Hvenær var ákveðið að hafa hringtorg þar veit ég ekki. Hættu- legur staður var það ekki. Skv. uþplýsingum úr tölvu lögreglunn- ar var hún aðeins 13 sinnum köUuð þangað á fimm árum (1986-90) og 12 sinnum var aðeins um óhapp milU bifreiða en ekki slys að ræða. Aðeins eitt slys varð á 5 árum. Eftir aö hringtorgið kom hefur orðið aðeins eitt óhapp þama - nokkur ökutæki - þrjú ef ég man rétt - lentu saman norðan við torg- ið. Hins vegar er það alvarlegt að nemendur menntaskólans þurfa að ganga milU bíla á leið til skólans og til baka til strætisvagnaskýUs og eru þá í lífshættu. Hættan eykst brautir yfir Skeiðarvog og ein yfir Gnoðarvog aö mikilvægum versl- unum. Nemdendur menntaskólans eru því gatnamálastjóra og deild hans mjög þakklátir. Þeir geta nú gengið á og frá lóð menntaskólans. Lýsing yfir gangbrautum er mjög góð. En þaö er bara fyrsta skrefið. Hringtorgið er ekki upplýst og sést ekki þegar komið er myrkur. Að- eins eru þar lítil blá skilti sem sýna hring. Svo vita ökumenn ekkert um gangbrautina og keyra mjög hratt um hringtorgið eins og fyrr. Nauðsynlegt er að láta ökumenn vita af gangbrautinni svo að þeir geti dregið úr hraða í tæka tíð, eins og gert er í Noregi. Smástaurar eru við veginn sem sýna gangandi menn og sebralínur og fiarlægð frá KjáUarinn Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur „Eg var mjög ánægð að heyra að um- ferðardeild borgarverkfræðings ætlaði að leggja fyrir umferðarnefnd Reykja- víkur tillögu um að endurmerkja sebrabrautina yfir Skeiðarvog og það var gert nokkrum dögum seinna.“ þegar rökkva tekur. Upplýsingar um þessa slysahættu hefur Markús Örn Antonsson fengið. Ég var mjög ánægð að heyra að umferðardeild borgarverkfræðings ætlaði að leggja fyrir umferðar- nefnd Reykjavíkur tiUögu um að endurmerkja sebrabrautina yfir Skeiðarvog og það var gert nokkr- um dögum seinna. Nú eru sebra- gangbrautinni. Spurningin, sem ég velti fyrir mér nýlega, var hvort hringtorg, þar sem maður sem keyrir hring- inn er í rétti, tekur öll réttindi frá öðrum sem vilja reyndar bara fara beint áfram. Við hringtorg við Suð- urgötu/Hringbraut sá ég í öllum áttum langa bílahala sem voru að bíða miUi kl. 17 og 18. „Hvenær var ákveðið að hafa hringtorg þar veit ég ekki.“ Eldri íbúar Eldri íbúar við Gnoðarvog eru einnig mjög ánægðir yfir að hafa fengið sebrabrautir aftur. Það þýð- ir töluverðan sparnað. í þessum háhýsum eru oft litlar íbúðir fólks sem á ibúð en verður annars að lifa af elUlífeyrinum. Þetta vita ýmsir verslunareigendur, þ.á m. í Vogaver, sem gefur félagsmönnum Félags eldri borgara 5% afslátt og sendir tvisvar í viku ókeypis heim, enda getur eldra fólkið ekki borið mikið. Einnig er hægt að panta þar símleiðis. Næsta verslun veitir ekki afslátt og tekur 200 kr. fyrir hverja heimsendingu. Ég reyndi að reikna sparnað út og fann: ef ég kaupi fyrir 2500 kr. á viku mat, hreinlætisvörur o.fl. spara ég 125 kr. og ef ég fengi aðeins sent einu sinni í viku er sparnaður í viku 325. Á einu ári væri því sparnaður kr. 16.900. Eiríka A. Friðriksdóttir TT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.