Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991. 41 FóUc í fréttum Öm Amþórsson Örn Arnþórsson, skrifstpfustjóri líf- eyrissjóða, er í landsliði íslands í bridge sem hreppti heimsmeistara- titilinn á fostudaginn var. Starfsferill Örn fæddist á Siglufirði 5.2.1945 og ólst þar upp í foreldrahúsum en fóður sinn missti hann fimm ára að aldri. Örn fór átján ára til Finnlands og lauk þar verslunarskólaprófi. Hann starfaði síðan við sölumennsku hjá heildsölufyrirtækinu G. Helgason og Melsted í átta ár. Þá hóf hann störf fyrir lífeyrissjóði verksmiðju- fólks, matreiðslumanna, verkstjóra og Sóknar og hefur verið þar skrif- stofustjóri síðan. Örn lærði bridge í foreldrahúsum og var farinn að spila á mótum fyrir Bridgefélag Siglufjarðar innan við fermingu. Hann fór að spila bridge hér í Reykjavík um 1967 og hefur spilað með Guðlaugi frá 1973. Þeir hafa spilað með landsliðinu á fjór- um ólympíumótum, sex Evrópu- mótum, tveimur Norðurlandamót- um og á heimsmeistaramótinu nú. Þeir urðu íslandsmeistarar í sveita- keppni 1977,78,80,87 og 89 og ís- landsmeistarar í tvímennings- keppni 1976 og80. Örn sat í stjórn Bridgefélags Reykjavíkur í nokkur ár og var varaformaður Bridgesambandsins í nokkur ár. Fjölskylda Örn kvæntist 1969 Svanborgu Dahlmann, f. 19.11.1943, starfs- manni Flugleiða. Hún er dóttir Sig- urðar Dahlmann, símstöðvarstjóra á ísafirði, sem er íátinn, og Guðlaug- ar Dahlmann húsmóður. Örn og Svanborg eiga tvær dætur. Þær eru Auður, f. 29.3.1970, há- skólanemi, ogDagmar, f. 24.3.1975, menntaskólanemi. Sonur Arnar frá því áður er Klemens, f. 2.1.1968, við fjölmiðlanám í Bandaríkjunum. Systkini Arnar eru Björg, f. 18.9. 1932, húsfreyja að Breiðumýri í Reykjadal i Þingeyjarsýslu, gift Sig- tryggi Jósepssyni, b. þar, og Hörður, f. 20.12.1939, starfsmaður hjá Svan hf. í Reykjavík, kvæntur Grétu Guð- mundsdóttur félagsfræðingi. Foreldrar Arnar: Arnþór Jó- hannsson, f. 7.3.1907, fórst með vél- bátnum Helga við Vestmannaeyjar 7.1.1950, ogkonahans, Geirfríður Jóelsdóttir, f. 5.9.1905, d. 8.8.1990, húsmóðir. Ætt Arnþór var sonur Jóhanns, b. á SelááÁrskógsströnd, Sigurðssonar, b. á Selá, Gottskálkssonar, b. á Selá, Sigfússonar, b. á Ytraholti og Hálsi, Gottskálkssonar. Móðir Sigurðar var Svanhildur Jónsdóttir, b. á Stóru-Hámundarstöðum, Guð- mundssonar, b. í Botni, Loftssonar, b. í Teigi, Hallssonar. Móðir Arnþórs var Björg Arn- grímsdóttirmálara, Gíslasonar, skálds í Skörðum, Gíslasonar. Móð- ir Arngríms var Guðrún Guð- mundsdóttir. Móðir Bjargar var Þórunn, systir Petrínu, ömmu Kristjáns Eldjárns. Þórunn var dótt- ir Hjörleifs, prests á Völlum, Gutt- ormssonar, prófasts á Hofi í Vopna- íirði, Þorsteinssonar, bróður Berg- ljótar, langömmu Páls, afa Hjörleifs Guttormssonar alþingismanns. Móðir Þórunnar var Guðlaug, systir Önnu, langömmu Ragnars Hall- dórssonar, stjórnarformanns ísals, en bróðir Guðlaugar var Stefán, afi Stefaníu Guðmundsdóttur leik- Guölaugur R, Jóhannsson Guðlaugur R. Jóhannsson, við- skiptafræðingur og endurskoðandi, er í landsliði Islendinga í bridge sem vann heimsmeistaratitilinn á fóstu- daginnvar. Starfsferill Guðlaugur fæddist í Reykjavík 25.8.1944 og ólst þar upp í foreldra- húsum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1964, lauk prófi í viðskiptafræði við HÍ1970 og stundaði síðar nám í endurskoðun sem hann lauk 1985. Á skólaárunum var Guðlaugur á síld á sumrin og starfaði hjá Lands- virkjun. Eftir viðskiptafræðinámið starfaði hann hjá Heildverslun Jó- hanns Ólafssonar í fimm ár, síðan hjá Flugleiðum í eitt ár og loks hjá Hafskipi í fimm ár. Hann stundaði síðan nám og starf hjá Endurskoðun hf. en stofnaði síðan Endurskoðun- arskrifstofu Guðlaugs sem hann hefurrekiðsíðan. Guðlaugur lærði að spila bridge í foreldrahúsum. Hann hóf að spila með Erni Arnþórssyni 1973 en þeir hafa spilað með landsliði íslendinga á fjórum ólympíumótum, sex Evr- ópumótum, tveimur Norðurlanda- mótum og á síðasta heimsmeistara- móti. Guðlaugur hefur orðið ís- landsmeistari í syeitakeppni 1977, 78,80,87 og 89 og íslandsmeistari í tvímenningi 1976 og 80. Hann sat í stjórn Bridgefélags Reykjavíkur í tvöár. Fjölskylda Guðlaugurkvæntist25.8.1972 Berglindi Oddgeirsdóttur, f. 3.4. 1942, húsmóður en hún er dóttir Oddgeirs Þ. Oddgeirssonar, bók- haldara í Reykjavík, og Sigríðar Eggertsdóttur frá Hafnarfirði, hús- móður en þau eru bæði látin. Berg- lind ólst upp hjá móðursystur sinni, Hönnu Þórðardóttur. Börn Guðlaugs og Berglindar eru Sigríður, f. 29.8.1966, flugfreyja hjá Flugleiðum; Hanna, f. 16.2.1968, flugfreyja hjá Atlantsflugi; Jóhann, f. 24.111976, nemi. Systkini Guðlaugs eru Ármann Jónsson, f. 27.8.1928, starfsmaður hjá ísal, búsettur í Kópavogi, kvænt- ur Margréti Einarsdóttur húsmóður og eiga þau fjóra syni; Edda Jó- hannsdóttir, f. 16.2.1932, húsmóðir í Bandaríkjunum, gift Magnúsi Magnússyni og á hún tvö böm. Foreldrar Guðlaugs eru Jóhann Guðlaugsson, f. 6.6.1906, fyrrv. iðn- verkamaður í Reykjavík, og kona hans, Sigríður Ingibergsdóttir, f. 31.5.1911, húsmóðir. Ætt Meðal fóðursystkina Guðlaugs: Jensína húsfreyja; Ingibjörg hús: freyj a; Guðlaug Þorgerður hús- freyja; Guðríður húsfreyja; Jón, fyrrv. forstjóri sælgætisgerðarinnar Opal; Gísli í Steinstúni, faðir Gunn- steins kaupfélagsstjóra og Guð- laugs, formanns Stýrimannafélags íslands. Jóhann er sonur Guðlaugs, b. í Steinstúni á Ströndum, Jónsson- ar, b. í Norðurfirði, Jónssonar, b. í Ingólfsfirði, Helgasonar. Móðir Jóns í Norðurfirði var Guðlaug Guð- mundsdóttir. Móðir Guðlaugs var Ingibjörg Gísladóttir, b. í Norður- firði, Jónssonar, b. í Furufirði, Gíslasonar. Móðir Ingibjargar var Þorgerður, systir Venedíu, langömmu Sverris Hermannssonar, bankastjóra Landsbankans. Þor- gerður var dóttir Jóhannesar, b. í Kjós í Grunnavíkurhreppi, Þor- valdssonar. Móðir Jóhanns var Ingibjörg, systir Vilhjálms, afa Jens Sumar- liðasonar, yfirkennara í Breiðholts- skóla og fyrrv. formanns íþrótta- ráðs Akureyrar. Ingibjörg var dóttir Jóhanns Gottfreðs, b. á Krossanesi, Jónassonar, b. í Litlu-Ávík, Jóns- sonar. Móðir Jóhanns Gottfreðs var Jóhanna Gottfreðlína Jónsdóttir, systir Óla Viborg, afa Jakobs Thor- arensen skálds. Móðir Ingibjargar var Guðríður Arngrímsdóttir frá Krossanesi. Örn Arnþórsson. konu, móður Önnu Borg leikkonu. Guðlaug var dóttir Björns, prests á Kirkjubæ, Vigfússonar og Önnu Stefánsdóttur Scheving. Geirfríður er dóttir Jóels, sjó- manns á Húsavík, Magnússonar, á Þönglabakka, Jóakimssonar. Móðir Geirfríðar var Friðrika Þorgríms- dóttir, b. á Nesi í Aðaldal, Péturs- sonar, b. á Stórulaugum, Jónssonar. Móðir Þorgríms var Kristín Hrólfs- dóttir, b. á Minniökrum í Skaga- firði, Hrólfssonar. Móðir Friðriku var Gurðún Kristjánsdóttir Halls- sonar. Guðlaugur R. Jóhannsson. Meðal móðursystkina Guðlaugs: Páll, skipstjóri aflakóngur í Vest- mannaeyjum; Júlíus, vélstjóri og útgerðarmaður í Eyjum; Hannes, lengst af íþróttakennari við Mela- skólann; Olafur sjómaður í Eyjum. Sigríður er dóttir Ingibergs, sjó- manns í Vestmannaeyjum (Bergs í Hjálmholti), bróður Sigurhans hjá ísaga og Gests pípulagningarmeist- ara. Ingibergur var sonur Hannes- ar, b. í Bollastaðakoti í Flóa, Sig- urössonar. Móðir Ingibergs var Sig- ríður Hansdóttir. Móðir Sigríðar var Guðjónía Pálsdóttir Sigurðssonar. Afmæli Gunnar Maríusson Til hamingju með afmælið 16. október Gunnar Maríusson, fyrrv. bóndi og sjómaður, Árgötu 8, Húsavík, verð- ur áttatíu og fimm ára á morgun. Fjölskylda Gúnnar er fæddur á Húsavík og ólst þar upp. Hann fékkst við sjó- mennsku og reri m.a. á mótorbátn- um Agli sem hann átti í félagi við bræður sína. Gunnar fékkst einnig við fjárbúskap og stundaði hann á BakkaáTíörnesi. Gunnar kvæntist 11.9.1931 Elínu Jónsdóttur, f. 11.9.1911, d. 19.12.1990, en foreldrar hennar voru Jón Gunn- arsson og Sigurhanna Sörensdóttir. Börn Gunnars og Elínar: Sigur- hanna, húsmóðir á Læk, maki Jón Hjartarson; Jón Bergmann, sjóm. á Húsavík, maki Guðrún Mánadóttir; Helga, fiskverkunark. á Húsavík, maki Siguróli Jakobsson; Hlaðgerð- ur, starfsm. á sjúkrahúsi Húsavík- ur, maki Gunnar Halldórsson; Björg, verslunarm., maki Ingvar Hólmgeirsson; Maríus, sjómaður, maki Erla Jóhannsdóttir; Matthild- ur, b. á Prestshvammi, maki Gunn- steinn Sæþórsson; Sigurlaugbanka- starfsm., maki Davíð Eyrbekk; Vig- dís skrifstofum., maki Guðmundur Bjamason; Inga Kristín, starfsm. sjúkrahúsi Húsavíkur, maki, Bald- vin Jónsson; Benedikt, verslunarm., maki Guðbjörg Bjarnadóttir; Há- kon, b. að Árbótí Aðaldal, maki Snæfríður Njálsdóttir. Bræður Gunnars, sem voru 5, eru allir látnir. Þeir hétu Héðinn, Þrá- inn, Þorgrímur, Hákon og Benedikt. Gunnar Maríusson. Foreldrar Gunnars voru Maríus Benediktsson, f. 1865, d. 1947, sjóm. á Húsavík og Helga Þorgrímsdóttir, f. 1871, d. 1960, en þau bjuggu lengst afáÁrgötu8. Gunnar tekur á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn frá kl. 15. 80 ára Sigurlín Guðmundsdóttir, Austurbergi 28, Reykjavík. Svanlivít Guðmundsdóttir, Skothúsvegi 15, Reykjavík. 75 ára____________________ Ástfinna Pálsdóttir, Eyrargötu22, Siglufirði. Þórður G. Jónsson, Miðfelli 2b, Hrunamamiahreppi. Gunnmar Örum Nieisen, Hjarðarhaga 19, Reykjavík. 70ára Suðurhvammi 4, Hafnarfirði. Helga Henrysdóttir, Minni-Grindli, Haganeshreppi. Védís Bjarnadóttir, Höfðabrekku 14, Húsavík. 50 ára Helgi Ágústsson, ísl. sendiráðinu, Englandi. Þorsteinn Bjarnason, Hjaröarholti 7, Selfossi. Hann tekur á móti gestum í golf- skála Golíklúbbs Selfoss nk. laug- ardag kl. 20. MeihuaXi, Fálkagötu 7, Reykjavík. BáraÓIaf'sdóttir, Ásbraut 5, Kópavogi. Filippía Kristj ánsdóttir Filippía Kristjánsdóttir húsmóðir, Efstahjalla 21, Kópavogi, er sjötug í dag. Fjölskylda Filippía er fædd á Flateyri við Önundarfjörð og ólst þar upp. Hún bjó þar til ársins 1970 er fjölskyldan fluttist í Kópavoginn. Filippía giftist 16.10.1942 Einari Jóhannessyni, f. 23.6. 1923, d. 5.5. 1988, vélstjóra. Foreldrar hans: Jó- hannes Gunnlaugsson og Málfríður Sigurðardóttir en þau stunduðu bú- skap að Hlíð í Álftafirði. Börn Filippíu: Ásbjörg, Agnes, Erna, Kristján, Jóhannes og Reynir. Filippía er að heiman á afmælis- daginn. Filippía Kristjánsdóttir. Tómas H. Jónsson, Reykjamörk 1, Hveragerðishreppi. Halldór Haraldsson, Starraýri 23, Neskaupstað. 60 ára Guðmundur Halldórsson, Haga, Holtahreppi. BjörnEiríksson, Mávahlíð 36, Reykjavík. Ingvar Kárason, Árlandi, Ljósavatnshreppi. Sveinsína Frímannsdóttir, Heiðarbraut3b, Keflavík. Sveinberg Hannesson, 40ára Ragiihildur Freyja Sverrisdóttir, Bæjargili 11, Garðabæ. Sigurður Valtýsson, Reynimel 72, Reykjavík. Valborg María Stefánsdóttk, Ægisgötu 7, Árskógshreppi. Hrönn Guðmundsdóttir, Barmahlið 21, Reykjavík. Jónas Hallgríms Jónasson, Sigluvogi 15, Reykjavík. Eiður Arnarson, Fagrahvammi 3, Hafnarfirði. Helga Guðsteinsdóttir, Lambhaga 6, Bessastaöahreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.