Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Síða 26
42 MIÐVIKÚD'AGUR 16. OKTÓBER 1091: Meiming_________________________ Stórkostlegar viðtökur í New York komu á óvart - segir Helgi Tómasson sem hefur leitt San Francisco Ballet á toppinn: Helgi sést hér stjórna æfingu í New York stuttu áður en sýning hófst. DV-mynd Anna Anna Theódóra Pálmadótir, New York: San Francisco-ballettinn stendur nú á hátindi frægðar sinnar. Flokk- urinn, sem lotið hefur listrænni stjórn Helga Tómassonar síðan 1985, er í sínu besta formi í 58 ára sögu hans. Og þar á Helgi stærstan hlut að máli. Hann hefur valið og mótað nánast alla þá 68 dansara sem með flokknum starfa, en auk þess kennt áhorfendum að meta góðan ballett og skal ekki dregið úr mikilvægi þess. Með Helga þykir hafa orðið áherslubreyting í átt aö mikilvægi einstakra dansara. Sjálfur sér hann að mestu leyti um þjálfun og þannig fær hann fram það sem honum sýn- ist nauðsynlegt. Afraksturinn birtist í hæfileikaríkum, vel þjálfuðum flokki listdansara. Það sem einkenn- ir stíl Helga öðru fremur er áhersla á tæran klássískan ballett, næm til- fmning fyrir tónlist og dansgleði. Fyrstu vikuna í október sýndi San Francisco-ballettinn hstir sínar í New York, háborg menningar í Bandaríkjunum. Koma flokksins og tilþrif vöktu gífurlega athygli og hlutú mikla og jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum. í New York Times kom meðal annars fram „að endurfæðing San Francisco-ballettsins undir stjórn Helga Tómassonar væri meðal athyghsverðustu viðburða í amer- ísku listalífi". Fylgst með undirbúningi Það var spennuþrungið loftið, blandið ánægju með vel heppnaða sýningarferð, á æfingu flokksins, tveimur klukkustundum fyrir loka- sýninguna í City Center leikhúsinu. Dansaramir, hver í sínum hugar- heimi, hituðu upp og liðkuðu grann- an og stæltan líkamann. Einbeiting og sjálfsagi skein út úr andlitinu. Og það dró nær komu stjórnandans. Hún var Helga heldur ógreiðfær leiðin inn í æfingasahnn. Fjölmiðla- fólk, dansarar að sækja um vinnu og fleiri utanaðkomandi vildu ólmir ná tah af honum. Hann lét sem von- legt er ekki trufla sig við starfið og aht beið þetta loka æfmgarinnar. Það var síst minna hrífandi að horfa á æfinguna en sjálfa sýninguna sem fylgdi í kjölfarið. Teygjur, hopp, snúningar og dans, allt í takt við klassíska tóna píanóleikarans. Ekk- ert gefið eftir og þó var þetta bara undirbúningurinn. Svona var haldið áfram í rúma klukkustund og Helgi fylgdist grannt með hverjum og ein- um, sýndi og leiðbeindi eftir því sem viö átti. „Það kemur mér á óvart hvað við- tökurnar hér í New York hafa veriö stórkostlegar," sagði Helgi í samtah við DV að æfingu lokinni. „Ég vissi að vel yrði tekið á móti okkur og að flokkurinn myndi sigra en öll þessi góða umfjöllun er framar vonum. Ég tók við flokki sem nánast var óþekkt- ur; óþekktir dansarar og verkefni að mestu eftir óþekkta danshöfunda. Ég hrinti í framkvæmd miklum breyt- ingum og nú erum við sögð vera einn albesti listdansflokkur Bandaríkj- anna. Og það af borg sem er vön að sjá ekkert nema hið besta, hvort sem er í hljómlist, dansi eða leiklist." Gífurlega mikið starf Helgi átti tuttugu og fjögurra ára stórfenglegan dansferh í New York og var lengi meðal þeirra allra bestu á því sviði. „Ég var aðaldansari í fimmtán ár en þegar ég dansaði sjálf- ur þá hvarflaði aldrei að mér að verða stjórnandi dansflokks. Dans- arar hafa nóg með að hugsa um sjálfa sig og dansinn. Ég var því ekki að horfa á og undirbúa mig fyrir þetta starf, enda er það í rauninni ekki hægt. Þetta er ólýsanlega mikið starf og enginn getur skilið það fullkom- lega nema sá sem hefur gengið í gegnum það. Sérstaklega ef sá hinn sami semur ballett á sama tíma eins og ég geri. En það er alveg merkilegt hvað reynsla mín hjá New York City-ballettinum hefur komið sér vel.“ Helgi er þegar viðurkenndur sem klassískur danshöfundur og að- spurður um áhrif sagði hann að í fyrstu hefði mátt greina stílseinkenni frá George Balanchine og Jerome Robbins, sem hann starfaði mikið með í New York, en með tímanum hefði hann fundið og skapað eigin sth. En hvar skyldi Helgi finna sig best: í starfi listdansstjóra, danshöfundar eða dansara? „Ekkert í einu öðru fremur. Þetta er svo óhkt; sem dans- ari einbeitir maður sér að hverri sýn- ingu fyrir sig en fyrir danshöfund er verkið miklu varanlegra. Að hafa efni í að semja dansa sem og að stjórna dansflokki er gjöf sem ekki er mörgum gefin.“ Ballett á íslandi Eins og margir muna sótti San Francisco-ballettinn okkur íslend- inga heim á hstahátíð í fyrra. „Döns- urunum fannst ekki síður varið í það en sjálfum mér. Ferðin var í alla staði mjög vel heppnuð og undirtektirnar heima voru sérlega góðar.“ íslenski dansflokkurinn stendur nú á tímamótum og vitanlega hefur Helgi haft spumir af sviptingum sem þar hafa átt sér stað. En er einhver rekstrarháttur sem hann telur henta best litlum flokki með svo takmark- aðan áhugahóp sem íslenski dans- flokkurinn? „Því miður er mjög erfitt fyrir mig að ráðleggja nokkuð héðan, ég er svo allt öðru vanur. Það er eins og dans- flokkurinn þurfi að finna sjálfan sig áður en eitthvað gerist. Mér fmnst þó að annaðhvort þurfi að styrkja dansflokkinn og gefa honum tæki- færi til að dansa eða ekki. Það er ekki hægt að gera neitt meö smáaur- um einum. Ég er nýbúinn að skrifa undir samning til þriggja ára í starfi mínu hjá San-Francisco-ballettinum og veit ekki hvað við tekur að þeim tíma liðnum. Ég er mjög ánægður með þann árangur sem ég hef náð með flokknum og myndi ekki gera ríeitt á annan veg þó að ég fengi tækifæri til að byrja upp á nýtt.“ Og Helgi Tómasson var þotinn, enda ekki nema tæplega hálf klukku- stund í sýningu. Honum hefur sann- arlega tekist aö miðla reynslu sinni og þekkingu til listdansara vestan hafs. Svíar hrif nir af Skjaldhömrum Fyrir stuttu var frumsýnt í Lans- teatem í Örebro hið sívinsæla leikrit Skjaldhamrar eftir Jónas Árnason. Leikrit þetta, sem fyrst var frumsýnt í Iðnó á vegum Leikfélags Reykjavík- ur, hefur síöan verið sýnt af fjölda- mörgum áhugaleikfélögum víðs veg- ar um land, auk þess sem það hefur verið leikið á Norðurlöndum og á írlandi. Sýningin í Örebro þótti takast sér- staklega vel og fjölluðu stór blöð um hana og voru óspör á lofsyrðin eins og sjá má á eftirfarandi þýðingum úr þremur blöðum. í NWT segir í fyrirsögn: Áttu skilið að staðið var upp fyrir þeim. í textan- um segir meðal annars: „Lánsteatern í Örebro hefur ekki bara tekist vel með val á leikriti heldur stóðu leikar- amir sig frábærlega. Þeir áttu sann- arlega skihð lófatak áhorfenda sem risu úr sætum sínum. Kona nokkur meðal áhorfenda sagði á leiðinni út: „Þetta er leikhús!" Ég er sammála henni.“ Katrineholmskuriren segir í fyrir- sögn að Skjaldhamrar séu meistara- stykki: „Jónas Árnason er augsýni- lega mikilhæfur rithöfundur. Það er meistarastykki að koma fyrir mörg- um myndum hinnar fínu kómedíu í einni sviðsmynd, farsa án þess að hann fari út í öfgar, skopstælingu án þess að fara yfir markið, fágaðri erót- ík, raunverulegri hetjudáð, sögu án endis, hvorki hamingjusamlegs né sorglegs, sögu eins og lífið venjulega er.“ Fyrirsögnin í KT er: Lítil perla í stórkostlegri mngjörð. Og í textanum segir: Sköldhammaren er leikrit þar sem gætir margra stemningsmynda. Húmorinn kraumar ahan tímann undir og gýs stundum upp eins og goshver. Einnig gætir trega og ang- urværðar. Leikritið hefur chaplinsk- an tón og þaö er sko ekki slæmt. -HK Eins og sjá má af þessum úrklippum eru Svíar hrifnir af Skjaldhömrum. KULTUR Tisdsg 17 —plwnber 1891 - Láasteaterns Sköldhammaren - Párla i överdádig infattning T—---------NWT - mándag 16 scptcmbcr 1991 stáende ovationema ■-- 'Á* 17 Mh * )7c öldhammoren - ett masterstycke . «*■.*-jaSSt -SSEÍ ,komul och lympa- t,nan. Spionen. Pfr / en Iflm jom frani- Buiani och humor ]>f Sionc, Gunnar Jmoibilden lill fyr- fúWif kmmelor ffl- n fördomar moi mlniUifhet. i 19^1- E"8l!,"d llV oy«kU«' 1,enn<íí "U un era,lslandlörmi.- jct liksom unionilanoe* lark föll i tyjkariias Wtn- triunnienhadcdelbc- ,t under de»» ^dcgar, och del df. mxu ala* USA *»"de tv»f «r för aú övertn (ötsva- f£ií.Mcn-USN«vylV víerkUM- Och a« henn« fcmniv* vidn överlrlto^ maiorcn lr *>»■■■ ,nl)i mss ~r. \ Í.VTEATER a»2ríaft“' (kande slut m berliiat Ir bi- >Inn*nde. Sluiet jovfntai och fer ,velie tack vare .f' V* tenomtlnkta Jl /iceneni dekor V /rut och fav dl | i ^ck. detta /Br- írebro har inte I ^ med tin pjju. . wmipeli och DV LífróðurÁrna Tryggvasonar Þær bækur sem vekja oftast mesta forvitni hjá almenningi í jólabókaflóðinu eru ævisögur og viðtalsbækur ýmiss konar. Meðal ævisagna í ár, sem örugglega eiga eftir að vekja athygi, er Lífróður eftirlngólfMargeirssom. Þar seg- ir frá ævi hins þekkta leikara, Áma Tryggvasonar. Eftir að harrn hætti að mestu að koma fram á sviði tók hann til við uppá- haldsiðju sína, útgerð á smábát frá Hrísey, en í Hrísey byrjar ein- mitt bókin. Segir Árni frá æsku sinni þar og hvernig eyjan mótaði hann sem bam og ungling. Leiðin lá síðan til Reykjavíkur þar sem hann gerðist leikari en sú leið var grýtt þótt um síðir yrði hann einn ástsælasti gamanleikari þjóðar- innar. En það kostaði sitt að vera vinsæll leikari og í bókinni segir Árni einnig frá hvernig frægðin og hin ytri ímynd varö honum Qötur um fót og færði hann sí- fellt nær sínu innsta eðli, þrá og lífsfyllingu. Þorri Hringsson sýmr i Amsterdam Þorri Hringsson listmálarí mun 26. október opna einkasýningu í Galerie Van Rooy, einu af virtari listhúsum Amsterdamborgar. Þar mun hann sýna olíumálverk og teikningar sem unnar eru á þessu ári. Þetta er önnur sýning Þorra í galleríi þessu en fyrir tæpu ári var hann með sýningu þar sem fékk góða dóma og um- fjöllun í stærsta dagblaði Hol- lands. Þorri, sem fæddur er 1966, stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann. Síðastliðin tvö ár hefur hann verið í Jan Van Eyck akademíunni í Maastricht í Hollandi. Sýning Þorra mun standa í fjórar vikur. Gleðispilið kynntífram- haldsskólum Leikstjóri og nokkrir leikarar úr Gleðispilinu eftir Kjartan Ragnarsson, þau Sigurður Sigur- jónsson, Öm Árnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Sigurður Skúlason, hafa að undanfómu heimsótt framhaldsskóla, kynnt verkið fyrir nemendum og leikið stutt atriði úr' leikritinu. Ráðgert er að halda þessum kynningum áfram. Nemendur eða kennarar framhaldsskóla, sem áhuga hafa á þessari þjónustu, geta haft sam- band við skrifstofu Þjóðleikhúss- ins óski þeir eftir að verkið verði kynnt 1 skóla þeirra. Þess má geta aö Gleðispilið er væntanlegt á bók fljótlega. - Þorsteinnfær útgefnaskáM- sögu í Bretlandi Anna Hildux Híldibrandsdóttir, london: Um næstu mánaðamót er vænt- anleg skáldsagan The Paperking Subjects á markaðinn í Bret- landi. Þetta þætti ekki merkileg frétt ef höfundurinn væri ekki Þorsteinn Eggertssón sem betur er þekktur á Fróni sem dægur- lagatextahöfundur en rithöfund- ur. Þorsteinn skrifaöí skáldsögu sína á ensku og kom sér sjálfur á framfæri viö breska útgáfufyrir- tækið Excalibur Press sem sá ástæðu til að gefa bókina út. Peter Bigby, útgáfustjóri hjá Excahbur Press í London, tjáði blaðamanni að Þorsteinn yrði viðstaddur út- komu bókarinnar í byrjun nóv- ember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.