Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Qupperneq 28
44
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991.
Menning
Ný sál að Álafossi
- sýning Hauks Dórs og Tolla
Oft er því slegið fram að gömul hús hafi sál. Fólk
hefur þá gjarnan í huga hlýlega panelklædda
burstabæi en varla steinsteyptar og hráslagalegar
verksmiðjubyggingar. Það verður þó ekki vikist undan
því þessa dagana að íhuga stundarkorn sálarhugtakið
þegar gengið er inn um gætt gömlu Álafossverksmiðj-
unnar við Varmá í Mossfellsbæ. Þar hefur nefnilega
átt sér stað innri hreinsun undanfarna mánuði - og
það svo rækileg að húsið er vart þekkjanlegt að innan-
verðu. Undirritaður átti þarna stutt innlit í maímán-
uði en á þessum örfáu mánuðum hafa listamennirnir
Þorlákur Kristinsson (Tolli) og Haukur Dór innréttað
og rafvætt hvor sína hæðina og Magnús Kjartansson
er kominn á veg með þá þriðju.
verða þá virðist sálin á staðnum í þessu tilviki vera
fólgin í atorku listamannann.a sjálfra. Hér hefðu sér-
pantaðar og sótthreinsaðar marmaraflísar ekki búið
til jafnheillandi umhverfi og það sem nú er að mynd-
ast í gömlu klæðaverksmiöjunni.
Hratt og kyrrt
Tolli er nú litaglaðari en oft áður og af eðlilegum
ástæðum hefur sveitin og sauðajarmurinn nú fengið
tilhlýðilegan sess í list hans, þó sjávarsíðan haldi sín-
Myndlist
Að skapa sál
Tveir hinir fyrsttöldu halda nú sjálfum sér og öðrum
listunnendum sýningu á þessum sérstæðu vinnustof-
um. Reyndar settu verk Magnúsar sterkan svip á and-
dyrið þegar ég kom þar nýverið en það er sjálfsagt
breytingum undirorpið eins og sýningar þeirra Tolla
og Hauks Dórs. Það má teljast þrekvirki að breyta
húsnæði sem þessu í vel boðlega sýningarsah á aðeins
örfáum mánuöum. Og ekki spillir að hafa Varmána
niðandi fyrir utan. Þar virðist upplagt að hafa sölutorg
eða aðstööu fyrir smáverkstæði. Reyndar er komið
þarna eitt glerverkstæði. Hvað sem annars á eftir að
Tolli og Haukur Dór láta fara vel um sig i gömlu
Álafossverksmiðjunni i Mosfellsbæ með listaverk í
forgrunni og bakgrunni. DV-mynd BG
Ólafur Engilbertsson
um kvóta samt sem áður. Tolli hefur gert víðreist á
undanfórnum árum; sýnt t.a.m. í Kóreu, víða á Norð-
urlöndum, á Neskaupstað og á ísafirði. Þegar hann
hefur nú gert sér áningarstað í Mosfellssveitinni er
e.t.v. rétti tíminn til að líta yfir sviðið. Þegar vel er
að gáð má sjá að tveggja ólíkra en þó ekki ósættan-
legra tilhneiginga gætir hjá Tolla; hann málar annars
vegar hraðar myndir og hins vegar kyrrar. Hröðu
myndirnar eru gjarnan tengdar sjónum og hinum
óhömdu náttúruöílum s.s. Hratt flýgur stund, í stríð-
um straumi og Fuglinn í fjörunni. Sumar þessara olíu-
mynda á striga nálgast ískyggilega óhlutbundna múr-
inn og sverja sig núorðið næstum í ætt við Svavar (t.d.
Sagnanökkvinn). Kyrru myndirnar eru fremur tengd-
ar sveitalífinu; s.s. Upphaf sögunnar og Undir jökul-
himni. Þar er teikningin stærri þáttur sem og ævintýr-
ið - sagan. Þessi síðarnefndi þáttur er líklega nýrri í
list Tolla - gæti þó sem best verið uppvakningur. 01-
íukrítarmyndirnar og þrykkin eru svo annar hand-
leggur og virka fremur sem æfingar á undirritaðan.
Tættogtogað
Haukur Dór hefur breytilegri sýningu sem ber meiri
svip vinnustofusýningar en sú á neðri hæðinni. Þegar
undirritaðan bar að garði var mikið af steinprentum
á borðum auk olíumálverka á veggjum salarins. Ýms-
ir munir ættaðir frá Afríku juku og á helgi staðarins.
Fólkið hans Hauks er enn sem fyrr tætt og togað og
oft ekki heiglum hent að gera sér grein fyrir hvort
þarna sé um persónur að ræða eður ei. En í því er
e.t.v. galdur Hauks Dórs fólginn; teikningin er þunga-
miðjan og þanþol líkamans á léreftinu. Stundum fer
listamaðurinn kannski óþarflega mikið út í fingraæf-
ingar á kostnað innihalds en í heildina má segja að
um skemmtilega þróun sé að ræða. Steinprentin þóttu
mér þó sannast að segja forvitnilegust. Má vera vegna
þess að þar nýtur handverksmaðurinn og teiknarinn
Haukur Dór sín til fullnustu. Þar hefur hann tækni
til að sigrast á - rétt eins og persónurnar sem hann
málar.
Nú fara að verða síðustu forvöð aö líta á þessar sýn-
ingar - þeim lýkur nk. sunnudag. En vonandi getum
við haldiö áfram að fylgjast með framgangi listanna
við 'farmá.
Andlát
Kristján Steingrímsson, fyrrverandi
bifreiðarstjóri, áður Álfaskeiði 40,
Hafnarfirði, lést 15. október á hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi.
Kolbeinn ögmundsson, Reykjavík-
urvegi 50, Hafnarfirði, lést á Land-
spítalanum þann 14. október.
Kolbrún Ámundadóttir lést 13. okt-
óber.
Jarðarfarir
Ragnar Arnar Hjaltason, Skála, Fær-
eyjum, sem lést 9. október sl., var
jarðsettur 13. þessa mánaðar.
Benedikt Bjarnason, fyrrverandi
vörubílstjóri og starfsmaður Borgar-
spítalans, Háaleitisbraut 39, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 17, október kl. 13.30.
Jóhannes Guðmundsson vélstjóri,
Heiðarási 10, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 17. október kl. 15.
Pálmi Helgi Ágústsson kennari,
Hringbraut 69, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Hafnarfj arðarkirkj u
fimmtudaginn 17. október kl. 13.30.
Elín Klara Valdimarsdóttir Bender
verður jarðsett frá Fossvogskapellu
í dag, 16. október, kl. 13.30.
r
i na»ta soluslna • Askriftarslmi 62-60-10
Tilkyrmiiigar
Veiðimenn
Þar sem veiöitimi á rjúpu hófst 15. októ-
ber telur Náttúruvemdarráö nauösyn-
legt að minna veiöimenn á að veiðar em
bannaöar á eftirtöldum friðlýstum svæö-'
um: Þjóðgarðar: Jökulsárgljúfur, Skafta-
fell og Þingvelbr. Friðlönd: Herdísarvík,
Herðubreiðarfriöland, . Hornstrandir,
Hvannaiindir, Kringilsárrani, Þjórsáver,
Búðahraun, Flatey, Geitland, Húsafell-
skógur, Lónsöræfi og Vatnsfjörður. Fólk-
vangar: Fólkvangur Neskaupstaðar,
Hólmanes. Veiðimenn em hvattir til að
virða lög um fuglaveiðar og fuglafriðun
svo og reglur friðlýstra svæða.
Fræðslukvöld í Bústaðakirkju
Fimmtudaginn 17. október veröur
fræðslukvöld í Bústaðakirkju kl. 20.30 á
vegum Reykjavíkurprófastsdæmis
vestra. Fyrirlesari: Sr. Heimir Steinsson
útvarpsstjóri. Flutt verður létt og góð
tónlist undir stjóm Guðna Þ. Guðmunds-
sonar. Eftir stundina í kirkjunni verður
molasopi í safnaðarbeimilinu og þar gefst
tækifæri á að koma með fyrirspurnir til
fyrirlesarans. Efni kvöldsins er: Sérkenni
kristinnar trúar.
Félag eldri borgara
Félagið fyrirhugar ferð á Selfoss 26. okt-
óber. Upplýsingar á skrifstofunni.
Djasskvöld á Hótel Sögu
Fimmtudagskvöldið 17. október verður
djasskvöld á Hótel Sögu. Fyrst í Skrúði
frá kl. 22-23 og síðan á Mímisbar frá kl.
23-0.30. Djasskvartett Jónasar Þóris leik-
ur, hann skipa Stefán S. Stefánsson á
saxófón, Gunnar Hrafnsson kontrabassi,
Einar Valur Scheving trommur og Jónas
Þórir á píanó. Einsöngvari verður James
Olsen. Flutt verða létt og gömul djasslög
eftir Ellington, Jón Múla og fleiri.
Erindi um beitarrannsóknir
Fimmtudaginn 17. októberkl. lOf.h. held-
ur Dr. Robert W. Mayes erindi i fundar-
sal Rannsóknarstofnunar landbúnaðar-
ins á Keldnaholti sem hann nefnir „The
use of synthetic and plant wax hydrocar-
bons in nutritional and grazing studies".
Erindið verður á ensku. Dr. Robert W.
Mayes starfar við Macaulay Land Use
Research Institute í Skotlandi. Hann er
þekktur víða um heim vegna rannsókna
sinna á aðferðafræði við næringafræði
og beititilraunir. Allt áhugafólk er vel-
komið á fyrirlesturinn.
Bridge
Bridgefélag Sauðárkróks
Nú er lokiö barómeterkeppni félags-
ins. Efstu pör uröu:
1. Ólafur Jónsson -
Steinar Jónsson.............81 stig.
2. Kristján Blöndal -
Gunnar Þórðarson......60 stig.
3. Jónas Birgisson -
Jón S. Tryggvason...........35 stig.
4. Sigurgeir Angantýss. -
Birgir Rafnsson.............27 stig.
Næsta mánudagskvöld veröur spil-
aður eins kvölds tvímenningur með
forgjöf.
Námskeið
Námskeið um fjölskylduna
Norski fjölskylduráðgjafinn Eivind Frö-
en dvelur hér á landi þessa dagana og
kennir á námskeiðum um hjónabandið á
vegum Fjölskyldufræðslunnar. Hann
hefur komið margoft til íslands og m.a.
Myndgáta
Myndgátan hér að ofan
lýsir athöfn.
Lausngátu nr. 155:
Prófsteinn
kennt á slíkum námskeiðum, bæði í
Reykjavík og úti á landi. Hér er um
tveggja kvölda námskeið að ræða, þrjá
fyrirlestra hvort kvöld. Aðalefnið er um
samskipti hjóna og er í því sambandi fjall-
að um tjáskipti, að mæta þörfum hvort
annars, kynlifið o.fl. Kennslan fer fram
á norsku en er túlkuð jafnóðum á ís-
lensku. Næstu námskeiö verða 16.-17.
okt. í Slysavarnahúsinu á Eskifirði og 21.
og 22. okt. í safnaðarsal Bústaðakirkju í
Reykjavík. Námskeiðsgjald er kr. 1500 á
mann og eru veitingar innifaldar. Skrán-
ing á námskeiðið í Reykjavík fer fram í
Bústaðakirkju í sima 37801, á skrifstofu
Kristilegs félags heilbrigðisstétta í síma
14327 og á skrifstofu Fjölskyldufræðsl-
unnar, Bergstaðastræti lOa, í síma 27460.
Tóiúeikar
Afrísk tónlist
á Hótel íslandi
Manu Dibango & Soul Makossa Gang
koma fram á tónleikum á Hótel íslandi í
kvöld, 16. október. Manu Dibango hefur
skapað sér nafn sem leiðandi Ustamaður
í afrískri tónhstarsögu. Ásamt Miriam
Makeba (S-Afríku) og Fela Kuti (Nígeríu)
hefur Mau Dibango verið brautryöjandi
í kynningu afrískrar tónhstar fyrir popp
og djassheimi Vesturianda. Þar koma
einnig fram Kvartett Sigurðar Flosason-
ar og hinn íslenski rímnasmiður Svein-
bjöm Beinteinsson aUsheriargoði.
Inferno 5
áTveimur vinum
í kvöld, fimmtudagskvöld, verða tónleik-
ar með Infemo 5 á Tveimur vinum.
Hljómsveitina skipa; Ómar Stefánsson,
Indriði Einarsson, Öm Ingólfs, Jóhann
Richards, Oskar Thorarensen og Guðjón
Rudolf. Hljómsveitin flytur eigið efni og
öll umgjörð tónleikanna er sérstök og
má þar nefna kvikmyndir og slidesmynd-
ir sem er varpað á sviðiö á meðan tónleik-
arnir standa.
Lifandi músík
á N 1 bar ---- —
Opið í kvöld, fimmtudagskvöld. Happy
hour milli kl. 19 og 21. Pétur úr Bless
syngur og hljómsveitin Út úr blánum
kemur fram.
Fundir
ITC deildin Gerður
Fundur í kvöld, miðvikudag, kl. 20.30 í
Kirkjuhvoli, Garðabæ. Gestir velkomnir.
Upplýsingar gefur Edda í síma 656764.
ITCdeildin Korpa,
Mosfellsbæ,
heldur fund í Safnaðarheimilinu i kvöld
kl. 20 stundvíslega. Fluttar verða kynn-
ingarræður nýrra aðila. Nánari upplýs-
ingar gefa: Helga, s. 666457, og Fanney,
S. 679328.
Digranesprestakall
Kirkufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu, Bjamhólastíg 26, fimmtudag-
inn 17. október kl. 20.30. Sumarferðalagið
rifjað upp og María Einarsdóttir sýnir
myndir frá Róm. Kafiiveitingar. Fundin-
um lýkur á helgistund.
Rannsóknarstofa í
kvennafræðum
Háskóla íslands
í dag 16. október mun Unnur Dís Skapta-
dóttir ræða um rannsóknir sínar á kon-
um í sjávarþorpum á hádegisverðarfundi
í Odda, stofu 202, kl. 12-13. Allt áhugafólk
um kvennarannsóknir velkomið.
Tapaðfundið
Töskur týndust við
Kleifarvatn
Tvær töskur hurfu við Kleifarvatn
mánudaginn 14. október sl. um ki. 18. í
töskunum var dúnúlpa og skór. Þeir sem
geta gefið upplýsingar, vinsamlegast
hringi í síma 91-46816 eða hafi samband
við Lögregluna í Hafnarfirði.
Plastskúffa af
pickup tapaðist
Svört plastskúfia af pickup bíl tapaðist á
miðvikudaginn sl. á leið frá Laugarási í
Garðabæ. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 656300.