Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1991, Page 32
Frjálst,óháð dagblað
Fyrsti skiptafundurmn:
Kröf ur í íslax hf.
nema nú
230milljónum
Lýstar kröí'ur í fiskeldisstööina aö selja fasteignir þess á uppboði. Hvaö varöar stööina á Nauteyrí þá
íslax hf. neraa nú saratals 230 millj- Er stefnt að þvi að ljúka þeirri sölu varð hún fyrir miklum skemmdum
ónum króna. Byggöastofnun er fyrir áramóL í óveöri á dögunum þannig að um
stærsti kröfuhafmn með 120 millj- Nokkrir þeirra athafnamanna á 40 tonn af fiski sluppu. Ból sf. hefur
ónir. Næststærsti kröfuhafinn er Vestíjörðum sem áttu íslax hf. þástöðáleiguframaðáramótum.
Landsbankinn með rúmar 50 millj- stofhuðu nýtt fyrirtæki, Ból sf. Þaö Forgangskröfur í þrotabúið nema
ónir króna. keypti allan fiskinn af þrotabúinu. um 7 milljónum króna. Sagði
Fyrsti skiptafundur þrotabúsins Síðan tók Ból sf. aðstöðu þess á Sveinn að lítiö sem ekkert fengist
var haldinn í gær. Að sögn Sveins Nauteyrí og Reykjanesi á leigu. upp í þær þar sem allar eignirnar
Sveinssonar bústjóra var gengið Leigusamningurinn er þegar runn- væru veðsettar. Sama máh gegndi
frá öllum kröfum i þrotabúið á inn út á stöðinni í Reykjanesi og um fiskinn og hefði Landsbankinn
fundinum. Næsta skrefið verður hefur öllum fiski þar verið slátrað. áttveðréttinníhonum. -JSS
0RU66IR-ALV0RU
m
PENIN6ASKAPAR
VARI - ÖRYGGISVÖRUR
_ ® 91-29399
Allan sólarhringinn
ÖryggisþjónLJsta
¥ARI síðon 1969
Skák:
Margeir tef I-
irfyrir
Akureyringa
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri:
Margeir Pétursson, stórmeistari í
skák, hefur sagt sig úr Taflfélagi
Reykjavíkur og ákveðið að tefla fyrir
Skákfélag Akureyrar.
„Ég sagði mig úr Taflfélagi Reykja-
víkur vegna óánægju með ýmsa hluti
þar sem ég nenni ekki að ræða. Ég
hef átt ágæt samskipti við skákfélag-
ið á Akureyri, mér líst vel á það félag
og að leggja því lið,“ sagði Margeir í
samtali við DV.
Deildakeppnin í skák hefst um
næstu helgi og Margeir mun að sjálf-
sögðu tefla á l.-borði fyrir Akur-
eyrarsveitina í þeirri keppni.
Skútan á Atlantshafi:
Ekkert heyrst
frá Nakka enn
Ekkert hefur heyrst frá Bergþóri
Hávarðarsyni sem lagði upp á skútu
sinni, Nakka, frá Flórída til íslands
þann 1. september. Landhelgisgæsl-
an hefur spurst fyrir um skútuna hjá
strandstöðvum í Halifax og á Azor-
eyjum en þar kannast menn ekki við
að hafa heyrt í henni. Þaðan verður
hins vegar látið vita þegar og ef skút-
úsjómannsins verður vart.
Éins og fram hefur komið í DV er
Bergþór einsamall um borð og áætl-
aði að vera 40 daga á leiðinni. Hins
vegar er talið að ferð hans á skút-
unni geti tekið mun lengri tíma, sér-
staklega vegna þess að hann er al-
einn. Hann er hins vegar þaulvanur
siglingum af þessu tæi. Skútan hefur
vistir til næstu mánaðamóta. VHF
talstöð Nakka dregur úm 30-50 míl-
ur. -ÓTT
Haldlagtá
bruggtæki
Lögreglan í Reykjavík lagði hald á
eimingartæki á heimili við Hverfis-
götu í gær. Lögreglumenn voru aö
hafa afskipti af drengjum sem voru
að príla inn um glugga í húsinu þeg-
ar þau fundust.
Bruggtækin fundust innandyra og
var lagt hald á þau. Rannsóknardeild
lögreglunnar á eftir að yfirheyra
húsráðandann sem ekki var heima
þegar tækin voru tekin. Ekki voru
ummerki um að bruggframleiðsla
færi fram í húsinu þar sem tækin
fundust. Hins vegar er óljóst í hvaða
tilgangi tækin voru í húsinu. -ÓTT
Togaðurundan
bekk í kvenna-
klefanum
Baðvörður í íþróttahúsi Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti tognaði
illa þegar hann var að toga ungan
pilt undan bekk í kvennaklefanum í
vikunni.
Málsatvik voru þau að strákur
hafði falið sig undir bekknum en
vöröurinn, sem er kona, kom auga á
hann. Vildi hún ijarlægja hann úr
kvennaklefanum en tognaði í stimp-
ingunum. Til öryggis var farið með
baðvörðinn á slysadeild, þar sem
meiðslin voru athuguð. Reyndust
þau ekki alvarlegs eðlis. Viðkomandi
starfsmaður gat því haldið áfram
störfum eins og ekkert hefði í skorist.
Að sögn kunnugra vill það brenna
við að strákar laumist inn í kvenna-
klefann og feli sig undir bekkjum
þar. Eftir atvikið um daginn hefur
verið ákveðið að taka harðar á þess-
um málum heldur en gert hefur ver-
iðtilþessa. -JSS
Atlantslax:
Gjaldþrota-
beiðni frestað
Skiptaráðandi í Keflavík frestaði í
gær afgreiðslu gjaldþrotabeiðni
vegna fiskeldisfyrirtækisins Atlants-
lax til 28. október. Samþykktu beið-
endur að afgreiðslu málsins yrði
frestað þar sem forráðamenn Atl-
antslax segja norskt fjármagn vera á
leið inn í stöðina. Stærstu kröfuhafar
eru Landsbankinn og Framkvæmda-
sjóður. Heildarskuldir fyrirtækisins
munu vera um 350 milljónir króna.
Fógeti hefur farið fram á úrbætur
á umhirðu og fóðrun laxa í kerum
Atlantslax. Skoðun héraðsdýralækn-
is leiddi í ljós að laxarnir voru mjög
horaðir og mögulega sýktir af kýla-
veiki. Hefur dýralæknir sent lögregi-
unni í Grindavík bréf með niðurstöð-
um skoðana sinna og umsögn en
bréfið hafði ekki borist lögreglu þeg-
arDVfóríprentun. -hlh
Akureyri:
Veturinn kominn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Glerhálka og fjúk var á götum
Akureyrar í morgun. Bifreiðaeigend-
um er ekki heimilt að skipta yfir á
vetrardekk fyrr en um næstu mán-
aðamót og áttuþví margir í erfiðleik-
um með að kómast leiðar sinnar.
Ekki munu þó hafa orðið nein alvar-
leg umferðaróhöpp. Fært er fyrir vel
útbúna bíla í nágrenni bæjarins.
Kalt er á Akureyri, norðanátt og
frost. Spáð er versnandi veðri og of-
ankomu.
Veðrið á morgun:
Kaltog
hvasst
Á morgun verður norðanátt á
landinu, mjög hvöss austantil en
vestantil íægir smám saman.
Snjókoma eða éljagangur verður
um norðaustanvert landið, einnig
él víða vestantil á Norðurlandi
og norðantil á Vestfjörðum. Bjart
veður að mestu suðvestanlands.
Kalt verður áfram, kaldast á
Vestfjörðum og Norðurlandi en
hlýjast á suðausturhorninu.
LOKI
Þessi gutti er líklega
á náttúrubraut!
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur var brosmildur þegar hann kvaddi í gærkvöldi og hélt á rann-
sóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni til loðnumælinga. Nú er fullur þungi kominn í loðnuleitina og
mælingarnar. Bæði rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar eru við mælingar og fjögur veiðiskip
hafa verið við loðnuleit. DV-mynd GVA
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn
Áskrift - Dreifing: Sími 27022