Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1991, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1991.
19
Dansstaðir
Apríl
Hafnarstræti 5
Lifandi tónlist um helgar.
Ártún
Vagnhöfða 11, sími 685090
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar ásamt
Hjördísi Geirsdóttur söngkonu leikur
fyrir dansi fóstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Þorvaldur Hall-
dórsson skemmtir á föstudagskvöld
og Örvar Kristjánsson á sunnudags-
kvöld.
Café Jensen
Þönglabakka 6, sími 78060
Lifandi tónlist flmmtudaga til sunnu-
daga. Þórarinn Gíslason leikur á
píanó.
Casablanca
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöid.
Dans-barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Hljómsveitin Mannakorn leikur fyrir
dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Sérstakur gestur helgarinnar verður
Megas.
Danshúsið Glæsibæ
Álfheimum, s. 686220
Dansleikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu, Hafnarfirði
Hljómsveitin Galíieó leikur fyrir
dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Furstinn
Skipholti 37, sími 39570
Lifandi tónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Garðakráin
Garðatorgi, Garðabæ
Hljómsveitin Bandamenn leikur fyrir
dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveitina skipa Gunnar Jónsson
og Ómar Hlynsson.
Gikkurinn
Ármúla 7, simi 681661
Guðmundur Haukur leikur föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Hótel Borg
Pósthússtræti 11, sími 14440
Dansleikur í kvöld, Kiddi Bigfoot í
búrinu.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Aftur til fortíðar - íslenskir tónar í
30 ár nefnist ný söngskemmtun á
Hótel íslandi. Aö skemmtuninni lok-
inni leikur hljómsveitin Upplyfting
fyrir dansi.
Hótel Saga
Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir
dansi. Skemmtidagskráin Nætur-
vaktin á laugardagskvöld.
Klúbburinn
Borgartúni 32, s. 624588 og 624533 '
Fjólublái fillinn í kjallara er öðruvísi
krá með bíói þar sem sýndar eru
gamlar kvikmyndir. Lifandi tónlist
um helgar.
L.A. Café
Laugavegi 45, s. 626120
Diskótek föstudags- og lapgardags-
kvöld. Hátt aldurstakmark.
Moulin Rouge
Diskótek á föstudags- og laugardags-
kvöld.
Naustkráin
Vesturgötu 6-8
Opiö um helgina.
Nillabar
Strandgötu, Hafnarfirði
Klang og Kompaní skemmta um helg-
ina.
Staðið á öndinni
Tryggvagötu
Klang og kompani leika í kvöld og
hljómsveitin Blautir dropar á laugar-
dagskvöld.
Tveir vinir og annar í fríi
Laugavegi 45
Sniglabandið leikur í kvöld og á laug-
ardagskvöld skemmtir hljómsveitin
Ber að ofan.
Ölkjallarinn,
Pósthússtræti
Hljómsveitin Tvennir tímar leikur á
föstudags- og laugardagskvöld. Á
sunnudags- og mánudagskvöld verð-
ur það trúbadorinn Siggi Bjöms sem
skemmtir gestum.
Ráin
Keflavík
Um helgina leikur hljómsveitin Sin
fyrir dansi á neðri hæðinni, á efri
hæð mun Guðmundur Rúnar Lúö-
víksson koma kráargestum í rétta
stemmningu.
Púlsinn:
Fjölmiðlablúsaraeinvígið á Púls-
inum heldur áfram um helgina
undir handleiðslu Blúsmanna
Andreu sem leika bæði kvöldin.
Stöð 2 tók áskorun DV með stíl og
sendi 8 manna blúshljómsveit,
Blátt áfram, sem sinn fulltrúa og
sló í gegn.
Stöðin skoraði á Sjónvarpið en
ekki er enn vitað hverju þeir sjón-
varpsmenn tefla fram. Að venju er
von á fleiri gestum á sviðið með
Blúsmönnum Andreu.
Sérstakur gestur veröur Leo
Gillespie, farandsöngvari og ljóð-
og tónskáld. Hann kemur fram
klukkan 23 bæði kvöldin og fram-
koma hans þykir sérstök því hann
gengur um á meðal fólks í salnum
meðan á flutningi stendur og þykir
ná mikilli og góðri stemningu.
Fjölmiðlablúsaraeinvígið heldur áfram á Púlsinum um helgina. Um síðustu helgi sendi Stöð 2 átta manna
blúshljómsveit sem síðan skoraði á Sjónvarpið. Það er þá bara að mæta og sjá hverjum Sjónvarpið teflir fram.
„Ef ég ætti fleiri stundir..mun
Stefán Hilmarsson, söngvari Sál-
arinnar, syngja á Hótel Akranesi á
laugardagskvöld.
Sálin á
Akranesi
„Ef ég ætti
fleiri stundir, fleiri mínútur
fleiri orð, fleiri nætur
fyrir þig“
Þetta er textabrot úr laginu Ekk-
ert breytir því af væntanlegri plötu
Sálarinnar hans Jóns míns en
hljómsveitin leikur á Hótel Akra-
nesi laugardagskvöldið 19. október
og það er ekkert sem breytir því.
Gaukur á Stöng:
Rokk-
sveit
íslands
Hin margumtalaða skemmti-
sveit, Rokksveit íslands, skemmtir
gestum á Gauki á Stöng alla helg-
ina. Sveitin þarf ekki nánari kynn-
ingar við, svo viðfræg ætti hún að
vera. Það verður stanslaust fjör í
kvöld, laugardagskvöld, og sunnu-
dagskvöld á Gauknum.
Hótel Borg:
R.M.F.
skemmtir
Á Hótel Borg mun á laugardags-
kvöld stíga á svið í danssalnum
ungur tónhstarmaður sem valið
hefur sér listanafnið R.M.F. Feat-
uring Mind Effect og mun flytja
nokkur lög á hljóðgervla í anda
danstónlistarinnar sem nú tröllríð-
ur flestum næturklúbbum úti í hin-
um stóra heimi. Að því loknu mun
plötusnúðurinn Kiddi „Big Foot“
halda uppi stuðinu eins og honum
er einum lagið.
Kringlan:
Breskir dagar
Breskir dagar hófust í Kringl-
unni í gær og standa fram til 26.
október. Mikil kynning á breskri
vöru og þjónustu verður þessa daga
en að þeim standa iðnaðar- og
verslunarráðuneyti Bretlands,
breska sendiráðið og fyrirtæki í
Kringlunni. Af þessu tilefni eru
komnir til landsins nokkrir breskir
skemmtikraftar sem verða með
ýmsar uppákomur.
Mikið verður um að vera í dag
og á morgun í Kringlunni. Klukkan
14 í dag verður tískusýning þar sem
8 þekktir breskir hönnuðir sýna
nýjustu tískuhönnun sína. Og
klukkan 16 verður tískusýning í
Hagkaupi.
Á morgun, laugardag, hefst dag-
skráin klukkan 10.30 og verður yfir
daginn með hléum. John-Arno-one
man band, The Mighty Gareth-
galdrar og fleiria. Alfie Howard -
Town Crier, Erik Rees verður með
rithandarlestur, Margaret Evans-
gerð postuínsblóma og fleira
skemmtilegt verður í boði. Klukk-
an 11 verður tískusýning 8 þekktra
hönnuða og klukkan 14 verður
tiskusýning í Hagkaupi.
Loöin rotta ætlar að skemmta á 1929 á Akureyri um helgina.
Rottan
ál929
Farand- og gleðisveitin Loðin
rotta leikur í veitingahúsinu 1929 á
Akureyri um helgina. Ýmsar uppá-
komur verða, svo sem undirfata-
sýning á laugardagskvöld. Valdir
verða kynþokkafyllstu gestirnir og
þeir verðlaunaðir. Einnig gefst
gestum kostur á að syngja óskalög
sín með hljómsveitinni.
Hljómsveitina skipa þeir félagar,
Hajldór G. Hauksson frá Auðnum
i Oxnadal, Sigurður Gröndal úr
Svefneyjum, Bjarni Bragi Kjart-
ansson frá Kumbaravogi, Ingólfur
Guðjónsson frá Vogi og hinn anná-
laði gleðimaður, Jóhannes Eiðsson
frá Dvergastöðum á Fellsströnd.
Hljóðmaöur Rottunnar í 1929 verð-
ur hinn síhrapandi Gunnar Sigur-
björnsson. Bílstjóri Rottunnar er
hinn próflausi tölvuamatör Matti
Waagfjord. -
Eldfuglirm áfram æðir
Hljómsveitin Eldfuglinn mun á komandi
helgi halda áfram yfirferð sinni um land-
ið. I kvöld verður sveitin á skóladansleik
í félagsheimilinu Árnesi og mun þar leika
fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands. Á laug-
ardagskvöldið 19. október verður hljóm-
sveitin með dansleik í félagsheimilinu
Festi í Grindavík. Aðgangur er öllum
heimill sem náð hafa 18 ára aldri. Eldfugl-
inn skipa eftirtaldir öndvegismenn: Karl
Örvarsson syngur, Grétar Örvarsson
syngur og leikur á hljómborð, Þórður
Guðmundsson á bassa. Hafþór Guð-
mundsson á trommur og Sigurgeir Sig-
mundsson á gítar.
Hljómsveitin mun á ofangreindum dan-
sleikjum kynna lög af sólóplötu Karls Örv-
arssonar sem kemur út á næstunni, ásamt
þekktum lögum eftir Grétar bróöur hans,
en aðaluppistaðan í dagskránni er þekkt
stuðlög úr ýmsum áttum.
Eldfuglinn verður í Arnesi og i Grindavík um helgina.