Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1991, Síða 6
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1991.
Andrew Strong leikur söngvarann i The Commitments. Hann er hér umvafinn aðdáendum.
Háskólabíó -The Commitments:
Hljómsveit verður til
- fjórar breskar kvikmyndir í tilefni breskra daga
Regnboginn:
Myndir á kvikmynda
hátíð sýndar áfram
Háskólabíó frumsýnir í dag nýj-
ustu kvikmynd Alan Parkers, The
Commitments, sem hefur vakið
mikla athygli að undanfórnu þar
sem hún er sýnd. Fjallar myndin
um ungan mann sem búsettur er í
Dublin. Hann ákveður að auglýsa
eftir hljóðfæraleikurum og búa til
hljómsveit sem hann yrði umboðs-
maður fyrir. Þetta á ekki að vera
nein venjuleg rokksveit heldur
hljómsveit sem eingöngu á aö leika
soultónlist. Úr skrautlegum hópi
velur hann nokkra ólíka einstakl-
inga, hljóðfæraleikara, söngvara
og stúlkur til að syngja bakraddir.
Það gengur á ýmsu meðan á æf-
ingum stendur, hljómsveitarmeð-
limirnir eru mjög ólíkir og hafa
fyrirlitningu hvor á öðrum. Um-
boðsmaðurinn ungi ásamt þeim
elsta í hljómsveitinni, trompetleik-
aranum Joey „The Lips“ Fagan ná
þó að halda æsingnum niðri og
þegar sveitin nær loks saman slær
hún í gegn en þrautin er erfið að
halda bandinu saman...
Alan Parker er enginn nýliði í
gerð tónlistarmynda. Fyrsta kvik-
myndin sem hann leikstýrði var
hin stórskemmtilega Bugsy Mal-
one sem byggðist að mestu upp á
sungríum lögum og voru það
krakkar í fullorðinsgervum sem
léku aðaðlhlutverkin. Aðalkven-
hlutverkið í þeirri mynd lék Jodie
Foster, þá tólf ára gömul. Næsta
tónlistarmynd hans var svo Fame
sem fjallaði um tónlistarskólanem-
endur og byggðist mikið upp á
dansi og söng. Var síðar gerð vin-
sæl sjónvarpsþáttasería eftir
myndinni. Átta ár eru svo síðan
hann gerði síðast tónlistarmynd,
var það eftir hinu fræga verki Pink
Floyds, The Wall, sem sumir viija
kalla lengsta rokkmyndband sem
gert hefur verið. Þessar þrjár
myndir eru allar mjög ólíkar og
The Commitments er ekki heldur
lík neinni fyrrnefndri mynd og á
fátt sameiginlegt með þeim nema
tónlistina.
Nú stendur yfir kynning í Kringl-
unni á breskum vörum og nefnist
kynningin í þjónustu hennar há-
tignar. I tilefni kynningar þessarar
sýnir Háskólabíó fjórar þekktar
breskar kvikmyndir sem allar eru
komnar til ára sinna. Ein mynd-
annar er James Bond myndin sem
heitir einmitt í þjónustu liennar
hátignar. Fyrir utan að vera hin
sæmilegasta skemmtun er þessi
mynd merkileg að því leytinu til
að James Bond leikur George Laz-
enby sem átti að taka við af Sean
Connery, en framleiðendur voru
eitthvað óánægðir með hann og
fékk hann ekki annað tækifæri.
Áfram myndirnar voru með allra
vinsælustu kvikmyndum hér á
landi um langt árabil og mun Há-
skólabíó sýna eina þeirra, Áfram
læknir. 39 þrep er endurgerð enn
eldri kvikmyndar sem Alfred Hitc-
hcock leikstýrði meðan hann var
enn búsettur í Englandi og Rauðu
skórnir er ein þekktasta kvikmynd
sem Bretar gerðu á eftirstríösárun-
um. -HK
Nú er kvikmyndahátíðinni lokið
en kvikmyndaveislan heldur
áfram. Regnboginn mun á næstu
mánuðum sína áfram nokkrar þær
myndir sem þar voru sýndar og eru
þær allar með íslenskum texta.
Þessar myndir eru Henry: nær-
mynd af fjöldamorðingja, Hetjudáð
Daníels, Góði tannhirðirinn, Vegur
vonar, Ó Carmela, Of falleg fyrir
þig, Launráð og Homo faber. Þegar
eru hafnar sýningar á nokkrum
þessara mynda og meðal annars á
Henry: nærmynd af morðingja sern
var sú kvikmynd sem vakti kvað
mesta athygli á hátíðinni.
Henry er mjög umdeild kvik-
mynd og á hún sér langa sögu. leik-
stjórinn, John McNaughton, byrj-
aði á myndinni 1985 en var lengi
að klára hana og.hún fékkst ekki
sýnd fyrr en 1990. Myndin lýsir
hlutlaust og af mikilli nákvæmni
lífsstíl fjöldamorðingja og byggir
hún á sönnum atburðum sem áttu
sér stað í Texas. Henry er kaldrifj-
aður, sjúkur morðingi sem velur
saklaus fómarlömb af handahófi.
Þess má geta að myndin verður
aðeins sýnd á 9 og 11 sýningum að
tilmælum Kvikmyndaeftirlits rík-
isins og er að sjálfsögðu bönnuð
innan 16 ára.
Kötturinn Felix
í Regnboganum eru einnig hafn-
ar sýningar á fyrstu teiknimynd-
inni í fullri lengd um köttinn Felix
sem allir ættu að kannast við. Sag-
an gerist í konungsríkinu Oriana
sem ekki er í okkar heimi. Þar er
allt úr gulli. En það er ekki allt
gott í Oriana þrátt fyrir það. Prins-
essan er ofsótt af vondum frænda
sínum sem er hugvitsmaður mikill
sem hefur það markmið að iðn-
væða konungsríkið. Þessar fyrir-
ætlanir eru konunginum kunnar
og hefur hann sent hertogann í
útlegð. Hertoginn hyggur á hefndir,
en áður en það gerist nær prinsess-
an að senda boð til okkar heims
um aðstoð og það er enginn annar
enFelixsemsinnirkallinu. -HK
Fjöldamorðinginn Henry er leikinn af Michael Rooker.
r r
BÍÓBORGIN
Hvað með Bob? ★★ 'A
Ansi skemmtileg gamanmynd. Sál-
fræðingurinn Dreyfuss fer yfir um
á taugahrúgunni Murray (frábær).
Ein fyndnasta á árinu þótt hún
gángi of langt (eins og viö mátti
búast). -GE
Komdu með i sæluna ★★
Góð ástarsaga til að byija með milli
Quaid og hinnar japönsku Tomlita
en dofnar eftir að öllum er hent í
fangelsi. Parker veldur vonbrigð-
um. -GE
Að leiðarlokum ★★'A
Átakanleg og fróðleg um samband
krabbameinssjúklings viö hjúkr-
unarkonu sína. Campell Scott sýnir
góöanleik. -ÍS
Á flótta ★★
Einfaldur, langur og þokkalega
spennandi eltingaleikur. Patric
Dempsey er kattliðugur. -GE
BÍÓHÖLLIN
Þrumugnýr. **★
Kathryn Bigelow er kraftmikill
kvenleikstjóri og knýr myndina
áfram á karlhormónum og adrena-
lini. Tæknileg fagmennska kaffær-
ir sögugallana. -GE
Brúðkaupsbasl ★★
Róleg gamanmynd í anda Alans
Alda en Anthony LaPaglia stelur
myndinni sem ungur ofurkurteis
mafíósi. -GE
í sálarfjötrum ★★’/i
Drungalegt ferðalag um hugar-
fylgsni Jacobs. Torskilin (þar til í
bláendann) en heldur athyglinni
allaleið. -GE
Oscar ★★ 'A
Bráðskemmtilegur leikhúsfarsi
þar sem vöðvabúntiö Sylvester
Stallonesýnirásérnýjahlið. -ÍS
Hörkuskyttan ★
Sagan er ferlega langdregin og
innihaldsiítil en gerist í yndisfógru
landslagi. -GE
Rakettumaðurinn ★★ 'A
Ævintýri upp á gamla mátann með
nýtísku tæknibrellum. Hugmyndin
frábær og sagan skemmtileg en
dálítiðrýrþegarlíðurá. -GE
Aleinn heima ★★ 'A
Gamanmynd um ráðagóðan strák
sem kann svo sannarlega að taka
á móti innbrotsþjófum. Mjög fynd-
in í bestu atriðunum. Macaulay
Culkin er stjarna framtíðarinnar.
-HK
HÁSKÓLABÍÓ
Þar til þú komst ★ ’/i
Fallegt fólk á fógrum slóðum en
handritið varð eftir heima.
-GE
Fullkoraið vopn ★'A
Speakman er óþörf viðbót i bein-
brjótahópinn. Ofurhraði er eina
sérgrein hans.
-GE
Hamlet ★★★
Unnendur klassískra verka mega
ekki láta þessa uppfærslu Francos
Zefferelli fram hjá sér fara. Mel
Gibson sýnir á sér nýja hlið.
-ÍS
Alice ★★★
Woody Allen hefur gert betri mynd
en hann hefur einnig gert verri.
Alice er bæði raunsæ og fyndin í
frásögu sinni af ríkri eiginkonu í
New York sem er í leit að sjálfri sér.
-HK
Beint á ská 2 'A ★★ ‘4
Beint framhald af fyrri myndinni,
nær sér stundum á strik en sumir
brandararnir eru orðnir þreyttir.
-ÍS
Lömbin þagna ★★★★
Stórgóð sakamálmynd þar sem fer
saman mikil spenna og góður leik-
ur. Anthony Hopkins er ógleyman-
legur.
-HK
LAUGARÁSBÍÓ
Dauðakossinn ★★
Spennuþriller í anda Hitchcocks
gamla, góðir sprettir en brotaiamir
í lokin koma í veg fyrir að myndin
heppnist að fullu. Dearden er betri
handritshöfundur en leikstjóri.
-HK
HeiUagripur ★★
Úr ágætum efniviði um „vel stætt“
par, sem allt í einu verðurpeninga-
laust, hefur Michael Lindsay-Hogg
gert daufa gamanmynd. Aukaleik-
ararnir stela senunni frá þekktum
stjörnuleikurum. -HK
Uppí hjá Maddonnu ★★ ‘Z
Madonna kemur aödáendum sín-
um og öðrum á óvart á hljómleika-
ferðalagi um heiminn. Hispurslaus
afstaða hennar tU mála vekur
áhuga. -HK
Leikaralöggan ★★★
Góð blanda af spennu og gamni.
Slyngir leikarar bregðast ekki.
Pottþéttafþreying. -PÁ
REGNBOGINN
Draugagangur ★ '/i
Mikil læti, litiö gaman hjá fyrsta
flokks leikhópi og leikstjóra sem
hefurgertmunbetur. -GE
Næturvaktin ★ 'A
Oftast hefur tekist betur að kvik-
mynda eftir skáldsögu Stephens
King enda er efniviðurinn af skorn-
um skammti og leikur allur hinn
versti. -HK
Hrói höttur, prins þjófanna ★★
Kevin Costner er daufur. Sagan er
ójöfn en bardagaatriðin eru af-
bragð. -GE
Cyrano de Bererac ★★★
Gerard Depardieu er eins og hvirf-
ilbylur í aðalhlutverkinu. Magnað-
ur leikur í glæsilegri stórmynd.
-PÁ
Dansar við úlfa ★★★
Löng og faUeg kvikmynd um nátt-
úruvernd og útrýmíngu indíána.
Glæsileg frumraun Kevins Costn-
er. -PÁ
STJÖRNUBÍÓ
Tortímandinn ★★*
Áhættuatriðin eru frábær og
tækníbrellurnar ótrúlega góðar.
Bara að sagan og persónumar
hefðuveriðbeturskrifaðar. -GE
Hudson Hawk ★★ 'A
Geggjaður húmor og stórmynda-
bragur blandast ekki aUtaf vel sam-
an en flest er vel heppnað og Brúsi
erfyndinn. -GE
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir von-
brigðum meö nýjustu íslensku
kvikmyndina. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikil-
fenglegt landslag og góður leikur
biandast mannlegum söguþræðl
-HK