Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1991, Side 8
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1991.
Veðurhorfur næstu daga:
Tiltölulega hlýtt og bj art
veður víðast hvar
- samkvæmt spá Accu-Weather
Það er hreint ekki slæm spáin sem
veðurstofan Accu-Weather sendir frá
sér fyrir næstu daga. Um mestallt
landið verður nokkuð hlýtt og bjart
veður, alténd hlýrra en verið hefur
undanfarna daga þegar frostið hefur
bitið í kinnarnar og vindstigin fokið
upp skalann. Hitinn kemst hæst upp
í 12 stig en fer náttúrlega niður í 3
stig á nokkrum stöðum þegar líða
tekur á vikuna.
Suðvesturland
í Reykjavík verður hálfskýjað á
morgun og 10 stiga hiti og á sunnu-
dag 12 stiga hiti. Á mánudaginn verð-
ur mun skýjaðra og 10 stiga hiti sem
fer niður í 9 stig á þriðjudaginn. Og
á miðvikudag verður kominn 7 stiga
hiti og rigning.
Á Reykjanesi verður svipað veður
nema hvað það verður skýjað á
morgun, alskýjað á sunnudag og
rigning á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag. Hitastigið á bilinu 8-12
stig.
Vestfirðir
Á Galtarvita verður skýjað á morg-
un og 11 stiga hiti. Rigning á sunnu-
dag og sama hitastig. Rigningin held-
ur áfram á mánudag með 9 stiga hita
en á þriðjudaginn verður 7 stiga hiti
og alskýjað. Á miðvikudaginn verður
aftur kómin rigning og hitastigið
hrapar niður í 5 stig.
Norðurland
Á Akureyri verður hálfskýjað á
morgun og sunnudag og hitinn um 8
stig. Á mánudaginn verður orðið al-
skýjað og 7 stiga hiti og sama veður
verður á þriðjudag. Á miðvikudaginn
fer aftur á móti að snjóa og hitastigið
fer niður í 4 stig.
Austurland
Á Egilsstöðum verður hálfskýjað
veður með 7-9 stiga hita á morgun
og sunnudag. Á mánudaginn verður
farið að rigna og hitinn 7 stig og á
þriðjudag verður alskýjað. Miðviku-
dagurinn verður snjódagur eins og
víða annars staðar og hitinn verður
um 3 stig.
Á Hjarðamesi verður 10 stiga hiti
á morgun og hálfskýjað og sama veð-
ur á sunnudag. Það verður súld á
mánudaginn og alskýjað á þriðjudag
og 8 stiga hiti. Á miðvikudag verður
rigning og 6 stiga hiti.
Suðurland
Á Kirkjubæjarklaustri verður
skýjað og hálfskýjað á morgun og
sunnudag með 11 stiga hita. Súld
verður á mánudag, alskýjað á þriðju-
dag og súld aftur á miðvikudag með
6 stiga hita.
Eyjamenn fá skýjaveður á morgun
og sunnudag en rigningu á mánudag
og 11 stiga hita. Alskýjað verður á
þriðjudag en rigning á miðvikudag-
inn.
Útlönd
Það er kalt víðast hvar í Evrópu
og jafnvel kaldara en hér á Fróni. í
Kaupmannahöfn er 9 stiga hiti og
súld og í París er 8 stiga hiti og líka
súld. Og það er heldur betur farið að
kólna á Spáni, einungis 16 stiga hiti
á Mallorca og þar er súld.
í New York er 19 stiga hiti og skýj-
að og í Los Angeles er 29 stiga hiti
og léttskýjað.
Galtarviti
1R
Raufarhöfn
» , v^5°
•j Sauðárkrókur
d7'
Egilsstaðir
Reykjavík
10°
Vestmannaeyjar
9° ®
LAU.
SUN.
MAN.
ÞRl.
MIÐ.
Veðurhorfur í Reykjavík næstu daga
Skýjað og sólskin
til skiptis
hiti mestur +1ö
minnstur +3“
Miit veður og
skúraleiðingar
hiti mestur +12°
minnstur +5°
Líkur á
rigningu
hiti mestur +10°
minnstur 4°
Stinningskaldi og
skúraleiðingar
hiti mestur +9°
minnstur +4°
Rigning og
kólnandi veður
hiti mestur +7°
minnstur +1°
Veðurhorfur á Islandi næstu daga
Miðað við veðurfarið aö
undanförnu mega íbúar höf-
uðborgarsvæðisins vel við
una hvað varðar útlitið fyrir
næstu viku. Búist er við
hægt hlýnandi veðri og um
helgina verður hitinn þetta
10°-12° að deginum og
sólskin á köflum. Ekki er
gert ráð fyrir neinu nætur-
frosti á höfuðborgarsvæð-
inu. Þokkalegasta helg-
arveður verður einnig víðast
hvar á landsbyggðinni og
hitinn gæti farið töluvert yfir
10° á Austurlandi. Það tekur
að þykkna í veðri upp úr
helginni og Norðlendingar
mega eiga von á éljagangi
um miðbik vikunnar.
STAÐIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Akureyri 7/1 hs 8/3hs 7/0as 6/1 as 4/-1sn
Egilsstaðir 7/3hs 9/2hs 7/1 sú 7/2as 3/-2sn
Galtarviti 11/4sk 11/5ri 9/4ri 7/2as 5/0ri
Hjarðarnes 10/4hs 11/4hs 10/3sú 8/3as 6/1 ri
Keflavflv. 11/5sk 12/6as 12/4ri 9/5ri 8/4ri
Kirkjubkl. 11/1 hs 10/3as 10/2sú 8/2as 6/0sú
Raufarhöfn 5/-1hs 7/1 as 4/-3sn 6/1 as 3/-3sn
Reykjavík 10/3hs 12/5hs 10/4as 9/4as 7/1 ri
Sauðárkrókur 7/1 hs 8/2hs 6/-1as 5/1 as 3/-2sn
Vestmannaey. 9/4sk 11/6as 11/5ri 8/4as 7/3ri
Skýringar á táknum
o he - heiðskírt
0 ls - léttskýjað
3 hs - hálfskýjað
sk - skýjað
as - alskýjað
ri - rigning
*^* sn - snjókoma
^ sú - súld
9 s - Skúrir
oo m i - Mistur
= þo - Þoka
þr - Þrumuveður
Veðurhorfur í útlöndum næstu daga
BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ. BORGIR LAU. SUN. MÁN. ÞRI. MIÐ.
Algan/e 20/9hs 21/9he 23/11hs 23/12hs 24/11he Malaga 21/12he 23/11he 24/1 Ohe 24/9he 23/1 Ohe
Amsterdam 8/2sú 9/0hs 9/3hs 10/4as 11/3hs Mallorca 16/8sú 14/7hs 13/7as 18/1 Ohs 19/11 hs
Barcelona 17/8su 16/6hs 18/5he 19/7he 21/9he Miami 29/22þr 29/22hs 29/23hs 30/21hs 29/20hs
Bergen 8/4ri 8/3sú 9/2hs 10/4as 11/3hs Montreal 9/2hs 6/3hs 5/-2he 8/0hs 10/2hs
Berlín 10/4ri 8/2hs 11/-1 hs 12/2hs 12/4hs Moskva 14/6sú 13/5sú 11/1 hs 12/3as 9/1 as
Chicago 13/3is 9/0hs 8/2as 10/5hs 12/4sú New York 19/8sk 16/7hs 14/4he 17/6hs 18/7hs
Dublin 9/-1hs 10/-2he 12/1hs 14/3hs 12/3hs Nuuk 0/-2as -1/-4sn 1/-2as 0/-4sn 1/-4sn
Feneyjar 11/7ri 10/6ri 14/8hs 15/7he 16/9hs Orlando 26/18hs 27/18hs 27/19hs 28/18hs 28/19hs
Frankfurt 10/3sú 10/1he 13/-1hs 14/5hs 13/7hs Osló 7/3sú 7/1 as 8/2hs 9/3as 8/1 hs
Glasgow 9/2hs 9/1 he 11/2hs 12/4hs 13/5hs París 8/2sú 9/-1 hs 12/3hs 14/3he 14/5hs
Hamborg 9/3ri 8/1 hs 10/2hs 11/4hs 13/5hs Reykjavík 10/3hs 12/5hs 10/4as 9/4as 7/1 ri
Helsinki 12/7ri 11/6ri 13/8as 13/7as 12/8sú Róm 17/IOsú 16/9þr 18/9sú 19/11 hs 21/1 Ohe
Kaupmannah. 9/2sú 7/1 ri 9/3as 10/5hs 10/6as Stokkhólmur 9/4sú 7/2sú 8/3as 9/3hs 9/4as
London 9/2sk 11/-1 hs 13/1hs 14/7hs 14/8hs Vín 11/4ri 9/4sú 10/-1hs 12/2hs 13/1 he
Los Angeles 29/17ls 27/17he 27/16he 28/16he 28/14he Winnipeg 1/-7as 1/-2hs 9/2hs 4/-1hs 6/0hs
Lúxemborg 8/3su 9/-1 hs 10/0he 10/-1he 12/3hs Þórshöfn 10/5IS 11/4he 10/5hs 10/5as 8/3as
Madrid 18/3sú 18/9he 19/7he 18/8hs 20/8he Þrándheimur 6/1 Is 4/0as 5/1 as 6/2as 6/3as