Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1992, Page 8
8
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1992.
Útlönd
Sérlegur sendimaður frá Sameinuðu þjóðunum 1 sáttaferð til Júgóslavíu:
Serbarnir enn ósáttir
við friðargæslulið SÞ
- stöðugar skærur í landinu þrátt fyrir að vopnahlé teljist 1 gildi
„Þaö er mikið starf enn óunnið
þangað til unnt verður að senda frið-
argæsluliö frá Sameinuðu þjóðunum
til Júgóslavíu,“ sagði Marrack Go-
ulding, aðatoðarmaður fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
þegar hann kom í sérstaka friðarfór
til Júgóslavíu.
Áætlun SÞ um frið milli Serba og
Króata strandar á því að skæruliðar
Serba í Króatíu geta ekki sætt sig við
afskipti utanaðkomandi aöila af deilu
þeirra. Serbarnir telja að framtíð
þeirra sé ótrygg innan sjálfstæðrar
Króatíu og vilja halda því landi sem
unnist hefur í bardögum síðustu
mánuði.
Serbar hafa um þriðjung Króatíu á
valdi sínu og neita að samþykkja
hugmyndir um að friðargæsluhð SÞ
taki sér stöðu við landamæri Serbíu
og Króatíu eins og þau voru áður en
átökin hófust í sumar. Serbar viija
að víglínan eins og hún er nú verið
látin ráða.
Stöðugar skærur eru milli Serba
og Króata þrátt fyrir vopnahlé sem
staðið hefur í 23 daga. í gær sprungu
sprengjur í bæjum Króata við strönd
Adríahafsins og einnig kom til skot-
bardaga í bæjum innar í landinu. Þá
er vaxandi ótti við að átökin breiðist
úr til Bosníu-Herzegóvínu. Reuter
Króatar búast enn við langvarandi átökum í landi sínu þrátt fyrir tilraunir Sameinuðu þjóðanna og Evrópubanda-
lagsins til að koma á friöi. Hér má sjá liðsforingja kenna nýliðum að fara með sprengjuvörpu. Símamynd Reuter
MANSTU UTSOLUNA OKKAR I FYRRA?
UTSALAN
hef st á
mánudag
kl. 9.00
10% staðgreiöslu-
afslátturaf
öðrum vörum
skíðaga|lar
^frar^rur
Ballet,a,"fUr
ipróttaga'13!
Iþro
ttaskor
UTSALA
Skólavörðustíg 14 - Símar: 24 5 20 & 1 70 54
EES:
EB hef ur
engalausn
Samningamenn Evrópubandalags-
ins og EFTA eru nú í kapphlaupi við
tímann til að reyna að bjarga áætlun-
um um evrópskt efnahagssvæði,
EES, eftir að dómstóll EB lýsti sam-
komuiagið frá í haust ógiit. Viðræður
hefjast aftur í þessari viku og lausn
verður aö flnnast ef takast á að und-
irrita samkomulagið í næsta mánuði.
Embættismenn EB sögðu hins veg-
ar í gær að þeir hefðu ekki neina
lausn á reiöum höndum.
Evrópudómstóllinn komst að þeirri
niðurstöðu í desember að samkomu-
lagið, sem hafði tekist um EES,
stríddi gegn Rómarsáttmálanum,
stofnskrá EB. Samningamenn EB
hétu því þá að þeir mundu finna
llausn á málinu svo hægt yrði að
undirrita samkomuiag í febrúar.
Því lengur sem það dregst að finna
lausn á EES-málinu þeim mun minni
líkur eru á að samkomulagið geti
tekið gildi þann 1. janúar 1993, eins
og áformað er. Menn telja nú þegar
að EES verði ekki langlíft þar sem
tvö EFTA-ríkjanna, Svíþjóð og Aust-
urríki, hafa sótt um inngöngu í EB
ogtvöönnureruvolg. Reuter
íransstjóm:
Býðurí
vísindamenn
Breska blaöið Sunday Times sagði
í gær að komið hefðu fram beinar
sannanir fyrir því að stjórnvöld í ír-
an hefðu boðiö í kjamorkuvísinda-
menn frá fyrrum Sovétríkjunum.
„Nokkrir vísindamenn hafa þegar
farið til írans en ekki er vitað hvort
þeir undirrituðu samninga," sagöi i
frétt blaösins.
Heimildarmenn segja að íranir hafi
einbeitt sér að vísindamönnum frá
íslömskum Sovétlýðveldum og þeim
hafi verið boðin rúm milijón króna
á mánuði. Reuter
Majorsofnaðiá
fyrstasfefnu-
mótinu
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, var trúr litleysisí-
mynd sinni í gær þegar hann við-
urkenndi í vinsælum útvarps-
þætti aö hann hefði sofnað á
fyrsta stefnumótinu við eigin-
konu sína.
Stefhumótið átti sér stað í Co-
vent Garden óperuimi í London
árið 1970 og fóru þau skötuhjú að
horfa á Luciu de Lammermoor
eftir Donizetti. Major var hins
vegar svo þreyttur eftir langa
fundarsetu að honum rann í
brjóst.
I þætti þessum, þar sem fyrir-
menni brynna oft á tíðum músum
þegar þau minnast liðinna daga,
var Major stífur og kom fyrir sem
hinn trausti fjölskyldufaðir sem
á sér fá áhugamál utan stjóm-
málanna.
Sjómenn vilja
verameðíum-
hverfismálum
Sjö samtök sjávarútvegsins á
Norðurlöndum eru sammála um
að samhæfa afskipti sín af um-
hverfisverndarmálum. Þau krefj-
ast þess að fá að vera með í ráðum
í hverju landi fyrir sig þegar hug-
að er að vemdun sjávarins og
stefna um skynsamlega fiskveiði-
stefnu er mótuð.
Á fundi í Þrándheimí sam-
þykktu þau ályktun sem beint er
til umhverfis- og sjávarútvegs-
ráðherra Norðurlanda áður en
þeir halda á umhverflsmálaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Brasiliu. Samtökinleggja áherslu
á að auðæfi sjávar verði nýtt sam-
kvæmt tillögum vísindamanna
en að einnig veröi tekíð tillit til
reynslu og þekkingar sem sjó-
menn hafa aflaö sér.
Dýrmæthandrit
Mozartsogfleiri
brunnu
Ómetanleg handrit af verkum
eftir Mozart, Beethoven, Puccini
og Chopin brunnu til kaldra kola
í Los Angeles um helgina þegar
byggingin þar sem þau voru
geymd varð eldi að bráð.
Meðal þess sem einnig glataðist
vom bréf sem þýska tónskáldið
Richard Wagner og ítalski tenór-
inn Enrico Caruso skrifuðu, svo
og tónleikaskrá Metropolitan
ópemnnar i New York frá 1884
til vorra daga.
Tjónið á byggingunni og hand-
ritunum er metið á um fjögur
hundmö milljónir króna. Þó svo
að tónskáldin hafí ekki skrifað
nótumar með eigin hendi höfðu
þau þó undirritað þær.
ísmaðurinn
reyndistverafrá
steinöld
Kolefnisgreining á múmíu
foms veiðimanns, sem fannst í
Alpafjöllunum í fyrra, leiddi í Ijós
að maðurinn gæti verið frá stein-
öld eða allt að 5500 ára gamall,
eða nær þúsund árum eldri en
upphaflega var talið.
Walter Leitner frá háskólanum
í Innsbruck í Austurríki sagði að
síðustu niðurstöður rannsókn-
anna bentu til aö hann væri 4931
til 5500 ára gamall.
Múmían, sem var 160 sentí-
metrar á hæð, var íklædd saum-
uðum skinnfótum og var raeð
boga og örvamæli þegar hún
faxmst. Vísindamenn telja þetta
elsta og best varðveitta eintak af
fommanni sem fundist hefur.
Rannsóknimar vora fram-
kvæmdar í París og Uppsölum.
Reuterog NTB