Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1992, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1992, Side 30
42 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1992. Fólk í fréttum dv Fríða Fríða Áslaug Sigurðardóttir rithöf- undur, Eyktarási 12, Reykjavík, hlaut Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs í ár fyrir bók sína Meðan nóttin líður. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Norræna hús- inu á fimmtudaginn var eins og fram kom í DV-frétt daginn eftir. Starfsferill Fríða fæddist að Hesteyri við Hest- eyrarfjörð 11.12.1940 og ólst þar upp til fimm ára aldurs en flutti þá með fjöldskyldu sinni til Keflavíkur. Hún stundaði menntaskólanám á Laugarvatni í tvo vetur, bjó á ísafiröi veturinn 1958-59 en flutti til Reykjavíkur næsta sumar og hefur búiðþarsíðan. Fríða tók stúdentspróf frá ML 1961, BA-próf frá HÍ í íslensku og bókasafnsfræðum 1971 og cand. mag. próf í íslenskum fræðum 1978. Á námsárunum starfaði Fríða m.a. við bókasafn Menningarstofn- unar Bandaríkjanna, Háskólabóka- Á. Sig safnið og afgreiðslustörf í bóka- verslunum. Rit Fríðu: Leikrit Jökuls Jakobs- sonar, kandidatsritgerð 1980; Þetta er ekkert alvarlegt, smásagnasafn 1980; Sólin og skugginn, skáldsaga 1981; Við gluggann, skáldsaga 1984, - Eins og hafið, skáldsaga, 1986 og Meðan nóttin hður, skáldsaga 1990. Af þýðingum'Fríðu má m.a. nefna Furður veraldar eftir Arthur C. Clark, 1983; Lestarferðina, ungl- ingasögu eftir T. Degens, 1984; Þjóð bjamarins mikla eftir Jean Auel, 1986, barnasöguna Ferðina til Kalaj- oki og í góðu hjónabandi eftir Doris Lessing. Fríða hlaut styrk Rithöfundasjóðs ríkisútvarpsins í ársbyrjun 1989, ís- lensku bókmenntaverðlaunin 1990 ogmenningarverðlaun DV í bók- menntum 1991. Fjölskylda Maður Fríöu er Gunnar Ásgeirs- son, f. 9.8.1937, skólastjóri Réttar- urðar holtsskólans. Foreldrar Gunnars: Ásgeir Jóhannesson, pípulagninga- meistari á isafirði, sem lést 1990, og Þuríður Eðvald Jónsdóttir húsmóð- ir. Fríða og Gunnar eiga tvo syni. Þeir eru Asgeir, f. 30.1.1959, líffræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, og Björn Siguröur, f. 2.9.1970, háskóla- nemi. Fríða er næstyngst þrettán systk- ina. Systkini hennar: Jakobína, f. 1918, rithöfundur í Garði í Mývatns- sveit; Sigurborg Rakel, f. 1919, hús- freyja í Grænuhlíð við Reyðarfjörð; Ólafía Ásdís, f. 1920, húsmóðir í Reykjavík; Sigríður Stefanía, f. 1922, húsmóðir í Keflavík; Sigurður Kristján, f. 1923, d. 1934; Kristján Stefán, f. 1924, yfirlæknir Sjúkra- hússins í Keflavík; Ingólfur Mar- teinn, f. 1926, d. 1971, trésmíðameist- ari í Reykjavík; Baldvin Lúövík, f. 1928, d. 1990, vaktmaður hjá Eim- skipafélagi íslands í Reykjavík; Guðmundur Jóhann, f. 1929, d. 1979, dóttir skipasmiður í Keflavík, síðar bú- settur í Reykjavík; Guðrún Rósa, f. 1930, húsmóðir í Kópavogi; Guðni Kjartans, f. 1931, d. 1936, og Guðný Sigrún, f. 1945, húsmóðir og skrif- stofumaður á Skagaströnd. Foreldrar Fríðu voru Sigurður Sigurösson, f. 28.3.1892, d. 9.5.1968, b. í Hælavík og síðar símstöðvar- stjóri á Hesteyri, og kona hans, Stef- anía Halldóra Guðnadóttir, f. 22.6. 1897, d. 17.11.1973, húsfreyja. Ætt Foreldrar Sigurðar voru Sigurður Friðriksson, b. á Læk, og Kristín Amórsdóttir, b. í Rekavík, Ebenez- erssonar, b. á Dynjanda, Ebenezers- sonar, b. í Efri-Miðvík, Jónssonar, sammæðra bróður Jóns Thorkelins, prófessors og leyndarskjalavarðar. Friðrik var b. í Rekavík, Einars- son, b. á Horni, Sigurðssonar, b. þar, Pálssonar, b. í Reykjarfirði á Ströndum, Björnssonar, ættföður Pálsættar. ypyjr> * tajBsagi ■ «gS&gRfij | Mp''*». . Friöa Áslaug Sigurðardóttir. Systir Stefaníu Halldóru var Ingi- björg, móðir Þórleifs Bjarnasonar, námstjóra og rithöfundar, föður Friðriks Guðna skálds. Stefanía var dóttir Guðna, b. í Hælavík, Kjartanssonar, b. á Atla- stöðum, Ólafssonar. Móðir Kjartan var Soffíá Jónsdóttir, b. á Steinólfs- stöðum, Einarssonar, og konu hans Guðrúnar Lárentínusardóttur, b. á Hóh í Bolungarvík, Erlendssonar, sýslumanns á Hóh, Ólafssonar, bróður Grunnavíkur-Jóns. s Afmæli Svavar Guðmundsson Svavar Guðmundsson kennari, Birkihvammi 14, Kópavogi, er sex- tugurídag. Starfsferill Svavar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1949, kennaraprófi 1952, handíða- kennaraprófi 1953 og fór námsferð til Danmerkur 1952. Hann stundaði dansnámskeiö við íþróttakennara- skóla íslands 1962 og 1965, stundaði enskunám við Georgetown Univers- ity í Washington DC1966 og nám í æfingakennslu og dansi við Uni- versity of Nebraska og Provo School og Utah og víðar í Bandaríkjunum 1966-67, auk þess sem hann hefur sótt fjölda námskeiða hér heima og erlendis. Svavar var kennari við Miðbæjar- skólann í Reykjavík 1952-64, við KÍ 1964-70 og hefur verið kennari við Æfingaskóla KHÍ frá 1970. Svavar var á yngri árum einn af aðalkennurum Þjóðdansafélags Reykjavíkur og hefur kennt þar dans af og til síðan. Hann sat í stjórn Kennarafélags Miðbæjarskólans 1954-56, í stjóm Stéttarfélags barna- kennara í Reykjavík 1956-58 og í stjóm Þjóðdansafélags Reykjavíkur 1953-55 og 1957-59. Hann er einn af stofnendum Félags áhugamanna í steinafræði og var ritari þess 1983-84. Fjölskylda Svavar kvæntist 8.9.1964 Rósu Guðmundsdóttur, f. 26.9.1929, kenn- ara. Hún er dóttir Guömundar Magnússonar, b. á Eyjólfsstöðum á Fossárdal í Berufirði, og konu hans, Margrétar Guðmundsdóttur hús- freyju. Dóttir Svavars og Rósu er Margrét Svavarsdóttir, f. 6.4.1965, húsmóðir í Kópavogi, gift Guðjóni Steingrími Birgissyni tónlistarnema og eiga þau einn son, Tuma, f. 1987. Svavar átti einn bróður. Sá var Helgi Guömundsson, f. 25.10.1936, d. 30.11.1984, bankaritari í Reykja- vík. Foreldrar Svavars: Guðmundur Ingólfur Guðjónsson, f. 14.3.1904, d. 22.4.1971, skólastjóri Æfinga- og tilraunaskóla KHI og höfundur fjölda forskriftarbóka, og fyrri kona hans, Jenný Lárusdóttir Schiöth, f. 8.5.1909, húsmóðir í Reykjavík. Eftirlifandi seinni kona Guð- mundar er Ólöf Sigurrós Ólafsdótt- ir, f. 21.2.1910, húsmóðir í Reykja- vík. Ætt Guðmundur var sonur Guðjóns, b. í Arnkötludal, bróður Sigrúnar, ömmu Huldu Jensdóttur hjúkmn- arforstjóra og Haraldar Sumarliða- sonar, forseta Iðnaðarsambandsins. Guðjón var sonur Guðmundar, b. í Arnkötludal í Strandasýslu, Sæ- mundssonar, b. á Gautshamri, Björnssonar, prests í Tröllatungu, langafa Margrétar, langömmu Sig- hvats Björgvinssnar heilbrigðisráð- herra. Björn var bróðir Jóns í Skál- holtsvík, forfoður Lýðs Björnssonar sagnfræðings og Þórs Magnússonar þjóðmjnjavarðar. Björn var sonur Hjálmars, prests í Tröllatungu og ættfoöur Tröllatungættarinnar, Þorsteinssonar. Móðir Sæmundar var Valgerður Björnsdóttir, systir Finnboga, verslunarmanns í Reykjavík, langafa Finnboga Rúts prófessors, fóður Vigdísar forseta. Móðir Guðmundar skólastjóra var Helga Jóhannsdóttir frá Svanshóli. Jenný er dóttir Lámsar, b. á Hliði, síðast í Selskarði á Álftanesi, Ás- bjarnarsonar, b. og homopata á Urr- iðaá á Mýrum, Magnússonar, b. í Hamrakoti í Andakíl, Magnússonar. Móðir Ásbjarnar var Kristín Sigurð- ardóttir. Móðir Lárusar var Guð- rúnar, systir Jóns í Hákoti á Akra- nesi, langafa Ásmundar Stefánsson- ar, forseta ASÍ. Guðrún var dóttir Ásmundar, b. í Miðvogi á Akranesi, Jónssonar. Móðir Ásmundar í Mið- vogi var Guðrún Ásmundsdóttir, b. á Elínarhöfða á Akranesi, Jörgens- en Klingenberg, ættföður Klingen- bergættarinnar. Móðir Jörgensen Klingenberg var Steinunn Ás- mundsdóttir, systir Sigurðar í Ás- garði, langafa Jóns forseta og Tóm- asar Sæmundssonar Fjölnismanns. Svavar Guðmundsson. Móðir Jennýjar Schiöth var Helga Guðrún Sigurðardóttir, steinsmiðs í Reykjavík, þess sem steypti fyrsta kalksteypuhúsið á Norðurlöndum að Görðum á Akranesi og fyrsta steinsteypuhúsið á ísiandi, í Sveina- tungu í Norðurárdal, Hanssonar, í Reykjavík, Jónssonar. Móðir Hans var Karen Schiöth á Kumbaravogi, ættuö frá Sjálandi. Móðir Sigurðar var Guðríður Aradóttir. Móðir Helgu Guðrúnar var Guðbjörg Guð- mundsdóttir. Svavar verður að heiman á afmæl- isdaginn. Til hamingju með afmælið 27. janúar Petra G. Stefánsdóttir Petra Guðrún Stefánsdóttir hús- móðir, Heiðarhrauni 41, Grindavík, ersjötugídag. Starfsferill Petra fæddist að Amarstöðum í Núpasveit, N-Þingeyjarsýslu, og ólst þar upp til ellefu ára aldurs en eftir það að Grjótnesi á Melrakkasléttu hjá Birni St. Guðmundssyni bónda og Aðalbjörgu Pálsdóttur ljósmóð- ur. Hún var við nám í Húsmæðra- skóla Reykjavíkur 1942-43, Leks- sands Husmoderskole 1946 og Stock- holms Tillskárar Akademi 1947. Tveir síðamefndu skólamir em í Svíþjóð. Petra vann við verslunarstörf og fleira í Reykjavík til 1953 en þá flutti hún til Grindavíkur. Þar var hún fyrst ráðskona en síðan með eigin verslunarrekstur til 1970. Petra starfaði eftir það hjá Kaupfélagi Suðumesja í Grindavík, sem ráðs- kona hjá Þorbimi hf. í Grindavík og handavinnukerínari við Grunn- skóla Grindavíkur 1982-89. Fjölskylda Petra giftist 24.5.1957 Hjalta Magnússyni, f. 6.4.1923, starfs- manni hjá Orkuveri Hitaveitu Suð- urnesja, Svartsengi. Foreldrar hans: Magnús Guðmundsson, bóndi, Nausthvammi í Norðfirði, og Anna GuðrúnAradóttir. Börn Petru og Hjalta: Stefanía Björg, f. 19.10.1952, skrifstofumaður og húsmóðir, maki Ólafur Þorgeirs- son bílstjóri, þau eigafjögur börn, Hjalta, látinn, Jón Þór, Ragnheiði Þóm og Petru Rós; Magnús Andri, f. 23.7.1958, sölumaður, maki Hjört- fríður Jónsdóttir kjólameistari, þau eiga þijú böm, Emu Rún, Berglindi Önnu og nýfæddan dreng. Petra og Hjalti eiga þijú bamabamaböm. Systkini Petm: Gunnþómnn Ingi- björg, látin; Ólafur Þorsteinn; Val- gerður; Þóra Steinunn; Þómnn Emelía (tvíburasystir Petru); Hall- dór Gunnar; Halldór Ólafs; Jón Gunnlaugur; Ingibjörg; Bragi. Hálf- systir Petra, samfeðra: Oktavía Erla. Petra Guðrún Stefánsdóttir. Foreldrar Petru: Stefán Tómas- son, f. 4.3.1891, d. 19.2.1967, bóndi og síðar starfsmaður Þjóðleikhúss- ins, og Oktavía Stefanía Ólafsdóttir, f. 30.9.1891, d. 4.1.1934, húsmóðir, en þau bjuggu að Arnarstöðum í Núpasveit. Petra dvelur hjá dóttursyni sínum í Svíþjóð á afmælisdaginn. 85 ára Magnea Friðriksdóttir, Faxabraut 5f, Keflavík. Ólafur Jónsson, Kirkjuvegi 48, Keflavík. 80 ára Elín Valdimarsdóttir, Iöufelli 8, Reykjavík. 70 ára Gunnar B. Ólafsson, Háfshjáleigu, Djúpárhreppi. Emilia Stefánsdóttir, Hrafnagilsstræti 19, Akureyri. 60 ára Steinar Sigurðsson, Götu,Hvolhreppi. 50ára Hreiðar Gunnarsson, Fjaröargötu 53, Þingey ri. Jón Þórarinn Eggertsson, Eyri, Strandarhreppi. Viktor Þór Úraníusson, Amartanga 76, Mosfellsbæ. 40ára Elsle Tangoiamos, Torfufelli 25, Reykjavik. Finnbogi Halidórsson, Ihrauntúni 45, Vestmannaeyjum. Ólafur Guðmundsson, Langholtsvegi 7, Reykjavík. Björn Bjömsson, Fannafold 169, Reykjavik. Margrét Bjartmarsdótttir, Sandhólum, Tjörneshreppi. Svavar Garðarsson, Sunnubraut 11, Búðardal. Egill Már Guðmundsson, Skólavörðustig43, Reykjavík. Guðmundur Baldursson, Kirkjuferju, Þorlákshöih. Bernard Ropa, Smáravegi 6, Dalvík. Stefán Jónsson, Óðinsvöllum 8, Keflavík. SigfúsSigfússon, HIíðargötu3a, Neskaupstað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.