Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1992, Side 13
MÁNUDAGUR 2. MARS 1992.
13
Sviðsljós
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, heilsar hér upp á tvo lögfræðinga
frá New York, Jonathan Fuchs og Sam Hagm.
Árshátíð Flugleiða
Flugleiðir héldu sína árlegu árshá-
tíð á Hótel íslandi um helgina og var
þar mikið um dýrðir. Fólk skrýddist
sínu fínasta pússi svo þetta var sann-
kallað „Gala“ kvöld, kvenfólkið í síð-
kjólum og karlmennimir í smóking.
Rúmlega 600 manns voru í mat um
kvöldið og nutu í kjölfarið fjöl-
breyttra skemmtiatriða. Það var
stjórn Flugleiða og sérstök skemmti-
nefnd sem sáu um fjörið og fluttu
m.a. annál ársins þar sem gert var
grín að öllu og öllum.
Karlakór Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna söng þama ennfremur í
fyrsta skipti opinberlega og starfs-
menn fluttu frumsamin skemmtiat-
riði við góðar undirtektir gesta.
Flugfreyjurnar létu sig að sjálfsögðu ekki vanta. F.v.: Sigurlaug Guðbjörns-
dóttir og Oddný Björgólfsdóttir. DV-myndir Hanna
„Rósa í baði“ nefndist eitt skemmtiatriðanna sem gerði mikla lukku.
DV-myndir Ægir
Hjónaball
í Skrúð
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Hjónabalhð, sem nú éi1 orðinn fast-
ur hður í tilverunni hér á Fáskrúðs-
firði, var haldið í félagsheimilinu
Skrúð þann 8. febrúar síðastliðinn.
Að sögn Nönnu S. Baldursdóttur í
Baldurshaga hefur ballið verið hald-
ið svo til óslitið frá 1940, það fyrsta
í stofum Franska spítalans.
Dregið er í hjónaballsnefnd úr
nöfnum ballgesta og sér hún svo um
allan undirbúninginn. Skemmtunin
hófst að venju með borðhaldi og gátu
gestimir að þessu sinni vahð úr 20
réttum sem framreiddir vom af mat-
reiðslumeisturum Hótel Eghsbúðar í
Neskaupstað.
Þá flutti fráfarandi hjónabahs-
nefnd ásamt fleirum heimathbúin
skemmtiatriði sem féhu í góðan jarð-
veg og mikið var hlegið að.
Veislustjóri kvöldsins var Gísh
Jónatansson og það var hljómsveit
Hauks H. Þorvaldssonar sem lék fyr-
ir dansi.
Þrúgur reiðinnar
- frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýndi fyrir skömmu leikrit sem
byggt er á hinni frægu bók
Johns Steinbeck, Þrúgum reið-
innar.
Mikið fjölmenni var á frum-
sýningunni og er þegar uppselt
eitthvað fram í tímann enda hér
um að ræða síght verk í
skemmtilegri uppsetningu.
KK, eða Kristján Kristjáns-
son, var th að mynda fenginn
th að sjá um tóidistina í leikrit-
inu og stendur sig þar með mik-
illi prýði.
í stuttu máh fjallar leikritið
um baráttu þeirra fjölskyldna
sem hraktar voru frá heimhum
sínum í kjölfar mikiha þurrka
í miðríkjum Bandaríkjanna á
4. tug aldarinnar.
Sigríður Hagalín leikkona stendur hér á milli frú Vigdísar Finnbogadóttur
og Kaisu Koronen sem er finnskur leikstjóri. DV-myndir Hanna
Kjartan Ragnarsson, leikstjóri
verksins, heilsar hér upp á Hönnu
Maríu Karlsdóttur leikkonu.
Valdimar Örn Flygenring fær hér
koss frá konu sinni, Ásdísi Sigurð-
ardóttir, að frumsýningu lokinni en
hann fer með eitt aðalhlutverkið í
verkinu.
KK, hress að vanda og með gítar-
inn innan seilingar. Með honum á
myndinni er Karl Guðmundsson.
Hér er aðeins lítið sýnishorn
m:
(takmarkað magn) Áður Nú
Hægindastólar, comet-leður, 4 litir 55.000 27.900
Sófasett, Dahli, 3-1-1, margir litir 176.000 88.000
Hjónarúm, hvítt, 160 og 180x200, m/náttb., án dýnu 69.000 34.500
Barna- og unglingarúm, 90x200, m/hillu + 2 skúffum, án dýnu 34.000 17.500
Sófasett, svart leður, 3-1-1, Speyer, Kati 230.000 150.000
Hillur, Plaza, hvitar og svartar 18.800 11.900
Skrifborð, Marga, 50x120 16.500 9.900
Skrifborðsstólar f. börn og ungl., Emely 9.500 4.900
Klappstólar, Eric, Cindy 3.200 1.500
Hjónarúm m/náttb., án dýna, hvitlakkaður askur 69.000 39.800
Lítil sófasett, 2-1-1 54.600 36.600
Beykikommóða, 11 skúffur 36.200 24.500
Hornsófar, 3-H-2 127.000 79.600
Skrifborð, Ijós eik, 160x75 72.400 45.800
Furusvefnsófi 43.400 28.000
Stakir 3ja sæta sófar, gæsadúnspúðar 68.600 42.800
Sófaborð með glerplötu 17.500 9.700
Svefnsófar 40.200 27.500
XIVI - HÚSGÖGN
SIÐUMÚLA 30 SIMÍ 686822
Opið mánudaga-föstudaga 9-18
laugardaga kl. 10—17
sunnudaga kl. 14-17