Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1992, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 1992.
11
Áhorfendurnir hristu sig og skóku í takt við tónlistina. DV-myndir BG
Hitthúsið:
Átta hljómsveit-
ir með tónleika
Átta hljómsveitir, sem haft hafa
aöstöðu til æfinga í Hinu húsinu í
vetur, efndu til tónleika í síðustu
viku þar sem á annað hundrað
manns mættu til að fylgjast með.
Hljómsveitirnar eru allar ungl-
ingahljómsveitir, meðlimir þeirra
eru á aldrinum 14-19 ára, og spila
allar eins konar þungarokk eða
rokk. Þær heita: Cremation, Cra-
nium, Goblin, Inflammetory, Talis-
man, Extermination, Viral Infecti-
on og Clockwork Diabolus.
Mikið fjör var á tónleikunum og
áberandi hve áhorfendurnir tóku
virkan þátt í tónlistinni. Þeir stóðu
fyrir framan sviðið og hristu höfuð-
ið í gríð og erg á milli þess sem
þeir dönsuðu svokallaðan „slam“
dans en hann felst í því að hrista
sig til og frá og fleygja sér utan í
næsta mann.
Allur ágóði af tónleikunum, ef
einhver er, fer í tækjakaup hljóms-
veitanna.
Sviðsljós
íslendingum gefst æ sjaldnar
kostur á að fara á tónleika með
Sykurmolunum hér á landi þar
sem þeir hafa verið með annan
fótinn erlendis imi alllangt skeið
og því létu gestir Borgarinnar það
ekki á sig fá þó þeir þyrftu að
bíða hátt á annan tíma eftir
hljómsveitinni á fostudaginn.
Troðfullt var út úr dyrum og fer
ekki á milli mála að Sykurmol-
amir eiga sér stóran aðdáenda-
hóp hér á landi en tónleikamir á
Borginni vom þeir fyrstu í fyrir-
huguðu tónleikaferðalagi þeirra
um Evrópu og Bandaríkin.
Næstu tónleikar verða í Verk-
menntaskólanum á Akureyri í
kvöld og síðan halda Molamir til
útlanda.
Um þessar mundir syngja þeir
aðallega lög af nýútkomnum plöt-
um sínum, litlu plötunni Hit og
stóru plötunni Stick around for
joy en eins og flestum er kunnugt
hafa þær fengið afar góðar við-
tökur erlendis.
DV-myndir GVA
Sykurmolarn-
ir á Borginni
Hilmar Elvarsson syngur og spilar
á gítar með hljómsveitinni Cre-
mation.
Diðrik Jón, söngvari hljómsveitar-
innar Extermination, syngur hér
af innlifun. Tónlistina kalla þeir
„grindcore trash.“
RYMINGARSALAN HELDUR ATRAM
Tilvaldar fermingargjafir eins og
Orðabókin og Passíusálmarnir
á mjög hagstæðu verði.
Opið virka daga frá 9 -17.
jrnnr
Bókaúfgáfa j
/MENNING4RSJÓÐS|
SKÁLHOLTSSTiG 7 • REYKJAVÍK |
^SÍMI^ _621822_ __ J
TOYOTA
GANG
BRETTI OG
STRÍPUR
• Vönduö gangbretti úr áli á mjög góöu verði.
• Toyota "strípur" á Double Cab, Xtra Cab
og 4 Runner. Ýmsar geröir, margir litir.
Úrvalsvara - aðaleinkenni Toyota aukahluta.
8 Nýttu þér ráðgjöf okkar og sendingarþjónustu.
! Œ) TOYOTA
Aukahlutir
NÝBÝLAVEGI 6-8 KÓP. SÍMI 44144