Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Qupperneq 10
26
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1992.
r
*
r
4
íi
)
r
4
HEIMILINU ?
A Glæsilegur
M geisladiskastandur
»j lýsir góðri umgengni
{ viö góða tónlist.
^ Verö kr. 9.900,-
HæS 150 cm.
SUVJ
SKIPAR
TÓNLISTIN
HÁAN SESS
/
A
\
‘í
V
J
i~+
*
í
!<
•>
•>
/
8 ‘ /
< »5
« >
FAXAFENI 9
SÍMI 679399
BRÉFASÍMI 679344
r r 0 *
Endurski
í skam
Hljómtæki
Kaplar:
Tegundir
Þaö fást nokkrar tegundir
hJjómtækjakapla og tengja hér.
Verða nokkrar þeirra nefndar
hér, og eins verð, tíl að sýna
hlustendum að bæta má hljóm-
gæði tækjanna heima í stofu
með tiltölulega litlum tilkostn-
aði, samanborið við verð tækj-
anna.
Taktur er með Audio Spec
kapla og tengi. Kaplamir kosta
á bilinu 120-390 krónur metrinn
sem verður að teljast ódýrt.
Bananatengi fyrir hátalara má
fá 4 í pakka á um 1600 krónur.
Taktur er einnig með fullbúna
tækjakapla, QED, frá geislaspil-
ara til magnara, á um 2400
krónur.
Japis er með kapla irá Audio-
Technica. Þeir kosta um
170-1120 krónur metrinn. Japis
vekur sérstaklega athygli á
tengjum frá svissneska fram-
leiðandanum Neutrik. Parið
kostar 1060 krónur.
Steini er með þýska kapla og
tengi frá Oehibachkabel. Kapl-
amir kosta 200-1600 krónur
metrinn. 4 kapaltengi í pakka
kosta rúmar 2 þúsund krónur.
Þá er Steini með bananatengi á
ágætuverðl -hlh
Góðir kaplar milli hljómtækja auðvelda upplýsingunum að komast leiðar sinnar og stórbæta oft hljómgæðin
fyrir vikið. Hérlendis má fá úrvals hljómtækjakapla - oft á ágætis veröi. DV-mynd Brynjar Gauti
Góðir kaplar
gera gæfumiminn
- geta gefíð hljómtækjum nýtt líf
Það ætti ekki aö veíjast fyrir
neinum sem skipt hefur á snúrum,
sem oft fylgja hljómtækjum við
kaup, og góðum hljómtækjaköpl-
um að kaplamir gera gæfumuninn.
Það er mikill misskilningur að
snúra sé bara snúra, ef heyrist í
græjunum séu snúrumar nógu
góðar. Með góðum, sérhönnuðum
köplum geta ágætis hljómtæki öðl-
ast nýtt líf og veitt eigandanum
mun meiri ánægju en hann var
aðnjótandi fyrir skiptin.
Þó þráðlaus hljómtæki séu farin
að birtast á markaðnum er megin-
þorri hljómtækja tengdur saman
með snúrum og köplum. Kaplarnir
skiptast annars vegar í kapla milli
tækjanna sjálfra, tækjakapla, sem
liggja til dæmis milli geislaspilara
og magnara, og hins vegar í kapla
milli magnara og hátalara, hátal-
arakapla.
Það ætti að vera augljóst að þvi
minni hindranir sem verða á vegi
merkjanna milli tækjanna því
meiri upplýsingar skila sér inn í
eymagöng hlustandans.
Grannar snúrur, sem oft fylgja
hljómtækjum við kaup, koma tón-
list til skila, mikil ósköp. Þær eru
hins vegar oft svo grannar að
merki sem eru í kaplinum, af hárri
og lágri tíðni, eru alltaf að rekast
á, upplýsingaflæðið lendir í óþarfa
torfærum. Til eru margar tegundir
af vönduðum köplum, bæði grönn-
um og þykkum, dýrum og ódýrum.
Séu þeir vandaðir komast upplýs-
ingamar milli tækja án teljanlegra
hindrana. Mun meiri upplýsingar
komast til skila.
Hvað þýðir það? Jú, hljómgæðin
batna yffrleitt til muna, breytingin
getur á stundum verið byltingar-
kennd. Tónlistin öðlast 1 langflest-
um tilfellum meiri og betri dýpt og
þrívíddarmyndin batnar til muna.
Upplausnin, aögreining hljóðfæra,
verður betri og eins stereomyndin.
Iftjómtæki, sem áður skiluðu
ágætri tónlist en kannski heldur
flatri, fá nýtt líf við góða kapla.
Tónlistin verður lifandi og hinar
mismunandi eigindir hennar njóta
sín mun betur en áður. Fyrir lítinn
pening má gera umbætur sem gera
vangaveltur um nýjan geislaspil-
ara eða hátalara kannski óþarfar.
Eins og áður sagði em til margar
mismunandi tegundir af köplum.
Vert er að hafa í huga að dýmstu
kaplamir em alls ekki trygging
fyrir mestum gæðum. Á því er allur
gangur.
Plögg
En það er ekki nóg að verða sér
úti um kapal. Á kapalendana þarf
plögg eða innstungur sem stungið
er 1 tækin. Hérlendis má fá mjög
vönduð plögg á ágætu verði. Plögg-
in þarf að lóða fost en það bjóða
verkstæði viðkomandi verslana yf-
irleitt upp á. Góð plögg em oftast
gullhúöuð á snertiflöhmum til að
gefa sem best samband. Tengi
hljómtækja em mismunandi aö
gerð en starfsmenn hijómtækja-
verslana eiga að leiðbeina hlust-
endum í þeim efnum.
Mismunur
Best er að hafa hljómtækja-
kaplana eins stutta og kostur er.
Það á líka við um hátalarakapla.
Því lengri vegalengd sem upplýs-
ingamar þurfa að fara því meiri
kröfur gerir það til gæða kaplanna.
Ýmis ráð em gefin varðandi lagn-
ingu hátalarakapla. Ráðlegast er
að hafa kaplana í vinstri og hægri
hátalara jafnlanga. Varast verður
að tengja þá vitlaust. Plús (rauður)
verður að fara í plús og mínus
(svartur/hvítur) í mínus. Þetta á
auðvitað einnig við um tækja-
kaplana.
Mismunur er á hljóðrænum eig-
inleikum kapla. Sumir skila betri
bassa en aörir og svo framvegis.
Vilji hlustendur vanda valið er um
að gera að prófa sig áfram.
-hlh