Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1992. 27 Hljómtæki Fyrst er að velja vlðartegund við hæfi. Botnplatan er skorin sam- kvæmt málunum á myndinni, 15x30 sentímetrar. Listarnir eru 18 miflímetra háir og 15 millimetra breiðir. 5-diska geislaspilari og plötuspilari í sama tækinu. Fisher G-5 samstæða. Upptaka á geisladiska Hefðbundnir geislaspilarar með möguleika á upptöku sem ætlaðir eru almenningi, CD-R, eru í þann mund að verða fullhannaðir hjá mörgum af helstu hljómtækjafram- leiðendum heims. „Prototýpur" eða frumgerðir hafa verið til sýnis á hljómtækjasýningum undanfarið. Philips hefur hannað tiltölulega ódýr upptökutæki sem framleiðend- ur víðs vegar eru að reyna, þar á meðal Marantz. Sony og fleiri fram- leiðendur segjast vera meö dýran upptökugeislaspilara á leiðinni með- an þeir hjá Kenwood halda því fram að þeir séu með einn tiltölulega ódýr- an. 3.500-35.000 pund, 350 þúsund til 3,5 milljónir króna, hafá verið nefnd sem verð fyrir upptökugeislaspilara. Búist er við að upptökugeislaspil- arar, ef þeir fást á viðráðanlegu veröi, verði helstu upptökutækin á heimilum í framtíðinni. Minidiskur- inn frá Sony mun ekki státa af hljóm- gæðum eins og í stofunni og hljóm- gæði stafrænu snældunnar (DCC) frá Phihps hafa ekki verið reynd. Geisladiskur til upptöku hefur ýmsa kosti sem atvinnumenn geta ekki síður nýtt sér en almenningur, meðal annars útvarpsstöðvár. Disk- ana þarf ekki að spóla til baka og þeir slitna ekki eins og segulbönd. Þá eyðast þeir ekki við síendurtekna notkun. Þá má nota í auglýsingastef, , jingles“, eða til söfnunar upplýsinga og geymslu. Breska útvarpið, BBC, mun vera byijað að nota þessa diska fyrir efni. Diskamir eru enn frekar dýrir, kosta um 20 pund (2000 krónur) stykkið. Ýmsir fylgihlutir geta lagað hljómgæðin: Hátalarastatíf geta hamið bassann Til eru ótal fylgihlutir sem geta lagað eða bætt hljómgæði hljóm- tækja. Meðal þeirra sem þykja skipta hvað mestu máli eru hátail- arastatíf og sérsmíðaðar tækjahill- ur. Sæmilega þung hátalarastatíf sem standa á pinnum og hafa pinna fyrir hátalarana eru ákjósanleg til að hemja bassahljóm hátalara. Há- talararnir eru þá á föstum og traustum undirstöðum sem tryggja að hreyfiáhrif bassaeiningarinnar verða sem minnst, þaö er þegar hún gengur út og inn og titrar við spilun. Annar augljós kostur er hámarkseinangrun frá umhverf- inu þannig aö endurvarpi og titr- ingi sem berst út í umhverfið er haldið í algeru lágmarki. Endur- varpið í herberginu eða stofunni verður minna og það sem meira er - nágrannamir verða ekki fyrir jafn miklu ónæði. Hátalarastatíf fást í ýmsum gerð- um og stærðum og kosta frá um 2.000-16.000 krónum parið. Góð hátalarastatíf eru smíðuö úr hljóð- dauðu efni og til að auka stöðug- leika þeirra enn frekar eru þau í sumum tilfellum fyllt meö þurrk- uðum sandi eða blýi. Vilji menn hlífa parketinu við pinnunum má setja gúmmítutlur eða tappa undir pinnana. Auk statífanna má fá einnig fá pinna sem skrúfað er upp í botn hátalaranna eða keilulaga pinna meö gúmbotni sem hátalaramir standa síðan á. Þessir síðastnefndu geta verið ákjósanlegir fyrir hátal- ara í hillum. Góö undirstaða er einnig ákjós- anleg fyrir hljómtækin, bæði spil- ara og magnara. Framleidd em sérsmiðuð hljómtækjaborð eða hillur þar sem gert er ráð fyrir hefðbundnum plötuspilara efst. Plötuspilarahillunni er tyllt á pinna sem eru stillanlegir svo hill- an geti verið fullkomlega lárétt. Furðudeildin Auk þessara heíðbundnu fylgi- hluta má finna ýmsa undirfurðu- lega hluti í búöum. Hvort áhrifin em sálræn eða ekki er alveg á huldu en víst er að oft þykjast hlustendur merkja breytingu á hljómgæðum vegna furðulegustu hluta. Þegar skýra á áhrif þessara hluta komast fjölfróðustu menn hins vegar fljótt í þrot. Þannig er þekkt sagan af manninum sem bætti hljómgæði hátalaranna sinna með því að setja fullar trópífemur ofan á þá. Enginn kann að skýra af hveiju hljómgæðin breyttust. í verslunum má fá græna hringi sem hmdir em á geisladiska. Græni liturinn er sagður dempa endurkast frá geislanum sem les upplýsingar frá diskinum. Þannig lét einn hlustandi sér ekki nægja að hafa grænan hring á diskunum heldur málaði hann diskskúffuna í spilaranum sínum græna að innan. Viti menn, hann sagði hljómgæðin hafa lagast. Það má endalaust segja frá uppá- tækjum sem þessum en í lokin skal minnst á eina hugmynd bresks hljómtækjafíkils. Hann sagði betri hljómgæði fást úr plötuspilaranum sínum þegar hann klæddist ullar- háleistum við hlustun. -hlh Hátalarastatíf af gerðinni Target. Statífið nær stendur á hvolfi og sjást pinnaoddarnir greinilega. Pinnana má skrúfa til sé gólfflöturinn ójafn. Par eins og þetta kostar um 14 þúsund krónur. DV-mynd Brynjar Gauti Sjónvarpsmiðstöðin: Samstæður frá Fisher Meöal nýjunga í hljómtækjum frá Fisher er 5-diska geislaspilari og plötuspilari í einu og sama tækinu, Fisher DAC-9025. Þessi merkilegi spilari fæst sem hluti af samstæðu frá Fisher, M-9040, sem kostar 89.950 krónur staðgreidd. Plötuspil- arinn er hálfsjálfvirkur. Geislaspil- arinn er ætlaður venjulegum geisladiskum og einnig hinum minni. Geislaspilarinn er búinn helstu möguleikum sem geislaspil- arar almennt eru. Magnari stæð- unnar er 300 vatta með 5 banda tónjafnara. Þá er útvarp með FM, langbylgju og miðbylgju, 30 stöðva minni og sjálfvirkum stöðvaleitara. Með stæðunni fylgja 200 vatta þrí- skiptir hátalarar og fiarstýring. Fisher G-5 samstæðan er ekki mikil um sig, aðeins 22 sentímetrar á breidd. í henni er útvarp með FM, langbylgju og miðbylgju, 36 stöðva minni og sjálfvirkum stöðvaleitara. Magnarinn er 130 vatta með 7 banda tónjafnara. Þá er í stæðunni tvöfalt snældutæki með sjálfvirk- um snældusnúningi. Þá fylgja 70 vatta þrískiptir hátalarar og þráð- laus fiarstýring. Þessi netta stæða kostar 75.950 krónur staðgreidd. Fermingarstæða Sjónvarpsmið- stöðvarinnar í ár er Fisher MC-929. Hún fæst með og án geislaspilara. Án hans kostar hún 35.550 krónur staðgreidd en með honum 49.500 krónur staögreidd. í stæðunni er hálfsjálfvirkur plötuspilari, útvarp með FM, lang- bylgju og miðbylgju, 30 stöðva minni og sjálfvirkum stöðvaleitara. Magnarinn er 60 vatta með 5 banda tónjafnara. Segulbandið er tvöfalt og stæðunni er stýrt með þráð- lausri fiarstýringu. Með fylgja 110 vatta þrískiptir hátalarar. Sjónvarpsmiðstööin er með mik- ið úrval hljómtækjasamstæðna á verði allt frá 21.900 krónum. 30 cm Kaupa má alls kyns statíf fyrir geisladiska í hljómtækja- og hjóm- plötuverslunum. Þau eru oftast úr plasti og geta verið prýðileg til sins brúks. Þyki mönnum þau statlf ekki vera fyrir sinn smekk geta jieir far- ið aðra leið og hreinlega smíðað sér stæði fyrir geisladiskana sína. Séu menn sæmilega verklagnir geta þeir smíðað sér svona stæði með lítOli fyrirhöfn. Myndirnar hér sýna hvernig ganga á til verks- ins. Mælt er með því að málunum sé nákvæmlega fylgt. / L~ ^\ ^ J.1 ///// E T _ _ $ iBnmii ei a ■ h5 15 ÍÍ mm mm Llstunum er tyllt með Ifml og þess gætt að 15 mllllmetrar séu á milli þeirra. Plötunni er síðan hvolft og litlir naglar negldtr i gegn, i listana. Dlskastæðíð tekur 14 einfalda geisladlska, 7 í hverja röð. Dlsk- arnir sitja þannig að auðvelt er að fletta i gegnum þá í leit að til- teknum diski.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.